Stjörnuseiður
26.8.2010 | 13:59
Tveggja ára skilorðsbundið fangelsi er ótrúlega vægur dómur fyrir svona glæp. Þegar eyðnismitaður einstaklingur stundar óvarðar samfarir, vitandi vits án vitneskju gagnaðila, getur slíkt hátterni vart flokkast undir annað en langdregið morð, eða í bestafalli tilraun til manndráps.
Það er kannski illgirnin í mér sem veldur, en ég get ekki varist þeirri hugsun að dómurinn hefði orðið annar og þyngri ef karlmaðurinn hefði smitaði stjörnuna vitandi vits, en ekki öfugt.
![]() |
Þýsk poppstjarna fékk skilorðsbundinn dóm |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ritstjóri Moggans....
25.8.2010 | 20:52
....og þáverandi forsætisráðherra aðstoðaði líka Ólaf biskup með ráð og dáð, þótt Mogginn láti þess ógetið, sennilega af alkunnri hógværð og lítillæti ritstjórans.
![]() |
Jón Ólafsson aðstoðaði Ólaf |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fréttir | Breytt s.d. kl. 20:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
Andstæðingar og hatursmenn...
25.8.2010 | 14:11
...ESB, koma svo. Ryðjist fram, tækifærið og tilefnið til að ryðja úr sér sóðaskapnum og landráðayfirlýsingunum verður varla betra.
![]() |
ESB setur 110 milljónir í rannsóknir hér |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Er mark á þessu takandi?
25.8.2010 | 13:05
Nöturlegt innlegg séra Geirs Waage, í það leiðinda mál sem enn skekur allt þjóðfélagið, kom það illa við marga að almenntorðuð yfirlýsing biskupsstofu dugir ekki til að slökkva þá elda sem voru kveiktir.
Það getur vel verið að biskupinn og presturinn í Reykholti séu sáttir eftir tveggja manna tal á lokuðum fundi, en efi og ótti þeirra sem treysta á kirkjuna situr eftir óhaggaður. Meðan biskup og biskupsstofa geta ekki viðhaldið eigin trúverðugleika, megna þau ekki að reisa upp trú- verðugleika fallina presta.
Margir hafa hrósað Geir Waage fyrir framgöngu hans í sóðamáli Ólafs Skúlasonar biskups. En enginn spyr sig, í ljósi yfirlýsinga Geirs um tilkynningarskylduna, hvernig hann hefði brugðist við hefði biskupssóðinn verið búinn að skrifta fyrir honum. Hefði séra Geir verið sjálfum sér samkvæmur og hundsað tilkynningarskylduna til að verja trúnaðinn við iðrandi syndarann?
Séra Geir Waage þarf sjálfur að stíga fram og gera hreint fyrir sínum dyrum, draga yfirlýsingar sínar til baka opinberlega og biðjast afsökunar á þeim.
![]() |
Mun hér eftir sem hingað til hlýða tilkynningaskyldu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 13:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
Mulningur #53
24.8.2010 | 23:35
Hvað eru alvarleg vandræði?
Þegar maður stendur í biðröð fyrir aftan Móður Teresu á dómsdegi og Guð segir við hana:
Því miður væna, þú hefðir þurft að gera meira.
Bannað en samt leyft
24.8.2010 | 12:17
Það er full ástæða til þess, þar sem við stöndum upp í háls í boðum og bönnum, að velta því fyrir okkur hvort á Íslandi sé allt leyfilegt sem ekki er bannað eða hvort allt sé bannað sem ekki er leyfilegt.
Áfengisauglýsingar eru bannaðar en samt ekki. Það er nóg að búa til einhverja áfengislausa gervivöru með sama útliti og áfengið og þá geta menn auglýst það eins og þeim sýnist.
Þetta auglýsingabann á áfengi og tóbaki er glöggt dæmi um gersamlega tilgangslausa og handónýta lagasetningu með óljósan tilgang.
Hvaða skynsemi er í því að leyfa sölu á vöru ef hún er svo skaðleg að ekki megi tala um hana eða sýna? Ég er þeirrar skoðunar að bann við auglýsingum á löglegum og aðgengilegum vörum sé arfavitlaus og alger þversögn og stílbrot.
Hefur þetta auglýsingabann skilað sér í minni neyslu? Álfheiður Ingadóttir ráðherra svarar þeirri spurningu neitandi, en vill samt ganga harðar fram í auglýsingabanni! Ekki ónýtt það.
![]() |
Taka þarf harðar á brotum á banni við áfengisauglýsingum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Var umsóknin um ESB aðild bara jólakort?
24.8.2010 | 10:02
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Er list endilega list?
23.8.2010 | 19:46
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 19:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Allt fyrir frægðina
23.8.2010 | 15:40
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 15:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Gölluð vara
23.8.2010 | 13:55
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 14:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Þetta fer óðum batnandi.
22.8.2010 | 20:55
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 21:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
En heppilegt...
22.8.2010 | 20:14
Fréttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Ísraelar ætla aldrei að semja um frið.
22.8.2010 | 18:44
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 18:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mulningur #52
22.8.2010 | 12:49
Víða eru verðmætin
21.8.2010 | 17:13
Tekinn á himnateppið
21.8.2010 | 09:23
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 09:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
Tunglið er þá úr osti eftir allt saman
20.8.2010 | 22:18
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 22:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Súra smjörklíkan
20.8.2010 | 20:03
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Kjötið í búðinni
19.8.2010 | 23:11
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 23:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég er pínulítill Grikki í mér
19.8.2010 | 22:28
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 22:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)