Bloggfærslur mánaðarins, mars 2010
Á hvaða leið er SÁÁ?
9.3.2010 | 17:21
Í frétt á visi.is er greint frá mánaðarlegum lista SÁÁ um verð á fíkniefnum. Ég hef aldrei skilið tilgang SÁÁ með þessum verðlista birtingum.
Í nýjasta verðkynningar- bæklingi SÁÁ er frá því greint að verð- lækkun hafi orðið á

Nú þegar áfengi hefur hækkað í verði, er þá SÁÁ að benda unglingunum á að snúa sér frekar að ólöglegum fíkniefnum, því það sé hagkvæmara fyrir slappa budduna?
Fólk hlýtur að spyrja sig hvort SÁÁ vinni með þessu að því að fjölga eða fækka sínum viðskiptavinum.
![]() |
Hundrað fíklar með í rannsókn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Mulningur #12
9.3.2010 | 14:26
Fyrir nokkrum árum þurfti stjórn dýragarðsins í Kirby Misperton í Englandi að greiða fólki bætur fyrir muni sem aparnir í dýragarðinum þrifu af því.
Menn furðuðu sig á því hve mikið af því sem þurfti að bæta voru gleraugu. Rannsóknarnefnd var sett á laggirnar og eftir ýtarlega rannsókn leysti hún málið.
Aparnir náðu gleraugunum af fólkinu þegar það laut fram til að sjá á lítið skilti, með enn minna letri, sem fest var á apabúrið.
Á skiltinu stóð:
VARÚÐ ÞESSIR APAR STELA GLERAUGUM.
Mulningur | Breytt s.d. kl. 14:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Heldur ESB að allir Íslendingar séu haldnir Stokkhólmsheilkenninu?
8.3.2010 | 23:38
Þeir ættu nú ekki að vera hissa hjá Evrópusambandinu þótt áhugi Íslendinga á inngöngu í ESB fari minnkandi. ESB hefur lítið annað gert en reisa Íslandi veggi og hækka þröskulda vegna Icesave-málsins.
Ef áhugaleysi okkar veldur þeim áhyggjum gætu þeir reynt að beita sér fyrir því að aðildarlöndin slaki aðeins á hengingarólinni um háls Íslendinga.
Ef ekki verða þeir bara að velta vöngum áfram.
![]() |
Áhyggjur af áhugaleysi Íslendinga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Ó nei...
8.3.2010 | 20:25
...ekki aðra Keikó vitleysu. Þá er betra að hakka hann strax í refafóður.
![]() |
Vill frelsa háhyrninginn Tilly |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hræsni og annað „skítlegt eðli“.
8.3.2010 | 15:49
Ég hef alla tíð verið þeirrar skoðunar að forsetinn, sem kjörinn er beinni kosningu af þjóðinni, sé afar mikilvægur öryggisventill þjóðarinnar ef stjórnmálin fara af sporinu. Málskotsréttur forsetans er nauðsynlegur til að svo geti verið. Málskotsréttinn má aldrei nema brott úr stjórnarskránni, eins og sumir hafa talað fyrir.
Sjálfstæðismenn mega þessa dagana vart vatni halda af hrifningu og aðdáun á forseta lýðveldisins. Þeir rymja og vella af ánægju og sælu yfir hverju hans fótmáli og andadrætti, rétt eins og þar færi endurholdgað eitt af gengnum formannsgoðum flokksins.
Var gleði Sjallana í garð forsetans með þessum hætti þegar hann hafði synjað fjölmiðlafrumvarpinu? Nei þá orgaði allt liðið venju fremur og óskapaðist með tilheyrandi aurmokstri, rífandi hár sitt og skegg. Margir fullyrtu t.a.m. að forsetinn hefði framið valdarán, því samkvæmt stjórnarskránni hefði hann hreint ekkert málskotsvald og túlkuðu stjórnarskránna á þann hátt er best henntaði og kröfðust þess, til að taka af alla vafa að þetta ákvæði yrði fjarlægt úr Stjórnarskránni með það sama.
Þessi ofurhrifning og tilbeiðsla þeirra á forsetanum er ný af nálinni og örugglega þarf lítið til, svo þessi bráðaást hrökkvi aftur niður á fyrra plan. Forsetinn mátti, til skamms tíma, vart hósta eða ropa án þess að flokkurinn færi á hliðina með tilheyrandi ofstopaviðbrögðum á hamfaramælikvarða, þar sem menn organdi, hlandblautir af vandlætingu spöruðu ekki stóryrðin og skítinn.
Nú allt önnur Ella uppi og nú þakka þeir örugglega sínum sæla fyrir að hafa ekki haft til þess afl að nema málskotsrétt forsetans brott úr Stjórnarskránni eins og hugur þeirra stóð til. Þeir hafa með málflutningi sínum núna staðfest þetta ákvæði stjórnarskrárinnar og geirneglt það í bak og fyrir, þrátt fyrir fyrri fullyrðingar um annað.
Sem dæmi um smásmuguhátt Sjálfstæðismanna í garð forsetans, má nefna opinbera heimsókn forsetahjónanna á sunnanverða Vestfirði 1996. Í ávarpi sem forsetinn hélt í einhverri móttökunni þar vestra kom hann inná ástand veganna á Barðaströndinni, sem honum og öðrum blöskraði.
Það var eins og við manninn mælt að Sjálfstæðismenn, sem þá fóru með samgöngumál í ríkisstjórninni, fóru gersamlega á límingunum og í kjölfarið fylgdu blaðagreinar í stöflum og viðtöl á viðtöl ofan þar sem forsetanum voru ekki vandaðar kveðjurnar.
Það var skoðun mín þá og er enn að ekkert sé við það að athuga þó forsetinn tjái sig um þau málefni sem á þjóðinni brenna, hafi hann til þess ríka ástæðu. Ég studdi synjun forsetans, bæði á fjölmiðlalögunum og Icesave, enda réttur hans til þess stjórnarskrárvarinn.
En það skemmtilega er að forsetinn, sem forðum mátti ekki nefna holurnar á Barðaströndinni, né aðra heilaga hluti, má núna..., ja... setja Sjálfstæðismenn embættinu og forsetanum einhverjar skorður þessa daganna?
Þessari grímulausu hræsni og falsi Sjálfstæðisflokksins var á góðri stundu best lýst sem skítlegu eðli.
![]() |
Segir ríkisstjórn á brauðfótum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (37)
Hvaða, hvaða?
8.3.2010 | 15:44
Þeirri skoðun virðist líka vaxa hratt fiskur um hrygg innanlands ef marka má fylgisaukningu Sjálfstæðisflokksins, sem vinnur baki brotnu að því einu að breiða yfir sinn eigin fortíðarvanda.
![]() |
Íslendingum sjálfum að kenna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Leiftur framtíðar og ómur fortíðar.
8.3.2010 | 14:47
Í seinnihluta myndskeiðsins sem fylgir þessari frétt leikur framtíðar formannsefni Framsóknarflokksins aðal hlutverkið.
Þ.e.a.s. ef svo ólíklega færi að Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni mistækist að gera sjálfan sig að bautasteini flokksins.
Bragi bóksali sagði í síðasta Kilju þætti að Sigmundur Davíð væri gott dæmi um pólitíkus sem gleymdist áður en hann byrjaði. Er hægt að orða það betur?
![]() |
Fundur líklega síðar í vikunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Brown þvær hendur sínar.
8.3.2010 | 13:39
Já Brown það var lagið, þvo hendur sínar og vísa á elsku Darling.
Þegar Brown segir núna að það þjóni ekki hagsmunum Breta að skáka Íslandi út á hliðarlínuna og mikilvægt sé að landið sé hluti af Evrópukerfinu þá rímar afskaplega illa við forsögu málsins, hryðjuverkalögin, frystingu eigna Landsbankans og allt það.
Já Bráný þvoðu hendur þínar, vantar meiri sápu?
![]() |
Brown vísar á Darling |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 13:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Mulningur #11
7.3.2010 | 16:24
Hestamenn á Héraði buðu eitt sinn þeim snjalla og landskunna hagyrðingi Hákoni Aðalsteinssyni að koma með þeim í útreiðatúr. Hákon var ekki mjög áhugasamur og afþakkaði boðið með þessari vísu:
Týndir og slasaðir bíða menn bana,
sem bægslast á hestum um grundir og hlíð.
Ég hef til þessa haft fyrir vana
að horfast í augu við það sem ég ríð.
Mulningur | Breytt 8.3.2010 kl. 11:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Já segir hún það blessuð konan!
7.3.2010 | 15:02
Það er merkilegt að menntamálaráðherra Þýskalands skuli sjá ástæðu til að greina opinberlega frá þessari skoðun sinni.
En ekki nóg með það konan segist vera öskuvond.
Í stað þess að kjafta málið í hel ætti hún að snúa sér að því af alefli að moka út úr sorakjöllurum Kaþólsku kirkjunnar, þar sem barnaníðingar virðast hafa í árhundruð fundið sér afdrep og skjól til sinna óhæfuverka.
![]() |
Ekki á að umbera kynferðislega misnotkun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mannréttindi | Breytt s.d. kl. 15:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)