Forsetframbjóðandi settur á oddinn

Nú geta karlkyns kjósendur í  Uruguay  sett Jose Mujica forsetaframbjóðenda  á oddinn í orðsins fyllstu merkingu þegar þeir hyggjast hafa það kammó með sinni heitt elskuðu.

En það er næsta víst að „Jose karlinn“ verður ekki  jafn þrifalegur og upplitsdjarfur að leik loknum og hann var áður en hann var kallaður til og settur inn í málið.

 
mbl.is Vinstri ríkissmokkar gagnrýndir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dauðinn lá í leyni á leikskólanum!

Hvernig ratar virk handsprengja í sandkassa á leikskólalóð? Þar sem handsprengjur eru að öllu jöfnu ekki aðgengilegar almenningi og ekki í hvers manns höndum, þá  er því miður ekki nema eitt svar við því.

Henni hefur verið komið fyrir þar og þá í einum tilgangi aðeins. Henni hefur verið ætlað að komast í litlar forvitnar hendur sem væru fúsar að kanna leyndardóma þessa undarlega hlutar til fulls með þeim skelfilegu afleiðingum sem það hefði í för með sér.

Fyrir alla lífsins lukku komst sprengjan í réttar hendur áður en voði hlaust af.

Hver stendur að baki þessu og hvað  getur valdið svo djöfullegum ásetningi  og mannfyrirlitningu?

Eftir situr sá óþægilegi grunur að þetta sé ekki einangrað dæmi  og ógnvaldurinn láti ekki staðar numið hér.

Ekki er nema von að foreldrar séu í uppnámi og yfirvöldum brugðið, fólki bregður jú af minna tilefni.

  
mbl.is Handsprengja fannst við danskan leikskóla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er deginum ljósara að ...

...að stærstur hluti þjóðarinnar þekkir enn muninn á brunaliðinu og slökkviliðinu.

Þjóðin metur störf og stefnu stjórnarinnar, þótt undan svíði og virðist lítt heilluð af málflutningi stjórnarandstöðunnar, sér í lagi lýðsskrumi Framsóknarflokksins  og blöðruprumpi Borgarahreyfingarinnar.

Þetta hlýtur að vera stjórnarandstöðunni umhugsunar efni.


mbl.is Fylgi stjórnarflokkanna eykst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta má aldrei, aldrei aftur gerast.

Eitthver mesti hildarleikur í sögu mannkyns hófst  1. september 1939 með innrás Þjóðverja í Pólland.

En það er eitt sem virðist algert tabú í frásögnum af Póllandsstríðinu, en það er þáttur Sovétríkjanna í því máli.

Það er t.d. rangt sem sagt er í þessari frétt að Þjóðverjar hafi lagt Pólland undir sig. Stalín sá sér leik á borði og réðst, samfara innrás Þjóðverja,  inn í Pólland úr austri og lagði undir sig hart nær helming landsins.

Sovétríkin voru því innrásar- og upphafsaðilar stríðsins ekkert síður en Þjóðverjar, þótt þeir hafi ekki hleypt af fyrsta skotinu. En bandamenn kusu að líta framhjá þeirri staðreynd, því þeir bundu vonir við  bandalag við Stalín til varnar útþenslustefnu Hitlers, sem síðar varð þegar Hitler réðst á Sovétríkin í júní 1941.

Sovétríkin lögðu líka undir sig Eystrasaltslöndin og réðust á Finnland til landvinninga, þeir hafa aldrei verið látnir gjalda þess, enda töldust þeir til sigurvegara stríðsins, og sigurvegar fremja ekki stríðsglæpi eins og kunnugt er.

Eftir stríðslok færðu Sovétmenn Pólland til, skáru sjálfum sér væna sneið af Póllandi í austri og tóku samsvarandi sneið af Þýskalandi og skeyttu við Pólland í vestri. Þetta var gert án verulegra andmæla annarra bandamanna.

Annar árásaraðilinn á Pólland varð þannig einn af sigurverum stríðsins, rétt eins og Ítalir sem skiptu um lit í lok stríðsins.


mbl.is Sorglegasti kafli Evrópusögunnar hófst með innrásinni í Pólland
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mér er orða vant.

Það er ógerningur að koma hugsunum sínum í orð eftir lestur svona frétta.

abused-sad-child


mbl.is Fimm börnum bjargað úr kynlífsþrælkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Go home yankee go home"

334_cartoon_victory_in_afganistan_small_overÞað gagnar Bandaríkja- mönnum ekkert að skipta um hernaðarstefnu í Afganistan. Það er utan- ríkisstefna Bandaríkjanna í heild og hugmyndafræðin sem hún byggir á sem er vandamálið, ekki fram- kvæmd hennar í Afganistan.

Þetta er sama vandamálið og hjá kommunum í gamla Sovét. Verksmiðjum gekk alltaf illa að framkvæma glæstar 5 ára áætlanir flokksins. Alltaf var gripið til sama úrræðisins til lausnar, verksmiðjustjórinn var sleginn af og nýr skipaður, nú skyldi tekið á því. En niðurstaðan var ætíð sú sama, því það var kerfið, stefnan, sem var gölluð ekki framkvæmd hennar sem slík, því fór sem fór.

Bandaríkjamenn hafa alltaf átt á brattan að sækja þegar frelsisástin grípur þá fyrir hönd annarra og þeir leggjast í víking á fjarlægum slóðum.

Ástæðan fyrir basli þeirra hefur sjaldnast verið hernaðarlegs eðlis. Hún er fyrst og fremst sú að Bandaríkjamönnum er gersamlega fyrirmunað að setja sig í spor heimamanna og hugsunarhátt þeirra.  Þeir hugsa allt út frá eigin rassgati og eins þröngt og kostur er. afghanistan_poppy_preview

Talibanar höfðu á valdatíð sinni nær alveg útrýmt valmúaræktun í Afganistan. Eftir innrás Bandaríkjanna hófst ræktunin aftur til fyrri vegs og „virðingar“ með svo skjótum hætti að undrun sætti.

Nú dafnar eiturlyfjaútflutningurinn þaðan sem aldrei fyrr og eitrið sprautast í æðar barnanna okkar hér á vesturlöndum. Þökk sé hinni Bandarísku frelsisást.

Besta framlag Bandaríkjamanna til friðar í heiminum væri að halda sig heima.


mbl.is Breyta verður um stefnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vonandi hefur stúlkukindin ekki verið ráðin...

... vegna þess hvers dóttir hún er, heldur vegna þess að hún hafi eitthvað á milli eyrnanna. Við skulum vona að hún hafi það, en ljóst má vera að það getur hún ekki hafa fengið frá föður sínum. Það ætti að vera vandalítið fyrir stúlkuna að verða...

Eru aðgerðir „aðgerðarsinna“...

...og barátta þeirra og áróður fyrir beinum milliliðalausum „aðgerðum“ farnar að bera ávöxt? Þetta lítur bara vel út!

Háklassa golf

.

Að geta skilið kjarnann frá hisminu.

Þetta er sannast sagna undarleg frétt. Eðli máls samkvæmt hefði mátt búast við að þetta væri frétt um sorg og söknuð, um eiginkonu Edward Kennedy börn þeirra, tengdabörn og barnabörn og aðra ættingja og vini og minningar þeirra um ástvinin sem þau voru...

Já, Bjarni er ekki rétt að...

...ríkisstjórnin víki og hleypi þér og Þorgerði að, kjark- og úrræðalausu fólki, sem hvorki þorir að taka afstöðu með eða móti? Nei Bjarni við þessar aðstæður þarf þjóðin allt annað en bleyður í brúnna, hún þarf það sem hún hefur, kjarkað fólk, sem þorir...

Jæja, þá fer bæjarstjórnarrúllettan...

...í Grindavík aftur á fullan snúning. Sama hvað kemur upp, bærinn tapar.

Hvort sem menn eru með...

...eða á móti Icesave ógeðinu þá er þetta svartur dagur í sögu landsins. Þótt ég sé þeirrar skoðunar að undan þessu oki verði vart skorist, þá er málið það stórt og mikið að burðum að forsetinn á ekki annan kost en hafna lögunum staðfestingar og vísa...

Þegar menn fá þá flugu...

...í höfuðið að ímyndaður Guð þeirra standi þeim nær en öðrum og ætli þeim sérstakt hlutverk, verða bullinu engin takmörk sett, allt getur gerst og fæst af því fallegt, því miður.

Það er svona ógeð og hliðstæður...

...viðbjóður sem fær mann til að hugleiða hvort dauðarefsingar eigi ekki rétt á sér eftir allt. En við nánari hugsun þá væri það of þægileg lausn fyrir svona..., svona..., þennan sora mannkyns. Vonandi eiga þessi skötuhjú sem lengsta vist fyrir höndum...

Enginn er í augnablikinu sjáanlegur...

...sem líklegur þingmaður Massachusetts í stað Edwards Kennedys. En það er nú þannig að í þessu „landi lýðræðisins“ verður lýðræðið ekki látið þvælast fyrir við val hans. Bandarískir þingmenn hafa ekki varamenn sem taka við falli þeir frá eða...

Hvaða bull er þetta, settist ...

... Anders Fogh Rasmussen til borðs með trú sessunauta sinna en ekki þeim sjálfum? Hætt er þá við að aumingja maðurinn verði einmanna, setjist hann til borðs með trúleysingjum.

Æ, æ, Hannes minn...

...þú segist skilja þetta en samt eru enn við sama heygarðshornið, allt brást nema það sem brást. Hannes ætlar, eftir þessa raun, ekki aftur inn Austurvöll, hann ætlar að halda sig við hornið. . . .

Ef kaup á 5% hlut...

...í Kaupþingi og lán bankans til kaupana var ekki nægjanlega stórt til að tæki því að leggja það fyrir stjórnina, hvað var þá af þeirri stærðargráðu að ástæða þætti til að stjórnin fjallaði um það? Var stjórnin aðeins útvalin hópur manna með áskrift að...

Icesace! Það er ekki eftir neinu að bíða! -Bíðum samt aðeins! –

Ég er að fá hausverk af þessari vitleysu allri. Stjórnarliðar, mínir menn, hafa keppst við að hella skömmum yfir Framsóknarflokkinn fyrir andstöðu hans í Icesave-málinu. Halló, halló, halló! Við verðum að sýna sanngirni, hafa ekki verið settir alskyns...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband