Talað fyrir daufum eyrum
4.11.2008 | 15:37
Tek undir hvert orð Sambandsstjórnar Farmanna og fiskimannasambands Íslands. Á sama tíma og við styrkjum æfingar erlendra herja um hundruðir milljóna liggja varðskipin tvö bundin við bryggju vegna fjárskorts.
Ég óttast að ríkisstjórnin láti þessi mótmæli sem vind um eyru þjóta, þetta er örugglega eitt af því sem þjóðinni kemur ekki við, eða mikill misskilningur eins og Björn Bjarnason myndi orða það.
.
.
Enga Breta hingað til landvarna í desember, aldrei.
![]() |
Stjórnvöld afþakki loftrýmiseftirlit Breta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íslenskir stríðsleikir
4.11.2008 | 10:11
Að eyða 1.400.000.000,00 kr. á ári í varnarmál á Íslandi var í bestafalli vafasamur gjörningur þegar best áraði og peningar uxu á trjánum. Þegar krumla kreppunnar herðir að er svona bruðl fráleitt og verður að slá af.
Nú er einhver 13 manna hættumatsnefnd (!!) að störfum að meta ógnir þær sem að okkur steðja, beðið er eftir að hún skili af sér. Þá verður væntanlega eitthvað gáfulegt gert.
Alveg frá lokum síðari heimstyrjaldar höfum við mátt búa við ógn og ótta um öryggi okkar. Stöðugum og viðvarandi áróðri var haldið að okkur í áratugi, um Rússagrýluna sem beið tækifæris að hremma okkur, hina frjálsu menn og færa okkur í fjötra kommúnismans.
Nú hefur löngu komið í ljós að ógnin var áróður og ímyndun ein, ímyndun manna sem aldrei uxu upp úr þeim ótta barnsins að skrímsli væri undir rúminu. Hinir frjálsu menn hrepptu sjálfa sig í fjötra þröngsýni og þráhyggju.
Sumir hafa aldrei sætt sig við þá staðreynd að kaldastríðinu er löngu lokið og halda sig við sinn leist og kjósa að lifa áfram í sínum ótta.
Látum þá ekki ráða för, hættum öllum tindátaleikjum og stríðsæfingum, ef ekki af því að það er skynsamlegt, þá vegna þess að það er nauðsynlegt og óumflýjanlegt.
.
.
Enga Breta hingað til varna í desember, aldrei.
![]() |
Takmörkuð sannfæring fyrir varnarmálafrumvarpinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fyrsta bindi Hvítbókar komið út.
3.11.2008 | 19:53
Það er grafalvarlegt ef í ljós kemur að FME hefur lagt blessun sína yfir þetta og á þeirri forsendu að annars yrði yfirmannaskortur í bönkunum! Spyrja má hvort þessir menn hafi einhvern tíma verið hæfir stjórnendur?
Þetta er eins og leiða kófdrukkinn mann undir stýri á rútu fullri af fólki og hann látinn aka, á þeirri forsendu að hann væri sá eini sem hefði rútupróf.
Ef þetta verður látið standa, er dag ljóst hvernig stjórnvöld ætla að standa að verki við hreingerninguna. Sukkinu og svínaríinu verður sópað undir teppið. Vafasamt er að nokkur önnur þjóð búi yfir jafn mikilli reynslu og státi af jafnmörgum reynsluboltum, í þeirri íþrótt og Íslendingar.
Hvítbókin svokallaða verður þá nákvæmlega eins og hún var sýnd í Spaugstofunni á laugardaginn.
![]() |
FME hefur ekki samþykkt niðurfellingu skulda |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 20:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Bókunin vantraust á Geir?
2.11.2008 | 12:34
Efni umræddar bókunar hefur ekki verið birt þannig að við vitum ekki út á hvað hún gengur annað en að Samfylkingin hafi að sögn dregið til baka stuðning sinn við Davíð Oddson sem Seðlabankastjóra.
Forsætisráðherra fer með málefni Seðlabankans og ber því höfuðábyrgð á öllu sem að honum snýr. Geir Haarde hefur fram að þessu alfarið hafnað öllum breytingum á stjórn Seðlabankans, þrátt fyrir vaxandi þrýsting þar um.
Þessi bókun, með fyrirvara um það sem þar stendur, er því ekki um vantraust á Davíð Oddson heldur fyrst og fremst alvarleg athugasemd við embættisfærslur forsætisráðherra.
Það eru því ekki nema tvær leiðir út úr þessari krísu, önnur er sú að Geir axli sín skinn, gefi eftir og reki Davíð og stjórnin sitji áfram, í skugga trúnaðarbrests eða hinn leiðin, stjórnarslit.
Velji Geir að verja sinn Davíð þýðir það ekki annað en stjórnarslit og þá á hann aftur tvo kosti. Að hundsa bókunina með öllu og láta Samfylkinguna segja sig úr stjórninni, hún á þá ekki annan kost, vilji hún viðhalda trúverðugleika sínum. Eða fara á fund Ólafs út á Bessastaði og biðjast lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt.
Hvora leiðina sem Geir ákveður að fara er ólíklegt að hann rjúfi í leiðinni þing því kosningar eru örugglega ekki ofarlega á aðgerðalista Geirs. Líklegra er að hann reyni að mynda nýja stjórn með VG.
Ólíklegt þykir mér að Steingrímur stökkvi á vagninn og gefi Sjálfstæðisflokknum líf.
En maður á víst aldrei að segja aldrei.
.
.
Og enga Breta hingað til landvarna, aldrei.
![]() |
Samfylking afneitar Davíð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Ísland í dag
1.11.2008 | 14:09
Þetta eru Galdur og Donni, langvinsælustu skemmtikraftar landsins í dag.
Eftirspurnin eftir þeim félögum hefur verið slík að þjóðin hefur steypt sér í botnlausar skuldir til að geta notið þessara gleðigjafa sem lengst.
Þeir hafa fært birtu og yl í hjörtu landsmanna á þessum seinustu og verstu tímum..
.
![]() |
Ræddu lítið um IMF |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Rétti andinn
1.11.2008 | 13:23
Tek ofan fyrir meirihlutanum í Reykjavík, þetta er málið.
![]() |
Reykjavík íhugar framkvæmdir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Gamli góði Geir...ei meir.
1.11.2008 | 01:34
Stéttarfélag öfugugga og barnaníðinga?
31.10.2008 | 14:04
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 14:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Froðusnakkur
30.10.2008 | 13:28
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Býður Seðlabankaflokkurinn fram í næstu kosningum?
30.10.2008 | 12:01
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Ærlega vanhæfir ?
30.10.2008 | 09:32
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Viðskiptabannið á Kúbu er glæpur.
30.10.2008 | 00:13
Hvað eru forystumenn VR að hugsa?
29.10.2008 | 19:06
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 19:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
„Mikið helvíti var að beljan bar“
29.10.2008 | 17:35
„Vonsviknir gullgrafarar“
29.10.2008 | 12:43
Gagnslaust traust Geirs á trausti rúnum Seðlabankastjórum.
29.10.2008 | 01:35
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
„Shame on you Mr Brown, shame on you“!
28.10.2008 | 19:04
Já, ekki vantar tíðindin þessa dagana.
28.10.2008 | 16:58
Dægurmál | Breytt 29.10.2008 kl. 01:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sá hlær best sem síðast.....
28.10.2008 | 16:13
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Brandari dagsins
28.10.2008 | 15:36