Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2011

Dýrslegt kynferðisofbeldi!

rat-hunter-gi-joeÞetta er klárlega kynferðislegt ofbeldi af grófustu sort. Fastlega er búist við að saksóknari muni krefjast þess að ofbeldisrottan sú arna verði dæmd til þyngstu refsingar og hljóti makleg málagjöld.

Rottan hefur enn ekki  verið kyngreind og því er óljóst á þessari stundu hvort femín- istasamtök muni koma rottunni til varnar.

    


mbl.is Fangi sem var bitinn á viðkvæman stað höfðar mál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gefið á kjammann

Öruggar heimildir herma að Sigurjón Þ. Árnason hafi alls ekki getað sætt sig við pizzur í kvöldmat þótt áleggið væri að eigin vali. Sigurjón heimtaði svið með mús og engar refjar.

Lögreglumennirnir sem fylgdu Sigurjóni úr húsi voru því aðeins að flytja Sigurjón niður á Umferðarmiðstöð, svo hann gæti sjálfur valið réttan kjamma úr því úrvali sem þar leynist.

Von er á, hersingunni aftur í hús á hverri stundu, lögreglumönnunum og  Sigurjóni ásamt sérvöldum sviða kjamma.

Verði Sigurjóni að góðu.

 
mbl.is Lögregla flutti Sigurjón brott
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Barnaskapur

Þetta löndunarbann ESB er álíka áhifaríkt, sem slíkt, eins og Hafnfirðingar settu löndunarbann á öll skip sem skrásett væru í Surtsey.

 


mbl.is Tilkynnt um löndunarbann á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Yfirstéttarátrúnaðarsértrúarsöfnuðurinn

Á morgun fara danskir og nýbakaðir foreldrar heim með tvíburana sína, frá þeirra þriðju fæðingu.

Þegar lukkulegir foreldrarnir yfirgefa sjúkrahúsið mun sérátrúnaðarsöfnuður kóngafólksins enn einn ganginn missa sig af hrifningu þó þeir viti að þessi „eðalbornu“ börn verði aldrei annað en baggi á sinni þjóð.

 Er ekki lífið dásamlegt?

 


mbl.is Konunglegu tvíburarnir heim á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvaða álegg var á pizzunum?

Embætti sérstaks saksóknara fékk afhentar sjö 12“ pizzur til að metta maga meinta sakborninga, sem voru í yfirheyrslum, svo þeir missi síður móðinn, því fátt er verra undir álagi en tómur magi.

En hvað ætli hafi verið vinsælasta áleggið hjá sakborningum?   Miðað við tilefnið og þarfir sakborninga er ekki óeðlilegt að ætla að flestir hafi valið:  Rosta, gorgeir, svik og pretti með extra yfirklóri.

  


mbl.is Yfirheyrslur standa enn yfir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gaf Sarah Palin skotleyfi á Gabrielle Giffords?

Sarah Palin fyrrverandi varaforsetaframbjóðandi í Bandaríkjunum, sem varð helst þekkt fyrir augljósan greindarskort í kosningabaráttunni,  hefur enn á ný undirstrikað að ekki er allt með felldu í heilabúi hennar. Sarah Pallin var ein af svokölluðu Teboðspartíi Repúblikanaflokksins, grúppu sem líklegast yrði víða flokkuð til Nasisma, hugmyndafræðilega séð.

Margir líta á frú Pallin sem sína vonarstjörnu sem frambjóðanda Repúblikanaflokksins gegn Obama í komandi forsetakosningum í nóvember 2012.

dauðalistinnÞessi „elskulega“ kona setti á heimasíðu sína kort af Bandaríkjunum, setti riffilsigti á þau fylki sem höfðu þingmenn sem hún taldi að þjóðin þyrfti að „losa sig við“. Eitt riffilsigtið af þremur á Arizona var eyrnamerkt Gabrielle Griffords, þing- konunni sem var skotin ásamt sex öðrum á dögunum.

Textinn á kortinu er:  „Við höfum skilgreint vandann. Hjálpið okkur að leysa hann“.

Svo er að sjá að þessi sjúki byssumaður hafi svarað kalli frú Palin. Palin fjarlægði riffilsigtin af Arizona í kjölfar árásarinnar og var svo ósvífin að votta aðstandendum þingkonunnar „samúð sína“.

En eftir standa öll hin riffilsigtin á heimasíðu tussunnar og bíða þess að einhverjir sækóar svari kalli hennar um nýtt morð!

Hún yrði þokkalegur forseti, tussan sú arna. 

Sjáum hvað Gabrielle Griffords, þingkonan sem var skotin, hafði um þessa taktík Palin að segja:


mbl.is Palin gagnrýnd fyrir þráðkross
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blaðsíður áttatíu og tvö og þrjú.

Einhverjir lyfta sjálfsagt augabrúnum yfir þessari þröngsýni og forneskju múslima varðandi kynfræðslu. En menn ættu að líta sér ögn nær, það er ekki ýkja langt síðan  allt tal um kynlíf og kynferðismál voru algert tabú hér á landi. Mín kynslóð fékk t.a.m. litla eða enga fræðslu um þessi mál og t.d. fékk hún ekki pláss í menntakerfi ríkisins.

Þó var í þeirri heilsufræði sem þá var kennd heil opna tekin undir æxlunarfæri mannsins. Við nemendurnir höfðu auðvitað lesið fátæklega umfjöllunina, þar sem nefnd voru til sögunar kynfæri kvenna sem leg, leggöng og eggjastokkar. Pungurinn var svo nefndur til sögunar sem kynfæri karla, þar yrði sæðið til. Ekkert minnst á aðra hluta kynfæra karla tilgang þeirra eða hvað þyrfti að gerast til að getnaður ætti sér stað, sem sagt, ekki minnst einu orði á kynlíf.

Við krakkarnir biðum spennt eftir að þessi dæmalausa klámopna yrði tekin fyrir. En þegar til kom þá tilkynnti Jón skólastjóri, sem kenndi heilsufræðina, rjóður í vöngum að hlaupið yrði yfir þessa síður og setti okkur fyrir næstu blaðsíður þar á eftir.

Einhver í bekknum spurði þá hvort tippið teldist til útlima. Skipti þá engum togum að rjóður skólastjórinn varð eins og fagurrautt jólaepli í framan og þurfti að ræskja sig duglega áður en hann gat rámur stunið því upp að svo væri víst ekki.

Þar með var kynfræðslunni, þann veturinn í Höfðaskóla á Skagaströnd,  lokið áður en hún hófst. 


mbl.is Kynfræðslubók í Pakistan veldur deilum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bandarískur „byssuátrúnaður“ myndi kosta Íslendinga 29 mannslíf á ári.

guns_girlEnn einn hörmungar skotárásin hefur átt sér stað vestur í Banda- ríkjunum.  Þingkona liggur helsærð á sjúkrahúsi og 6 aðrir gista líkhúsið, þeirra á meðal 9 ára stúlka. Það sorglegasta við þennan atburð er að hann er ekkert einsdæmi, hann er einungis einn í óendan- lega langri röð samskonar atburða.

Atburða, sem ekkert bendir til að sjái fyrir endann á, þar sem óðir byssumenn valsa um og skjóta á allt sem fyrir þeim verður, oft af þeirri ástæðu einni að byssan var við höndina þegar þeir töldu sig eiga einhverjum grátt að gjalda.

Við því er ekki að búast að breyting verði á þessu böli Bandarísku þjóðarinnar á meðan ekki dregur úr ofsadýrkun Bandaríkjamanna á byssum og „töframætti“ þeirra.

Bandaríkjamenn verða því að lifa við þetta ástand á meðan byssur af öllum stærðum og gerðum þykja jafnsjálfsögð áhöld á heimilum og hnífapör og geymsla þeirra jafnvel með þeim hætti að börn hafa að þeim aðgang eins og hræðileg dæmin sanna.

1999 dóu tæplega 29.000 manns í Bandaríkjunum af völdum skotvopna, 80 dag hvern að meðaltali. Þetta samsvarar því að á Íslandi dæju 29 manns á hverju ári af völdum skotvopna!

Hvað ætli þurfi til, svo að menn fari að hugsa hvort raunveruleg þörf sé á því að byssur séu í hvers manns vasa?  Eða þykir þetta ásættanlegt, sem eðlilegur herkostnaður almennrar byssueignar?


mbl.is Læknar Giffords „hóflega bjartsýnir“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í hvaða liði er Bjarni Ben?

Lítill er ég aðdáandi Birgittu Jónsdóttur og myndi seint veita henni stuðning í kjörklefanum. En í þessu máli styð ég Birgittu 100%, það hljóta allir íslendingar að gera, skyldi maður ætla.

En svo undarlegt sem það er, þá er því ekki þannig farið. Samþingmaður hennar og samherji í stjórnarandstöðunni, Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins, tekur sér stöðu gegn Birgittu, gegn hagsmunum hennar og réttindum, gegn landi og þjóð, til að þjóna sínum æðsta herra, Bandaríkjunum.

Kjósendur Sjálfstæðisflokksins ættu að hafa í huga að fulltrúar flokksins á Alþingi eru þar ekki til að gæta hagsmuna Íslands og íslendinga, fari þeir ekki saman með hagsmunum Bandaríkjanna eða stjórnvalda í Votatúni!

Hvaða orð íslenskt er það sem hægri bloggarar, margir hverjir, hafa ítrekað notað undanfarið um fólk sem þeir telja að gæti ekki hagsmuna Íslands nægjanlega gagnvart öðrum ríkjum? Það orð nota þeir ekki núna heldur mæra, visku Bjarna, skarpskyggni, æðruleysi, stefnufestu og rökvísi.

Ja mikill er andskotinn!


mbl.is Bandaríkjamenn beita lögum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þeirra er mátturinn og dýrðin

Þegar George Clooney eða aðrar Bandarískar hvítatjaldshetjur mæta á átakasvæði eða önnur vandamálasvæði heimsins, hljóta vandamálin að víkja eins og dögg fyrir sólu og allt færast til betri vegar.

Það hvarflar auðvitað ekki að nokkrum manni að Clooney og aðrar Hollý stjörnur séu, í svona tilfellum, að nýta sér eymd annarra til að varpa kastljósi heimsins að sér, þó ekki væri nema eitt andartak.


mbl.is Clooney í Súdan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband