Færsluflokkur: Utanríkismál/alþjóðamál
Gaddafi lumar á lausn Líbýu-vandans.
25.6.2011 | 19:04
Gaddafi mun örugglega leggja það til, að fái hann að vera forseti Líbýu til æviloka, muni hann þá stíga til hliðar í mestu friðsemd og opna lýðræðisgluggann.
![]() |
Gaddafi að undirbúa tilboð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 19:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Löngu tímabært
30.5.2011 | 21:07
Þetta er löngu tímabær tillaga því rökin fyrir veru okkar í NATO, þessu fyrrum varnabandalagi, eru að engu orðin, hafi þá einhvertíma verið fyrir því gild rök.
En mín skoðun er að Alþingi eigi ekki að ákveða úrsögn heldur þjóðin, sem hefði líka átt að samþykkja eða hafna aðild að NATO 1949, jafn stórt mál og það þá var.
Það væri því fullkomlega eðlilegt að kosið yrði um aðild okkar að NATO samhliða næstu kosningum, sem væntanlega verða þingkosningar.
![]() |
Tillaga um úrsögn úr Nató |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 21:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hve ruglað getur þetta orðið?
27.5.2011 | 00:17
Hvaða helvítis bull er þetta, skiptir það máli, ef ríkið ætlar á annað borð að myrða mann eða konu, hvort lyfið sem kemur á efir svefnlyfinu og banar manneskjunni endanlega heitir fenol eða senol, og hvort það var upphaflega ætlað manni eða hundi, ef niðurstaðan sú sama?
Er það aukaatriði að manni hafi verið banað, en aðalatriðið að notað hafi verið lyf, sem upphaflega var hannað sem dýralyf, við aftökuna?
Erum við virkilega orðin svona sjúk?
![]() |
Tekinn af lífi með dýralyfi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 00:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
Að vera öðrum fyrirmynd
21.5.2011 | 00:58
Væri ekki hollara fyrir Bandaríki Norður Ameríku að yrkja sinn mannréttindagarð áður en þau æða fram til að kenna öðrum ríkjum hvernig þau eigi að framkvæma mannréttindi á sínum heimareitum?
Hvernig samrýmist það t.d. alþjóðamannréttindum að 10 ára börn séu dæmd sem fullornir, eins og tíðkast í sumum ríkjum Bandaríkjanna?
Væri ekki hollara fyrir stjórnvöld í Votatúni, að stinga fyrst á kýlin á eigin holdi í stað þess að einblína stöðugt á annarra kýli?
![]() |
14 ára fékk lífstíðardóm |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 01:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þessi kona, Sarah Palin...
3.5.2011 | 21:53

...hefur sannað að hún er fullkominn einfrumungur!
Það eru því taldar verulegar líkur á að hún verði frambjóðandi Republikanaflokksins í komandi forsetakosningum í Bandaríkjunum.
.
![]() |
Þakkaði Bush en ekki Obama |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 22:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Osama er dauður, ekki látinn, gott fólk!
2.5.2011 | 09:10
Fjölmiðlar á Íslandi hafa í sí auknum mæli átt í mesta basli að nota viðeigandi orð í fréttum þegar fólk er ýmist myrt, drepið eða tekið af lífi - eða það deyr og fellur frá.
Nú keyrir um þverbak, einhver mesta mannskeppna síðari ára, fjöldamorðinginn, svíðingurinn og ógeðið hann Osama bin Laden hefur loks verið eltur uppi, hann drepinn og sendur til síns heima.
Í stað þess að nota orðið drepinn eins og gert er gert þegar um er að ræða skepnur þá tipla fjölmiðlar á tánum eins og um væri að ræða náin vin, ættingja, landsföður eða afa gamla og leggja sig fram um að segja að þessi sérstaki mannvinur sé látinn, -hann sé fallinn frá!
Ja, hérna, hér.
Frétt á Vísi.is, og önnur, frétt á Mbl.is og önnur.
![]() |
Osama bin Laden allur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 09:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Grímulaust rugl
29.4.2011 | 22:01
Núna er þessari geðveikis Royal vitleysu sem betur fer að ljúka og heimurinn getur farið að undirbúa næsta toppviðburð aldarinnar, væntanlegan skilnað turtil- dúfnanna.
Lögreglan handtók allmarga í tengslum við brúðkaupið og þar á meðal þetta þokkapar sem við sjáum á myndinni. Hjúin, sem munu eiga sér vafasama fortíð, voru handtekin þegar þau reyndu að smygla sér í aðalveisluna.
![]() |
56 handteknir í London |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 22:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Nú er þetta ekki lengur fyndið!
25.4.2011 | 07:43
Algerlega ný aðferðarfræði virðist hafa verið tekin upp í átökunum í Líbýu, sem ekki hefur verið reynd í átökum og stríðum hingað til, nú reyna þeir að drepa fólk og rúmlega það, Gaddafi sjálfan.
Tími kossa og faðmlaga stríðandi fylkinga er liðin, heimur versnandi fer.
Það er von að þetta komi flatt upp á Gaddafi og hans menn sem hafa auðvitað forðast það eins og heitan eldinn að verða nokkrum að bana í þessum átökum.
![]() |
Árás á höfuðstöðvar Gaddafi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Ég má, ég skal!
24.4.2011 | 08:34
Þetta er auðvitað sorglegur atburður, en dæmigerður fyrir þennan heimshluta. Þetta hefði ekki gerst nema fyrir sakir hroka og drambsemi herraþjóðarinnar. Þeim hugnast það betur Ísraelum að setja öðrum lífsreglurnar en fara eftir þeim sjálfir.
![]() |
Lögregla í Palestínu skaut Ísraelsmann |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Og þá er réttlætinu náð!
17.4.2011 | 16:35
Mjög svo grunar mig að Ísraelar standi sjálfir að baki svona morðum sem yfirleitt eru framin þegar hvað best hentar þeim sjálfum.
Og við vesturlandabúar, þjakaðir af misskyldri sektarkennd gagnvart gyðingum setjum alltaf kíkinn fyrir blinda augað á hverju sem gengur, og gefst það vel, og allir eru sáttir, nema þeir sem þjást.
![]() |
Morðingjar landnemafjölskyldu fundnir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 16:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)