7 - 9 - 13

lightning_striking_treeJá, var virkilega í gangi flugsýning þar sem eldingum laust niður hægri, vinstri? Því ásamt þessum 13-13 dreng eru tveir aðrir sagðir hafa orðið fyrir eldingu á flugsýningunni og þeir rétt eins og drengurinn nánast sloppið við áverka!

Öllum fregnum um að fólk hafi orðið fyrir eldingu og ekki bara lifað, heldur sloppið lítið eða ekki slasað ber að taka með miklum fyrirvara. 

Hún er útbreidd og fjandanum lífseigari þessi undarlega hjátrú varðandi töluna þrettán. 13 er talan sem er á milli 12 og 14, annað er ekki merkilegt við hana.

Það hefur greinilega ekki verið hægt að tengja töluna 13 við þessa tvo aðra úr því það var ekki gert. Og hvað með alla þá sem ekki urðu fyrir „eldingu“  á þessari flugsýningu, hvernig er talan 13 tengd við þeirra „óheppni“  svo ekki sé talað um öll þau óhöpp og slys sem varða alla daga þar sem talan þrettán kemur hvergi við sögu.

 
mbl.is Varð fyrir eldingu klukkan 13:13 föstudaginn 13.
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hlemmur – Fell – hraðferð

Það er indælt að mbl.is standi vaktina og láti okkur vita um leið og ljóst verður hvenær Lindsay losnar úr meðferðinni  svo fólk geti undirbúið þennan merkis atburð með viðeigandi hætti.  


mbl.is Lindsay Lohan að losna úr meðferð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mulningur #50

Ljóska ein var að reyna að komast yfir ónýta brú. Hvernig sem ljóskan reyndi og reyndi þá komst hún ekki yfir ána. Allt í einu sá hún aðra ljósku á hinum bakkanum.

 

„Hvernig kemst ég yfir á hinn bakkann“?  Kallaði ljóskan til hinnar ljóskunnar.

 

„Hvað meinarðu“? svaraði hin ljóskan um hæl.  „Þú ert á hinum bakkanum“.

 

Já, já, já......

og já, hennar verður saknað.

 

 

Það mætti að ósekju klippa duglega af fótboltaefninu í annan ef ekki báða enda.

 


mbl.is Munt þú sakna Spaugstofunnar?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spegill, spegill, herm þú mér...!

123119606006968En hvað með öll störfin sem mörg konan hefur fengið eingöngu út á andlitið og línurnar þó allt annað skorti?

 

Það virðist ekki metið sem mismunun þeim snoppufríðu í vil.

Þessi könnun er kjaftæði. Hvor þessara kvenna ætli sé líklegri til að fá deildarstjóra stöðu í Arion banka eða hvaða starf sem er, að því gefnu að hæfni þeirra sé sambærileg?

 

mbl.is Fagrar konur fá síður „karlmannleg“ störf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það hlýtur að sama skapi...

...að vera brýnt að sérmerkja stökkbreytta ráðherra!

 
mbl.is Skylda að merkja sérstaklega erfðabreytt matvæli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spyrjum að leikslokum

Það er besta mál ef Evrópusambandið óttast að Íslenska þjóðin felli væntanlegan aðildarsamning. Það getur ekki annað en styrkt samningstöðu okkar svo um munar. ESB veit hver útkoman verður í þjóðaratkvæðagreiðslu ef við fáum ekki nauðsynlegar undanþágur...

Var samið um að stinga sannleikanum undir stól?

Benjamín Netanyahu forsætisráðherra Ísraels segir að Ísrael muni ekki vinna með neinni rannsóknarnefnd sem hafi annað að markmiði en leggja blessun sína yfir árás Ísraels á skipalestina til Gaza, í lok maí síðastliðins, og hvítþvo þá af öllum ásökunum....

Sleppum bara menningarnóttinni.

Ekki verður séð að flugeldasýningin sé meira bruðl en menningarnóttin sem slík í heild sinni, nema síður sé. Sýningin nýtur mikilla vinsælda og sá atburður menningarnætur sem flestir sækja og fylgjast með. Það virðist alltaf vera tilhneiging hjá...

Tekjutengjum sektir.

Það þarf að taka það til alvarlegrar athugunar að tekjutengja sektir hér á landi og skilyrðislaust að lögleiða heimild til að gera bifreiðar upptækar við alvarleg og ítrekuð brot.

Mulningur #49

„Ég heyrði Hannes, að þið hjónin hefðuð verið mjög ósátt um daginn og rifist heiftarlega?“ „Já satt er það“, sagði Hannes „en það jafnaði sig þegar hún kom skríðandi til mín“. „Hvað sagði hún þá“?...

Konan var sem sagt svipt...

...ökuréttindum fyrir að fara of snemma af stað en ekki fyrir að aka drukkin. Það borgar sig ekki að vera snemma í því, og þá ekki „í því“.

Pólskur hundagöngumaður!

Hér taka málfarssnillingarnir og nýyrðasmiðirnir á mbl.is langt fram úr sjálfum sér. "Lögreglan var kölluð á vettvang eftir að pólskur hundagöngumaður fann konurnar í annarlegu ástandi í miðjum almenningsgarði". Ég er samkvæmt þessu íslenskur...

Lög á reykinn?

Það er vandalaust að vera sammála því að það sé ofbeldi gegn börnunum að reykja í bílum þegar þau eru með í för og eins inn á heimilum. En ég er ekki sammála því að það gagni að banna slíkt með lögum. Boð og bönn vil öllum hlutum nægja ekki ein og sér...

Af hverju að spara smátt þegar hægt er að spara stórt?

Spörum 4 til 5 milljarða og hendum kirkjunni út af fjárlögum, það er komin tími til að Guð sjái fyrir sér sjálfur, rígfullorðin maðurinn.

Ef öll þjóðin er hinsegin í dag...

...eru þá hommar og lesbíur „straight“ í dag eins og kýrnar sem bregða frá eðli sínu einn dag á ári og mæla mannamál á þrettándanum? Bara smá pæling. Hommar og lesbíur til hamingju með daginn!

Skúbb

Heimsfrétt, ekkert minna!

Mulningur #48

„Ég las í Mogganum í morgun að þeir ætluðu að minnka við okkur lífeyrinn“, sagði Hannes gamli við konuna sína. „Þannig að ég fór niður í Tryggingastofnun til að athuga mín mál. Þeir höfðu týnt öllum upplýsingum um mig en ég sannfærði þá...

Umboðsmaður skuldara í samtals 0.0027 ár.

Til hvers var Runólfur að skila inn gögnum varðandi starf sem hann ætlar ekki að gegna og er horfinn úr? Verður metið út frá gögnunum hvort hann hafi verið hæfur til að hætta? Það er stórmannlegt af Runólfi að afþakka laun í uppsagnarfresti en til að...

Hver tók karlinn...

...á teppið og gerði honum ljóst hvar LÍÚ verslaði sitt öl?

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband