Af reyknum skaltu þekkja þá
11.6.2009 | 18:21
Þegar ég kom fyrst til Grikklands, þ.e.a.s. Krítar árið 2000 þá vakti það athygli mína að allstaðar var reykt. Bankagjaldkerar voru með rettuna í munnvikinu og púuðu reyknum á viðskiptavinina í kapp við talningu á seðlunum.
Jafnvel þjónar á veitingarstöðum reyktu meðan þegar þeir tóku við pöntunum eða báru fram matinn.
Þegar ég kom næst til Krítar 2004 hafði verulega dregið úr þessum ósið.
Ég hef heimsótt Krít á hverju ári síðan þá. Stöðugt hefur dregið úr opinberum reykingum með hverju árinu. Nú get ég ekki merkt annað en sömu viðhorf séu til reykinga þar og hér gerist.
Á Krít býr eitthvert besta og vingjarnlegasta fólk sem ég hef kynnst, þar er dásamlegt að dveljast.
![]() |
Drepa í rettunum 1. júlí |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 18:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Rokkið er Íslenskur útflutningur
11.6.2009 | 16:52
Kanarnir fundu ekki upp rokkið, ef þannig má að orði komast.
Nú er ljóst að það barst með Íslenskum útrásarvíkingum til Ameríku í árdaga og varðveittist þar.
Leifum okkur að kalla það heppni.
![]() |
Víkingarnir hlustuðu á rokk |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 17:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Vilhjálmur þú ert flottur!
11.6.2009 | 16:07
Vilhjálmur Bjarnason, framkvæmdastjóri Samtaka fjárfesta og lektor við Háskóla Íslands er sá maður Íslenskur sem ég hef borið hvað mesta virðingu fyrir síðustu misseri.
Hann hefur verið óþreytandi að vekja athygli á öllu mögulegu, sem betur hefði mátt fara í fjármálaumhverfinu síðustu árin.
Enginn hefur komist með tærnar þar sem Vilhjálmur hefur hælana á því sviði.
Takk Vilhjálmur.
![]() |
Óskar eftir rannsókn á lánum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Hvað gerðist?
11.6.2009 | 14:51
Eitthvað hefur klikkað hjá Egyptum. Þeir slátruðu öllum svínum í landinu til varna gegn flensunni, en samt kemur hún óbermið að tarna.
Æ,ææ,æ.
![]() |
Nýtt flensutilfelli í Egyptalandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
„Já ráðherra“
11.6.2009 | 13:22
Eru embættismenn eitthvert sérstakt mannkyn? Það er yfirleitt talað um þennan flokk manna eins og þeir standi til hliðar og tilheyri ekki okkur hinum og séu nánast ósnertanlegir. Þeir sjálfir eru hvað best meðvitaðir um þennan skilning.
Þetta núverandi fyrirkomulag kann að vera skýringin á því hvers vegna margir embættismenn telja sig þess umkomna að koma fram við fólk fullir hroka, stærilætis og drýginda.
Ég er fullkomlega sammála Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra að núverandi fyrirkomulag um embættismenn sé óviðunandi, en er henni ósammála að endurskoða þurfi kerfið. Kerfið þarf að brjóta niður og endurbyggja frá grunni.

Af hverju ætti skipun til 5 ára að vera meginreglan. Er ekki eðlilegast að þessir menn (og konur) séu ekki skipaðir heldur ráðnir rétt eins og aðrir og sagt upp rétt eins og öðrum með venjulegum fyrirvara?
Hvað ráðuneytisstjóra snertir er núverandi kerfi heimskan ein. Það er ljóst að þær stöður eru hápólitískar. Eðlilegast er að hver ráðherra skipi sinn ráðuneytisstjóra við komu sína í ráðuneytið, en þurfi ekki að sitja uppi með jafnvel pólitískan andstæðing sinn sem verkstjóra. Mann sem ekki hefur minnsta snefil af áhuga á því sem ráðherrann er að gera.
Þegar því er svo haldið því fram að fagmennskan ein ráði störfum ráðuneytisstjóra og persónulegar skoðanir þeirra og aðrir mannlegir þættir hafi ekkert að segja, er það í besta falli barnaskapur og einfeldni.
![]() |
Vill endurskoða reglur um embættismenn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Laus til leigu eða kaups.
11.6.2009 | 11:26
Fjölmiðlafulltrúi Hilton fjölskyldunnar hefur látið þau boð út ganga að snótin Paris Hilton sé á laus til leigu eða kaups. Hún mun vera nýuppgerð og yfirfarin yst sem innst.
Áhugasamir vinsamlegast snúi sér til.....
Þá mun fjölskylda hennar fagna því að tekist hafi að rifta samningi hennar og fyrri notanda. Því hann hafi aðeins verið að notfæra sér þessa hlédrægu og saklausu sveita snót til að vekja athygli á sjálfum sér.
Já..... það sem fólki dettur í hug.
![]() |
Paris laus á ný |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 12:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Scapaflóa nautið - „Der Stier von Scapa Flow“
10.6.2009 | 19:43
Vísindi og fræði | Breytt 11.6.2009 kl. 15:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Kirkjubændur?
10.6.2009 | 16:08
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 16:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Það þykir örlítið skrítið .......
10.6.2009 | 00:22
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 02:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það er fullkomlega eðlileg skýring á því......
9.6.2009 | 21:08
Var ekki Gunnar bæjó......
9.6.2009 | 16:42
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fólk byrjað að greiða inná Icesave
8.6.2009 | 17:21
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Kýrskír kýr
8.6.2009 | 16:36
Sjálftöku samráðsolíufélögin.
8.6.2009 | 13:25
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 13:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Eru Danir að kjósa um jafnrétti og jöfnuð í dag?
7.6.2009 | 13:23
Það er spurning hvort frétt um.....
7.6.2009 | 11:58
Öðruvísi mér áður brá
6.6.2009 | 11:16
Löggæsla | Breytt s.d. kl. 11:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Lausn á vandanum?
6.6.2009 | 09:19
Sumir vilja meina að.....
6.6.2009 | 02:03
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 02:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Er þá réttlætinu fullnægt?
5.6.2009 | 23:00