Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2011
Kynþátta- og kynjakvótar, hvorutveggja er hneyksli.
30.4.2011 | 12:02
Hneyksli kalla þeir það í Frakklandi þegar uppvíst varð að forsvarsmenn knattspyrnusambandsins höfðu sett á kynþáttakvóta til að þvinga fram þá kynþáttaskiptingu í fótboltanum, sem væri þeim þóknanleg.
Hver er hinn hugmyndafræðilegi munur á kynþáttakvóta og kynjakvóta? Ég kem ekki auga á hann í fljótu bragði. Kynjakvótanum Íslenska er ætlað, rétt eins og kynþáttakvótanum franska, að þvinga fram ákveðna niðurstöðu, hvort sem hún er raunhæf eða ekki, hvort sem hún skilar betra liði eða ekki.
Þess verður örugglega skammt að bíða að Íslenskar femínistabullur setji fram þá eðlilegu kröfu að hlutfall karla í karlalandsliðum Íslenskum fari aldrei yfir 50%.
Settu kynþáttakvóta á unga leikmenn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Er ekki kenningin sú, að framboð og eftirspurn eigi að haldast í hendur?
30.4.2011 | 01:19
Hefur það ekki verið daglegur viðburður allt frá hruni frjálshyggjunnar að fólki væri fækkað í flestum starfsgreinum, hér og þar? Ekki hefur það orðið sérstök frétt þó að minnsta kosti tveimur hafi verið sagt upp á þessum staðnum eða hinum. En þegar, allt að því tveimur, jafnvel alveg tveimur, er sagt upp í Þjóðleikhúsinu, fara fjölmiðlar á hliðina.
Til að bæta gráu ofan á svart og kóróna glæpinn er því haldið leyndu hverjir hinir ógæfusömu LISTASMENN eru. Þjóðin þarf auðvitað að vita hverjir þessir ÓGÆFUSÖMU listamenn eru svo hún geti sýnt þeim viðeigandi hluttekningu, tárast og jafnvel grátið með þeim.
Að sögn formanns leikarafélagsins búa leikarar við þau óyndis starfsskilyrði að atvinna þeirra er ekki verndað starfsheiti og því geti þeir átt von á uppsögnum eins og aðrir.
Þvílík starfsskilyrði, verð ég að segja, að fólk í menningar- og listageiranum þurfi að búa við þá ógn að geta misst vinnuna, eins og við hin, minnki eftirspurnin eftir framlegð þeirra eða verði jafnvel engin.
Uppsagnir í Þjóðleikhúsinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 01:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Grímulaust rugl
29.4.2011 | 22:01
Núna er þessari geðveikis Royal vitleysu sem betur fer að ljúka og heimurinn getur farið að undirbúa næsta toppviðburð aldarinnar, væntanlegan skilnað turtil- dúfnanna.
Lögreglan handtók allmarga í tengslum við brúðkaupið og þar á meðal þetta þokkapar sem við sjáum á myndinni. Hjúin, sem munu eiga sér vafasama fortíð, voru handtekin þegar þau reyndu að smygla sér í aðalveisluna.
56 handteknir í London | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 22:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Verður þessu fiskveiðikerfi andskotans gefið lengra líf?
29.4.2011 | 13:33
Það eru auðvitað viss batamerki að SA, fyrir hönd LÍÚ, séu loks að viðurkenna að ekki standi til að leggja útgerð á Íslandi niður, eins og málflutningur þeirra allur fram að þessu hefur borið með sér.
En því er ekki að neita að vissan ugg setur að mér að lendingin í sjávarútvegsmálunum verði hvorki fugl né fiskur og muni ekki opna þetta kerfi andskotans að neinu marki, úr því SA hafa dregið úr djöflagangi sínum fyrir hönd LÍÚ.
Verði það raunin, er þá ekki kominn tími til að hleypa árans íhaldinu að stjórn landsins, við þurfum þá ekki að byggja upp væntingar um það sem aldrei verður.
Rekstrarskilyrðin verði tryggð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Æ sér gjöf til gjalda
28.4.2011 | 12:57
Hvernig ætlar Guðlaugur Þór Þórðarson að færa rök fyrir meintum meiðyrðum samþingmanns síns fyrir dómi nema að kalla til vitnis þá sem styrktu hann? Guðlaugur hefur einmitt borið við trúnaði við þessa styrkveitendur, í tregðu sinni að upplýsa um styrkjamálin, sem hann hefur viljað halda sem mest í skugganum.
Ég trúi því ekki fyrr en ég tek á því að styrkveitendur Guðlaugs mæti fyrir dóm og greini þar frá styrkjunum í smáatriðum, upphæðum þeirra og þeim væntingum sem við þá voru bundnar.
Þeir eru til, en eru ekki margir, sem trúa því í einlægni að menn gefi milljónir í kosningasjóði frambjóðenda af þeirri ástæðu einni að þeir telji þingmannsefnið svo dæmalaust góða sál. Ástæðan er miklu frekar hin gagnstæða.
Í þessu sambandi gildir einu hver frambjóðandinn er, hvers kyns og hvaða flokki hann tilheyrir, verknaðurinn og tilgangurinn er sá sami.
Nei Guðlaugur fer ekki í mál, þá þyrfti hann að leggja allt á borðið, upplýsa styrkveitingarnar í heild sinni, hann hefur síst meiri áhuga á því nú en áður, því þá gæti hann þurft að axla ábyrgð.
Þetta er vanhugsuð innantóm hótun, sem snýst í höndum Guðlaugs og verður til þess eins að vekja aftur upp umræðu um málið og orðið, sem ekki mátti nefna.
Krefst afsökunarbeiðni frá þingmanni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Dásamlegt
27.4.2011 | 23:02
Það er yndislegt að hrefnuveiðarnar skuli vera hafnar. Ég fæ vatn í munninn og slefa nánast af tilhugsuninni einni saman að fá nýtt hrefnukjöt á pönnuna!
Hrefnuveiðar að hefjast | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Matur og drykkur | Breytt 28.4.2011 kl. 00:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Verkföll í boði LÍÚ
27.4.2011 | 17:25
Það stefnir allt í allsherjarverkfall á þessum síðustu og verstu tímum, allt í boði LÍÚ mafíunnar.
Verkföll upp úr 20. maí? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Iðrast ekki verkalýðurinn núna, sem kaus gunguna Gylfa yfir sig?
26.4.2011 | 22:46
Eftir hverju eru menn að bíða hjá ASÍ með aðgerðir, er eitthvað sem bíður sér til batnaðar í þessum bjána sirkus? Ef menn eru að bíða þar eftir því að jólin verði framvegis í júlí, er það eflaust tímasóun.
Það eru ekkert annað en verkfallsaðgerðir, og það strax, sem duga á þetta bölvaða SA pakk. Þeir komu vísvitandi fram með kröfur sem viðsemjendur þeirra geta á engan hátt orðið við eða kemur þeim yfir höfuð við.
Hvað ætli aðal asna höfuðið hjá ASÍ, þurfi langan tíma til að velta því fyrir sér, komi SA með þá kröfu að samningar geti aðeins tekist ef ríkisstjórnin snúi bakhlið tunglsins að Jörðu? Ætli hann þurfi dag, viku eða eina Gylfa ævi?
En Gylfi er ekki mesti bjáninn í þessu dæmi, það eru þeir sem kusu hann yfir sig og verkalýðinn í þessu landi.
Þeirra skömm mun uppi meðan land byggist!
Undirbúa verkfallsaðgerðir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Enn einn gerviguðinn skapaður í Róm
26.4.2011 | 20:18
Hverskonar vitfirring er það að trúa af ákefð á einn Guð, en trúa því jafnframt að venjulegt fólk geti orðið, með einu pennastriki Páfagarðs, að einhverskonar milli Guðum, sem fólk getur snúið bænum sínum til?
Hver gaf Páfagarði það vald að gera fólk að Guðum? Var það sami gaurinn og sagði; Þú skalt ekki aðra Guði hafa?
Þetta er hreinlega geggjað fyrirkomulag, en af klókindum hannað til þess að tryggja útvöldum valdið yfir lýðnum. Þetta er sama fyrirkomulagið og lénsherrar fyrri alda og einvaldar notuðu til tryggja völd sín og tök sín á lýðnum, svo hægt væri að pína hann bæði skattalega og valdslega. Þeir þáðu jú eins og allir vita vald sitt beint frá Guði.
Blóð úr páfa helgað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 20:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
Menn eiga víst að berja sínar konur, ekki annarra!
26.4.2011 | 17:41
Það kann ekki góðri lukku að stýra að berja annarra manna konur.
Þetta hefði auðvitað ekki verið stórmál, þarna í Eyjum, og vart í frásögur færandi, hvað þá haft eftirmála, hefði maðurinn aðeins asnast til halda sér við sinn leist og látið sér nægja að berja sína eigin konu, svona að sjómannasið, eins og upprisni eyja-þingmaðurinn sagði.
Fór konuvillt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)