Færsluflokkur: Spaugilegt
Segið mér þennan aftur
5.2.2013 | 20:37
Einhvern tíman hefði þurft að segja manni það tvisvar að ÓRG hafnaði tækifæri til að baða sig í eigin frægð, þó ekki væri nema til að segja; „I told you so“!
.
.
![]() |
Ólafur tjáir sig ekki um Icesave |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 20:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
Rangur misskilningur?
4.2.2013 | 13:05
Það sjá það allir að það er galin hugmynd, í öllu tilliti, að geyma eldavél úti á lóð. Það er spurning hvort eigandi eldavélarinnar hefði ekki frekar átt að þakka þessum hirðusama nágrana sínum fyrir að bjarga vélinni undir þak og forða frá skemmdum, í stað þess að væna hann um þjófnað.
![]() |
Stal eldavél frá nágranna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 15:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sumir kunna sig ekki og eru dónar að upplagi
17.11.2012 | 12:37
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 12:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þessi stendur alltaf fyrir sínu
24.10.2012 | 22:57
.
Magnað sjónvarp - ekki ætlað fyrir femínista
18.10.2012 | 15:01
Tækið er eingöngu hugsað fyrir klámhunda eins mig!
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 15:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
IBM Romney
26.9.2012 | 23:27
Mitt Romney, "maðurinn" sem keppir um Obama um forsetembættið í Banda- ríkjunum og tæplega hálf þjóðin virðist ætla að kjósa, skilur ekkert í því af hverju ekki er hægt að opna gluggana á flugvélum í flugi, vilji farþegarnir anda að sér hreinu lofti.
IBM áformar að nefna næstu ofurtölvu sína eftir gáfnaljósinu.
![]() |
Skildi ekki hvers vegna ekki mátti opna glugga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | Breytt 27.9.2012 kl. 00:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Titanic slysið var þá harmleikur þegar allt kemur til alls
23.5.2012 | 07:38
„Sjö bókakassar og nokkrir pakkar af íslenskum tímaritum „fórust“ með Titanic“.
Það er ekkert annað! Af hverju hefur því verið haldið leyndu í 100 ár hve alvarlegt þetta sjóslys var í raun og veru?
Þetta er örugglega eitthvert ESB samsærið.
![]() |
Íslensk tímarit og bækur töpuðust með Titanic |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 07:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Mestu leiðinda veislu aldarinnar lokið.
18.5.2012 | 23:25
Veislur Betu drottningar þykja afar spennandi, hvar gestgjafinn leikur höfuðrulluna í hástéttarlágkúru þrautakóngi þeim sem þessar veislur ku vera.
Þar situr hver kjaftur stífur af ótta við að bros sprengi gervið. Allir eru á nálum að hreyfa sig rangt, hneigja sig of grunnt eða of djúpt, blaka blævængnum of hratt eða of hægt, sötra súpuna eða að láta hana leka af skeiðinni, ropa eða reka við.
Afar spennandi víst.
![]() |
Kóngafólk fagnar með drottningu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 23:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Afar Hanneslegt og klént
12.5.2012 | 15:34
Það er lýsandi fyrir háskólaprófessorinn og stjórnmálaundrið Hannes Hólmstein Gissurarson að varpa fram spurningu á bloggi sínu til Össurar Skarphéðinssonar og krefja hann svara, en læsa svo blogginu og meina Össuri þannig að koma með svörin sem kallað er eftir.
Var Ólafur Ketilsson á ferð?
9.5.2012 | 23:08
„Skreið á eftir bifreiðinni“ hefði eflaust getað verið gild fyrirsögn hér á árum áður, ef einhver fótfúinn farþegi Ólafs Ketilssonar hefði orðið eftir í áningarstað og sá hinn sami samt talið sig eiga góða von, vegna alþekkts ökulags Ólafs, að ná bílnum á fjórum fótum.
![]() |
Skreið á eftir bifreiðinni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 23:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)