Skoðar kvenréttindafélagið í klof landsmanna?
16.9.2010 | 14:22
Kvenréttindafélag Íslands varar við svokallaðri kynfæragötun sem hefur færst í vöxt meðal ungra kvenna að undanförnu og kennir um hinni margþvældu klámvæðingu sem síast inn í vitund kvenna og karla eins og sjá má á poppmenningunni!!
Kynfæragötun getur auk þess haft alvarlegar heilsufarslegar afleiðingar fyrir konur. Kvenréttindafélag Íslands skorar á heilbrigðisyfirvöld að vera vel á verði, bæði hvað varðar afleiðingar þessara aðgerða svo og leyfisveitingar til handa þeim er framkvæma þær.
Konunum þykir full ástæða til að könnun verði gerð á umfangi kynfæragötunar á Íslandi, þær eru örugglega ólmar að taka verkið að sér svo þær geti kíkt í hversmanns klof.
Kvenréttindafélagið hefur ekki nokkrar áhyggjur af annarri götun en í kynfæri, því getur hún hvorki verið heilsufarsvandamál né klámógn!
![]() |
Álykta um kynfæragötun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Þjóðareignin Ómar
16.9.2010 | 12:34
Hvað skal segja?
16.9.2010 | 10:47
Það eru blikur á lofti þessa dagana í Íslenskri pólitík. Á Alþingi standa þingmenn frammi fyrir þeim vanda að þurfa að ákæra samherja og vini fyrir vanrækslu og embættisafglöp. Þó það sé ekki öfundsvert hlutskipti verður ekki undan því vikist, því svo mæla lög fyrir um. Stundum þarf einfaldlega að gera fleira en gott þykir, líka á Alþingi.
Sjálfstæðisflokkurinn ætlar í heild sinni að bregðast skyldum sínum til að þjóna sérhagsmunum og er fátt fréttnæmt eða nýtt í því. En mér bregður að mörgum Samfylkingarmönnum virðist einnig súrna þessi skylda sín í augum og virðast á hröðu undanhaldi frá samvisku sinni.
Margt bendir því til þess að samstaða sé í uppsiglingu milli Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar að sópa í heild sinni út af borðinu þeirri skyldu Alþingis að ákæra fyrir Landsdómi. Því til rökstuðnings er talað um að lögin séu úrelt og sýkna sakborninga fyrir Landsdómi yrði áfellisdómur yfir Alþingi! Eins og þessi staða sé það ekki?
Það er spurning hvort þessir flokkar eigi þá ekki hreinlega að stíga skrefið til fulls og mynda saman ríkisstjórn. Víst er að það myndi gleðja margan íhaldsmanninn, sem myndu þá stoltir nefna Samfylkinguna sínu rétta nafni og hætta að tala um Samspillinguna, þá fyrst þegar hún hefði unnið fyrir þeirri nafngift.
Verði ekki ákært eru lögin um ráðherraábyrgð einskis nýt og öllu siðferði og aðhaldi ráðherra á haug kastað. Vandséð er hvaða tilfelli í framtíðinni gæti kallað á framkvæmd ráðherraábyrgðar, gerist það ekki núna.
Hvað segir grasrótin í Samfylkingunni, er hún sátt við þessa þróun mála? Eru Samfylkingarmenn almennt þeirrar skoðunar að ákærur eigi að fara eftir flokksskýrteinum? Erum við komnir niður á það plan? Til hvers kjósa menn þá Samfylkinguna, væri ekki hreinlegra að kjósa helvítis Sjálfstæðisflokkinn og spillinguna beint, ef þetta er leiðin?
Fari Alþingismenn ekki að lögum og hlaupast frá skyldum sínum í þessu máli, rjúfa þeir öll grið.
Ég er rólyndismaður að upplagi og seinþreyttur til vandræða, en fari þetta svona, þá tekur steininn úr. Hugtakið bylting hlýtur að fá vaxandi vægi í hugum landsmanna.
![]() |
Yrðu yfirheyrðir og gætu kallað til vitni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Er þetta hægt Matthías?
16.9.2010 | 07:25
Fimm klukkustundum fyrir opnun fór biðröð að myndast fyrir framan dyr Fjölskylduhjálparinnar og í henni stóðu fjögurhundruð og þrjátíu manns í gær. Stöðugur stígandi er í fjölda þeirra sem aðstoð og matargjafir þurfa til þess hreinlega að lifa af.
Þetta er Íslandi í dag.
Því miður verður þetta fólk að bíða þess enn um hríð að ríkisstjórnin finni og útfæri úrlausnir fyrir það því Samfylkingin, forystuflokkurinn í ríkisstjórninni, hefur öðrum hnöppum að hneppa þessa dagana. Núna ríður mest á að hindra að kusk falli á hvítflibba Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, sem ekki hefur annað til saka unnið en hafa sofið í örmum Geirs Haarde, meðan landið fór á hliðina.
Það verður mörgum eflaust huggum harmi gegn, þar sem þeir standa klukkutímunum saman kaldir á kroppinn og kalnir á sál í biðröðum fyrir framan Fjölskylduhjálpina og aðrar hjálparstofnanir, að vita að röðin kemur að þeim einhvern daginn.
Því má treysta á meðan norræna velferðarstjórnin, hin tæra vinstristjórn, stendur vaktina. Nema þá að þeirri vakt sé lokið.
![]() |
Erfiður vetur framundan |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ólík örlög
15.9.2010 | 16:55
Hundur beit dreng í fótinn í Mosfellsbæ í gærmorgun og ekið var á stúlku í Hafnafirði. Ekki var um alvarleg meiðsl að ræða, sem betur fer.
En ólíka afgreiðslu fá þessi mál, hundinum verður lógað en bifreiðin fær að lifa.
![]() |
Hundur beit dreng |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Löggæsla | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Hvað eru menn að hugsa?
15.9.2010 | 12:53
Það er í hæsta máta óeðlilegt að þingflokkur Samfylkingarinnar fundi með Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur um hugsanlega ákæru á hendur henni fyrir Landsdómi.
Þessi fundur getur aðeins orðið til þess að ala á tortryggni og ljá málinu enn frekar ímynd spillingar og samtryggingar, nóg er samt.
Hefur ekki verið talað um að brýnt sé að stjórnmálaflokkarnir og Alþingi ávinni sér aftur traust almennings, ef þetta er leikur í því tafli, þá er hann afleitur.
Eftir fundinn verður skítalykt af aðkomu Samfylkingarinnar að málinu hvernig sem hún verður.
![]() |
Ingibjörg Sólrún ræðir stöðu sína |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Hestabrauð
14.9.2010 | 19:04
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 19:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Enn felur kempan hann Bjarni sig...
14.9.2010 | 13:03
Það er pottþétt....
14.9.2010 | 11:48
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 11:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Já fyrir alla muni
14.9.2010 | 10:56
Bragðað á eigin meðulum
13.9.2010 | 22:24
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 22:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Er allt, sem múslímar gera, rangt?
13.9.2010 | 16:02
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
Til hamingju Ísland
13.9.2010 | 12:13
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Opinber diplómatísk fjárkúgun
12.9.2010 | 23:31
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Viljum við að okkur verði stjórnað með ógnunum og hótunum?
12.9.2010 | 17:27
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Talandi um ábyrgð og verklag.
12.9.2010 | 15:32
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
Fórnarlambið
11.9.2010 | 20:25
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Er það ekki yndislegt...
11.9.2010 | 18:28
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)