Gordon Brown ætlar ekki.....

  

Peter-Brookes-carto_524040a.

.

.

.

.

.

.

.

.

...að láta af embætti.

Þvert á móti þá boðar hann pólitíska hreingerningu!

Verði ykkur að góðu!


mbl.is Gordon Brown ætlar ekki að víkja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sparnaðartillaga, allrar athygli verð.

Í símatíma á útvarpi Sögu í morgun kom hlustandi með hugmynd, sem er allrar athygli verð, til sparnaðar hjá ríkinu.

ekki eesStórfé mætti t.d. spara í fangelsismálum. Í stað rándýrrar vistunar í yfirfullu fangelsi, mætti gera mönnum þá refsingu fyrir afbrotin að þurfa daglega að hlusta á upptökur af pistlum Jóns Vals Jenssonar á útvarpi Sögu.

Þetta er óvitlaus hugmynd sem hægt er að framkvæma með tiltölulega einföldum búnaði. En til að þetta flokkist ekki undir pyntingar má dagleg spilun ekki vara nema nokkrar mínútur.

Það mun án efa halda mönnum á sporinu, eigi þeir von á að fá Jón Val í eyrað fyrirvaralaust, bregði þeir út af.

Því miður fann ég ekki betri mynd af Jóni, vona að mér fyrirgefist það.


Mæl þú.....

 

....manna heilust Ragna Árnadóttir, dómsmálaráðherra!

Hlúum að löggæslu til lands og sjávar.


mbl.is Mikilvægt að hlúa vel að lögreglunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við megum ekki spara, okkur til skaða.

 

vardskip_framan_storTil allrar lukku varð ekki manntjón þegar hafn-  sögubátnum hvolfdi við björgun togarans Sóleyjar Sigurjóns af strandstað fyrr í dag.

Varðskipið Týr og Norska varðskipið Harstad náðu togaranum á flot. Óvíst er að það hefði tekist, hefði Harstad ekki notið við. 

Harstad er systurskip nýja varðskipsins Þórs, sem er í smíðum fyrir Landhelgisgæsluna í Chile. Aðkoma Harstad að strandinu sýnir hversu brýn þörfin er orðin á svo öflugu nýju skipi.   

Fiskiskip okkar eru orðin það stór sum hver að varðskipin okkar, ráða hreinlega ekki við svona verkefni. Svo ekki sé talað um stærri skip sem leið eiga um lögsögu okkar.

Það var lán í óláni að strandið varð þegar best var og blíðast. Oftar en ekki eru þær aðstæður að óveður er í aðsigi og aðeins nokkurra klukkutíma svigrúm til aðgerða.

Ef ekki hefði tekist að ná togaranum á flot og strandið fengið á sig storm hefði togarinn sennilega ónýst og þetta smá óhapp orðið að stórtjóni. Ef ekki er til í landinu öflugt björgunarskip, getur það orðið dýrt og of seint ef bíða þarf eftir skipi að utan til bjargar.

Því eru þær hugmyndir, sem heyrst hafa, að nýi  Þór komi ekki hingað heldur verði leigður Norsku strandgæslunni, í sparnaðar skyni, ekki aðeins stórundarlegar heldur beinlínis hættulegar.


mbl.is Hætt komnir þegar lóðsinn sökk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pétur hefur tilfinningar......

.....það sést best á því að honum svíður meira að sjá rifinn seðill en brostin hjörtu.


mbl.is Pétur er harmi lostinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tímamótaræða, orð í tíma töluð

barack-obamaRæða Obama Banda-  ríkjaforseta í Kaíró í morgun er tímamótaræða, sem getur orðið vísir að nýju upphafi, nýrri hugsun og nýtri framtíð.

Hér kveður við nýjan, gerbreyttan og ferskan tón frá Washington, tón sem jafnvel bjartsýnustu menn voru farnir að efast um að þaðan gæti komið.

Forsetinn kastar burt þeirri stefnu sem ríkjandi hefur verið vestur þar um langa hríð, stefnu þröngsýni, öfga, og forræðishyggju, stefnu sem aðeins gat alið á tortryggni, hatri og ofbeldi.

Forsetinn réttir fram sáttahönd, hönd vonar og bræðralags milli ólíkra menningar- og trúarsamfélaga.

Ég hygg að jafnvel kunni að líða einhver tími áður en öllum verði að fullu ljóst hversu risastórt og markvert skref Obama hefur stigið með þessari ræðu.

Fyrsta verk Obama, til að sýna að hugur fylgi máli, hlýtur að vera, að gera Ísraelsstjórn það fyllilega ljóst að sá tími sé liðinn að þeir geti farið sínu fram að vild. Þeim verði gerður sá eini kostur að skila herteknu landi, leggja af landtökubyggðir, tryggja Palestínumönnum sitt land og semja frið við sjálfstætt ríki Palestínu.

Gerist þetta ekki, verður þetta skref fram til friðar að risastökki afturábak.  Við heimsbyggðinni blasir þá  að þessi ræða hafi verið orðin tóm og þær vonir sem við hana vöknuðu, verið tálsýn ein.

 
mbl.is Obama hvetur til nýs upphafs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hrós dagsins.......

.........fær Lionsklúbburinn Eir fyrir stuðning sinn við fíkniefnadeild lögreglunnar.

Algert afturhvarf

Það verður gaman að sjá endurgerðina á framtíðarþrillernum Total Recall. Frummyndin þótti velheppnuð sem slík, en hún var barn síns tíma og hefur ekki elst sérlega vel. Endurgerðir kvikmynda eru erfitt verkefni. Það er alltaf spurning hvort fylgja eigi...

Made in China

Ætli fylgi með í kaupunum framleiðslusamningur á Hummer fyrir bandaríska herinn? Kínverjar framleiða þá hergögn fyrir kanann. Örugglega erfiður biti að kyngja fyrir stolta stráka. .

Við skulum vona að Kínverjarnir.........

.....spryngi ekki af illsku og vandlætingu. Það gæti orðið subbó. . .

Kínverjar, skiptið ykkur ekki af því sem ykkur kemur ekki við.

Flestum Íslendingum stendur hjartanlega á sama hvaða álit Kínverjar kunna að hafa á komu Dalai Lama hingað til lands og hverja hann hittir. Margir hægri menn hafa farið mikinn á blogginu og gagnrýnt Ríkisstjórnina fyrir að hafa ekki tekið á móti Dalai...

En hvað með kúbeinið..........

..... og lambhúshettuna, var þeim ekki líka sleppt eftir yfirheyrslur? Það er illt til þess að vita að menn séu sviptir tækjum sínum og tólum til að sjá sér og sínum farborða.

Blæðir bílaumboðunum út?

Það var ekki bara að bílaumboðin gerðu þessa rekstrarleigusamninga óþvinguð og af fúsum og frjálsum vilja, heldur stunduðu þau þetta viðskiptaform af miklu kappi. Ómældu fé var varið í auglýsingar og ýmsar fegrunaraðgerðir á þessu viðskiptaformi , í því...

Skiptir það máli......

.....hverslenskir farþegarnir voru? Breytir það vægi slyssins og frétta af því?

Allt tekur enda.

Skjálfta veislunni er að ljúka í Grindavík. Það þýðir að nú þarf ég aftur að hrista kokteilana mína sjálfur. . . .

Mr. Brown í bobba

Að Gordon Brown skuli telja það vænlegast í þröngri stöðu Verkamannaflokksins að henda ráðherrum, en sitja sjálfur, er svipað og líkamanum sé hent til að bjarga krabbameininu.

Súrmjólk í hádeginu.......

Það er greinilegt að boðið hefur verið upp á fleira en súrmjólk og Cornflakes í þessum 82.000, króna „morgunverði“. Það er gott að eiga góða að.

Jarðskjálfti

Hann var hressilegur kippurinn sem var að ríða yfir rétt í þessu í Grindavík.

Ef Bandarískir hagsmunir eru undir, er þá allt leyfilegt?

Bush hefur ekki einu sinni vit á að nýta sér það gullna tækifæri sem hann hefur til að gleymast. Að halda kjafti og láta lítið fyrir sér fara. „Ég hélt mig innan ramma lagana“ segir fíflið, en minnist ekki á að hann hafi fyrst víkkað ramma...

Hr. Seðlabúnt

Þessi Breski þingmaður, sem nú situr í súpunni, heitir skemmtilegu nafni, sem hæfir tilefninu. Mr. Bill Csah, sem í beinni þýðingu útlegðist sem Hr. Seðill Reyðufé eða hreinlega hr Seðlabúnt. Þetta minnir mig á prest norður í landi, sem illa gekk að lifa...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband