Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Skjálfa þá aftur bein Björns Bjarna og félaga
1.4.2012 | 16:57
Þá er Luftwaffe aftur farið til síns heima og enn á ný hafið tímabil ótta og óöryggis á Íslandi og landið skilið eftir gersamlega óvarið fyrir öllum óvininum og illu öflunum sem um það sitja.
Raunar breytti vera Luftwaffe nákvæmlega engu um öryggi landsins því þeir lögðu til landvarnanna 40 til 50 ára gamlar F-4 Phantom II þotur, sem eru tæknilega álíka gagnlegar gegn nýjustu flugvélum og tvíþekjur fyrri heimstyrjaldar voru í þeirri seinni. Gott ef þoturnar voru ekki þar að auki vopnlausar með öllu.
McDonnell Douglas F-4 Phantom II var framleidd á árunum 1958 til 1981 og er því fjarri því að vera brúkleg í nútíma lofthernaði. Þær eru eingöngu notaðar til æfinga. Þjóðverjarnir eru örugglega himinlifandi að fá fávísa Íslendinga til að borga þjálfun og æfingar grænjaxla þýska flughersins.
Þeim peningum væri betur varið í eitthvað þarfara en það eitt að tryggja svefn hjá steinrunnum kaldastríðs körlum sem lifa varla glaðan dag af ótta um að komma sprengjunum muni rigna yfir þá, þá og þegar.
Þjóðverjar lokið eftirliti sínu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Sjálftaka eða gjaldtaka
31.3.2012 | 13:06
Adolf Guðmundsson karlinn, formaður LÍÚ boðar leifturstríð gegn því að ríkið taki upp gjaldtöku í stað sjálftöku útgerðar- manna.
Svo lætur LÍÚ foringinn Moggann mynda sig fyrir framan smábátanna, sem hann vill með öllum ráðum feiga. Rétt eins og nafni hans sem lét mynda sig með börnunum sem hann svo lét drepa, fyrir málstaðinn.
Hjartnæmt ekki satt!
Það er sannarlega lítill munur á kúk og skít þegar grannt er skoðað.
Úr stjórnun í skattlagningu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
LÍÚ - er það okkar vilji?
29.3.2012 | 21:39
Jæja núna hafa guðirnir hjá LÍÚ vaknað og allt í einu vilja þeir samráð og samninga.
En að því tilskyldu auðvitað að ríkisstjórnin dragi til baka sjávarútvegsfrumvarp sitt.
Útvegsmenn hafa fram að þessu í skjóli Sjálfstæðisflokksins hafnað allri aðkomu að framtíðarfyrirkomulagi greinarinnar í trausti þess að flokkurinn sá tryggði þeim alfarið nýtingarréttinn.
Núna er merkjanlegur skjálfti innan LÍÚ þess efnis að það gerist ekki.
Látum helvítin skjálfa.
Ríkisstjórnin dragi frumvörpin til baka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Eitthvað nýtt?
29.3.2012 | 20:55
Hafa ekki allir krimmar landsins og þó víðar væri leitað, lýst yfir sakleysi sínu fram í rauðan dauðann og þungan dóm?
Þorsteinn hafnar ásökunum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lifir Pétur Blöndal bara í núinu?
29.3.2012 | 17:06
Það er stór undarlegt þegar sæmilega vel gefnir menn eins og Pétur Blöndal koma með svona afspyrnu bjánalega tillögu. Af þeirri ástæðu einni, að því er best verður séð, að það hentar stundarhagsmunum Sjálfstæðisflokksins.
Þegar forsetinn hafði synjað fjölmiðlalögunum staðfestingar á sínum tíma og vísað þeim þar með í þjóðaratkvæðagreiðslu, svívirtu Pétur og flokkurinn hans stjórnarskránna ásamt Framsóknarflokknum og afnámu lögin.
Gefum okkur að þetta þingrofsákvæði Péturs hefði verið í stjórnarskránni þá og ríkisstjórnin í kjölfarið staðið frammi fyrir þingrofskröfu þjóðarinnar. Þá hefði óneitanlega verið gaman að lifa og heyra andmæli og ummæli Péturs og flokksbræðra hans og þá ekki hvað síst, skoðun flokksformannsins á þessu tiltekna ákvæði.
Kjósendur geti farið fram á þingrof | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Brýtur Framsóknarflokkurinn í bága við almenna skynsemi?
27.3.2012 | 23:44
Framsóknarflokkurinn hefur komist að því eftir ítarlega rannsóknar- vinnu að glæpir og sér í lagi glæpir sem eru þokkalega skipulagðir samrýmist ekki stjórnarskránni.
Flokkurinn vill gera rótæka breytingu á gildandi lögum og leggur til að tekin verið upp sú nýbreytni að banna glæpastarfsemi.
Hvað verður þá um Framsóknarflokkinn þegar lögin hafa tekið gildi?
Upplifum við Framsóknarflokkslaust Ísland árið 2013?
Vilja banna skipulagða glæpahópa | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Litli Samherjastrákurinn grillaður í eigin feiti
27.3.2012 | 21:19
Landsmenn bíða með öndina í hálsinum eftir tilfinningaþrungnum pistlum frá Hannesi Hólmsteini og Birni Bjarnasyni, hvar þeir munu fara hamförum, og krefjast þess allir vondu vinstri óþekktarormarnir hjá Kastljósi RUV verði reknir, og það ekki seinna en í fyrra.
Þeir munu segja okkur að vondu vinstri Kastljósormarnir séu, algerlega að ástæðulausu og af illgirni einni, að reyna að eyðileggja og koma í veg fyrir að góðir og þægir hægri krakkar geti grætt á daginn og grillað á kvöldin.
Og þeir munu segja okkur að það gangi auðvitað ekki að RUV, þessi sameign þjóðarinnar, sé að stuðla að því að góðir og gegnir styrkveitendur Flokksins séu áreittir við þá sakleysislegu og sjálfsögðu iðju að hámarka sinn gróða sinn hvað best þeir geta.
Og að það sé auk þess algert smáatriði þó þjóðfélagið og sjómenn, starfsmenn Samherja, borgi grillveisluna, þó svo að þeim sé svo meinuð þátttaka í þeirri sömu veislu.
Talin hafa selt afurðir á undirverði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Grænu sjónarmiðin vænu
27.3.2012 | 17:08
Það er undarlegt sjónarmið að finnast það sorglegt að einhver hafi getað gert sér mat úr hræinu áður en það rotnar niður.
Sumum virðist líða betur að sjá og vita verðmæti fara forgörðum, ónýtt og engum til gagns, hvort heldur það eru hvalshræ eða óbeisluð fallvötn landsins.
.
.
Kíkið á skoðanakönnunina hér til vinstri. Hún er í þremur hlutum. Skemmtilegast er, sé öllum möguleikunum svarað.
Sorgleg meðferð á hræi hvalsins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Vindhænsn
26.3.2012 | 21:17
Lilja Mósesdóttir varar eindregið við því að menn tali upphátt um galla krónurnar gagnvart öðrum gjaldmiðlum. Hún segir að með gáleysislegu tali, tali menn niður íslensku krónuna.
Fyrir nokkrum dögum barði þingmaður einn sér á brjóst og lýsti því hátíðlega yfir, upphátt, að æskilegast væri fyrir Íslendinga að taka upp sænsku krónuna.
Man einhver hvaða þingmaður þetta var?
Á erfiðleikatímum þurfum við stað- og rásfasta leiðtoga eins og Lilju, en ekki einhverja ístöðulausa lýðskrumara sem segja eitt í dag og annað morgun, allt eftir því hvaðan vindurinn blæs.
.
.
Kíkið á skoðanakönnunina hér til vinstri. Hún er í þremur hlutum. Skemmtilegast er, sé öllum möguleikunum svarað.
Verið að tala niður gengi krónunnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þá var nú gráturinn skemmtilegri en fýlan
26.3.2012 | 07:49
Nú þá verður fyrirkomulagið á kvótanum alveg eins og það er, nema hvað leiguliðarnir í kerfinu leigja pottana af þjóðinni, sem fær arðinn en ekki sægreifarnir, sem eru núverandi leigusalar.
Von að Friðrik J. Arngrímsson sé fúll, raunar er engin breyting á því heldur, þegar nánar er að gáð. Friðrik er alltaf fúll. Honum er borgað fyrir það.
Kristján Ragnarsson forveri Friðriks á hásæti LÍÚ var miklu skemmtilegri en Friðrik. Kristján eyddi ekki tíma í fýlu, hann fór strax yfir í grátinn. Hann grét alla daga. Það var gaman.
.
.
Kíkið á skoðanakönnunina hér til vinstri. Hún er í þremur hlutum. Skemmtilegast er, sé öllum möguleikunum svarað.
Potturinn býr til hóp leiguliða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)