Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2009

Fátt er svo með öllu illt að ekki boði gott.

Það er auðvitað sárt þegar stórtjón verður í eldsvoða sem þessum. Sem betur fer urðu ekki slys á fólki.

þingvellir2Mig minnir að fyrir ekki margt löngu hafi verið gerð skýrsla um ástand Valhallar, niðurstaða hennar var að ástand hússins væri þannig að eini raunhæfi kosturinn væri að rífa það. Samkvæmt skýrslunni er því lítil eftirsjá í húsinu sem slíku.

Nú er komið kjörið tækifæri til að færa hótel og veitingarreksturinn út fyrir þinghelgina. Svona rekstur á ekki heima á þessum stað, nánast ofaní Almannagjá.

En vænta má holskeflu hefðbundina tillagna og krafna frá vænisjúku fólki,  um að húsið verði endurreist á sama stað í upprunalegri mynd, ekkert minna.

.

  

mbl.is Lítið eftir af Hótel Valhöll
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er krossfesting kynlíf?

 

Þetta er sorgleg frétt af illri og ómennskri meðferð á barni af soraforeldri  höldnu ógeðslegu innræti.

Eitt skil ég samt ekki. Í fréttinni er það flokkað undir kynlíf að stúlkan var fest upp á kross og hýdd. Er það kynlíf?  

Var þá frægasta (meint)  krossfesting sögunar þá ekki aftaka eftir allt saman heldur kynlífsorgía?


mbl.is Seldi dóttur sína í vændi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hversu stutt getur.....

.....fangelsi orðið? Ef fangelsið er mjög stutt verður það að vera því meira á breiddina eigi það að rúma fangana fjórtán.

 

 


mbl.is Fjórtán dæmdir í stutt fangelsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dýra grín

Nokkrar skemmtilegar myndir af dýrum.

001

002

003

005

006

007

004

008

011

 


Stela stórt það er málið.

 

Maður stelur hálfri flösku af lélegum vodka úr ríkinu og fær mánaðardóm fyrir vikið.

En þegar menn sem skulda Kaupþingi ( Ríkinu) sex milljarða og segjast aðeins ætla að borga 2,5 til 3 miljarða en stela restinni (1.200.000 vodkafleygar) þá horfir öðru vísi við. Þá er útlit fyrir að aðeins verði sagt –„þó það nú væri elsku vinir, ekkert mál, hafið ykkar hentisemi.“

Fyrir dóminn hafði vodkaþjófurinn greitt fleyginn fullu verði, hann fékk engan afslátt eða niðurfellingu.

 
mbl.is Stal vodkafleyg og einum bjór
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Var allt einkavæðingarferlið lygi og blekkingar?

Því var haldið stíft að þjóðinni að kaup Samson á Landsbankanum væru alfarið fjármögnuð með sölu Björgólfsfeðga á bjórverksmiðju þeirra í Rússlandi. 

Þessi innflutningur á fjármagni var ein af megin rökum og skýringum Ríkisstjórnarinnar á sölu bankans til Samson.

Þar fór fremstur maðurinn, sem nú kemur fram fyrir þjóðina og hvítþvær sjálfan sig og kennir öllum öðrum um. Menn falla fram á ásjónu sína hópum saman og hrópa meistari, meistari lof sé þér, visku þinni og tilvist.

Nú er komið í ljós að fjármögnunarsagan var lygi. Hluti kaupverðsins var tekin að láni og nú á að láta þjóðina greiða það lán.

Var allt einkavæðingarferlið lygi og blekkingar? Var eitthvað á þessum tíma framkvæmt eins og gerist meðal siðaðra þjóða?

   
mbl.is Dýrt fyrir ríkið að selja banka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ábyrgir aðilar og „óábyrgur“ almenningur!

FinnurSveinbjornssonFinnur Sveinbjörnsson bankastjóri Kaupþings sá sig knúinn að rjúfa bankaleynd í dag, enda ástæðan ærin,  hann og kona hans hefðu sætt hótunum vegna  frétta um hugsanlegar afskriftir á skuldum Bjarnabófana. bjorgolfsfedgar 

Finnur sagði enga ákvörðun hafa verið tekna um afskriftir á skuldum feðgana en þær fréttir hefðu valdið hörðum viðbrögðum  í þjóðfélaginu, bæði af ábyrgum aðilum og almenningi.

almenningurHverjir teljast ábyrgir aðilar? Tilheyra Björgólfsfeðgar þeim hópi? Er almenningur þá óábyrgur?

Verður aðeins óábyrgum aðilum gert að greiða skuldir sínar að fullu en ábyrgum hlíft að hálfu eða öllu leyti?

.

  
mbl.is Bankastjóra Kaupþings hótað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

„Mikið var um dýrðir....“

Undarleg fyrirsögn Mbl.is á frétt af minningarathöfn. Var þetta hátíð með gleðskap og galsa?


mbl.is Mikið um dýrðir á minningarathöfninni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Búsáhaldabyltingin hin meiri

 

Sigga á Suðureyri, Atli á Akureyri, Gunnar í Grindavík og Njörður á Norðfirði fá lögfræðingastóðið með það sama inn á rúmgafl, standi þau ekki, að fullu, í skilum. Þau fengju örugglega að auki tilboð um vist inn við sundin blá, gerðu þau bankanum sínum tilboð, samsvarandi tilboði Björgólfsfeðgagráir fyrir járnum (lesist Bjarnabófanna).

Vilhjálmur Bjarnason á heiður skilið fyrir hans baráttu og framgöngu á liðnum misserum gegn  fjármálasóðaskapnum. Vilhjálmur fer örugglega nokkuð nærri, hvað gerist verði þessi gjörningur framkvæmdur.

Hún verður engin búsáhaldabylting, byltingin sú.

 

 


mbl.is Varar við borgarastyrjöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þessi dómur er hneysa.

Í Héraðsdómi Reykjavíkur var karlmaður í dag dæmdur í 8 ára fangelsi fyrir fjölmargar líkamsárásir og gróf kynferðisbrot gegn fyrrverandi sambýliskonu sinni. Ofbeldi mannsins mun hafa staðið í tæp tvö ár. M.a. veitti maðurinn öðrum mönnum „aðgang“ að konunni gegn vilja hennar.

Í dómi héraðsdóms segir að brot mannsins eigi sér enga hliðstæðu í réttarframkvæmd hér á landi og að hann eigi sér engar málsbætur.

Í ljósi  alvarleika brota mannsins, eins og segir í dómsorði, þá er stórfurðulegt að dómurinn skuli aðeins nýta refsirammann til hálfs. Hámarks refsing við brotum mannsins er 16 ára fangelsi.

Venjulegt fólk hefur vart ímyndunarafl til að sjá fyrir sér hvernig svona glæpur þyrfti að vera vaxinn til að Íslenskir dómstólar teldu ástæðu til að fullnýta  refsirammann.

 

 


mbl.is Átta ár fyrir gróf og ítrekuð kynferðisbrot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband