Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2009

"Íslendingar og aðrir landsmenn"!

„Fjöldi fólks sem er af erlendu bergi brotið býr í leiguherbergjum á efri hæð.....“ .

Af hverju tönglast fréttamenn í tíma og ótíma á uppruna fólks, sem tengist viðkomandi frétt, ef það er af erlendu bergi brotið?

íslenski fáninnÍ þessu máli hefur uppruni fólksins ekkert með þann sorglega atburð að gera, sem þarna átti sér stað.

Af hverju er ekki sagt í fréttum frá uppruna annarra Íslendinga? Myndi fréttin hafa byrjað svona; „Fólk sem ættað er frá Skagaströnd og býr á efri hæð....“, ef fólkið hefði verið ættað frá Skagaströnd eða einhverjum öðrum stað út á landi?

Fréttamenn hættið að draga okkur Íslendinga í dilka eftir uppruna okkar!


mbl.is Kveikti í húsi eiginkonunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Öryggismyndavél á raðgreiðslum

Í dramaþrunginni lýsingu á mótmælum við Alþingishúsið segir fréttin á mbl.is m.a.

Meðal annars gekk einn mótmælandinn að Geir Haarde forsætisráðherra og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur menntamálaráðherra eftir að hafa hrint lögreglumanni úr veginum. Fas hans var heldur ógnandi fyrst um sinn en í ljós kom að hann vildi einungis koma skoðunum sínum á framfæri við þau með orðum“.

Nú er mótmælandinn sagður hafa hrint lögreglumanni til að komast að Geir en í annarri frétt, sem er sennilega sannari, varð lögreglan þess ekki vör þegar maðurinn labbaði að honum því hún var upptekin við að rjúfa skarð í mótmælenda hópinn fyrir Geir og Þorgerði.  Ef hann hrinti lögreglumanni er þá ekki skrítið að hann skuli hafa fengið að halda áfram för sinni að Geir?

Ekki urðu Geir eða Þorgerður fyrir sýnilegu tjóni af þessari „árás“ nema kannski ófyrirséður skaði á  nærhaldi forsætisráðherra, en það verður ekki skrifað á reikning neins því eins og kunnugt er af bankasukkinu, ber enginn ábyrgð á því „ófyrirséða“.  

bláa höndinÍ kjölfar þessa óttast landsfeðurnir mjög um öryggi sitt, en gefa skít í mótmælendur og aðra landsmenn, ef frá er talið útrásar- og sukkliðið, það nýtur enn verndar Bláu handarinnar enda lungað úr flokkeigendafélaginu.

Tveir mótmælendur voru handteknir fyrir skemmdir á öryggismyndavél, sem þegar var skemmd. Það var snjöll hugmynd að ætla að  láta mótmælendur borga raðgreiðslur á sömu myndavélinni. Það gekk víst ekki eftir.

Er það rangt munað hjá mér að einhverjir hafi sagt að það þjónaði ekki neinum tilgangi að leita sökudólga? Hvað þarf tjónið að verða mikið í hverju tilfelli svo sú regla verði virk?

.


mbl.is Allir tiltækir lögreglumenn við Alþingishúsið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Líkamslýta tíska

Að einhver skuli hafa tekið að sér að tattovera börn undir lögaldri að foreldrum þeirra forspurðum  er alvarlegt mál. Taka verður hart á slíku. Ekki er víst að tattoo ákveðið í bríaríi á unglingsárum verði eiganda sínum til gleði og ánægju þegar til lengdar lætur.

En það er samt skiljanlegt að unglingum langi í tattoo, því tattoo hverskonar er mjög í tísku þessa dagana og enginn maður með mönnum nema hann skarti slíku.

Ekkert er í sjálfu sér við það að athuga þó fólk láti setja fallega mynd á skemmtilegan stað á kroppnum. Slíkt getur jafnvel verið fallegt á að líta, jafnvel rómantískt ef svo ber undir.

En þegar tattooið er farið að þekja mestan hluta viðkomandi líkamsparts, svo ekki sé talað um allan líkamann, þá er þetta farið að líta út eins og klessa og langt því frá að vera augnayndi. Tattoo hefur þann leiða galla að eldast illa með þeim sem það ber. Tattoo sem sett var á stinnan maga eða rass er ekki fallegt þegar viðkomandi líkamspartur er orðin feitur, slappur eða sigin.

Önnur líkamslýta bylgja er svokallað piercing en það er allskonar járnadrasl í öllu hugsanlegu formi og gerðum sem stungið er eða þrætt í líkamann og á hinum undarlegustu stöðum. Kynfæri eru þar ekki undantekning.

Datt í hug að setja með nokkrar myndir sem ég fann með tattoo og piercing. Erfitt er að ímynda sér hvað þessu fólki gengur til. Tatoo5950Dæmi hver fyrir sig. Um mig fer hrollur.

tatoo

 tatooshirttattoo 9árapiercingpiercing ogeðpiercing[1]piercing_16[1] 
mbl.is Húðflúraði hakakross á barn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hleypið manninum að

ástþórÞað er bráðnauðsynlegt að hleypa Ástþóri að, ekki spurning.

Það er nauðsynlegt að fá auglýsingar, Ástþór eða aðrar álíka eyður í dagskrána annað veifið svo hægt sé að skreppa eftir kaffi, án þess að missa af einhverju.

.

.

.

 
mbl.is Ástþór vill útvarpstíma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fingralöngum vegnar betur

jon_asgeir_jpg_550x400_q95Þá liggur það fyrir, vísindalega sannað, að  „fingralangir“ eiga auðveldara með að afla sér lífsviðurværis en öðrum.

Væri ekki rétt að bregða tommustokknum á krumlunar á útrásarvíkingunum?

.

.

(P.s. Heiða takk fyrir myndina.)

 
mbl.is Stærðin skiptir máli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað kostar líf 16 ára drengs?

Hvað er hægt að segja um svona dóm? 3 til 4 og hálfs árs fangelsi fyrir að berja 16 ára dreng til bana með hornaboltakylfum algerlega að tilefnislausu. Þetta er verra en hér á landi. 

Danski dómarinn sagði kynþáttafordóma ekki ástæðu morðsins, en ekki verður annað ályktað en að þeir hafi verið hafðir með í ríkum mæli þegar þyngd dómsins var ákveðin. Skilaboðin sem dómarinn sendir út í þjóðfélagið eru ekki til eftirbreytni.

Peningar geta aldrei bætt líf, það er ljóst. En við ákvörðun á skaðabótum gæti dómarinn hafa gluggað í verðlista Íslenskra tryggingarfélaga og þar segir jú,.......... 1 st. 16 ára Tyrki, verð 76.000,  dkr. eða sem svarar 1.7 milljón íslenskar!!!!!!!  Gjöriði svo vel.

Þremenningunum finnst að sér vegið með dómnum og hafa áfrýjað, blessaðir drengirnir.

  
mbl.is Sakfelldir fyrir morð á 16 ára Tyrkja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mannréttindabrot?

Hún jaðrar við mannréttindabrot sú skoðun og lúsaleit sem fer fram á öllu milli himins og jarðar hjá þeim pörum sem vilja ættleiða barn. 

Ekkert er látið óskoðað, fjármál, einkalíf, heimilishald, bara nefndu það. Stóð ábúðarfullra barnaverndarfulltrúa kemur á heimilið, kíkt er inn í skápa, ofaní skúffur, undir mottur, allt skoðað eins og tæknimenn lögreglu væru á ferð að rannsaka glæp. Kjörinn starfsvettvangur fyrir fólk haldið sjúklegri hnýsni og þörf á að sýna vald sitt.

Væru sömu kröfur gerðar til þeirra sem geta eignast börn hjálparlaust og þær alfarið gerðar að  forsendu fyrir barneignarleyfi dæi mannkynið út á næstu öld.

Það hefur verið fallegt og gallalaust heimili þessara hjóna, fjárhagur og annað í lagi fyrst ekkert fannst til synjunar annað en líkamsþungi eiginmannsins.

Ég er ekki að segja að ekki þurfi að kanna ákveðna hluti við ættleiðingu, en fyrr má nú rota en dauðrota.


mbl.is Of feitur til að ættleiða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jaws, það er matur!

jawsMyndi einhverjum heilvita manni detta í hug að fá sér sundsprett í sundlaug ef þar svamlaði hákarl?  Nei ekki á ég von á því.

Í sjónum og við strendur Ástralíu eru einhver mestu og illvígustu hákarla svæði heims.

Fólk flykkist samt á strendurnar og í sjóinn, spriklar þar og lætur öllum illum látum og skilur síðan ekkert í því þegar hákarlarnir freistast til að narta í matinn sem er veifað er framan í þá.

 
mbl.is Mannfólk á matseðlinum?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísraelsher nálgast markmið sitt!!

rétt og rangtNú þegar hafa 879 látist í árásum  Ísraela á Gaza.  Ætli markmiðið þeirra hafi verið að sjá 900 eða 1000 fallna?

Hvar ætli kristilegsiðferðisþolmörk utanríkismálanefndar Alþingis liggi, við 1100, 1500 eða 2000 fallna?

.

   
mbl.is Olmert: Nálgumst markmið okkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tilhlökkunarefni?

Þegar menn taka þá stóru ákvörðun að skrifa bók hefur umfjöllunarefni hennar undantekningar lítið verið að veltast í huga rithöfundarins um nokkurn tíma.

Nú hefur Bush karlinn tekið þá ákvörðun að skrifa bók en hefur ekki enn ákveðið efni bókarinnar, en bók skal það verða. Þetta verður örugglega merkileg bók, skrifuð af manni sem hefur aldrei á ævinni getað, hjálparlaust, sagt 3ja orða setningu óbrenglaða.

bókBush ætlar sér tvö til fjögur ár í verkið. Miðað við hugsunar hraða Bush gætum við að þeim tíma liðnum átt von á einni, jafnvel tveim síðum af spennandi lesefni tilbúnum til þýðingar yfir á skiljanlegt mál.

Ætli Bush aðeins að skrifa um það sem hann áorkaði sem forseti, er til framfara getur talist, vandast málið, það eitt gæti aldrei fyllt eina síðu, nema notað væri mjög stórt letur.

 
mbl.is Bush hyggst rita bók
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband