Færsluflokkur: Trúmál og siðferði
Er sambandslaust á efrihæðina?
27.5.2012 | 20:15
Það er upplýsingaleki í Vatikaninu og leyndarmálin flæða út. Það er auðvitað hábölvað fyrir þetta hámusteri sannleikans, ef sannleikurinn um starfsemina spyrst út.
Mikið kapp er því lagt á að finna þann sem ábyrgð ber á lekanum. Það ætti varla að vera flókið að finna þann seka, sé sambandið við þann sem allt veit, eins gott og náið og það er sagt vera.
Eins og það virðist vefjast fyrir þeim að ná sambandi, má ætla að línan sé slitin eða liggi niðri.
Vandi skekur Vatíkanið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 20:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Er þetta biðleikur eða hafa nátttröll kirkjunnar séð ljósið?
25.4.2012 | 16:31
Það er vonandi til marks um breytta tíma innan kirkjunnar að kona skuli hafa náð kjöri til embættis biskups Íslands og vert að óska áhangendum hennar til hamingju með það.
Það vekur undrun að hin íhaldssama og þröngsýna karllæga hugsun, sem einkennt hefur prestastéttina og innsta hring kirkjunnar manna, skuli hafa vikið fyrir ferskri hugsun, smá ögn af skynsemi, í bili að minnsta kosti.
Agnes næsti biskup Íslands | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Kaþólska kirkjan spyrnir við fótum - ekki seinna vænna
19.4.2012 | 12:26
Þar kom að því að hans heilagleika páfanum í Róm er nóg boðið. Kaþólska kirkjan ætlar að láta sverfa til stáls og stöðva þá lausung og samfélagslegu sundrungu sem kynfrelsis- og jafnréttis hjal kvenna hefur leitt yfir kristið samfélag.
Þessi aðför kvenna að samfélagslegri stöðu karlmanna sem drottnara heimsins, kvenna og annarra dýra merkurinnar er gersamlega ósamrýmanleg kristinni trú og kristnum gildum og gróf aðför að mannlegri reisn.
Kirkjan stefnir að því koma konunni aftur fyrir á bak við eldavélina, þar sem skaparinn fann henni stað á sínum tíma eftir að hafa tálgað hana úr rifi Adams og gefið honum hana, til heimabrúks - að eilífu.
Amen.
Vatíkanið ávítir róttækar nunnur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 13:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
Mistök?
2.4.2012 | 18:06
Nú, nú, var ekki einmitt ætlunin að þessar biskupskosningar yrðu algerlega gagnsætt ferli. Fellur ekki gegnsætt umslag eins og flís við rass að þeirri ætlan?
Gölluð kjörgögn í biskupskosningu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Er litli símamaðurinn í Róm?
16.3.2012 | 22:39
Er það ekki merkilegt, að leynd, ráðabrugg allskonar, undirferli, pukur, spilling, svik, sukk og svínarí skuli vera helsta inntak flestra frétta úr Páfagarði en ekki boðskapur Krists.
Páfinn hefur fyrirskipað rannsókn, ekki á misferlinu sjálfu mikil ósköp, heldur hvernig fregnum af því var lekið í fjölmiðla. Það er auðvitað aðalatriðið. Minnir svolítið á mál litla símamannsins.
Og auðvitað mun Kirkjan sjálf rannsaka málið til tryggja leyndina, pukrið og viðhald spillingarinnar.
.
.
Vinsamlegast kíkið á könnunina hér til vinstri!
Páfi lætur rannsaka skjalaleka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 22:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Quislingurinn í Köben
26.2.2012 | 16:32
Það væri mér svo sem að meinalausu þótt Passíusálmarnir yrðu teknir af dagskrá RUV. En þá þyrfti útvarpið að setja á dagskránna eitthvað annað efni sem fullnægði sjálfspíningarhvöt þeirra sem hafa lagt það á sig að hlusta á þetta tros ár eftir ár.
Svo þarf auðvitað að gera Villa í Köben að ritskoðunar- og dagskrárstjóra útvarpsins eða bera dagskránna og fréttaflutning undir hann til að tryggja að RUV, brjóti ekki gegn siðferðis- og réttlætiskennd Gyðinga, sem er býsna viðkvæm ef ekki beinlínis brothætt, sé mið tekið af óaðfinnanlegri framkomu þeirra við Palestínumenn. En sú stöðuveiting myndi auðvitað svipta Villa þeirri ánægju að kæra landa sína til rétttrúnaðareftirlitsstofnana gyðinga fyrir gyðingahatur.
Allir eru, af "eftirlitinu í Köben", flokkaðir sem svæsnir gyðingahatarar sem leggja ekki blessun sína athugasemdalaust yfir útþenslu og landráns aðgerðir Ísraelsríkis.
Hvað eru þeir kallaðir sem kært hafa og framselt landa sína, lífs eða liðna, erlendum öflum, vegna eigin eða annarlegra hagsmuna? Quislingurinn í Köben ætti að skammast sín, en af skrifum hans er löngu ljóst að það kann hann ekki.
Honum er ekkert heilagt nema rétttrúnaðurinn og er að eigin sögn gersamlega fordómalaus í annarra garð! Sjá hér, hér, og hér.
Fellir enga dóma gagnvart gyðingum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 18:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Árni það eru takmörk fyrir öllu, hefur þú ekki enn áttað þig á því?
14.2.2012 | 20:37
Hversu langt ætli ég geti gengið til að níða niður Árna Johnsen áður en honum finnist málfrelsi mitt nokkuð rúmt orðið?
Get ég kallað hann laumuhomma, kvenníðing, svikara, svíðing og öllum hugsanlegum ónefnum til viðbótar við það sem þegar er á hann sannað, einungis í nafni málfrelsis?
Auðvitað veit Árni, jafn vel og ég, að það má ég ekki, og því kalla ég hann ekki þessum ónefnum opinberlega, þótt mér finnist þau fullkomlega viðeigandi í hjarta mínu.
Það ættu bæði hann og Snorri Óskarson að hafa í huga, slíkt gerir maður ekki.
Ofbeldi og valdníðsla | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Nauðgarar - sendimenn Guðs!
25.1.2012 | 18:12
Ef marka má ummæli Rick Santorum, fyrrum ríkisstjóra Pennsylvaníu, sem sækist eftir útnefningu sem forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins, þá liggur beinast við að umbuna nauðgurum fyrir að færa konum Guðsgjöfina, eitt stykki nauðgun. Það er auðvitað galið að refsa þessum sendiherrum Himnaríkis, takist þeim að gera "njótendum náðar Drottins" barn í belg.
Svona öfgasinnaðir trúarrugludallar eins og þessi Santorum eru giska hátt skrifaðir þar vestra og sýnir það glöggt þroskastig almennings.
En undarlegast er þó að svona raddir heyrast líka hér á landi, þekktur Moggabloggari fer m.a., mikinn í svipuðum boðskap, á hinum ýmsu bloggum og bloggsvæðum.
Þungun vegna nauðgunar er guðsgjöf | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 19:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (32)
Steinum kastað úr glerkirkju
27.11.2011 | 19:27
Það er broslegt að sjá biskupinn, æðsta yfirmann aðal forræðishyggju- apparats landsins, saka aðra um forræðishyggju.
Ekkert í henni veröld ástundar jafnmikla forræðishyggju og af jafn mikilli ástríðu og trúarbrögð. Samasemmerkið er hvergi réttara en á milli trúarbragða og forræðishyggju.
Forræðishyggjubiskupinn tekur heldur betur skakkan pól í hæðina þegar hann sakar Reykjavíkurborg um forræðishyggju, þegar borgin er aðeins að skera á þá trúarbragðaforræðishyggju sem kirkjan hefur fram að þessu stundað, átölulaust, í skólum landsins.
Ganga langt í forræðishyggju | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 19:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Ritstuldur?
5.10.2011 | 23:11
Bloggarinn og Guðsmaðurinn Jón Valur Jensson lýsir sjálfum sér sem princípmanni. Hann hefur mjög ákveðnar skoðanir hvernig öðrum beri að umgangast bloggið hans og hans skrif. Hann vísar til höfundarréttar og leggur bann við notkun efnis af bloggi hans án leyfis.
Ekkert óeðlilegt við þetta hjá cand theol manninum enda besta mál og sjálfsagðir mannasiðir, nema hvað hann fer ekki eftir því sjálfur. Svo virðist sem hann sé einn þeirra manna sem setja öðrum reglurnar en áskilja sjálfum sér allan rétt.
Ég sá á bloggi hans áðan hvar hann hafði hnýtt við færslu skoðanakönnun sem hann hafði afritað beint af mínu bloggi og endurbirt á sínu bloggi (copy paste) án þess að geta rétthafa eða heimildar, nema skýringin Einn moggabloggari (vinstri maður) teljist fullnægjandi heimildaskráning.
Ég reyndi að gera athugasemd við þetta hátterni Jóns, við færsluna, en þá kom upp eins og ég reyndar reiknaði með.
Bæta við athugasemd
Eftirfarandi villur komu upp:
- Þér er ekki heimilt að skrá athugasemdir
Þar sem JVJ er sannkristinn og hefur gert orð og kennisetningar Krists að sínum, þarf ekki að efast um viðbrögð hans við þessari athugasemd sem ég varð að birta hér á mínu bloggi af fyrrgreindum ástæðum.
"PS. Einn Moggabloggari (vinstri maður) er með könnun á þessu máli:
SKOÐANAKÖNNUN
Ætlar þú að samþykkja eða hafna stjórnarskrárfrumvarpinu í þjóðaratkvæðagreiðslu?
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 23:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)