Enga Vítispúka hingað.

Það er vissulega átakanlegt ef lög eru brotin á löghlýðnu og friðelskandi fólki. Því er það skiljanlegt að lögmanni  Vítispúkans sé verulega misboðið, því skjólstæðingur hans hefur, að sögn lögmannsins, hreina sakaskrá á Íslandi, þótt því sé víst ekki að heilsa í Noregi.

Ég hefði talið að lögmaðurinn ætti að fagna þeim ásetningi Íslenskra stjórnvalda að sakavottorð skjólstæðings hans verði áfram hreint á Íslandi.


mbl.is Vísa Vítisengli úr landi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Læra börnin ekki það sem fyrir þeim er haft?

Ekkert er ógeðslegra en þegar fólk beitir sín eigin börn ofbeldi, svo ekki sé talað um pyntingar eða kynferðislega misnotkun.

Lægra verður ekki lagst.

Er ekki yndislegt þegar stjórnarstofnanir eins og CIA geta miðlað "unaðslegri" þekkingu sinni til almennings? 


mbl.is Beitti 4 ára dóttur sín vatnspyntingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Haugrottur" og önnur meindýr.

utvarpsagaEkki ríður við einteyming bullið á Útvarpi Sögu. Arnþrúður Karlsdóttir fer hamförum, ill, örg og öfugsnúin út í allt og alla. Það var samt á vissan hátt unun að hlusta á þátt þeirra Arnþrúðar og Péturs milli 4 og 5 í dag.

Í þessum þætti sínum þá sitja þau hjúin og spinna samsæriskenningar hvort í kappi við annað og þar er tilgangurinn algerlega látinn helga meðalið.

Þema þáttarins var þjóðstjórnardraumórar þeirra hjúa, sem þau ein hafa ekki enn áttað sig á að er tálsýnin ein.

Arnþrúður komst á þvílíkt flug í þættinum í dag að Pétur náði ekki að fylgja henni eftir og varð að láta sér nægja að humma og skjóta inn einu og einu ha? þegar jafnvel skilningi hans var ofaukið.

Þau tóku viðtal við Sigmund Davíð sem kannaðist ekki við eitt né neitt, játaði hvorki né neitaði. Út frá þessu viðtali dró Arnþrúður þær ályktanir sem henni hentaði.

Arnþrúður er meira að segja komin með skiptingu ráðuneyta og ráðherralista í þessu hugarfóstri sínu!!!!!!    Þeir sem fylgst hafa með stjórnarmyndunum vita að ráðherrar eru ekki ákveðnir fyrr en allt annað liggur á borðinu og stjórnarmyndun, stjórnarsáttmáli og skipting ráðuneyta hefur verið handsalað.

Þetta veit "haugrottan" Arnþrúður Karlsdóttir, en lætur þess ógetið því það passar ekki inní þessa samsæriskenningu hennar.

Rjóminn í þessari kenningu var að Jóhanna Sigurðardóttir hætti sem ráðherra og við forsætisráðherraembættinu tæki Sigmundur Davíð Sigmundsson.

 HA HA HA HA HA HA HA HA HA hafið þið heyrt hann betri?

   
mbl.is Biðla til Framsóknarmanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frú Palin forseti?

 palinMiðað við frammistöðu frúarinnar sem varaforsetaefni Repúblikana í síðustu forsetakosningum verður ekki séð að hún eigi yfir höfuð nokkurt erindi í pólitík og útilokað að hún valdi embætti forseta Bandaríkjanna. 

 

Bandaríska þjóðin þyrfti að vera geggjuð til að kjósa hana yfir sig. En allt er greinilega mögulegt í þessum efnum vestanhafs, því þessi sama þjóð kaus George W. Busch yfir sig – TVISVAR!

.

  
mbl.is Palin útilokar ekki forsetaframboð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Virkar þetta?

Þetta er undarleg og líklega mjög vanhugsuð aðferð hjá konunum til að auka lýðræði í karlaþjóðfélagi.

Líklegt má telja að þetta hvetji karlrembur frekar til skerðingar á lýðræðið, í stað þess að auka það,  verði það til þess að konur fari almennt að hlaupa um hálf- eða  alnaktar.

Nema auðvitað að þeir sem með völdin fara í Úkraínu séu hommar upp til hópa.

 
mbl.is Hálfnaktar konur mótmæla í Úkraínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ólag hefur riðið yfir.

Öll lögin í keppninni í ár báru í sér feigðina. Ekkert þeirra var lífvænlegt. Þrátt fyrir linnulausa spilun er ekkert lagana sem komust í sex laga úrslitin nálagt því að geta lifað deginum lengur. 

Keppnin í ár var óvenju slöpp, þar lagðist allt á eitt rétt eins og um afburðaslappan árgang í víni væri að ræða.

Ég held að einu hafi gilt hvaða lag af þessum sex sigraði, ekkert þeirra hefur afl til að skila okkur uppúr undankeppninni.  Punktur og basta.

