Hvað eru menn að hugsa?
3.12.2008 | 10:05
Ég sá í fréttum að þeim svæðum sem sýkta síldin hefur veiðst á hafi verið lokað að tilmælum Hafró. Er það rétt aðferð? Allt að 30% af þeirri síld sem veiðist þessa dagana mun vera sýkt og sennilega er svo um allan stofninn.
Sjómenn sækja að sjálfsögðu ekki í sýkta síld sé annað í boði, því hún getur aðeins farið í bræðslu, sem gefur miklu minna verðmæti, en fari hún til manneldis. Ekki hefur verið tilkynnt um breytingar á kvóta vegna ástandsins.
Væri ekki skynsamlegt að opna svæðin strax aftur, veiða síldina til bræðslu frekar en að láta hana drepast engum til gagns.
Útgerðinni og sjómönnum yrði bætt tekjutapið með því að hlutfall sýktar síldar yrði ekki dregið frá kvótanum, enda drepst síldin hvort eð er óveidd og hverfur úr stofninum.
![]() |
Þriðja hver síld sýkt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sjálfvirk salerni?
3.12.2008 | 09:26
Sjálfvirk salerni, þarf maður þá ekkert að gera sjálfur?
![]() |
Notkun sjálfvirkra salerna eykst |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bráðsnjöll kjaraskerðingar áform
2.12.2008 | 13:33
Hugmyndin að tímabundinni launalækkun æðstu embættismanna ríkisins er svo sem góðra gjalda verð ef ekki væri fyrir þá sök að þegar hún hefur náð fram að ganga hefur verið gefið út veiðileyfi á öll laun í landinu.
Launalækkun verður á alla línuna, enda er það megin markmiðið, engum verður hlíft.
Eðli máls vegna ekki hægt að fella gengið meira. Þetta er því einhver best dulbúna launalækkunaráform ríkisstjórnar á lýðveldistímanum og snilldarhugmynd því fólk stekkur á vagninn og nánast krefst þannig lækkun eigin launa, ofan á allt annað.
Laun hins venjulega launþega munu ekki eins og laun embættismann ganga sjálfvirkt til baka þegar birtir á ný í þjóðfélaginu eða gildistíma skerðingarinnar lýkur. Almenningur þarf, eins og alltaf áður að sækja launin aftur með svita, blóði og tárum.
Magnað hvað margir eru ginkeyptir fyrir þessu bulli.
![]() |
Kjararáð getur ekki lækkað launin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Góður húmor
2.12.2008 | 11:37
Góð hugmynd, góður húmor, sem vekur athygli og umfram allt, ekkert skemmt.
![]() |
Neyðarkall frá Kristjáni IX |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Taka tuttugu
2.12.2008 | 11:03
Skemmtiþáttur Ragnheiðar S. Jónsdóttur, Gott kvöld, hefur allt til að bera sem góður þáttur af þessari gerð þarf að hafa, þó er hann dæmdur til að mistakast.
Ástæðan er einföld, þetta er sama formúlan og notuð var af RUV í þættinum Á tali hjá Hemma Gunn á síðustu öld og hefur verið í notkun óslitið síðan, aðeins undir breyttum formerkjum, nýju nafni og nýjum gestgjafa.
Gott kvöld er einfaldlega taka tuttugu af sama þættinum.
Viðmælendur þessa þátta eru alltaf þeir sömu, fólk úr skemmtanabransanum eða pólitíkinni, fólk sem búið er að segja sína sögu oftar í svona þáttum en tölu verðu á komið.
Þótt vel sé til þáttar Ragnheiðar vandað, umbúnaður og sviðsmynd hin glæsilegasta svo ekki sé talað um stórglæsilegan þáttastjórnandann, þá nær þátturinn ekki að yfirstíga þá staðreynd að formúlan er orðin þreytt, þvæld og úr sér gengin.
.
![]() |
Ört minnkandi áhorf á Gott kvöld |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Og?
1.12.2008 | 12:52
Hver er pælingin? Reikna menn með því að geta krafið hræið um bætur ef sekt þess sannast? Veltur á því hvor var í rétti.
![]() |
Varð hvalurinn fyrir Herjólfi? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 12:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Geir ber ekki ábyrgð, þá er það á hreinu.
29.11.2008 | 16:40
Víkurvagnar smíða þjóðarskútuna.
29.11.2008 | 13:59
50 ár í sveiflunni
29.11.2008 | 08:14
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 08:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Jólabónusinn í ár
29.11.2008 | 07:05
Vúdú bjargráð
28.11.2008 | 20:31
Heimdallur afneitar Davíð
28.11.2008 | 17:56
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Margnota umbúðir
28.11.2008 | 00:55
Samvisku jó(n)jó(n).
26.11.2008 | 08:41
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Ólýsanlegur viðbjóður.
25.11.2008 | 19:42
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Jafnrétti í þingsölum?
25.11.2008 | 18:17
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Er skítalykt af málinu?
25.11.2008 | 16:13
Að hafa skítlegt eðli.
25.11.2008 | 14:55
Góður fundur í Háskólabíó
24.11.2008 | 22:00
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Konur án klæða
24.11.2008 | 20:28