Ég auglýsi eftir skónum mínum!

Fyrir mörgum árum varð ég fyrir því óláni, þegar ég fór í sjúkraheimsókn á Sjúkrahúsið á Sauðárkróki að skónum mínum var „stolið“ meðan ég staldraði við. Ekki er líklegt að þessi Kóreanski skósmiður hafi verið þar að verki því „þjófurinn“ var svo hugulsamur að skilja skóna sína eftir, svona sem sárabætur.

Mínir skór voru rétt viku gamlir, nýburstaðir og glansandi en það sama var ekki hægt að segja um hitt skóparið. Þeir voru eins og mínir en hið minnsta 3 númerum stærri, greinilega einhverjum árum eldri og af útliti og lykt var ekki annað ráðið en þeir hefðu ítrekað lagt leið sína í gegnum einhvern fjóshauginn í Skagafirðinum.

En hafi þessir skór sem við mér blöstu passað á fætur  eiganda síns þá er mér hulin ráðgáta hvernig hann gat troðið sér í mína. Það hefur verið kómísk sjón að sjá þennan vin minn hökta burtu í allt of litlum skóm eða þá mig  tipla bálillan á sokkaleistunum út í bíl.   


mbl.is Stal 1200 pörum af skóm
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er enn 2007 á Álftanesi?

Ég hef fulla samúð með íbúum Álftaness, hvernig komið er fyrir sveitarfélaginu. En mér finnst það frekar klént að reka hálfgerðan áróður fyrir því að fólk flytji heimilisföng sín úr sveitarfélaginu til að losna undan auknum gjöldum. 

Ætlar þetta „flóttafólk“ síðan að búa áfram í sveitarfélaginu og þiggja áfram þjónustu  þar, þó skert sé en greiða gjöld sín í staðin til annarra sveitarfélaga sem enga þjónustu veita þeim?

Fyrir það fyrsta er það ólöglegt, lögheimili á hver að hafa þar sem hann hefur búsetu.

Í öðru lagi fækkar með þessu þeim sem undir álögunum standa þó þeim fækki ekki sem þjónustu sveitarfélagsins þiggja og lengir þann tíma sem viðreisnin tekur.

Þeir sem þannig renna af hólmi færa sínar byrgðar yfir á nágranna sína sem ætla að standa keikir. Ekki stórmannlegt það.

Ef brask og fjárfestingar sveitarfélagsins hefðu farið á betri veg og skilað góðum arði hefðu þessir „flóttamenn“ væntanlega ekki haft neitt á móti því að þiggja arðinn og hagnaðinn í formi lægri gjalda, en þegar illa fór þá er sjálfsagt að velta tapinu og kostnaðinum yfir á aðra.

Ég hélt satt að segja, eftir það sem á undan er gengið, að 2007 hugsunarhátturinn væri liðin tíð, en hann lifir greinilega enn góðu lífi meðal íbúa Álftaness, sumra hverra að minnsta kosti.


mbl.is Íbúar Álftaness búnir að fá nóg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að eiga sex konur...

...eins og segir í fréttinni er algerlega passlegt. Það gerir eina á dag og svo halda menn hvíldardaginn heilagan. Óþarfi að hýða manninn fyrir það.

 

Það er rétt að enda þessa karlrembufærslu á því að óska öllum íslenskum fljóðum til hamingju með daginn!

rós2


mbl.is Hýddur fyrir að eiga sex konur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fékk Silfurbjörninn fyrir nauðgun

Hvernig hugsa menn eiginlega í kvikmyndabransanum? Er þeim ekkert ógeðfellt?

Er hugsunarlaust og kinnroðalaust medalíum og verðlaunum ausið yfir barnaníðinga og þvíumlíka, hafi þeir aðeins þjónað kvikmyndagerðinni og listinni sem slíkri?  

Það er greinilega ekki sama hver nauðgar og hverjum?

 
mbl.is Polanski vann Silfurbjörninn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kópavogur flokkar í endurvinnslu og förgun.

Það er vert að óska Ármanni Kr. Ólafssyni og Kópavogsbúum til hamingju. Ég hef ekki ástæðu til að ætla annað en Ármann sé heiðarlegur og gegnheill stjórnmálamaður.

Því var hvíslað að mér áðan að Kópavogsbúar væru mjög umhverfisvænir og flokkuðu allt endurnýtanlegt úr ruslinu,  áður en því væri hent í gráu tunnuna.