Þá gengur bara betur næst.

 
mbl.is Hera Björk fulltrúi Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vissulega jákvætt og skref í rétta átt....

....en eftir sem áður verða til næg kjarnorkuvopn til að eyða öllu lífi á Jörðu mörgum sinnum. Meðan svo er verður fækkunin haldlaus í sjálfu sér, hún verður aldrei annað en táknræn. . .

Lýgur Sigurður Pétur líka núna?

Ekki þekki ég málavöxtu í þessu máli nægjanlega til að geta dæmt hvort þeirra fari með rétt mál Sigurður Pétur eða Soffía. En hitt veit ég eftir að hafa tvisvar haft afskipti af Sigurði Pétri að fyrir honum er það ekkert vandamál að hagræða sannleikanum....

„Ég verð að segja það.“

Að Steingrími Hermannssyni látnum er genginn einn merkasti stjórnmálamaður síðustu aldar. Um það verður vart deilt, þótt skoðanir hafi oft verið skiptar um manninn og verk hans eins og gengur. Steingrímur var einkar laginn að sameina ólík sjónarmið og...

Leiðin til himna

Er ekki rétt að tileinka Degi og öðrum sem klífa metorðastigana í prófkjörum þessa dagana lagið Stairway to Heaven með Led Zeppelin En því miður liggur það ekki fyrir öllum að fara upp stigann.

Minnimáttarkennd

Margir hafa fallið í þá gryfju að reyna að nota nöfn og ímynd stórmenna til að upphefja eigin vesaldóm eða meðalmennsku. Dan Quayle varaforseti Bush eldri reið ekki feitum hesti frá þeim mistökum sínum að líkja sér við Jack Kennedy forseta í...

Að mála sig út í horn

Húðflúr getur verið skemmtilegt og fallegt, kunni fólk sér hófs. Lítið fallegt og vel gert húðflúr getur verið til yndis og fegurðarauka. En þegar húðflúrið sem slíkt hefur tekið völdin og líkaminn orðinn aukaatriðið er skörin farin að færast upp í...

Svarti-Pétur

Skiptar skoðanir eru um það erlendis, ekkert síður en hér á landi, hvort við eigum yfir höfuð að borga helv. Icesave-skömmina. Pétur H. Blöndal er talsmaður þess að við eigum, ýmist að borga eða ekki borga. Pétur, sem þessa stundina telur að við eigum...

Er Bjarni Ben fær um að ganga örna sinna hjálparlaust?

Hringlandaháttur Sjálfstæðismanna, með formanninn í broddi fylkingar, í Icesave málinu er með ólíkindum, nú fá þeir enn eina hugdettuna, en hver skyndihugdettan og töfralausnin eftir aðra hefur poppað upp allt eftir því hvaðan vindurinn blés. Skoðum...

Pétur Pan

Pétur H. Blöndal, ötull talsmaður tjáningarfrelsis og lýðræðislegra starfshátta hefur miklar áhyggjur af því að tjáningarfrelsið verði notað í aðdraganda kosninganna. Ef fylgjendur lagana fái að halda tjáningarfrelsi sínu muni það skekkja mjög stöðuna,...

Virðingarverðir morðingjar??

Hún er afskaplega þreytandi síendurtekin nauðgun Íslenskra fjölmiðla á virðingarávarpinu HERRA! Hvað ofan í annað eru forhertir ofstopaglæpamenn og hryðjuverkamenn sem ganga um eyðandi hendi, nauðgandi og myrðandi, kallaðir í íslenskum fjölmiðlum...

Grái fiðringurinn skekur Bretland.

Hver er þungamiðjan í þessu meinta hneyksli? Er það sú óhugnarlega staðreynd að þetta var 58 ára þingkona og 19 ára elskhugi en ekki það „sjálfsagða og eðlilega“, 58 ára þingmaður og 19 ára ástkona? Eða er það sú staðreynd að Guðhræddir...

Skyldulesning

Mér er bæði ljúft og skylt að benda á feikna vel skrifaða og dúndurgóða grein Árna Gunnarssonar um forseta Íslenska lýðveldisins.

Vaxandi skilningur á stöðu Íslands

Það er greinilegt að fréttir erlendis um orsök og afleiðingar synjunar forsetans á síðustu útgáfu Icesave eru mjög að mildast, og í auknum mæli hafa einstaklingar og fréttastofur tekið upp hanskann fyrir okkur. Margir, þar á meðal undirritaður, hafa með...

„Frændur okkar......“

Það er margt sem bendir til þess að hiksti komi í lánalínur Norðurlandana til okkar, sem þá aftur stöðvar frekari lánveitingar AGS. Það er deginum ljósara að hið svokallaða Norðurlandasamstarf heyrir sögunni til, a.m.k. í þeirri mynd sem verið hefur fram...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband