Grútarbræðsluhagfræðinni kastað?

Það eru nokkur tíðindi ef krónan hefur fallið of mikið fyrir smekk og geð LÍÚ. Þau samtök hafa   síðan ég fékk minni, vælt og grenjað í stjórnvöldum fram og aftur, alla tíð, um gengisfellingar á LÍÚgengisfellingar ofan. Er nú af sem áður var?

Í grátkórnum fór fremstur meðal  jafningja mesti  tárameistari Íslandssögunnar,  Kristján Ragnarsson, hann er sagður hafa grátið jafnt í vöku sem svefni yfir raunum útgerðarinnar.  Það voru að sönnu engin krókódílatár.  

Gengisfellingarnar fengu þeir síðan margfalt upp í rassgatið aftur.  En engan drógu þeir lærdóminn. Mig minnir að þetta hafi verið kallað  „grútarbræðsluhagfræði“ og verið úr smiðju Lúðvíks Jósepssonar.seðlabanki

Nú er þeim sem sagt að verða óglatt. Grúturinn er kominn upp í háls. Það er ákveðinn  þroski af þeirra hálfu. En dýrkeyptur er hann og óvíst að hann verði varanlegur ef gengið styrkist á ný.

Svo er komið að æ fleiri kalla eftir því að stjórn Seðlabankans verði sett af í heild sinni vegna þess að hún er að verða mesti efnahagsvandi þjóðarinnar.


mbl.is Útgerðin kallar eftir stöðugleika og sterkara gengi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ó þú grimma veröld

Fluttu saman, áttu ekki saman, hætt saman, búið alltsaman. Ekki gaman.

  


mbl.is Hætt með kærastanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Örlítið úr leið?

Hann gaf upp ferðaáætlun, franski „Göngu Hrólfurinn“  áður en hann fór frá skálanum að Fjallabaki. Virðist hafa ætlað „Laugarveginn“.  Hann hefur annað hvort gefið upp ranga grimseyferðaáætlun eða haft eigin ferðaáætlun að engu  og endað vöðlurgönguna  út í Grímsey, sem  er töluvert  úr leið ef mér skjátlast ekki.

Ég vona að hann hafi haft góðar vöðlur meðferðis og ekki blotnað í fæturna þegar hann öslaði Grímseyjarsund.

Þar sem menn eru hiklaust sektaðir fyrir smáyfirsjón,  t.d. að fara 5km. framúr leyfðum hámarkshraða, þá er ekki  óeðlilegt að sektir liggi við svona framkomu og ábyrgðaleysi  sem kostar útkall björgunarsveita svo ekki sé talað um fjárútlát Ríkisins, sem vart má við því þessa dagana.  


mbl.is Var ekki týndur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brenglað gildismat.

Það er engu líkara af dómum í nauðgunarmálum hér á landi að dómstólar sinni þeim með rettvisihangandi hendi og dómar  séu kveðnir upp meira til  málamynda en að hugur fylgi máli.

Líf og limir virðast lítilsmetin í dómsölum landsins.

Það er meira líf í dómurum ef fjármagni hefur verið misboðið.


mbl.is Dæmdur fyrir nauðgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru menn alveg að tapa sér.

Er það á næsta leiti að standi eitthvað til á vesturlöndum þá verði skeyti sent til Mekka og spurt – má ég? Er þetta í lagi? Er þetta þóknanlegt  Allah?

klósetHvað er til ráða fyrir múslima í flugi og klósetið snýr til Mekka, verður að breyta stefnunni svo þeir geti kúkað?

  Ef Allah er  allstaðar,  líkt og Guð, þá er slétt sama hvert taðgatið snýr við sína iðju, það hlýtur alltaf að snúa í áttina til hans.  

 


mbl.is Ólympíusalernin snúi ekki að Mekka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Músa eða múslímavandi?

Mickey MouseNú er Mikki mús kominn á útrýmingarlista Múslímskra öfgaklerka  enda er músin sú, eins og allir vita, handbendi djöfulsins og á dauðan einan skilið.  

Sjaría lögin kalla eftir því að öllum músum verði útrýmt, raunverulegum og ímynduðum.

Þetta hreyfir kannski við einhverju því fólki sem hvorki hefur viljað sjá eða heyra neitt misjafnt um múslíma.

Margt af þessu fólki hefur jafnframt haft meiri áhyggjur af dýrum en náunga sínum. Nú er dýrum hótað, kannski það opni eyrun.