Gefum Gunnari orðið;

Svo mörg voru þau orð.

 
mbl.is Ármann sigraði í prófkjörinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú verður bassinn...

sparka í klof

...settur í botn og ......... búmmmm ....... Sjálfstæðisflokkurinn í Kópavogi  „býður fram klofið“, hversu geðslegt sem það kann svo að vera.

.

.

.

.

Mátti til að bæta í færsluna smá myndbandi.


mbl.is Ármann öruggur í 1. sæti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að skjóta sig í fótinn !

Er hægt að skjóta sig í fótinn með öllu skýrari hætti? Gömlu konunni er vorkunn, en ekki er mikið spunnið í lögfræðinginn sem fer með málið fyrir dóm með þetta sem aðalröksemd.

Hver má?

Það væru ýkjur að segja að hugmyndir um rannsókn á aðdraganda og tilkomu stuðningsyfirlýsingar Íslendinga við innrásina í Írak vektu hrifningu í Valhöll. Enda bjargföst skoðun ábúenda að undir engum kringumstæðum megi velta við steinum kringum sjálfan...

Ögmundur á móti ESB, hvenær gerðist það?

Flestum sæmilega skýrum Íslendingum er löngu ljóst hver afstaða Ögmundar er til Evrópusambandsins og vonlítið að þar verði nokkur breyting á, sama hvað upp kemur. Öll umræða um afstöðu Ögmundar er því þarflaus og tímasóun ein. Það er því merkilegt hvað...

Batnandi manni ...... ?

Enginn kemst um þessar mundir með tærnar þar sem Sigmundur Davíð hefur hælana í pólitísku drulluköku kasti, bæði í magni og gæðum. Það var því óneytanlega dulítið skondið að sjá í kvöld viðtal við Sigmund Davíð í 10 fréttum Sjónvarpsins, þar sem hann...

Hvort er meira þriðjaheims ríki, Chile eða Ísland?

Er þetta ekki undarlegur heimur? Í Chile suður verða þau pínlegu, en um leið spaugilegu, mistök að einn stafur í nafni landsins misritast í myntsláttunni. Enginn efnahagslegur skaði verður af þessu nema síður sé. Myntin sem slík er líkleg til að verða...

Ætli ....

...samninganefndin verði send í pósti.... í sparnaðarskyni? Það væri nú eftir öðru.

Vá!

................................................................................!?

Sannkallað eyrnakonfekt

Vonandi fáum við notið frammúrskarandi sönglistar þeirra Álftagerðisbræðra um mörg ókomin ár. Það er á engan hallað þótt ég fullyrði að hér séu tærir snillingar á ferð sem verða seint eða aldrei toppaðir.

Smá „jókur“

Ansi smellið atriði.

Er nokkur ástæða.....

....til að efast um að manngarmurinn mæti sjálfum sér af fullri hörku, gefi ekkert eftir og gæti hagsmuna allra til hins ýtrasta? Nema hvað!

Barnagælan Ósómi bin Laden

Mikill misskilningur hefur nú verið leiðréttur. Í ljós er komið að Ósómi bin Laden er ekki sá argi óþverri og óforskammaði morðingi sem hann hefur verið talin vera. Binni Lati mun víst vera mannvinur hinn mesti sem verður að halda á lífi sem lengst, því...

Ég játa!

Ég hef ekkert bréf fengið frá Rannsóknarnefnd Alþingis, þótt ég hafi steypt mér á óábyrgan hátt út í neyslukapphlaupið og keypt mér flatskjá um mitt sumar 2008. Ég staðgreiddi hann að vísu eins og alla mína verslun s.l. 8 ár. En ég játa, að með þessum...

Skiptar skoðanir...... já einmitt!

Erfitt er að átta sig á því hverju það skiptir okkur Íslendinga hvort þeirra hafði sigur í forsetakosningunum í Úkraínu, Vikto Janúkovits eða Júlía Tímósjenkó. En fullljóst er hver afstaða Morgunblaðsins og hjáleigu hans er til frambjóðenda þar eystra....

Gjafmildi

Mér datt í hug að mikið væri það gott ef Íslenskir auðmenn fengju sömu flugu í höfuðið og þessi Austurríski miljónamæringur og gæfu eigur sínar. En við nánari hugsun sá ég að þetta væri fullkomið bull hjá mér. Íslenskir auðmenn eiga ekkert, virðast...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.