Glæsilegt!
26.6.2010 | 16:59
Þetta er rafbyssudraumurinn sem aðdáendur þeirrar tækni vilja innleiða hér á landi.
![]() |
Stuðuðu níræða, rúmliggjandi ömmu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Undarlegur er þessi landsfundur“
26.6.2010 | 14:42
Í almennum umræðum á landsfundi Sjálfstæðisflokksins í dag voru athyglisverðar umræður.
Undarlegur er þessi landsfundur sagði Geir Waage í harðorðaðri ádrepu sem hann flutti forystu Sjálfstæðisflokksins á landsfundinum, m.a. fyrir breytt form og skipulag fundarins, sem að hans mati væri ætluð til þess að takmarka umræðu og skoðanaskipti.
Geir gagnrýndi harðlega þann siðferðisbrest sem væði uppi í flokknum í skjóli þess að allt væri leyfilegt, væri það ekki beinlínis bannað. Hann nefndi Guðlaug Þór Þórðarson sem dæmi.
Geir sagði að flokksmenn verða að átta sig á því að ísinn væri þunnur undir Sjálfstæðisflokknum og hann ætti ekkert erindi til kjósenda fyrr en hann hafi tekið til í sínum ranni.
Annar prestur Halldór Gunnarsson tók til máls á eftir Geir og var mál hans mjög á sama veg. Hann krafðist afsagnar manna nú þegar og nefndi Guðlaug Þór og Gísla Martein til sögunnar.
Gísla vegna útstrikana sem hann fékk í kosningunum. Útstrikanna sem hefðu fellt hann, hefðu kosningarnar verið til Alþingis en ekki borgar. Hann bað Gísla Martein endilega að taka það til sín.
Mál eldprestanna uppskar töluvert lófatak í sal.
Knútur nokkur Bruun taldi hinsvegar meira krefjandi að koma ríkisstjórninni frá en eltast við spillingu og siðbót. Sem er undarlegt því Knútur er, undarlegt nokk, kunnastur fyrir krossferðir sínar gegn gjaldfrjálsri gervihnatta móttöku einstaklinga á sjónvarpsefni.
Rúsínuna í pylsuendanum átti tvímælalaust Árni Johnsen, sem talaði um forystuhlutverk Sjálfstæðisflokksins í siðbót og endurreisn.
.
![]() |
Bjarni kjörinn formaður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
Verður niðurstaðan vafningalaus?
26.6.2010 | 10:42
Það verður fróðlegt að sjá hvernig formannskosningarnar fara. Þær staðfesta hvort sjálfstæðismenn hafa raunverulegan áhuga á siðferðislegri tiltekt í flokknum eða hvort þeir endurnýja umboð vafningsins Bjarna Ben.
Raunar hefði ég búist við að strax kæmi fram þriðja framboðið, tilbúið ef þessi möguleiki kæmi upp, til að dreifa atkvæðunum og auka möguleika Bjarna. Því ef marka má gagnrýni Þórlinds Kjartanssonar þá er landsfundarformið að þessu sinni hugsað sem stimpilstöð fyrir Bjarna og forystu flokksins.
![]() |
Skorast ekki undan ábyrgð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tillaga um stjórnarslit
25.6.2010 | 19:24
Tillaga á flokksráðsfundi VG um að aðildarumsókn Íslands að ESB verði dregin til baka er hrein og klár tillaga um að stjórnarsamstarfinu verið slitið.
Verði tillagan samþykkt, mun Jóhanna Sigurðardóttir ekki eiga annan kost en bregða sér til Bessastaða og biðjast lausnar fyrir sig og ríkisstjórnina.
![]() |
Flokksráðsfundur VG settur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
FRELSI án ÁBYRGÐAR og UMHYGGJU
25.6.2010 | 17:43
Ég lagði það á mig að hlusta á setningarræðu Bjarna Ben formanns Sjálfstæðisflokksins á landsfundinum. Ekki er orðum eyðandi á inntak ræðunnar sem var bæði rýrt og lélegt.
Athyglisverðast við ræðuna þótti mér hinn afburða slappi flutningur og framsögn formannsins. Sjaldan hef ég orðið vitni að jafn flötum og óáheyrilegum ræðuflutningi . Sjálfstæðismenn, ef þið ætlið að eiga Bjarna áfram, fyrir alla muni sendið þá hvolpinn á Dale Carnegie eða sambærileg námskeið. Eða fáið Ladda til að lesa fyrir hann.
Einkunnarorð landsfundarins eru -Frelsi - Ábyrgð - Umhyggja- , ekkert minna. Það er mér hulin ráðgáta hvernig Sjálfstæðismenn geta tengt þessi hugtök við flokkinn. En ef þetta á að vera fyndið þá er það býsna vel heppnað.
Frelsi -stendur fyrir frelsi Ólafs Áka Ragnarssonar.
Ábyrgð -stendur fyrir Guðlaug Þór Þórðarson, um það þarf ekki fleiri orð.
Umhyggja stendur fyrir umhyggju Péturs Blöndal fyrir öryrkjum og annarra styrkþega sem hann hefur bæði í ræðu og riti sagt lifa í vellystingum og vera afætur á þjóðfélaginu.
Eftir landsfundinn mun stefna Sjálfstæðisflokksins vera eftir sem áður; FRELSI fárra án ÁBYRGÐAR og UMHYGGJU fyrir öðrum.
Viðbót: Landsfundurinn er grín segir Þórlindur Kjartansson fyrrverandi formaður SUS.
![]() |
Leggja aðildarumsókn til hliðar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
Fullkomin afturendaskýring.
25.6.2010 | 13:34
Hún gæti ekki verið undarlegri skýringin, sem Jónmundur Guðmarsson gefur á brottvikningu Ólafs Áka úr Sjálfstæðisflokknum, þótt hún væri dregin út úr endagörn andskotans.
Það er ekki hægt að túlka það sem einhvern brottrekstur úr flokknum, alls ekki, enda hefur framkvæmdastjóri flokksins ekki það vald að reka menn úr honum og ég myndi aldrei taka mér það vald.
Segir kappinn og sendisveinninn Jónmundur. Hver var þá tilgangur þess að hann hringdi í syndaselinn? Að tilkynna Ólafi Áka að hann hefði sagt sig úr flokknum án þess að vita það sjálfur?
Ekki voru Gunnar Thoroddsen, Friðjón Þórðarson og Pálmi Jónsson reknir úr flokknum þegar þeir tóku sæti í ríkisstjórn Gunnars Thoroddsen sem Gunnar myndaði með Framsókn og Alþýðubandalaginu í óþökk Sjálfstæðisflokksins. Gunnar var að auki varaformaður flokksins á þeim tíma.
Þessi endaþarmsskýring Jónmundar heldur ekki vatni og svo léleg að greinilegt er að hún er ekki hans innsta sannfæring. Líklegt verður að telja að honum hafi borist fyrirmæli um brottvikninguna. Örugglega ekki frá rislitlum og löskuðum formanni flokksins.
Hver er þá líklegastur að hafa att Jónmundi á foraðið?
![]() |
Enginn rekinn úr Sjálfstæðisflokknum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Hvar er fréttin...
25.6.2010 | 12:08
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Þingmaður á þroskabraut.
24.6.2010 | 22:29
Stjórnmál og samfélag | Breytt 25.6.2010 kl. 00:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Já þetta er málið, styrkja Guddi....
24.6.2010 | 15:23
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Og Davíð koma svo....
24.6.2010 | 14:10
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Taumlaus réttlætiskennd
24.6.2010 | 12:29
Leysir Alþingi vandann eða skapar það annan verri?
24.6.2010 | 11:28
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þessi samlíking er hárrétt hjá Kristjáni...
24.6.2010 | 09:46
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Vandinn mikli
24.6.2010 | 08:04
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 08:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
Hvað ætli þessar þjóðir segðu...
23.6.2010 | 10:50
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Glerhöllin
22.6.2010 | 21:40
Sumargleði
22.6.2010 | 00:45
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 00:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Á að horfa á sjónvarpið í kvöld?
21.6.2010 | 18:54
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
Datt Netanyahu á höfuðið, eða....?
21.6.2010 | 18:24
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 18:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það er vissara að....
21.6.2010 | 10:59
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)