Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Fellir Þóra sitjandi forseta?
13.4.2012 | 07:34
Það stefnir allt í hörkuspennandi kosningar. Þessi skoðanakönnun staðfestir að slagurinn um lyklavöldin að Bessastöðum muni standa á milli Þóru Arnórsdóttur og Ólafs Ragnars Grímssonar. Aðrir frambjóðendur njóta ekki fylgis sem neinu nemur.
Það er vonandi að kosningabaráttan verði heiðarleg og drengileg og bæði frambjóðendum og stuðningsmönnum þeirra til sóma.
.
.
Kíkið á skoðanakönnunina hér til vinstri. Hún er í þremur hlutum. Skemmtilegast er, sé öllum möguleikunum svarað.
Ólafur og Þóra með jafn mikið fylgi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Nei takk, ekki núna Ari Trausti!
11.4.2012 | 12:48
Þinn tími kemur síðar.
Erum að ganga frá lausu endunum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hvað hafa aðrir frambjóðendur framyfir Þóru?
10.4.2012 | 17:24
Það er í gangi ákveðinn og þungur áróður gegn framboði Þóru Arnórsdóttur til embættis forseta Íslands. Í stað þess að útlista kosti síns frambjóðanda, níða flestir niður þá mótframbjóðendur sem þeir telja skeinuhættasta sínum frambjóðanda. Þvílík ómennska!
Þó er nokkrum bloggurum ekki rótt og telja hverja krónu sem lagðir í þann sjóð ÞA vera aðför að Ólafi Ragnari Grímssyni forseta. Annar bloggari telur að skyldleiki Þóru við Jón Baldvin væri ástæða þess að fjölmiðlar hömpuðu henni hvað mest þeir gætu.
Ég hélt satt að segja að skyldleiki við JBH væri ekki inn, þessa dagana, nema auðvitað í svona dauðans áróðri.
Ég hef ekki í hyggju að kjósa Þóru, en málflutningurinn gegn henni gengur satt best að segja fram af mér.
Kosningasjóður Þóru stofnaður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
"Íslendingar hunsa þau verkefni sem mestu skipta en eyða þess í stað orku sinni í tittlingaskít"
10.4.2012 | 15:05
Í grein í Fréttablaðinu, hvar frá er skýrt á Vísi.is, kemst Árni Páll Árnason að kjarna málsins, grunni þess vanda sem Íslenska þjóðin á við að etja í dag. Það er þó ekki afleiðing hrunsins, ekki gjaldeyrishöftin eða staða atvinnumálanna eins og ætla mætti. Aðalvandamálið er hinn algerri viljaskortur á Alþingi Íslendinga að takast á við þessi vandamál og leysa þau. Án vilja til þess verða vandamálin óleyst og viðvarandi.
Á Alþingi kristallast vandinn í þeirri staðreynd að ríkisstjórnin stendur afar tæpt og á því í ákveðinni tilvistarkreppu. En tæp staða ríkisstjórnarinnar er samt ekki aðalvandinn á Alþingi. Stjórnarandstaðan er aðalvandinn, stjórnarandstaða sem forðast eins og heitan eldinn að axla ábyrgð og koma að lausn vanda landsins. En nýtir þess í stað allan styrk sinn til þess að þvælast sem mest fyrir og spilla málum sem mest fyrir þeim sem þó reyna sitt besta.
Eða svo notuð séu tilvitnuð orð Árna í Laxness, að þeir; hunsi þau verkefni sem mestu skipta en eyði þess í stað orku sinni í tittlingaskít.
Mottó stjórnarandstöðunnar og sumra stjórnarþingmanna virðist vera -að betri sé fullur skaði en enginn-, eins og einhver orðaði það svo skemmtilega.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Friðar Svanhvít sjálfa sig neðanverða?
7.4.2012 | 02:02
Auðvitað klárum við að virkja nýtilega kosti í Þjórsá. Gerist það ekki á þessu kjörtímabili, mun það gerast síðar, ráði heilbrigð skynsemi.
Stefna núverandi umhverfisráðherra Svandísar Svavarsdóttur er stefna dauðans. Að hafna virkjunum í neðrihluta Þjórsár er álíka og Svandís blessunin komi heim til bónda síns að kveldi vinnudags með þær fregnir að fyrr um daginn hafi hún ákveðið, að frá umhverfislegu sjónarmiði, verði hún sjálf framvegis alfriðuð neðan nafla.
Vill fara í tvær virkjanir í Þjórsá | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 02:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Vilja menn Dalvík á landsvísu?
