Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2011

Eru okkar bestu vinir að sjá ljósið?

Það er athyglisvert að stjórnvöld í Bandaríkjunum skuli,  eftir 30 ára einræðisstjórn Hosni Mubaraks og  þar áður einræðisstjórnar  Anwar Sadat og raunar allar götur síðan Egyptar byrjuðu að halla sér að Bandaríkjunum í stað Sovétríkjanna áður, núna loksins átta sig á því að stjórnarfarið í þessu landi uppfyllti fráleitt þær lýðræðiskröfur sem þeir gera  til þjóða heimsins, í orði kveðnu a.m.k., nema þegar mikið liggur við auðvitað.

 

Hvað ætli þurfi að gerast á strætum borga Sádi Arabíu og strætum borga annarra bandalagsríkja þeirra í Arabaheiminum til að Bandaríkjamenn átti sig á hvernig stjórnarfari í þessum ríkjum er háttað?

  
mbl.is Hvetur til stjórnarskipta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Æpandi þögnin segir meira en mörg orð.

Hún æpir á okkur hin algera þögn á mbl.is um átökin í Sjálfstæðisflokknum í kjölfar yfirlýsingar Bjarna Ben formanns um stuðning  þingflokks Sjálfstæðisflokksins  við  Icesave III.

Oft er hægt að lesa meira út úr þögninni en langlokugreinum, þannig er því einmitt farið að þessu sinni. Ef frá er talin leiðari Moggans í dag þá er þögnin um ástandið í flokknum alger. Núna eltir ekki hver æsingar- og dramafréttin aðra á mbl.is, eins og venjan hefur verið þegar einhver ræskir sig í Vinstri Grænum, upplognar ef ekki vildi betur og allt skrifað á litla nafnlausa heimildarmanninn. 

Það verður fróðlegt að fylgjast með þingmönnum Sjálfstæðisflokksins næstu daga, nú þegar Hádegismóri hefur helt  úr næturgagni sínu yfir formanninn sem boðskap dagsins . Fullvíst er að allir þeir þingmenn sem sátu hjá við síðustu afgreiðslu Icesave munu hugsa sig um tvisvar áður en þeir breyta hjásetunni í stuðning.

En enn skemmtilegra verður að fylgjast með þeim þingmönnum sem greiddu atkvæði með Icesave, hvort þeir standa á sínu eða heykist á viljanum til góðra verka og snúi við blaðinu af eðlislægum ótta sínum við Hádegismóra.

Það væri gaman að vera fluga á vegg í Valhöll á fundi formannsins á morgun þegar hann ætlar að skýra og rökstyðja Icesave kúvendinguna. Fastlega má búast við hressilegum fundi,  mæti Hádegismóri á fundinn og taki glímu við formanninn. Fullvíst er að formaðurinn, líkt og Grettir forðum eftir glímuna við Glám, komi ekki  samur úr þeirri glímu, ef hann „lifir hana þá af“, yfir höfuð.


Sjálfstæðisflokkur í sjálfheldu

Allir vita að það hefur ekki verið framalega í stafrófi Sjálfstæðisflokksins að þjóðin hefði eitthvað um sín mál að segja milli reglubundina Alþingiskosninga.

Birni Bjarnasyni hlýtur því að vera illa brugðið yfir nýjasta áfallinu í tilvistarkreppu Sjálfstæðisflokksins úr því hann er farinn að tala um þjóðaratkvæðagreiðslu. Sjálfstæðisflokkurinn hefur komið sé í pólitíska sjálfheldu með því að stíga smá skref í þá átt að taka loksins ábyrgð á eigin klúðri, svo undarlega sem það hljómar.  Björn óttast klofning í flokknum og eina ráðið sem hann sér er að koma enn einn ganginn ábyrgð flokksins á einhvern annan.

Það liggur þá beinast við að mati Björns að varpa völinni á þjóðina og láta hana eiga kvölina. Flokkurinn getur því fríað sig enn ganginn af allri ábyrgð, hvernig sem fer, brosað fölsku brosi framan í þjóðina og sagt, þetta var það sem þið vilduð!

  


mbl.is Björn vill þjóðaratkvæði um Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Liggur fyrir blessun ritstjórans í Hádegismóum?

Vonandi hefur Bjarni tryggt sér blessun ritstjóra Moggans í málinu. Það væri síst til þess fallið að styrkja þegar ótrygga stöðu hans á formannsstóli, reki ritstjórinn þetta öfugt ofan í hann.


mbl.is Óánægja kemur ekki á óvart
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jón Steinar játar!

Allir vita að óviðunandi vinnuálag getur valdið dýrkeyptum mistökum, hver sem vinnustaðurinn er.

Jón Steinar Gunnlaugsson Hæstaréttardómari segir vinnuálagið í Hæstarétti algerlega óviðunandi. Jón Steinar segir lögmannsreynslu sína segja að nauðsynlegt sé að nægur tími gefist til að melta málin en í Hæstarétti sé því ekki að heilsa, málin séu keyrð í gegn svo hægt sé að fara í næsta mál. Hann segir vinnuálagið hafa nær tvöfaldast frá því hann byrjaði í dómnum!

Það er alveg ljóst að þetta er ástand sem ég tel að sé alveg óviðunandi og fólkið í landinu ætti að átta sig á að gengur ekki. Þetta er allt of mikið álag,“ sagði hann. Jóns Steinar sagði að það sæju það allir, að þegar Hæstiréttur þurfi að dæma í svona mörgum málum þá aukist hættan á því að mönnum verði eitthvað á í dómarastarfinu.

Er í alvöru, eftir þessa umsögn Jóns Steinars Gunnlaugssonar Hæstaréttardómara, að fullu mark takandi á því sem frá Hæstarétti kemur hvort heldur það heitir dómur eða álit?  


mbl.is Fjölgun dómara eykur ringulreiðina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Var réttarvenjunni „að njóta vafans“ snúið á haus?

Oft er talað um það í dómteknum álitamálum að þar sem vafi leiki á sekt ákærða skuli hinn ákærði njóta vafans og skuli því sýknaður.

Þar sem Jón Steinar hefur staðfest að enginn viti hvort ágallarnir á kosningunni hafi haft áhrif á útslit kosninganna, það blasir það við að einmitt það, er með öllu ósannað.

Bar þá ekki Hæstarétti að sýkna lýðræðið, hið ákærða, og láta það að réttarvenju njóta vafans í stað þess að snúa réttarvenjunni á haus og láta kærendurna njóta vafans, sem ekki höfðu annað til að vinna en að þjóna meinfýsni sinni og pólitískri illgirni.


mbl.is Enginn veit um áhrif ágalla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aldrei hefur falskari tillaga verið sett fram á Alþingi

Það hefur verið starfandi  stjórnarskrárnefnd  með hléum nánast allan lýðveldistímann með það hlutverk að breyta og bæta stjórnarskránna. Hvorki hefur gengið né rekið í þeirri vinnu. Alltaf hefur strandað á því sama, stjórnmálamönnum allra flokka hefur verið um megn að taka heildar hagsmuni þjóðarinnar fram yfir þrönga flokkslega hagsmuni.

Það er ekkert í pípunum  að einhver breyting hafi orðið hvað það varðar, nema síður sé. Það hefur aldrei verið þýðingarmeira fyrir fulltrúa LÍÚ á Alþingi að verja hagsmuni sinna umbjóðenda, þar helgar tilgangurinn meðalið.

Því er þetta örvæntingarútspil sett fram af sjálfstæðismönnum, vitandi að nái þessi falska viljayfirlýsing  fram að ganga, hafa þeir náð að hindra endurskoðun kvótakerfisins eða seinkað henni nægjanlega, hið minnsta, þar til þeir fá völd til að innsigla endanlega eignarhald Sægreifanna á aðalauðlind þjóðarinnar um aldur og ævi.

Er eitthvað sem hindrar fulltrúa Samtaka atvinnulífsins á Alþingi, Bjarna Ben og hans hjörð, að semja drög að nýrri stjórnarskrá, úr því þetta er allt í einu ekkert mál? Þau drög væri síðan hægt að bera saman við þær stjórnarskrártillögur sem fulltrúar þjóðarinnar á stjórnlagaþinginu semja og kjósa á milli þeirra ef vill.

 Ég er ekki í nokkrum vafa, hvort plaggið, myndi hugnast þjóðinni betur. 


mbl.is Alþingi hefji endurskoðun stjórnarskrár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband