Muhammad al-Habadan , má ekki bjóða þér til Íslands?

umburdarlyndiEigum við ekki að bjóða þessum manni að setjast að á Íslandi svo hann geti boðað fagnaðarerindi sitt hér.  Svo hann geti miðlað okkur af víðsýni sinni og mannkærleika.

 Ofsafylgjendur fjölmenningarsamfélags munu vafalaust fagna því  sem frábæru innleggi í okkar annars fátæklegu menningu.

Þetta  bæri vitni um víðsýni  og fordómaleysi okkar annars aumu sála.

.

 
mbl.is Konur hylji allt nema annað augað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nályktina leggur af ríkisstjórninni

Ráðherrar og þingmenn Samfylkingarinnar munu hafa bundið vonir við það fram eftir degi í gær að forsætisráðherra myndi ætla í stefnuræðunni að reka af sér slyðruorðið og boða aðgerðir en sú von brást. 

Ríkisstjórnarsamstarfið mun hafa hangið á bláþræði í gær vegna efnahagsástandsins og ágreinings um leiðir og aðgerðir. Svo segir í  24. stundum í dag.

Mikil óánægja mun einnig innan Samfylkingarinnar með aðdraganda og framkvæmd Glitnismálsins, sem hefur magnast er á leið og steininn hafi tekið úr þegar Davíð Oddson mætti á ríkisstjórnarfund á þriðjudag og lagði til að þjóðstjórn yrði komið á og hinir bankarnir tveir yrðu þjóðnýttir!  Skilningur ráðherra Sjálfstæðisflokksins á aðgerða- og áhugaleysi Seðlabankans um efnahagsmálin að öðru leyti, vekur furðu samstarfsflokksins.

Innan Samfylkingarinnar eru það helst þrjú atriði sem talið er að yrðu að vera fyrstu skref til lausnar á efnahagsvandanum.

1.       Að lýsa yfir vilja til aðildarumsóknar að ESB.

2.       Sækja um neyðarlán hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.

3.       Reka Davíð Oddson.

Það er þannig komið að menn eru að átta sig á því að Davíð Oddson Seðlabankastjóri  er einn aðal efnahagsvandinn,  sú skoðun er sterk innan Samfylkingar og henni vex einnig fiskur um hrygg innan Sjálfstæðisflokksins.

Það er aðeins eitt sem hugsanlega gæti  vakið Sjálfstæðismenn af þyrnirósarsvefninum.  Það þyrfti að koma Íslenska efnahagsvandanum upp í Rússneska flugvél og láta hana fljúga inn í Íslenska lofthelgi, þá stæði ekki á áhuga og vilja Sjálfstæðismanna til  aðgerða  gegn þessum vágesti. RIP

Þessi ríkisstjórn er þegar örend, dánar- og jarðafarartilkynning verður birt þegar aðstandendur hafa áttað sig á því.


mbl.is Miklir erfiðleikar blasa við
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Geir skilar auðu – á ný

Geir H HaStefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana voru í kvöld.  Ég býst við að fleiri hafi horft eða hlustað með andakt nú en oft áður, vegna þeirrar stöðu sem uppi er í þjóðfélaginu.

Forsætisráðherra hafði hér tækifæri til að blása til sóknarÖssur og stappa stálinu í þjóðina. En ekkert slíkt gerðist, ræðan var rýr í roðinu, aðeins upptalning á staðreyndum almennt og vítt orðað,  forsætisráðherra skilaði auðu!

Það kom ekki á óvart að bestu ræðumenn kvöldsins voru Össur Skarphéðinsson og Steingrímur J. Sigfússon.

Ræða Steingríms kom mér nokkuð á Steingrímur1óvart. Hún var innblásin af baráttuanda og vilja til verka, gegn þeim vágesti sem ríður húsum þessa dagana, en ekki því andstöðu og úrtöluvæli sem oft hefur einkenn málflutning VG til þessa.

Steingrímur flutti í raun ræðuna sem ég reiknaði með að forsætisráðherra myndi flytja.  


mbl.is Glitnisaðgerð ekki endapunktur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er í gangi eiginlega?

britney_spearsHvernig endar þetta? Ástand heimsmála versnar stöðugt og síðasta stóra niðursveiflan  er  vafalítið sú frétt að Britney Spears sé að spá í að flytja til New York.

Hvernig dettur henni þetta í hug? 

Ég vona að þetta hafi ekki áhrif á gengi krónunnar.  


mbl.is Flytur Britney til New York?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er sjón er sögu ríkari?

playboy fyrir blinda Blindir eru æfir og ætla ekki að „sjá“ kvikmyndina  Blindness sem frumsýnd verður í USA á morgun.

Þeir telja myndina lýsa blindum sem skepnum.

Myndin ku víst lýsa hegðunarbreytingum á manninum við gjörbreyttar aðstæður en ekki endilega vegna blindu sem slíkrar.  

  


mbl.is Blindir gagnrýna nýjustu mynd Julianne Moore
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spákukl bankanna

línuritÞað væri gaman ef einhver fjölmiðillinn tæki sig til og kannaði nokkur ár aftur í tíman hvernig framtíðarspár  greiningadeilda bankana um gengi krónunnar og efnahagsmál almennt hafa ræst.

Nú er komin ný greining frá Kaupþingi, þar sjá þeir klárlega hvenær fer að rofa til og við fáum á ný roða í vanga og blóm í haga.

En ég man ekki betur en að fyrri greiningar hafi sagt að einmitt þetta hafi þegar gerst!   


mbl.is Krónan á enn eftir að veikjast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Laug Geir?

Ekki er óeðlilegt að draga þá ályktun af þessu að Landsbankinn sé að undirbúa kaup á Glitni. Ofurskiljanlegt af þeirra hálfu, enda hafa þeir lýst áhuga sínum á því. En Landsbankamenn áttu „leynifund“ með forsætisráðherra. Þar var staða mála...

Í fyrsta lagi...gott mál....

...og í öðru lagi enn betra mál og í þriðja lagi.... frábært.

Allt í frjálsu falli.

Miðað við það sem á undan er gengið má ætla að gengi krónunnar falli næsta hálfa mánuðinn um 20 til 30%. Dollar verður þá í 127 til 137 krónum, pund í 226 til 245 krónum og evra í 180 til 195 krónum. Strúturinn rak höfuðið upp úr sandinum um helgina með...

Úr vöndu að ráða.

Alls bárust 54 umsóknir um starf forstjóra Landsvirkjunar. Mjög hæfir einstaklingar eru á meðal umsækjenda að sögn stjórnarformanns Landsvirkjunar. Ef það er raunin, eins og sögur herma, að búið sé að ákveða hver fái jobbið, þá býður stjórnarinnar það...

Enn einn vellingurinn?

Er líklegt að Lárus rúsínuWellingur hafi byrjað á þeirri vitleysu að segja satt í morgun?

Glitnis fláráð

Það er hugsanlegt að yfirtökuskylda hafi skapast með kaupum ríkisins á 75% í Glitni. Það væri eftir öðru að Ríkið væri skylt að kaupa hin 25%in af öðrum hluthöfum, sem ríkið er nýbúið að gefa þeim. Þetta hefur örugglega komið gersamlega flatt upp á alla...

Byr rétt slapp við græðgisvæðingu Glitnis

Viðræðum Byrs og Glitnis um samruna var hætt í morgun! Ástand Glitnis virðist hafa komið Byr mönnum á óvart. Hvaða upplýsingar um stöðu Glitnis ætli hafi legið á borðinu á síðasta fundi þeirra fyrir helgi. Örugglega ekki þær sem nú eru uppi. Það er þá...

Hluthöfum gjaldþrota banka gefnir milljarðar.

„Ekki þjóðnýting“ segir Davíð Oddson, það má til sannsvegar færa því ríkið eignast ekki 100% í bankanum. „Bankinn gjaldþrota“, segir Davíð, „ef ekki hefði verið gripið inní, hefði hlutur hluthafa í bankanum verið 0“....

Einkavinaredding.

Er Glitnir eini Íslenski bankinn sem þarf aðstoð, eða eru þar flestir einkavinirnir. Fær ríkið þessa fjárfestingu til baka þegar bankinn verður einkavina væddur á ný? Eða verður þá litið á þetta sem styrk til illa stæðra hluthafa og stjórnenda bankans...

Æi nei

Ég vona bara að þetta hafi ekki áhrif á gengi krónunnar.

Hver stýrir Þjóðarskútunni?

Þessi mynd segir allt sem segja þarf. Þarna er Þjóðarskútan á ferð. Og hver er við stýrið? Mynd Mbl.is

Einsdæmi, nei fjarri því

Samkvæmt fréttinni er vesalings konan, að mati sérfræðinga, eina konan sem haldin er þessum „sjúkdómi“ sem enginn veit hver er eða hvernig hann lýsir sér. En þar skjátlast sérfræðingunum, hún er fjarri því að vera sú eina. Menn hafa velt því...

Sekt á sekt ofan.

Í Brasilíu er greinilega í gangi jafnskilvirkt kerfi og punktakerfið íslenska. Ekki er líklegt að da Silva borgi 170 millurnar til að leysa út eins til tveggja millu bíl.

Made in China

...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband