Bloggfærslur mánaðarins, september 2008

Sturla vefur Rússum um fingur sér.

Sturla Böðvarsson forseti Alþingis er ásamt fríðu föruneyti  í Moskvu í Rússlandi austur. Hann átti fund í gær með Vladimir G. Titov aðstoðarutanríkisráðherra Rússlands. Um svipað leyti lét Rússneska utanríkisráðuneytið þau boð út ganga að Rússar vilji jákvæð samskipti við Bandaríkin og önnur ríki.

MoskvaHvort Sturla hafi „komið vitinu“ fyrir Rússa eður ei skal ósagt látið. En víst munu einhverjir grípa þá söguskýringu á lofti, þótt Sturlu sé nánast fyrirmunað að orða hugsun sína á móðurmálinu. Kann að vera að hann sé liprari á erlendum tungum. Sumir segja reyndar að hann orði alltaf hugsun sína akkúrat eins og hún er hugsuð.

 

Að sjálfsögðu kom Sturla á framfæri sígildum kaldastríðsótta Sjálfstæðismanna, þar sem er flug Rússneskra flugvéla í námunda við Ísland. Þótt það eigi að öllu jöfnu að vera á hendi utanríkisráðherra Íslands.

Ríkisstjórn Rússlands lýsti yfir miklum áhuga á samstarfi við Ísland í verkefnum tengdum endurnýjanlegum orkugjöfum, ekki síst jarðhita.

 Ólíklegt má telja að núverandi ríkisstjórn Íslands beri gæfu til að nýta sér það vegna genanískrar tortryggni Sjálfstæðismanna í garð Rússa.


mbl.is Forseti Alþingis í Rússlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gömul og þvæld tugga.

króna í falliTímabundið ástand segir Geir um stöðu krónunnar. Þegar hann talar um tímabundið er nauðsynlegt að vita hvað Geir hugsar í löngum tímabilum.

Hugsar hann í klukkutímum, dögum, vikum, mánuðum, árum eða öldum. Ef um er að ræða ár eða aldir er óhætt að flokka þetta sem tímabundið.

En Geir segir svo að ómögulegt sé að segja til um hvenær markaðir jafni sig. Hvernig getur hann þá sagt að þetta sé tímabundið, nema hann hugsi í öldum.

Geir sagði botninum náð fyrr á árinu, samt er enn allt í frjálsu falli. Þetta minnir á manninn sem sagði "að ekki væri eftir neinu að bíða, en bíðum samt aðeins."

Nauðsynlegt er að ríkisstjórnin bregðist strax við, knýi fram vaxtalækkun og blási í glæður atvinnulífsins til að örva það og stöðva fallið áður en í frekara óefni er komið.

strútur3Eða ætlar ríkisstjórnin að trúa áfram á aðgerðarleysið og stinga höfðinu dýpra í sandinn. Getur almenningur stungið höfðinu í sandinn, gripið til aðgerðaleysis varðandi greiðslu á síhækkandi greiðsluseðlum, sem ekki hætta að berast, ekki einu sinni tímabundið.  
mbl.is Staða krónunnar tímabundin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver er asninn?

 

asni1Það er vandséð hver er asninn í þessu máli.

Asninn er sennilega enginn asni.


mbl.is Asni í fangelsi fyrir að stela korni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Erfðafræðislys

image981121gHonum Karli ríkisarfa Breta rennur blóðið til skyldurnar blessuðum, enda er hann sjálfur eins og  gangandi auglýsing um erfðafræðitilraun sem farið hefur illa úrskeiðis.

Trúlega er hann sjálfur, kóngafjölskyldur og erfðayfir- stéttir allra landa eitt allsherjar vaxandi mengunarslys.

Það stæði honum nær að bregða hnífnum á það kýli en eyða kröftum sínum gegn tækni sem aukið geta matvælaframleiðslu þróunarríkja.

 
mbl.is Mesta umhverfisslys sögunnar?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lítið gleður vesælan

 

klappstýrur2Eitthvert furðulegasta fyrirbærið í Bandarískri menningu eru klappstýrurnar. Varla koma tveir saman til að horfa á íþróttaleik án þess að klappstýrur komi við sögu.

Stöffið virðist ganga út á að nokkrar 15- 16 ára stelpur veifi dúskum, sýni á sér ber lærin og maga, sprikli örlítið, ekki ólíkt gógó dansi, sem að öllu jöfnu þykir ekki boðlegur sómakærum bandarískum stúlkum á þessum aldri.

Gífurleg og óútskíraleg ásókn er í að komast í þessi klappstýrulið. Vonbrigði þeirra sem ekki komast í liðið eru mikil, svo mikil að stúlkur hafa freistast til að láta „slys henda“ einhverra hina heppnu til að skapa rúm fyrir þá óheppnu. Dæmi eru jafnvel um morð.

klappstýra1Svo var það þessi 33 ára kona sem átti sér þau háleitu markmið að verða klappstýra. Til þess notaði  hún nafn 15 ára dóttur sinnar, komst í liðið, mætti á æfingar og veislur, áður en upp komst.

Það hlýtur að vera stórlega athugavert við sjón eða kenndir þeirra, sem horfðu á þessa 35 ára konu sprikla og sáu fyrir sér 15 ára stúlku, nema hvorutveggja sé.


mbl.is Stal nafni dóttur sinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

A COW

 

cowÞetta minnir á sögu frá Kanada. Fjölmargir bændur á sumum svæðum í Kanada urðu árlega fyrir verulegum búsifjum á veiðitímabilinu. Skotglaðir veiðimenn skutu kýr og annan búsmala í misgripum fyrir veiðidýr.

Svo rammt kvað að þessu á einum bænum að bóndinn greip til þess ráðs að mála á kýrnar eins stórum stöfum og rúmuðust á skrokk þeirra, orðið COW.

Hann var rétt að ljúka við seinni síðuna á einni kúnni þegar skothvellur ómaði um engin og kýrin féll dauð við fætur hans.


mbl.is Veiðidýr á fjórum hjólum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

18 barna móðir í .....

 

storkur18 barna móðir í Ísrael ól nýverið sitt 19. barn og hafði ekki minnsta grun um að hún væri ólétt.

Kom af fjöllum þegar storkurinn bankaði uppá.

Já, já, einmitt......


mbl.is Nítjánda barnið kom á óvart
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Örlygsstaðabardagi hinn síðari?

 Það mætti halda af fréttum að Sighvatur og Sturla hafi á ný mætt þeim Gissuri og Kolbeini unga á Skagfirskum grundum. Ekki var þó um jafn fjölmenn lið nú og þá, né átökin jafn blóðug.

Hér virðist deilt um keisarans skegg. Ekki er þess getið í fréttinni hvort viðskiptavinir kappana, væntanlegir flúðafarar, hafi verið á svæðinu og fengið þannig óvæntan bónus.

Vonandi hafa náðst myndir af „bardaganum“ svo hægt verði að bæta þeim í myndskreytta glansbæklinga og vefsíður fyrirtækjanna.


mbl.is Átök vegna flúðasiglinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þrír ráðstjórnarríkja brandarar.

Maður ber á dyr hjá nágrana sínum um miðja nótt og hrópar:

„Fljótur, fljótur, farðu á fætur og klæddu þig!“

Innan úr íbúðinni heyrist hræðsluóp.

„Ekki hafa áhyggjur“ hrópar maðurinn við dyrnar „þetta er ekkert alvarlegt. Ég er ekki frá leynilögreglunni. Ég vildi bara segja þér að íbúðin þín er að brenna.“

oooooooooo

Ritari nokkur heyrir hlátrasköll berast úr réttarsalnum. Hann fer inn og sér dómarann engjast úr hlátri.

„Hvað er svona fyndið?“ spyr ritarinn.

„Ég var að heyra fyndnasta brandara sem ég hef á ævinni heyrt,“ segir dómarinn.

„Segðu mér hann.“

„Ég get það ekki.“

„Af hverju ekki?“

„Ég var að dæma mann í fimm ára nauðungarvinnu fyrir að segja hann.“

oooooooooo

Verkamaður er dæmdur í fimmtán ára fangelsi fyrir að kalla flokksritarann fífl. Eftir að dómurinn er kveðinn upp mótmælir lögmaður verkamannsins og segir að samkvæmt lögum liggi bara fimm ára fangelsi við slíkri móðgun.

Dómarinn leiðréttir hann: „Við dæmum hann ekki í fangelsi fyrir að móðga ritarann, heldur fyrir að segja frá ríkisleyndarmáli.“

 

Fengið að láni úr Skakka turninum.


Hættulegt og lýjandi starf

 Logreglustjarna

Sú lýsing sem lögreglumaðurinn gefur á einkalífi sínu sem gegnsýrist af því starfi sem hann stundar er átakanleg. Að þurfa að lifa í stöðugum ótta um öryggi sinna nánustu tekur á.Það þekkja þeir einir sem reynt hafa.

Það er sorglegt hvernig menn bölva lögreglunni fyrir að sinna sínu starfi, af litlu eða engu tilefni. Menn horfa framhjá því öryggi sem í lögreglunni er fólgið fyrir borgaranna. „Helvítis löggan“ segja menn þegar þeir eru sektaðir fyrir umferðarlagabrot, það er eins og lögreglan afi brotið af sér en ekki þeir. Svo er henni líka bölvað ef menn þurfa á henni að halda og hún er ekki mætt með það sama.

Lögreglumenn sinna almennt sínu starfi að alúð og samviskusemi. Ég hef verið stöðvaður af lögreglunni fyrir ölvunarakstur, hlotið dóm og tekið út mína refsingu. Ekki hvarflar að mér að áfellast lögregluna fyrir það. Þess í stað er ég henni þakklátur. Hún kom kannski í veg fyrir að ég yrði mannsbani og sæti uppi með ævilanga sektarkennd og vanlíðan. Þá hefði ég ekki getað, á morgnanna, horfst í augu við manninn í speglinum.

Logreglan007Rannsóknir sýna að lífaldur lögreglumanna er um 5 árum styttri en annarra. Nú er álagið á lögreglumönnunum stöðugt að aukast þannig að þessar tölur kunna að breytast hratt lögreglumönnum í óhag.

Að vopna lögregluna er ekki lausn. Það eykur aðeins á vandann. Lögreglan í Bandaríkjunum er grá fyrir járnum, skjóta fyrst og spyrja svo. Aftur á móti eru ensku Bobbarnir eru ekki vopnaðir. Í hvoru landinu skyldi ástandið vera betra og hvers vegna?

 

mbl.is „Ég skal drepa konuna þína!“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband