Leyndardómurinn í sandinum.
11.9.2010 | 14:17
Sandurinn í Landeyjarhöfn er að sögn Perlumanna meiri og ástandið verra en þeim hafði órað fyrir. En þeir ganga til verks af krafti og bjartsýni og dæla upp sandinum og flytja hann um set enda svo um mælt af þeim vitrari mönnum.
Þetta minnir mig á brandara sem gekk fyrir margt löngu um sjúklinga á Kleppi og próf sem þeir voru látnir ganga í gegnum til að ákvarða um heilbrigði þeirra.
Brandarinn var á þá leið að úti undir vegg við Kleppspítalann var sandhrúga mikil að vöxtum. Sjúklingarnir voru látnir moka sandinum í fötur og bera þær síðan upp á efstu hæðina inn í herbergi og hvolfa úr fötunum á gólfið.
Sjúklingarnir voru látnir endurtaka sandmoksturinn, burðinn upp, og allt ferlið aftur og aftur, enda var því lofað að þeir yrðu útskrifaðir um leið og allur sandurinn yrði kominn upp á loftið.
Þegar einhver sjúklingurinn áttaði sig loks á því að sandurinn, sem hann hafði borið upp daginn út og daginn inn, var alltaf sami sandurinn, því sandurinn rann jafnharðan aftur niður í hrúguna úti, þá taldist hann hæfur til útskriftar.
Það virðist langt í land með að þeir sem um Landeyjahöfn höndla verði útskrifaðir.
![]() |
Verra en við bjuggumst við |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
„Guð blessi Ísland“ , var það ósk eða staðreynd?
11.9.2010 | 12:27
Undarleg er hún þessi setning. Hvað getur vanræksla verið annað en skortur á nauðsynlegum viðbrögðum, athöfnum eða aðgerðum o.s.f.v., hvað sem góðum ásetningi kann að líða. Ráðherrar hafa í gegnum tíðina án efa og óhjákvæmilega gerst sekir um ýmiskonar vanrækslu en slíkt þarf í sjálfu sér ekki að vera alvarlegt nema af hljótist tjón.
Ekki fer á milli mála að tjón hlaust af þeirri vanrækslu sem til umræðu er, ekki lítið tjón eða smávægilegt, ekki nokkuð, ekki verulegt, ekki mikið - heldur tröllaukið og skelfilegt tjón.
Hvort sem menn vilja kalla það viðsnúning, bakslag, áfall, hamfarir eða hörmungar er ljóst að annað eins hefur aldrei yfir Ísland riðið frá upphafi byggðar. Það skelfilegasta er að tjónið er allt manngert og heimasmíðað.
Rannsóknarnefnd Alþingis komst að þeirri niðurstöðu að þrír ráðherrar hefðu með aðgerðarleysi gerst sekir um vanrækslu. Geir H. Haarde forsætisráðherra, Árni Mathieesen fjármálaráðherra og Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra.
Ábyrgðin liggur auðvitað óhjákvæmilega þyngst á forsætisráðherranum , sem verkstjóra stjórnarinnar og formanni og ábyrgðarmanni annars stjórnarflokksins. Ábyrgð fjármálaráðherrans liggur í augum uppi stöðu hans vegna. Viðskiptaráðherrann er auðvitað ábyrgur sem fagráðherra viðskipta og bankamála þótt fram hafi komið að honum hafi vísvitandi verið haldið utan við umræður og ákvarðanatöku.
Rannsóknarnefndin fór mildari höndum um Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur og taldi hana ekki beint ábyrga sem utanríkisráðherra. En það verður ekki framhjá því litið að hún var formaður annars stjórnarflokksins og ábyrgðarmaður hans og sem slík ber hún að sjálfsögðu fulla ábyrgð. Auk þess tók Ingibjörg sannarlega þátt í því, ásamt Geir, Árna og Seðlabankastjóranum, að leyna upplýsingum fyrir viðskiptaráðherranum og hindra að hann rækti skyldur sínar.
Þáttur Seðlabankastjórans í því máli, þótt aðrar hans gerðir séu látnar liggja á milli hluta, er algerlega tekinn út fyrir sviga og að engu gerður. Af hverju, er maðurinn Guð, ósnertanlegur?
Það er mitt mat að sekt Björgvins G. Sigurðssonar sé minnst þeirra sem ég hef talið til sögunnar. Hin, forsætisráðherrann og þáv. formaður Sjálfstæðisflokksins Geir Haarde, fjármálaráðherrann Árni Matt, utanríkisráðherrann og þáv. formaður Samfylkingarnar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Seðlabankastjórinn og þáv. formaður bankastjórnar Seðlabankans Davíð Oddson, beri öll ábyrgð að jöfnu.
En því má ekki gleyma að tjónið varð ekki til sem slíkt í tíð ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar undir forsæti Geirs H Haade, þótt það gerðist þá. Forsendur þess voru allar hannaðar og smíðaðar í ríkisstjórnartíð Framsóknar og Sjálfstæðisflokks, lengst undir forsæti Davíðs Oddsonar, með stuttu og örlagaríku inngripi Halldórs Ásgrímssonar. Hefur einhver gleymt honum?
Er ábyrgð þeirra og málið ekki nægjanlega alvarlegt til ákæru fyrir Landsdómi. Hvað heldur þú? Ef ekki, tilhvers er þá Landsdómur og hvað gæti hugsanlega orðið nægjanlega tröllaukið fyrir göfugan tilgang hans?
![]() |
Athafnaleysi þriggja ráðherra jafngilti vanrækslu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
„Samkvæmt áreiðanlegum heimildum“
11.9.2010 | 08:31
Skýrsla Þingmannanefndarinnar verður birt í dag. Flestir bíða spenntir eftir skýrslunni þó menn hafi æði misjafnar væntingar og vonir um útkomuna.
Trú manna á stjórnmálamönnum er í algeru lágmarki þessa mánuðina og sumir gera sér ekki háar vonir um réttlæti, sér í lagi þegar þeir jólasveinarnir rannsaka eigin sök.
Þar kemur Hádegismóri, skilgetið afkvæmi Gróu á leiti, sterkur inn og hamrar járnið meðan það er heitt, kryddar hraustlega með dylgjum, ýkjum og í bestafalli hálfsannleik, allt í þeim göfuga tilgangi að jafna um á pólitíska andstæðinga sína.
Og svo er fréttin feðruð með tilvísun í nafnlausar, og að sama skapi, öruggar heimildir, að sjálfsögðu!
![]() |
Takast á um tillögurnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þó vandlifað sé, þá fyrst tekur steininn úr að lífi loknu
10.9.2010 | 18:47
Það er bara svona, útfarir skulu vera helgiathafnir ekkert annað, að mati kaþólsku kirkjunnar, þar er ekki pláss fyrir neina lausung og óáran eins og sorg ættingja svo ekki sé talað um gleði og fögnuðuð yfir lífshlaupi hins látna Ónei, Guð hjálpi okkur!
Ekki má spila veraldlega tónlist í kaþólskri jarðarför! Halló er til önnur tónlist en veraldleg, hafa ekki öll tónskáld og lagasmiðir verið þessa heims?
Er þetta svar kaþólsku kirkjunnar við því að frjáls aðgangur hennar að börnum hefur víðast hvar verið heftur?
![]() |
Popptónlist bönnuð í jarðarförum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 18:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Eru allir sáttir, hvað er að gerast?
10.9.2010 | 17:19
Ég hygg að val Viðars Más Matthíassonar í stöðu Hæstaréttardómara sé bæði rétt og eðlilegt, enda var hann talinn hæfastur umsækjenda ásamt Þorgeiri Örlygssyni.
Ég hef ekki hugmynd um hvar Viðar Már er í pólitík og mig varðar raunar ekkert um það. En það er ég viss um að væri hann yfirlýstur VG þá logaði bloggið núna af vandlætingargreinum um pólitíska bitlinga veitingar og spillingu Ögmundar Jónassonar.
![]() |
Viðar Már skipaður dómari |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
„Fischer has left the building“
10.9.2010 | 11:59
Núna vantar aðeins kenningu um að dauði og greftrun Fischers hafi verið plat, rétt eins og meint andlát Elvis. Því eins og allir vita var Elvis geimvera sem fylltist heimþrá, sviðsetti dauða sinn, og hvarf til síns heima.
![]() |
Vill frekari DNA-rannsóknir vegna deilu um arf Fischers |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 12:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Öllu má nú nafn gefa
10.9.2010 | 07:55
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 07:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
NATO tapar í Afganistan, spurningin er aðeins hve illa.
9.9.2010 | 08:02
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 08:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Hreinsunareldurinn
8.9.2010 | 21:54
Vigdís á leiti
8.9.2010 | 20:05
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Herjólfur of stór en var minnkaður-hvorutveggja Steingrími að kenna.
8.9.2010 | 12:42
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
„Húnvetningar drepum Skagstrendinga“
8.9.2010 | 07:11
Afturhald heima og að heiman
7.9.2010 | 22:21
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Sendum Kristján Gunnarsson í endurmenntun, gerum hann atvinnulausan.
7.9.2010 | 21:12
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Nú gleðjast gumar
6.9.2010 | 23:45
Vinir og fjölskylda | Breytt 7.9.2010 kl. 00:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Allt er þá þrennt er
6.9.2010 | 22:33
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 22:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Sandkastalar
6.9.2010 | 19:18
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Mulningur #56
6.9.2010 | 18:29
Mulningur | Breytt s.d. kl. 18:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Ný nálgun – einlægur friðarvilji eða síonismi á nýjum belgjum?
5.9.2010 | 21:59
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 22:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)