Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Menn hafa fengið Fálkaorðuna fyrir minna
16.10.2012 | 15:30
Það verður ekki lesið annað út úr þessari frétt og yfirlýsingu ríkisendurskoðanda en að ný skýrsla, um sukkið og svínaríið í kringum hið stjarnfræðilega dýra fjárhags og mannauðskerfi ríkisins, verði samin og fyrirfram sé ákveðið að hún verði alls ólík kolsvartri leyni skýrslu um það mál.
Þá er uppi annað af tvennu. Annaðhvort var kolsvarta skýrslan röng í megin atriðum og hreinlega ósönn eða að núna hefur verið tekin meðvituð ákvörðun um að semja nýjan sannleika, sem betur láti í augum og eyrum og fari ekki eins fyrir brjóstið á hneykslunargjörnum almenningi.
Embættismenn þessa lands eru eðlilega löngu orðnir dauðþreyttir á því að sauðsvartur almúginn sé að skipta sér af því sem honum kemur ekki við.
Þá er það milljónkrónaspurningin: Hvort verður ríkisendurskoðandi Fálkaorðaður í bak og fyrir, fyrir að skrökva að þjóðinni í fyrri eða seinni skýrslunni?
Eins og þeir segja á Mogganum þá tengist neðfylgjandi mynd færslunni ekki beint.
Skýrslunni verður mikið breytt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Hörð samkeppni eða grímulaust samráð
16.10.2012 | 11:43
Bankarnir streða við að telja fólki trú um að á milli þeirra ríki hatröm samkeppni og að þar sé hvergi gefið eftir.
Bankarnir munu eflaust halda því fram að þessi hraðbanka gjaldtaka sé dæmi um samkeppnina og að það sé alger tilviljun að bankarnir hafi allir tekið gjaldtökuna upp sama daginn.
Samráð er það fyrsta og eina sem almenningi dettur í hug.
Er samráð ekki bannað?
Rukkað fyrir þjónustu hraðbanka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ríkisstjórnin getur ekki treyst á þessa Marshallaðstoð
12.10.2012 | 12:14
Um leið og Róbert Marshall yfirgaf Samfylkinguna féll ríkisstjórnin. Að halda annað er dómgreindarskortur. Hnífsstunga Róberts í bak Samfylkingarinnar skrifaði dánarvottorð stjórnarinnar, aðeins dagsetninguna vantar.
Yfirlýsing Róberts um stuðning við ríkisstjórnina er nákvæmlega einskisvirði. Um leið og sú staða kemur upp, þegar nær dregur kosningum, að Róbert telji að hann og hans nýi pólitíski vettvangur hagnist á andstöðu við stjórnina, mun hann taka eigin hag fram yfir gefin loforð og snúa hnífnum í sárinu. Þannig og aðeins þannig hugsa eiginhagsmunapotarar.
Jóhanna á auðvitað að hafna þessari Marshallaðstoð og bruna strax út á Bessastaði til fundar við frelsarann og biðjast lausnar fyrir sig og sitt ráðuneyti og boða til kosninga með minnsta mögulega fyrirvara.
Þannig velur hún vígvöllinn og kemur í veg fyrir að Róbert Marshall og stjórnarandstaðan ákveði að eigin hentugleika stund og stað fyrir óhjákvæmileg endalok stjórnarinnar.
Úrsögnin kom félögum á óvart | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Af góðum heimsóknum - og miður góðum
11.10.2012 | 13:40
Núna í vikunni fékk ég góða og sérlega ánægjulega heimsókn. Þar bar að garði bloggvin minn svarthamar, Hvergerðinginn Óskar Helga Helgason. Við Óskar erum fráleitt sammála um alla hluti en bloggvinátta okkar og heimsókn hans og viðræður yfir kaffibolla færðu sönnur á að alla hluti má ræða í bróðerni þótt himinn og haf skilji viðmælendur að, skoðanalega. Takk fyrir innlitið Óskar!
Það eru aðeins einfaldar og einstrengilegar sálir sem ekki þola aðrar skoðanir en þeirra sem eru nákvæmlega á þeirra eigin þröngu skoðanalínu. Rétt eins og blogg sumra hér á moggabloggi sanna. Blogg sem loka hægri vinstri á alla sem ekki eru sammála síðuhafa. Lokun á skoðanir annarra opinbera fátt annað en aumingjaskap síðuhafa.
Einn aðili er óneytanlega fremstur og forhertastur í beitingu útþurrkana og lokana, aðrir standa honum þar langt að baki, þó býsna stórtækir séu, sumir hverjir. Þessi sami maður vílar samt ekki fyrir sér að ryðjast óboðinn inn á blogg þeirra, sem hann hefur sjálfur úthýst, gera sig þar heimakominn og belgja þar út, sig og sínar skoðanir.
Ég nefni auðvitað engin nöfn en fyrsti stafurinn er Jón Valur Jensson.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Það skyldi þá ekki vera...
2.10.2012 | 13:54
...að einmitt þannig sé málið gegn Gunnari Andersen vaxið og tilorðið!
Helgi sótti um ásamt Gunnari | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Er Framsókn að klofna í frumeindir fyrir hugleysi formannsins?
1.10.2012 | 18:09
Hugleysi formanns Framsóknarflokksins að hlaupast undan ábyrgð og flýja frá kjördæmi sínu í Reykjavík og ætla með frekju að troða sér í öruggt sæti í Norðausturkjördæmi og ryðja þeim frá sem hafa með vinnu og elju skapað sér þar sess, veldur vaxandi titringi í flokknum.
Þessi blauða tilraun formannsins að tryggja framtíð eigin þjóhnappa á þingi, á kostnað samherja, er til þess eins fallin að kljúfa Framsóknarflokkinn og hefur í raun þegar gert það.
Spurningin er aðeins hve alvarlegur klofningurinn verður, hvort flokksbrotin muni sjáist með einföldu stækkunargleri eða hvort til þess þurfi smásjá eða öflugri tæki.
Telur framboðið vera dómgreindarbrest | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Sannleikurinn skilgreindur sem óvinur Bandaríkjanna
28.9.2012 | 10:50
Samkvæmt frétt á vísir.is er opinbert orðið að Bandaríski herinn hefur sett Julian Assange á sama stall og Al Kaída og Talibana og skilgreint hann sem óvin ríkisins.
Assange hefur sem kunnugt er haft milligöngu, gegnum samtökin Wikileaks, að opinbera leynigögn um ólöglega og glæpsamlega starfsemi CIA og Bandaríska hersins vítt og breytt um heiminn.
Sannleikurinn hefur þar með opinberlega verið lýstur óvinur BNA og fengið sömu réttarstöðu og hryðjuverkasamtök!
Bandarískir borgarar sem svo mikið sem bjóða Assange góðan daginn eiga það á hættu að verða kærðir fyrir samstarf við óvininn, við því liggur dauðarefsing.
Hvar á að draga línuna Jón Valur Jensson - Við hvaða aldur nemenda mega kennarar byrja að riðlast á þeim?
25.9.2012 | 12:25
Það hefur verið í fréttum undanfarið að breska lögreglan leitar að 15 ára enskri stúlku sem hljópst að heiman og til Frakklands með þrítugum kennara sínum.
Jón Valur Jensson guðfræðingur bloggar um málið skilur ekkert í þessu uppistandi út af engu og telur ástarsamband 15 ára stúlku og þrítugs kennara hennar, sem enn er unglingur að hans mati, hið besta mál og réttlætir það með fimm aldagömlu barnaníðingsmáli íslensku.
Jón Valur telur það vera sósíaldemókrataískt vandamál og úrkynjun að sjá ekki það fallega í svona ástarsamböndum. Jón þessi hefur líka reynt að gera lítið úr barnaníðingsmálum í hans kirkjudeild, sem tröllriðið hafa fréttum undanfarin ár.
Hvar á, hr. Jón Valur guðfræðingur, að draga línuna í kynferðissambandi nemenda og kennara? Við 13 ár, við 11 ár eða jafnvel við forskólaaldur? Við hvaða aldur hættir slíkt samband að vera fallegt ástarsamband og verður eitthvað annað?
Þú ert ekki í lagi maður, fjarri því!
*Þessi færsla er skrifuð hér sem athugasemd við þessa færslu Jóns, því mér er meinað að gera athugasemdir á bloggi Jóns Vals, auk þess sem hann fjarlægir miskunnarlaust allar athugasemdir sem eru honum ekki að skapi.*
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (31)
Litli ríkisendurskoðandinn!
25.9.2012 | 00:03
Kastljós var með frábæra umfjöllun um mál sem virðist hafa alla burði til að vera hneykslismál af stærri sortinni. Ríkisendurskoðun virðist, ef rétt reynist, þjóna tveimur herrum.
Það eina sem ríkisendurskoðandi lét hafa eftir sér um þetta mál var að auðvitað væri þetta allt forvera hans að kenna. Svo harmaði hann auðvitað, ekki slóðaskap og vanrækslu Ríkisendurskoðunar, heldur að upp um glæpinn hafi komist.
Nú verður allt kapp lagt á hjá þeim sem eiga sitt undir í þessu máli að gera litla ríkiendurskoðandann, sem lak málinu í Kastljósið, að skúrki málsins. Sóun milljarða af almannafé verður gert að algeru aukaatriði.
Trúnaðarskjali lekið til Kastljóss | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Aflúsun
24.9.2012 | 09:29
Íraskur flóttamaður sem kom hingað í hælisleit s.l. haust, eftir synjun um hæli í Noregi, var fluttur úr landi til Noregs í morgun. Íslensk yfirvöld komust að sömu niðurstöðu og þau norsku að ekki væri forsenda fyrir hælisveitingu á grundvelli sögu mannsins. En maðurinn segist ofsóttur í heimalandinu vegna starfa hans fyrir Bandaríska herinn!
Þúsundir er ekki tugþúsundir Íraka hafa starfað fyrir hernámsliðið í Írak. Eru þeir allir ofsóttir og á flótta? Á þá ekki að bjóða þá alla velkomna til Íslands?
Lögmaður mannsins gagnrýnir stjórnvöld harðlega fyrir brottvísunina og líka fyrir hvað langan tíma það tók að afgreiða málið. Lögmaðurinn hefur þá væntanlega viljað fá brottvísunina framkvæmda fyrr svo skjólstæðingur hans kæmist sem fyrst heim í það helvíti sem sagt er bíða hans.
Ja, það er vandlifað!
Segir öryggi flóttamanns ótryggt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (26)