Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Ný könnun - í þremur liðum

Í komandi forsetakosningum er margt sem bendir til þess að hr. Ólafur Ragnar Grímsson fari létt með sigur, verði margir í kjöri. Sigur hans er ekki eins vís, verði aðeins tveir í kjöri, Ólafur og einhver annar öflugur frambjóðandi, þá getur allt skeð.

Ég hef stillt upp þremur möguleikum gegn Ólafi Ragnari.  Þóru Arnórsdóttur, sem kom næst Ólafi í skoðanakönnun Gallup, Stefáni Jóni Hafstein sem kom næstur Ólafi í könnun á þessari síðu og að lokum Jóni Val Jenssyni, en á honum hef ég tröllatrú.

Menn geta valið að taka þátt í einni eða öllum könnunum.

  


Framtíð forsetans getur oltið á fjölda frambjóðenda

Ég hef verið með svipaða könnun um fylgi frambjóðenda og mögulegra frambjóðenda hér á blogginu, niðurstaða minnar könnunar er öllu hagstæðari fyrir forsetann en í könnun Capacent Gallup.  

Niðurstaðan í minni könnun er  þessi:   

Ari Trausti Guðmundsson6,60%
Ástþór Magnússon0,70%
Elín Hirst4,60%
Jón Lárusson1,30%
Jón Valur Jensson7,90%
Ólafur Ragnar Grímsson45,70%
Ragna Árnadóttir2,60%
Stefán Jón Hafstein10,60%
Superman9,30%
Þóra Arnórsdóttir7,30%
Þórólfur Árnason3,30%
  

  

Það er ljóst af minni könnun að forsetinn er ekki öruggur með endurkjör komi fram einn sterkur frambjóðandi gegn honum. Gallup könnunin undirstrikar þetta enn betur. En eins og kosningafyrirkomulagið er þá telst sá réttkjörinn forseti sem flest atkvæði fær, hversu lág sem prósentutalan að baki honum kann að vera.

Endurkjör forsetans verður því helst tryggt með því að sem flestir verði í framboði, til að atkvæði þeirra, sem ekki geta hugsað sér að lengja veru Ólafs Ragnars Grímssonar á Bessastöðum, dreifist sem mest.

Ef könnun Gallup yrði niðurstaða kosninganna væri Ólafur réttkjörinn forseti með 34% atkvæða þrátt fyrir að  66% kjósenda vildu aðra niðurstöðu.


mbl.is 66% vilja nýjan forseta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meðgangan langa og stranga

Meðganga kvótafrumvarps ríkisstjórnarinnar hefur verið ströng og er orðin álíka löng og meðganga hjá fílum. Meðgöngunni er loks að ljúka og komið að fæðingu ungans.

Hætt er við að það verði þjóðinni sár vonbrigði, eftir allar þessar þrautir og þjáningar, ef henni fæðist svo aðeins lítil örend mús.

Hætt er við að þá verði efnt til fagnaðar og glingrað við stúta í Valhöll og höfuðstöðvum LÍÚ.

.

.

Er komin tími á húsbóndaskipti á Bessastöðum, eða ekki? Kíkið á könnunina hér til vinstri!

 
mbl.is Ríkisstjórn samþykkir kvótafrumvarp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vesalingur ársins

Fyrir Kastljósið í kvöld hafði ég skömm á Ögmundi Jónassyni. En þegar viðtalinu við Ögmund lauk í Kastljósinu fann ég sárt til þess að hafa hann ekki innan seilingar til að geta látið það eftir mér að æla yfir hann.

Þvílíkur andskotans aumingi og liðleskja er þessi maður,hann er ekkert nema skakkur kjafturinn.

Á launaskrá hverra annarra en ríkisins er þetta viðrini, hvar liggur hans hollusta? Ekki hjá almenningi, svo mikið er víst.

  


Lögverndað okur á unglingum

Margumtöluð SMS lánastarfsemi, hvar markhópurinn er aðallega unglingar, er ekkert annað en hreinræktuð Mafíustarfsemi í sinni skýrustu mynd.

Það eitt að þingmenn skuli tippla á tánum og naga á sér neglurnar meðan þeir íhuga hvort okurlán boðin unglingum, sé  heilbrigð starfsemi eða ekki, segir manni að það sama þing sé ekki skyldu sinni vaxið.

Það getur aldrei verið heilbrigt eða eðlilegt að okurlánastarfsemi, sem tekur þúsundir eða tug þúsunda prósenta í árs vexti, fái þrifist hvort heldur er lögum samkvæmt eða hreinlega vegna skorts á lögum. 

Jafnvel þó menn beri fyrir sig marg jórtruðu hugtakinu um frelsi einstaklingsins, sem ákveðin stjórnmálaflokkur gerir sig út á, þá nær frelsi eins aldrei lengra en þangað sem frelsi annars byrjar.

Viðurkenna ekki allir, sem ekki eiga hagsmuni að gæta, að þessi starfsemi sé röng og af hinu illa? Hvað er þá að, af hverju fær þessi mafíustarfsemi að grassera, eins og ekkert sé sjálfsagðara?

Með aðgerðaleysi Alþingis njóta þessir okrarar þingverndar, ekki amalegt það.

.

.

Er komin tími á húsbóndaskipti á Bessastöðum, eða ekki? Kíkið á könnunina hér til vinstri!

 
mbl.is Svíar herða kröfur um smálán
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Knésetur Surtur gamli Breta?

eldgos_andlit_gettyMikil er ábyrgð litla Íslands að vera orðið ein helsta ógnin við öryggi Bretlands.

Líklegt má telja að helstu vörn Breta, hryðjuverkalögunum, verði þá í framtíðinni óspart beitt gegn Íslandi í hvert sinn sem Surtur gamli leysir vind. 

.

.

.

.

Vinsamlegast kíkið á könnunina hér til vinstri!


mbl.is Íslenskar eldstöðvar ógna Bretum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hatursáróður blaðamanns, sem er ekki Baugsmiðill

Það hafa oft heyrst viðvörunarorð frá almenningi, og það með réttu, þegar hátterni einstaklinga fara yfir þau mörk sem eðlileg geta talist. Oftar en ekki hafa slíkar viðvaranir verið gefnar fyrir daufum eyrum yfirvalda, sem ekki hafa brugðist við fyrr en einhver sorgleg ósköp hafa dunið yfir.

Skrif bloggara eins, sem hefur lengi vel verið einn mest lesni bloggari moggabloggsins, hafa lengi verið með þeim hætti að langur vegur er frá því að þau geti eðileg talist.

Það er augljóst af færslusögu síðuhöfundar að þar fer maður sem er heltekinn hatri á ákveðnum hópi samfélagsins.

Hann leggur ekki bara hatur á Samfylkinguna og allt sem henni tilheyrir í venjulegum skilningi þess orðs, heldur virðist hatur hans á því fólki öllu vera í einhverjum ólýsanlegum hæðum. Öll hans skrif hans og hugsun virðist snúast um þessa þráhyggju hans.

Í ljósi nýliðins sorglegs ofbeldisatburðar þá tel ég að það sé ekki spurningin hvort, heldur hvenær síðuhöfundur snappi, styngi mann og annan.

Síðuhöfundur ætti að leita sér hjálpar! Eða öllu heldur ætti hjálpin að leita hans, ef ekki á illa að fara.  

Skrif eins og þau sem hér er til vitnað til hafa oft orðið tilefni til aðgerða yfirvalda, en í þessu máli gerist ekkert, og maður spyr sig hvers vegna? 

Mogginn hefur lokað bloggum af minna tilefni, en sennilega af því að í þeim bloggum var hatrinu  ekki beint í rétta átt, frá Moggans Gólanhæðum séð.


mbl.is „Sértrúarsöfnuður en ekki stjórnmálaflokkur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað veldur kæti Jóns Gunnarssonar?

Jón GunnarssonSjálfstæðismaðurinn Jón Gunnarsson og samflokksmenn hans hafa frá upphafsdegi núverandi ríkistjórnar gert allt sem í þeirra valdi stendur að bergða fæti fyrir og tefja allt jákvætt sem frá henni kemur.

Því til viðbótar ráða þeir sér ekki fyrir kæti þegar ríkisstjórnin bregður sjálf fyrir sig fæti vegna innri vandamála.

Er það eðlileg og ábyrg afstaða hjá þingmönnum þjóðar í vanda? Vill þingmaðurinn og þingflokkur hans Íslandi illt?

Ef ekki, af hverju brosir þingmaðurinn Jón Gunnarsson svona breitt?

.

.

Vinsamlegast kíkið á könnunina hér til vinstri!


mbl.is Leggja líf ríkisstjórnarinnar að veði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skítlegt eðli

Samkvæmt vitnisburði Tryggva Pálssonar framkvæmdastjóra fjármálasviðs Seðlabankans fyrir Landsdómi þá brást Seðlabankinn, með formann bankastjórnarinnar í fararbroddi,  gersamlega þeirri höfuðsskyldu sinni að gæta hagsmuna ríkissjóðs og almennings.

Tryggvi sagði m.a.:

„Hart var lagt að bönkunum að selja eignir sínar og rætt var um það innan Seðlabanka Íslands að hóta þeim því að komið yrði upp um raunverulega stöðu þeirra við matsfyrirtæki. Innan Seðlabankans voru efasemdir um að það fé sem bönkunum tækist hugsanlega að losa um, myndi renna til rekstrarins en ekki beint til eigenda bankanna“.

Rætt var um að beita bankanna hótunum, að alvarlegri stöðu þeirra yrði lekið til matsfyrirtækja!  Málið var orðið það alvarlegt að virðuleg Seðlabankastjórnin íhugaði að beita hefðbundnum stjórnunarstíll formanns bankastjórnarinnar, hótunum.

En þrátt fyrir vitneskjuna um yfirvofandi hrun bankanna varð það niðurstaða Bankaráðs Seðlabankans að gera það sem ráðið hafði gert allar götur fram að því,  ekkert!

Nákvæmlega EKKERT!

Seðlabankinn mat, með öðrum orðum,  stundarhagsmuni viðskiptabankanna og eigenda þeirra ofar en hagsmuni almennings og Ríkissjóðs.

Seðlabankinn  lagði þannig, fullkomlega meðvitað, blessun sína yfir glæpi eigenda bankanna gegn landi og þjóð og seldi þeim þar með veiðileyfi á almenning, svo lengi sem þeim væri stætt. Það er skítlegt eðli í sterkustu meiningu þeirra orða.

Er nema von að Íhaldið og fylgjendur þess haldi ekki vatni af aðdáun á þessum goðum sínum?

.

.

Vinsamlegast kíkið á könnunina hér til vinstri!


mbl.is Íhuguðu að hóta bönkunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jákvæðari getur kynjamismun ekki orðið

Lilja MóNær hinu fullkomna jafnrétti verður ekki farið, eða lengra gengið í jákvæðri mismunun kynjanna, en gert er í stjórn „Samstöðu“, flokki Lilju Mósesdóttur.

.

Vinsamlegast kíkið á könnunina hér til vinstri!


 


mbl.is Konur í stjórn Samstöðu í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.