Frelsarans verk

Þegar bandaríkjamenn segja að þeim sé ekki ljóst hver fari með völd í einhverju tilteknu ríki er í raun stutt í að þeir blási í herlúðrana.

Þetta er 1. stigs undirbúningur að réttlætingu þess að þeir íhugi að taka lögin í sínar hendur í viðkomandi ríki , með hervaldi sem hægri hönd frelsarans,  til að drottna þar og dæma og útdeila landsins auðlindum til rétttrúaðra fylgismanna.

Er innrás og „frelsun“ Írans næsta verk frelsarans umboðsmanna?

Kanarnir ættu kannski að byrja á því að nota þessar yfirdrifnu mannréttinda- jafnréttis- og frelsishugsjónir sínar til að koma ástandi þeirra sömu mála í sama horf heima fyrir og þeir reyna stöðugt að þröngva upp á aðrar þjóðir.

En af einhverjum ástæðum er lítill áhugi á því.

Og þessu fylgja Íslensk stjórnvöld í algerri blindni og hugsunarleysi þó vítin ættu að vera þeim til varnaðar.

Aumari verður vart vesaldómurinn.

 


mbl.is Óvíst hver stjórnar í Íran
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Martröð bláu helhandarinnar

Þessi kosningaúrslit verða að teljast nokkuð merkileg.  Það er mjög athyglisvert að jafn    „hataður og óvinsæll“ maður, og bláa helhöndin segir Steingrím vera,  skuli fá 73% atkvæða til formanns og það á móti tveim sterkum frambjóðendum. 

Ætli hinn elskaði, virti og vinsæli Bjarni Benediktsson komist nálægt því fylgi, komi til formannskosninga á landsfundi bláu helhandarinnar?


mbl.is Steingrímur áfram formaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bláa helhöndin skelfur

Ekki þarf að efast um að Steingrímur verði endurkjörin formaður VG með afgerandi kosningu.

blaa hondinEn hinsvegar eru margir sem vilja og vona að svo fari ekki, eðlilega, enda eru það allt helbláir og krónískir kjósendur íhaldsins.

Íhaldsmeindýrin hafa hátt, ekki vantar það,  spara ekki stóru orðin í garð Steingríms, sem þeim stendur stuggur af, enda er hann að öðrum ólöstuðum hvað öflugastur andstæðinga bláu helhandarinnar, nú um stundir.

  


mbl.is Tvö í framboð gegn Steingrími
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skítlegt eðli

Ja hérna, mættu helgislepju hjúin Lilja og Atli á landsfund VG til þess eins að segja sig formlega úr flokknum?

558345Þetta þokkapar lét, með öðrum orðum, flokksfélög sín velja sig sem þingfulltrúa á landsfundinn til þess eins að þau gætu dramaserað úrsögn sína úr flokknum!

Hvað segir þetta um innræti þessara svikahjúa, sem hindruðu með þessu framferði einhverja aðra, sem að heilindum vilja vinna innan VG, að komast á landsfundinn.

Skítlegt eðli hefur verið nefnt fyrir minni sök.

En það ber að virða það við Atla að hann viðurkennir að vera afvegaleiddur kjáni.


mbl.is Lilja og Atli segja sig úr VG
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þegar menn týna sjálfum sér

Það bregst ekki að varla hefur verið hringt út til rjúpnaveiða þegar björgunar- sveitir hafa verið kallaðar út til að tína upp rjúpnaskyttur, sem hafa gersam- lega týnt sjálfum sér við rjúpnaleitina.

Lausnin á þessu árvissa vandamáli er auðvitað, að sú kvöð fylgi hverju veiðileyfi, að fullþjálfaður björgunarsveitarmaður fylgi rjúpnaskyttunni hvert fótmál við veiðarnar.

Björgunarsveitarmaðurinn getur þá, í stað þess að leita að rjúpnaskyttunni, leitað að rjúpu fyrir veiðimanninn og leitt hann að bráðinni og síðan heilan heim á eftir.

  


mbl.is Rjúpnaskyttur í vandræðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Drottnari þjóðveganna

forystufe1Blessuð sauðkindin, lætur ekki að sér hæða. Íslenska sauðkindin er nánast allstaðar alvaldur drottnari þjóðveganna.  

Hún nýtur þeirrar sérstöðu að vera alltaf í fullum rétti, saklaus og óábyrg gjörða sinna, rétt eins og Sjálfstæðisflokkurinn, sama hvaða tjóni hún veldur blessunin.


mbl.is Rækjan tók húsið af bílnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Krókur á móti bragði

Ætli Bandaríkin að beita fjárkúgunum til að þvinga Sameinuðu þjóðirnar til að fara að vilja þeirra, ber að skoða það í fyllstu alvöru að flytja alla starfsemi samtakana frá Bandaríkjunum til annars lands. Ljóst er að verulegar fjárhæðir væru í húfi fyrir...

Hvalaverndunarsamtök styðja hvalveiðar við Ísland

Það ber að þakka The Whale and Dolphin Conservation Society fyrir þeirra framlag til eflingar og áframhaldandi hvalveiða við Ísland, með því að kaupa hvalkjöt í Leifsstöð, í tvígang. Stuðningur slíkra samtaka í verki, er

Til hamingju Ísland

Ég óska Landhelgisgæslunni og Íslensku þjóðinni til hamingju með þetta glæsilega skip. Það á eftir að gjörbreyta öryggi sjófarenda til hins betra á íslensku hafsvæði. Það verður óviðunandi með öllu ef fjárveitingarvaldið tryggir ekki Landhelgisgæslunni...

Chia fræ - áttunda undur veraldar

Nákvæmlega þessi „rök“ er hægt að nota um hvaða fæðutegund sem er. Halda mætti, af lýsingunni, að þessi fræ séu áttunda undur veraldar en ekki venjuleg fræ sem ganga niður af fólki – ómelt – rétt eins og önnur fræ. Síðasta...

Smekkleysa

Þetta „ævintýrahús“ er smekkleysan uppmáluð í öllu tilliti. Húsið hentar ágætlega sem sviðsmynd í hryllingsmynd, en þær myndir verða seint flokkaðar til ævintýra, nema þá í Smartlandi Moggans.

Hvar er „delete“ takkinn?

Clinton karlinn hefur ætlað, með símtalinu, að komast að því með lagni hvar delete takkinn á Monicu væri. Hann hefur ekki viljað spyrja einhvern í Hvíta húsinu, eðlilega.

Kunnugleg vinnubrögð

Ætla mætti að sömu aðilar og rannsökuðu Guðmundar og Geirfinnsmálin hafi komið þarna við sögu.

Hvað kostar - gagn og gaman?

Er ekki tími komin til að frá því sé greint hvað það kostar þjóðina pr. klukkustund að „eiga“ þetta merkilega hús Hörpuna? Eða verður húsið eitt af hinum listrænu stærðum sem eru órannsakanlegar og ósnertanlegar á hverju sem gengur og lausnin...

Já, já, já - Bemmmmmmrúúúdaskál!

Frábær frammistaða hjá bridge strákunum! Þá er að líkindum önnur Bemmmmmmrúúúda-skál-armóttaka framundan á Keflavíkurflugvelli! Bemmmmmmmrúúúda-skál! Hick, hick! En nú þegar Davíð er hættur, hver á þá að mæta drukkinn til móttökunnar í hans...

Mulningur # 70

Gömul kona er stöðvuð af mótorhjólalögreglu fyrir of hraðan akstur. Gamla konan: Er eitthvað að hr. lögregluþjónn? Löggan: Já frú mín, þú ókst allt of hratt! Gamla konan: Þú segir ekki? Löggan: Get ég fengið að sjá ökuskírteinið? Gamla konan: Nei, ég hef...

Mun eitthvað breytast?

Eru ekki nýju valdhafarnir í Líbýu þegar byrjaðir að fótum troða mannréttindi, drepa og pynta fólk hægri, vinstri. En það er í lagi, því þeir ætla að vera vinir vesturlanda, um stundarsakir.

Gott hjá henni

Ég tek ofan fyrir Juliu Gillard.

Hvað þá?

Ætla turtildúfurnar að selja „utan af“ sér rándýrar spjarirnar í Kolaportinu á sunnudaginn! Mikið hlýtur að liggja við úr því sjálfum hvíldardeginum er varið í svona Mammonsverk. Afrakstrinum á því án nokkurs vafa að verja í gott málefni,...

Stóra systir - lágkúran uppmáluð

Afskaplega eru þessi stóru systra samtök lágsiglt og aumkunarvert fyrirbrygði. Ekkert afrekuðu þær dömur, ef þetta voru þá konur, með þessu tiltæki, annað en að verða sér til skammar. Greinilega voru þær meðvitaðar um skömm sína og mannleysu og sýndu því...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.