Færsluflokkur: Spaugilegt
Sýslumaður „renndi sér á eldri konu“
8.7.2011 | 11:16
Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður á Selfossi gerir það ekki endasleppt. Hann mun hafa fyrir sið að byrja daginn með því að bregða sér í sundlaugina á Selfossi.
Sundferðir sýslumannsins eru að öllu jöfnu tíðindalitlar, en útaf brá á dögunum. Þá gerði sýslumaður sér lítið fyrir og renndi sér á eldri konu í sundlauginn, að sögn DV í dag.
Konan mun hafa staðfest ákomuna en lætur sér að öðru leiti fátt um framgöngu sýslumanns finnast.
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 11:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (24)
Kántrýsetur á Sakagaströnd – skemmtileg saga!
16.6.2011 | 21:30
Nýlega var opnað Kántrýsetur á Skagaströnd, það er að sjálfsögðu til húsa í Kántrýbæ. Í Kántrýsetrinu hefur m.a. verið sett upp sýning og fróðleikur um lífshlaup og feril Hallbjörns Hjartarsonar og kántrýtónlist á Íslandi.
Rúnar Kristjánsson, bróðursonur Hallbjarnar segir á bloggsíðu sinni, í tilefni af opnun setursins, bráðskemmtilega sögu af Hallbirni, sem enginn ætti að láta framhjá sér fara.
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 21:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ástarsaga?
13.6.2011 | 12:59
Kannski er þessi sænska fjárhússaga bara um misskilda ást beggja fullorðinna einstaklinga sem ekki fá að njótast vegna frekju og eigingirni bóndans á bænum sem býr með grimmum hundi og hænum.....
Sakfelldur fyrir að níðast á kind | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 13:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þeir eru klikk, þessir Kanar
12.6.2011 | 14:05
Bill Warren, könnuður og kafari er þjóðhollur Bandaríkjamaður með afbrigðum og því treystir hann hvorki forseta sínum eða ríkisstjórn.
Hann tekur því, eðlilega, ekki gildar yfirlýsingar Obama forseta að Bin Laden hafi verið veginn og að líki hans hafi verið varpað í hafið, því sannanir skorti.
Bill karlinn ætlar því að hefja leit að líki Bin Ladens í Arabahafi, líki sem hann trúir að sé þar alls ekki!
Leitarsvæðið er á stærð við alla fiskveiðilögsögu Íslands að landinu meðtöldu. Það eitt segir allt sem segja þarf um líkurnar á því að hræið af Bin Laden finnist.
Ef Bill finnur ekki hræið, sem næsta víst verður að telja, hvað ætli það verði sagt sanna?
Leitar að líki bin Ladens | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Gummi og Magga í Matvörubúðina
24.5.2011 | 11:59
Það er sannarlega gleðileg frétt að Gugga og Tóta hafi verið ráðnar til starfa í Kauphöllina. Það er klárlega ljós í öllu svartnættinu að starfsmönnum á skráningar- og rekstrarsviðum Kauphallarinnar hafi fjölgað um tvo.
En hvar er fréttin um ráðningu Möggu og Gumma, sem voru nýlega ráðin í Matvörubúðina? Magga mun starfa á greiðslusviði og Gummi á innstreymissviði.
Þau hafa bæði mikla þekkingu og reynslu, hvort á sínu sviði, og miklar væntingar eru bundnar við þeirra störf.
Guðríður og Þórunn í Kauphöllina | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 12:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Nú er full þörf á smá kraftaverki
22.5.2011 | 23:09
Skulda- og siðferðisþvottavél
1.4.2011 | 19:09
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 19:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Ástarsamband
31.3.2011 | 11:39
Snati er alveg sérstaklega hændur að ömmu.
Við getum launað Bretum og Hollendingum lambið gráa með því að samþykkja Icesave, því þeir munu aldrei sjá eina einustu krónu, samkvæmt áræðanlegum heimildum.
27.3.2011 | 16:47
Það er gæfa okkar Jarðarbúa að eiga alltaf nóg af sjálfskipuðum umboðsmönnum Guðs, sem beintengdir eru við almættið, okkur hinum fákænu til leiðbeiningar hvernig lífi okkar verður best hagað. Við Íslendingar eigum heimsmet í þessum málaflokki eins og öðrum, miðað við höfðatölu auðvitað.
Á stokk hefur stigið Amerísk Guðsgjafaþula af þessu tagi, útvarpspredikarinn Harlold Camping, sá er ekki af verri endanum, hann á og rekur stórann söfnuð með áhangendum um allan heim. Camping þessi , sem hefur gaman að leika sér með tölur og þá aðallega með $ merki fyrir framan, hefur reiknað út að heimsendir verði 21. maí n.k. kl. 14 að íslenskum tíma.
Nú kunna einhverjir að tengja þetta við samþykkt Icesave samningsins, sem þá verður frágengið, en svo er ekki, því þetta tengist krossfestingu Krists og engu öðru. Kristur var eins og allir vita krossfestur allnokkru fyrir tíma Icesave eða nánar tiltekið 1. apríl 0033 kl. 14 að íslenskum tíma.
Dagsetningu heimsendis fékk Camping út með því að margfalda saman heilögu tölurnar þrjár, 5, 10 og 17 og það tvisvar. Slíkt hefði auðvitað engum dottið í að gera nema með guðlegri forsjá. Þá fékk hann út töluna 722.500,- og þann 21. maí n.k. kl 14 verða liðnir akkúrat 722.500 dagar frá krossfestingu Krists. Þegar þetta hefur verið opinberað liggur þetta ljóst fyrir og öllum auðskilið, einfaldara og eðlilegra verður það vart.
Við getum, í ljósi þessa staðreynda, launað Bretum og Hollendingum lambið gráa, samþykkt Icesave vitandi að þeir munu aldrei sjá krónu. Það verður gaman að sjá á þeim svipinn.
Það er þó einn fyrirvari sem vert er að hafa í huga í atkvæðagreiðslunni 9. apríl n.k., sem er að Harold þessi Camping hefur áður spáð heimsendi, sem kom og fór án þess að nokkur yrði hans var.
En til að hafa vaðið fyrir neðan mig þá ætla ég að vera búinn að vaska upp og fara með Bangsa í hádegisgöngutúrinn fyrir kl. 2 þann 21. maí, ef.....
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 18:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Öfugur misskilningur?
25.2.2011 | 14:58
Þetta er svakalegt maður, samkvæmt þessu hefur myndast brekka í Gíbraltarsundinu.
Eða misskil ég þetta öfugt eins og kerlingin sagði.
Yfirborð Miðjarðarhafsins hækkar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 15:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)