Þótt heltin af Múslímum sé friðsemdar og sómafólk, þá má það sín lítils, því  er haldið í gíslingu trúarinnar af  öfgamönnum sem ráða ferðinni.

mikki fingerMér er spurn, því skapaði Allah mýsnar ef þær eru slíkar óþurftarskepnur?

En Allah skapaði ekki Mikka mús, það gerði Walt Disney.

.

.

Svar Mikka til klerksins. 


mbl.is Mikki Mús er ekki handbendi djöfulsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mútur?

Er þetta ekki nokkurn vegin sú upphæð sem vantar í olíupening á varðskipin? Ætli varðskipunum hafi verið lagt til að eiga fyrir þessu? Athyglisvert er að menn sjá þarna á ferðinni tilliðkunarfé fyrir atkvæði inn í

Af hverju er börnunum refsað?

Ekki ætla ég að mæla því bót að foreldrar bíti börnin sín, síður en svo. Ekki kemur fram í fréttinni að móðirin hafi að öðru leyti komið illa fram við börnin. Verður því að ætla að svo hafi ekki verið. En af hverju er börnunum refsað? Það hlýtur að vera...

Er þetta frétt?

Er rússneskum skipum ekki frjálst að sigla á alþjóðlegum siglingaleiðum, rétt eins og skipum annarra þjóða? Af hverju birtir Mogginn ekki fréttir og fyrirsagnir eins og þessa: „Bandarísk herskip sigla um Íslensku efnahagslögsuguna“ ??...

Bestu myndirnar?

Það er verulega ánægjulegt að lesa um svona jákvæða erlenda gagnrýni á Íslenska kvikmyndagerð. Ég hef ekki séð Brúðgumann en séð Mýrina, sem sannarlega er fantagóð mynd, byggð á frábærri og listavel skrifaðri sögu

Frábært... vonandi.

Það er alltaf fagnaðarefni þegar lögreglan nær góðum árangri í baráttunni við fíkniefni. En skuggi hvílir yfir. Ég þykist skynja ákveðna fylgni í góðum árangri lögreglu og annarra sviða löggæslu á þessu sviði og síðan í framhaldinu niðurskurð á fjármagni...

Ææ.....hún dó

Verður ekki útför á kostnað ríkisins eða minningarathöfn hið minnsta? Svo auðvitað fjársöfnun til styrktar nánustu ættingjum. Minna getur það vart orðið.

Fór í Evuklæðin.

Handtekin fyrir að vera á Evuklæðunum. Ekkert má núorðið. Carla Bruni á Evuklæðum.

Íslendingar öfundsverðir

Þegar ég sá fyrirsögnina taldi ég víst að við værum öfundaðir af því að eiga Davíð. Svo er bara ekki minnst á hann í fréttinni, skrítið.

Vöruskipti

Hvað er málið? Eru þetta ekki hrein og klár vöruskipti. Eru þau orðin ólögleg?

Ráðherrapúst

Er ekki rétt að sá möguleiki verið kannaður að knýja skip Gæslunnar með ráðherrafreti. Það er ofgnótt og ónýtt endurnýjanleg orkulind.

Undarleg markmið

Birni Bjarnasyni virðist það mikið hjartans mál að löggæsla hverskonar, hvort heldur er til lands eða sjávar, sé sem veikust, hafi sem minnsta skilvirkni. Skipum Landhelgisgæslunnar hefur verið „lagt“ vegna olíukostnaðar. Þyrlum gæslunnar var...

Sturla vefur Rússum um fingur sér.

Sturla Böðvarsson forseti Alþingis er ásamt fríðu föruneyti í Moskvu í Rússlandi austur. Hann átti fund í gær með Vladimir G. Titov aðstoðarutanríkisráðherra Rússlands. Um svipað leyti lét Rússneska utanríkisráðuneytið þau boð út ganga að Rússar vilji...

Gömul og þvæld tugga.

Tímabundið ástand segir Geir um stöðu krónunnar. Þegar hann talar um tímabundið er nauðsynlegt að vita hvað Geir hugsar í löngum tímabilum. Hugsar hann í klukkutímum, dögum, vikum, mánuðum, árum eða öldum. Ef um er að ræða ár eða aldir er óhætt að flokka...

Hver er asninn?

Það er vandséð hver er asninn í þessu máli. Asninn er sennilega enginn asni.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.