4.4.2012 | 16:29
Hún er gersamlega arfavitlaus hugmynd Þórs Saari að leggja fiskveiðistjórnunarkerfið í þjóðaratkvæði á meðan útgerðarmenn eru í þeirri aðstöðu að geta tekið heilu byggðarlögin í gíslingu til að kalla fram þá niðurstöðu sem þeim er þóknanleg.
Eins og Dalvíkurkúgun Samherja og fleiri dæmi sanna.
Það er hinsvegar satt og rétt hjá Þór að mál sé að deilum um fiskveiðistjórnunarkerfið linni.
.
.
Kíkið á skoðanakönnunina hér til vinstri. Hún er í þremur hlutum. Skemmtilegast er, sé öllum möguleikunum svarað.
Þjóðaratkvæði eða synjun forseta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
"Eigi skal höggva"
4.4.2012 | 09:40
Dalvíkingar hljóta að spyrja sig hverjum höndin tilheyri, sem rothöggið reiðir.
Það er lítilmannlegt af Samherja forstjóranum að slá Dalvíkinga niður, fyrir sína eigin sök, einungis af því að þeir liggja svo vel við höggi.
Það er hætt við að litli Samhverfi forstjórinn hafi fallið af stjörnuhimni Dalvíkinga - varanlega.
.
.
Kíkið á skoðanakönnunina hér til vinstri. Hún er í þremur hlutum. Skemmtilegast er, sé öllum möguleikunum svarað.
Rothögg að fá ekki fisk | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Þá er þetta komið
4.4.2012 | 00:33
Karlpeningurinn á Bessastöðum dæsir örugglega við þessar fréttir, hann veit að úr þessu er hann öruggur um endurkjör, nema auðvitað að einhverjir frambjóðendur gangi úr skaftinu.
.
.
Kíkið á skoðanakönnunina hér til vinstri. Hún er í þremur hlutum. Skemmtilegast er, sé öllum möguleikunum svarað.
Þóra ætlar í framboð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Þorsteinn Már afhjúpar innrætið
3.4.2012 | 20:20
Um þetta útspil Þorsteins Más Baldvinssonar er aðeins eitt að segja. Þeir sem haga sér svona, beita grímulausum kúgunum og aðferðum af þessu tæi, starfsaðferðum sem þjóðin þekkir aðeins af afspurn og af hvítatjaldinu, geta ekki verið haldnir neinu öðru en skítlegu eðli af grófustu sort.
Hvernig er það, þiggur Þorsteinn ekki kvótann "sinn" af þjóðinni, sem hann beitir núna kúgun? Er ekki rétt að þjóðin heimili öðrum að nýta kvóta Samherja á meðan Þorsteinn er að ná áttum og læra mannasiði? Það verður að vísu erfitt fyrir Þorstein, mannasiðir hafa aldrei vigtað þungt í hans farangri.
DFFU hættir viðskiptum við Ísland | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
Þetta eru stórmerkilegar upplýsingar
2.4.2012 | 21:26
Það er með ólíkindum að ríkisstjórn, sem er á síðasta ári kjörtímabilsins og hefur þurft að eyða því sem liðið er af kjörtímabilinu í einhverjar óvinsælustu aðgerðir lýðvelsissögunnar til viðgerða og lagfæringa á eyðileggingu Íhaldsins og Baksóknarflokksins á efnahagskerfi landsins, skuli þó njóta stuðnings tæps þriðjungs kjósenda.
Ef hryllingssögur Íhalds- og Baksóknarflokksins um ríkisstjórnina ættu við rök að styðjast ætti ríkisstjórnin ekki að hafa neitt fylgi, alls ekkert.
Sjálfstæðisflokkurinn, sem nýtur stjórnarandstöðunnar, í setu svona gríðarlega óvinsælar ríkisstjórnar mælist ekki með nema rétt normal kjörfylgi frá árum áður, og þeir fagna. Þeir ættu, væru ríkisstjórnarnætursögur þeirra sannar, að mælast með 60 til 70% fylgi.
Baksóknarflokkurinn mælist hann með nokkurt fylgi? Gæti hann og hitt afturhaldið myndað saman stjórn væri þessi könnun úrslit kosninga? Nei tæplega. Er það ekki hastarlegur dómur þjóðarinnar um þeirra verk fyrir og þá ekki síst eftir hrun?
Staðreyndin sýnir að þjóðin man þeim verkin og mun muna þau í komandi kosningum.
Það ætti að setja allan helvítis Íhalds- og Baksóknarflokkinn á 10.000 kr seðilinn til að tryggja að þjóðin gleymi aldrei níðingsverkum þeirra.
Ríkisstjórnin tapar fylgi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)