Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2010

Kónguló, kónguló vísaðu mér....

Það berast af því fregnir að fólk sé að fá meindýraeyða til að eyða kóngulóm úr görðum sínum og af húsum.

krosskóngulóÞetta finnst mér mjög misráðið. Kóngulær eru ekki skaðlegar heldur þvert á móti mjög gagnlegar. Þær halda t.a.m. flugum í skefjum og hvað mig varðar er þá mikið unnið.

Kóngulærnar eru því vinkonur mínar og á nokkrum gluggum hjá mér hafa komið sér fyrir krosskóngulær sem eru orðnar feitar og pattaralegar eftir veislu sumarsins. Eftir að þær hafa komið sér fyrir á sumrin heyrir það til undantekninga að fluga sjáist í húsinu.  

Komi þessar elskur inn til mín sem gerist afar sjaldan, þá fer ég um þær mjúkum höndum og kem þeim út aftur þar sem þær halda áfram að vinna mér gagn.  

 


mbl.is Köngulóarmaðurinn fer á stjá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og ég sem hef alltaf haldið því fram...

 

...að Pizzur væru hreint kransæðakítti og hættulegar heilsu manna eins og hvert annað ruslfæði. 

 

En þessi Pizza bjargaði klárlega lífi kaupandans, því er eðlilegt að draga þá ályktun að Pizzur séu heilsufæði hið besta.

 
mbl.is Pítsusendill bjargaði mannslífi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rykið dustað af Nicolae Ceausescu

Mér datt fyrst í hug þegar ég leit á fréttina að Rúmenar ætluðu að grafa skíthælinn upp, því þeir væru farnir að sakna hans.

En sennilega verður það seint.


mbl.is Ceausescu grafinn upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvenær eru afskriftir dyggð og hvenær glæpur?

Þetta er einkennileg frétt og er raunar ekki frétt því hún ber þess öll merki að vera alfarið hönnuð í reykfylltu bakherbergi upp í Hádegismóum, þar sem gremja og biturð svífa um sali.  

rækjkokteillMorgunblaðið lýsir Jón Bjarnason alfarið ábyrgan fyrir hugsanlegu útlánatapi Byggðastofnunar verði rækjuveiðar gefnar frjálsar.

Að mati Moggans bera lántakendurnir greinilega ekki ábyrgð á sínum lántökum og blaðið hvetur þá beinlínis til að hætta að greiða af þessum lánum, sem nema um 1,3 milljarði og eru með óbeinu veði í rækjukvótanum, og láta þau falla á skatt- greiðendur.  

Er Mogginn með hótanir, hvað gengur blaðinu til, hverjir eiga annars blaðið? Getur verið að þetta tengist eitthvað sægreifa eignarhaldinu á blaðinu?  

Ef upp er runnið nýtt siðferðis og réttlætismat á Mogganum væri þá ekki rétt að blaðið byrjaði þá herferð í eigin ranni og fjallaði um milljarðana sem afskrifaðir voru af skuldum Moggans og vellt var á almenning, þegar núverandi eigendur keyptu blaðið. 

Hvar er sú umfjöllun, hvar eru áhyggjur blaðsins af skattgreiðendum og almenningi í því máli? Hvað voru  milljarðarnir margir, muna þeir það á Mogganum?  

Morgunblaðið  gerir hugsanlegar afskriftir Byggðastofnunar á þessum lánum, að einhverju stór máli. Ef allt fer á versta veg og þessi lán falla á byggðastofnun þá hlýtur Byggðastofnun að leysa til sín skip og önnur framleiðslutæki viðkomandi fyrirtæja og selja þau til framsækinna aðila, sem áhuga hafa á að hasla sér völl í greininni en hafa ekki getað fram að þessu vegna einokunar LÍÚ mafíunnar.  

Þó kostnaður ríkisins við innlausn rækjukvótans veðri milljarður eru það smáaurar einir í þeim hrunadansi afskrifta sem  stíginn hefur verið af miklum krafti undanfarna mánuði þegar einstaklingar, sumir hverjir, hafa hiksta- og táralaust fengið milljarðatugi afskrifaða.


mbl.is Byggðastofnun í vandræðum á ný
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Réttindi og skyldur

rækjur 2Fylgja úthlutuðum kvóta bara réttindi en engar skyldur? Telja útgerðarmenn að kvótinn, sem þjóðin færir þeim til afnota endurgjaldslaust, sé einungis ætlaður til að þjóna þröngum hagsmunum þeirra en ekki  þörf þjóðarbúsins í heild?

 

Kvótakerfið var fyrst og fremst hugsað sem skiptingaraðferð á takmarkaðri afkastagetu fiskistofnanna, en ekki sem bókhaldsbrellur og sjónhverfingar.

 

Hafi handhafar rækjukvótans ekki áhuga á að veiða kvótann og skila þannig verðmæti hans í þjóðarbúið, hafa þeir ekkert með hann að gera og sjálfsagt að gefa öðrum tækifærið.

 

En vakni núna allt í einu vilji LÍÚ mafíunnar til að nýta  rækjuna með veiðum þá er sá möguleiki þeim auðvitað opinn,  veiðarnar eru jú frjálsar.

 

Ef málið snýst um veðsetningar, þá verða útvegsmenn, rétt eins og aðrir sem verða fyrir veðfalli, að leggja til ný veð.

 

Þeir ættu ekki frekar en aðrir að geta veðsett það sem þeir eiga ekki.

 
mbl.is Talsvert fé bundið í rækjunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Asnar og aðrir asnar

Æði oft koma upp tilvik þar sem það er ekki á hreinu hver er aðal Asninn.

  
mbl.is Lögreglan rannsakar fallhlífarstökk asna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver er ásættanleg áhætta þegar HIV er annarsvegar?

Ég næ þessu ekki alveg. Hér er fjallað um krem sem ætlað er konum og á að draga úr líkum á HIV smiti! Tilraunir þykja gefa jákvæða niðurstöðu, líkur á smiti hafa minkað um 39% í heildina, hvað sem það merkir.

 

Meðal þeirra kvenna sem notuðu kremið oftast minnkuðu líkurnar um 54%. Hvernig finna menn út svona tölur?

 

Það er auðvitað jákvætt ef framfarir verða í baráttunni við þennan vágest. En er einhver vörn sem ekki minkar líkur á smiti um 100% ásættanleg í tilfelli HIV?

 

Eru einhverjir tilbúnir að hafa samfarir við HIV smitaða manneskju og nota vörn sem í besta falli minkar  líkur á  smiti um 54%. Hvað ætli þurfi að hafa oft samfarir við þannig aðstæður til að smit sé tryggt?

 
mbl.is Ný vörn gegn HIV
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lítil saga af vatni. Mulningur #41

Gott vatn er okkur Íslendingum svo sjálfsagður hlutur að við leiðum varla að því hugann hve gífurleg veðmæti eru fólgin í nánast óþrjótandi magni af hreinu og heilnæmu vatni.

Vegna frétta af þessu vatnsvandamáli þeirra Eskfirðinga rifjaðist upp fyrir mér skemmtileg saga af vatnsmálum Skagstrendinga hér á árum áður.

Fyrir 35 árum eða rúmlega það var borað eftir köldu vatni á Skagaströnd upp í Hrafnárdal. Fram að þeim tíma hafði vatnsveita Skagastrandar notast við yfirborðsvatn sem tekið var úr Hrafná. Það vatn var mjög misjafnt að gæðum eftir  tíma árs og hvernig viðraði.

Rigningar höfðu eðli máls samkvæmt hvað mest áhrif á vatnið sem varð þá býsna litað, svo vægt sé til orða tekið.  Haustin voru sérstaklega hagstæð kjötsúpu unnendum því þá var svo mikið af dauðum kindum í ánni að aðeins þurfti að bæta grænmeti í vatnið til að fá dýrindis kjötsúpu.

Einhverju sinni þegar ástandið á vatninu hafði verið með verra móti um nokkurn tíma tók einhver sig til og sendi sýni af vatninu suður til rannsóknar.

Svo leið og beið en ekkert kom svarið. Þar kom að hringt var suður og spurt hverju sætti.

Þá kom hinn napri sannleikur í ljós. Þeir sem rannsökuðu vatnið höfðu af rannsókn lokinni talið fullvíst að ekki yrði neinn á lífi til að taka við niðurstöðunni, því var hún aldrei send.

Núna er betra vatn en á Skagaströnd vandfundið.


mbl.is Vatnið aftur orðið drykkjarhæft
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ljós í myrkrinu

helping+hand_0_previewÞað er alltaf gleðilegt þegar fólk fer af stað með eitthvað til að láta gott af sér leiða.

Þörfin á hjálpandi höndum hefur sjaldan eða aldrei verið meiri en einmitt núna.

.

 
mbl.is Sumarhjálpin stofnuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvenær eignaðist Clinton Kilimanjaro?

Jæja núna hefur Bill Clinton eignast fjallið Kilimanjaro ef marka má fyrirsögn fréttarinnar.

 

En svo skýrist málið við frekari lestur, Bill karlinn á ekki fjallið hann ætlar bara að ganga á það áður en hann gengur á vit feðra sinna.

 

Vonandi sameinar Clinton, sem er einn af vinsælli forsetum Bandaríkjanna, ekki þessar tvær göngur  í eina.

 
mbl.is Clinton á Kilimanjaro
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.