Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2008

Að vera eða ekki vera?

Það er erfitt að gera mönnum til hæfis. Ef fossar eru teknir til samfélagslegra nota og fjarlægðir þá verður allt vitlaust og allir hrópa fossinn á. En þegar foss er settur á þá hrópa allir fossinn af.

 


mbl.is Vilja að slökkt verði á fossum í Austurá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skrípaklæðnaður.

Heimkoma, og móttökuathöfn Silfurstrákana á Arnarhóli var sameiginleg gleðistund allrar þjóðarinnar. Þó þótti mér upphafsatriði þeirrar samkomu  varpa nokkrum skugga á þá gleði.  

Páll ÓskarPáll Óskar var með opnunaratriði samkomunnar og söng ein tvö lög. Ekki er ætlunin að setja út á sönginn heldur klæðnaðinn. Páll Óskar kaus af einhverri annarlegri ástæðu að nota þetta tækifæri til að óvirða íslenska fánann og smána með því þjóðina.

Þessi skrípabúningur sem hann kom fram í getur ekki undir neinum kringumstæðum átt að túlka og tákna neitt annað en þjóðfánann. Sem gerir hann brotlegan við 11. og 12.gr. fánalaga.

Þetta hefur væntanlega átt að vera fínt og hæfa tilefninu, en gerði það ekki,  heldur þvert á móti.

Ég geri ráð fyrir að lögreglan líti málið alvarlegum augum og hafi kallað Pál Óskar til skýrslutöku vegna málsins, nema sumir séu taldir töluvert jafnari en aðrir, fyrir lögunum, hvað misnotkun fánans varðar.


mbl.is Páll Óskar frestar sýningu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikilmennskupirringur?

 

Ekki hefði þýtt fyrir mig að fara á tónleika með honum þessum, eins og ég hósta þessa dagana. Við eitthvert ergelsi hlýtur maðurinn að eiga við þessa dagana nema hann þjáist af ofurnæmni og finni of mikið til sín, sem er til muna verra, fyrir hann.

 


mbl.is Hóstaður út af sviðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Himnesk fegurð.

Prestur á Ítalíu er að skipuleggja fegurðarsamkeppni nunna. Ekkert við það að athuga í sjálfu sér, getur vart skipt máli hvaða starfstétt þær konur tilheyra sem leggja sig niður við slíka fásinnu.

En eins og presturinn segir þá er fegurðin gjöf frá Guði.

Og þegar maður lítur í kringum sig, á góðum degi með orð prestsins í huga, þá verður ekki betur séð en Guð elski suma meira en aðra.


mbl.is Fegurðarsamkeppni nunna skipulögð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er langt á milli Ítalíu og Mílanó?

Frétt á Vísi.is greinir frá endurkomu Paul Ramses til landsins. Það var ekki koma hans sem vakti ekki athygli mína, heldur landafræðikunnátta blaðamannsins.

Í fréttinni segir: „Paul Ramses kom til Íslands í nótt á tilsettum tíma eftir að hafa flogið í gegnum Mílanó frá Ítalíu í gærkvöldi.“

 

Hvað skildi vera langt flug frá Ítalíu til Mílanó?


Varaforsetavalið kostar Obama fylgi.

 Þetta eru slæm tíðindi í sjálfu sér. Ef Obama tapar fáum við áfram öfgahægri ríkisstjórn næstu 4 árin hið minnsta, það er ógnvekjandi hugsun.

Ríkisstjórn sem, eins og Bushstjórnin, telur að henni hafi verið falið ákveðið hlutverk af Guði. Það hlutverk að uppfylla spádóma Biblíunnar svo Guðsríki geti orðið að veruleika. Hernaðar,- og forræðishyggja verður áfram alsráðandi. Þarf að segja meira.

Hvað miðausturlönd varðar þá breytir engu hvor þeirra Obama eð McCain verður forseti. Forseti Bandaríkjanna hefur aldrei ráðið neinu um þau mál, það gera gyðingarnir í USA.

 


mbl.is Obama og McCain hnífjafnir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stóra hundahvarfsmálið!

Er nýr Lúkas í uppsiglingu?

 


mbl.is Hundar hverfa í Grímsnesi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísland er enn „stórasta“ land í heimi.

Til hamingju strákar með Ólympíusilfrið í handbolta, frábær árangur. Til hamingju Ísland.

 


mbl.is Ísland í 2. sæti á ÓL
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gullið verður bónus.

 

Hvernig sem leikurinn á morgun fer, kemur íslenska handboltaliðið, „strákarnir okkar“ heim sem sigurvegarar, þjóðhetjur, ekkert minna.  Í höfn eru silfurverðlaun í handbolta á Ólympíuleikum, sem er ekkert smáræði í hópíþrótt fyrir litla þjóð eins og Ísland.  

Gullið yrði alger bónus, en við megum ekki láta vonbrigði og svekkelsi ná tökum á okkur þótt toppurinn náist ekki, við höfum nú þegar unnið sigur. Höfum sýnt og sannað hvers við erum megnug og að við getum þetta, höfum sýnt að þeir litlu eiga líka möguleika.

Þessi árangur verður um ókomna tíð skólabókardæmi um hvað er mögulegt þótt torsótt virðist.

Það er ekki nokkur vafi á því að vera Íslensku forsetahjónanna á  áhorfendabekkjunum og annar stuðningur þeirra hefur verið liðinu hvatning, svo ekki sé talað um andann að heiman, sem hefur verið sterkari en orð fá lýst.

Ég er sannfærður um að strákarnir klára þetta. Ég er að springa af stolti og þjóðernisrembingi og skammast mín hreint ekkert fyrir það.

Áfram Ísland.

Þjóðsöngurinn hér


mbl.is „Ég vil fá gullið og þjóðsönginn“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

„Við erum stórastir“

 „Ísland er stórasta land í heimi“ er orðin fleyg setning í sinni jákvæðustu mynd.

Þetta sagði kona með stórt hjarta, kona sem elskar sitt land, Ísland. Kona sem er hispurslaus og bara hún sjálf. Mættu margir taka hana sér til fyrirmyndar.

Það er ekki annað hægt, en að bera virðingu fyrir forsetafrúnni og þeim hjónum báðum.

Áfram Ísland, áfram Dorrit!

 
mbl.is Þegar Dorrit veifaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband