Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Turnarnir tveir

Ríkissjónvarpið varð sér til skammar í kosningaþætti kvöldsins. Ekki var öllum framboðum sem þegar hafa komið fram heimiluð þátttaka, þótt eftir því væri leitað. Þetta eru skítleg og andlýðræðisleg vinnubrögð hjá RUV, hvaða skoðun sem menn kunna svo hafa á  viðkomandi framboðum sem ekki eru í náðinni.

Að mínu mati skáru Birgitta Jónsdóttir og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson gersamlega frá öðrum frambjóðendum.

Birgitta var að mínu mati sigurvegari kvöldsins sem málefnalegasti frambjóðandinn en Sigmundur Davíð var hinsvegar „sigurvegarinn“  á hinum endanum sem hinn fullkomni lýðskrumari en samt ótrúlega ótrúverðugur, flatur og leiðinlegur.


mbl.is Kosningabaráttan framundan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Besta gabbið ekki gabb

Það var eðlilegt að setja þetta nýja framboð á koppinn í dag 1. apríl. Allir líta auðvitað á þetta sem gabb,  enda er formaður framboðsins, Pétur Gunnlaugsson trúður á Útvarpi Sögu,  eitt allsherjar aprílgabb.

Það verður með þetta „aprílgabb“ eins og önnur slík, það lifir daginn en er svo öllum gleymt.

  


mbl.is Átta samtök standa að Flokki heimilanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glæpur og refsing

Maður einn gengur út úr verslun með flatskjá án þess að greiða fyrir gripinn og hann er í framhaldinu dæmdur í fangelsi fyrir verknaðinn.

dream-tm_821735Það auðvitað eðlilegt, en giska broslegt í ljósi þess að nýríki aðalinn sem gekk út úr hruninu með milljarða ef ekki tug- milljarða af misjafn- lega fengnu fé í vasanum fær hinsvegar aðeins vinalegt klapp á bakið og góðar kveðjur; „Hafið engar áhyggjur kæru vinir, við afskrifum bara þetta lítilræði!“

Þeir  hinir sömu fá auk þess í flestum tilfellum að halda öðrum „eigum“ sínum  á meðan sömu kröfuhafar passa vel uppá að gengið sé út í hvert horn eftir eigum alþýðunnar.

   ** Klikkið á myndina til að stækka hana.


mbl.is Gekk út með flatskjá án þess að greiða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fylgi Sjálfstæðisflokksins er í frjálsu falli en samt reynir flokkurinn ekki að draga úr fallinu

Það þarf aðeins eina ákvörðun til að stöðva eða draga úr fylgishruni Sjálfstæðisflokksins. Hún er sú að knýja kjánaprikið Bjarna Benediktsson til afsagnar hið snarasta eða rífa hann ella frá bjarniformstýrinu og kasta honum fyrir borð og fela Hönnu Birnu stjórnina.

Innviðir flokksins verða auðvitað eftir sem áður myglaðir  og morknir en þessi kattarþvottur gæti verið flokknum nægjanleg andlitslyfting til að stöðva fall hans eða draga úr því.

Tíminn er naumur og þessa hallarbyltingu þyrfti að framkvæma sem fyrst. En það er engin hætta á að því að það gerist, til þess eru Sjálfstæðismenn alltof spéhræddir og sjálfumglaðir. Þá langaði til að láta Bjarna fjúka á landsfundinum, en brást kjarkurinn. Þeir óttuðust að missa við það andlitið, þetta líka andlit.

 
mbl.is Framsóknarflokkurinn stærstur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hirðfífl Hæstaréttar

Það er gleðilegt að loksins skuli rofa til í Guðmundar og Geirfinnsmálunum, mestu réttarfarsmartröð Íslandssögunnar, málum sem hvílt hafa eins og mara á þjóðinni áratugum saman.

Það þarf að snúa við hverjum steini í þessum málum, fyrr finnur þjóðin ekki frið í sínum beinum. Það þarf ekki hvað síst að rannsaka þátt Ragnars H. Hall í þessu skaðræðismáli. Ragnar var skipaður sérstakur saksóknari á tíunda áratug síðustu aldar til að fara yfir Guðmundar og Geirfinnsmálin vegna beiðni Sævars Ciesielski um endurupptöku þeirra.

bildeCAEMB9NJEftir að hafa „unnið að“ rannsókninni í heilt ár sendir Ragnar loks til Hæstaréttar stutta „greinargerð“ þar sem hann „rökstuddi“ með rangfærslum og ósannindum þá niðurstöðu rannsóknar sinnar að hafna beri endurupptöku beiðninni.

Innihald þessa örskýrslu Ragnars þótti með eindæmum svo hroðvirknislega unnið og illa rökstutt að höfundurinn fékk í sinni stétt viðurnefnið -hirðfífl Hæstaréttar.

Hæstiréttur beit svo höfuðið af skömminni með því að fara að ráðum Ragnars og hafna beiðni Sævars  um endurupptöku Guðmundar- og Geirfinnsmála.

Glæpamennirnir í dómskerfinu og löggæslunni önduðu eðlilega léttar.

Gaman væri að vita hver þóknun Ragnars var fyrir þessa þjónustu hans við réttlætið. Eins þarf að kanna hvort hirðfífl Hæstaréttar hafi, eftir þetta innlegg sitt í helsta réttarfarsmorð Íslandssögunnar, notið sérstaks „velvilja“ Hæstaréttar í þeim málum sem hann flutti fyrir réttinum.

 


mbl.is Fordæmalaus einangrun sakborninga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tveir fyrir einn

Svona í ljósi fáránleikaumræðunnar um færslu Reykjavíkurflugvallar þá hlýtur að vera löngu  tímabært að færa Keflavíkurflugvöll. Það er ómögulegt annað en hann sé fyrir einhverjum. Vantar þeim, sem fengu mannvirkin á vellinum gefins, ekki ódýrar byggingarlóðir? Þarf ekki stjórnviskujöfurinn Árni Sigfúss meira rými fyrir skuldasöfnun?

Af því að við eigum svo mikið af gáfuðu fólki þá er örugglega hægt að fá einhverja verkfræðistofu, með loforði um framtíðarvinnu við verkefnið, til að reikna út gífurlega hagkvæmni þess að færa báða flugvellina í einu, taka tvo fyrir einn.

Vellina mætti færa upp á mitt Reykjanesið, út í miðjan Faxaflóa eða upp á miðjan Grænlandsjökul ef því er að skipta, svo framalega að flugvellirnir  flækist ekki fyrir gáfumannaelítunni við "hagsmunagæslu" heildarinnar.

   


mbl.is Sjötugur flugvöllur slær met
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verði Helga "að Góu!"

Helgi í Góu birtir opnu  auglýsingu í Fréttablaðinu  í gær þar sem hann hraunar yfir forsætisráðherra, með réttu eða röngu, vegna þeirrar skammar sem viðgengist hefur á elliheimilum hér á landi í áratugi að aðskilja hjón og setja í herbergi með vandalausum.

Ég er sammála því að aðskilnaður hjóna á elliheimilum er til skammar. En mér finnst þessi paskaegg1auglýsing hans Helga, bæði forkastanleg og siðlaus í alla staði. Þó ekki sé fyrir annað en þá ósvífni að í henni ber Helgi fyrir sig fólk að því forspurðu.

Fullyrðing Helga að þetta frumhlaup hans tengist ekkert páskaeggjavertíðinni, er í besta falli brosleg. Svo bítur Helgi höfuðið af skömminni með því að skella sökinni á auglýsingastofuna. Það er Helgi sem kaupir vinnu stofunnar og borgar birtingu auglýsingarinnar, hann og enginn annar ber ábyrgðina.

„Dýrlingurinn“ Helgi í Góu hefur misst vængina og fallið af stalli sínum. Páskaeggin til barnabarnanna í ár verða pottþétt ekki frá Góu!

 


mbl.is Helgi í Góu: Tengist ekki sölu á páskaeggjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Groundhog Day"

Hún er stórmerkileg yfirlýsing Magnúsar Orra Schram, að stjórnarskrármálið sé aftur komið á byrjunarreit vegna inngripa Margrétar Tryggvadóttur.

Magnús er einfaldlega að viðurkenna að Samfylkingin sé aftur komin á upphafsreitinn þegar kosningaloforðin voru gefin og full meining var, eða svona fast að því, að standa við þau fyrirheit og aðrar fjallháar yfirlýsingarnar.

Það hlýtur að vera hræðileg reynsla fyrir Íslenskan stjórnmálamann að þurfa að upplifa slíkt.  

Samfylkingin hefur upplifað sinn  „Groundhog“ dag.  


mbl.is „Tundurskeyti“ Margrétar breytti stöðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íhaldið með nefið hans Gosa

lygariÞarna gaf Bjarni okkur sýnishorn af kosningatak- tík Íhaldsins. Því á að ljúga að kjósendum að Fram- sókn stefni leynt og ljóst að vinstristjórn eftir kosningar. 

Þetta á að hræða þá fjölmörgu Sjálfstæðismenn sem geta  ekki  samvisku  sinnar vegna  kosið  Íhaldið undir núverandi formerkjum, frá því að „svíkja“ lit og kjósa Framsókn.

Þetta herbragð Íhaldsins er dæmt til að mistakast. Því líklegra er að liðhlaupunum klígi meira við stefnumörkun landsfundar flokksins og núverandi formanni hans, og því sem hann stendur fyrir, en hugsanlegri „vinstri“ stjórn undir forystu Framsóknar.

Auk þess vita allir hvoru megin veggjar Framsókn liggur.

  


mbl.is „Lágmarksreisn fyrir þingið“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ráðherradraumur Þórs Saari

idiotÞegar þetta er ritað stendur yfir umræða á Alþingi um tillögu Þórs Saari um vantraust á ríkisstjórnina, þingrof, boðun kosninga og skipun starfstjórnar allra flokka fram að kosningum.

Kíkjum aðeins á innihald tillögu Þórs. Þór kallar eftir þingrofi og kosningum þegar þingið er hvort eð er á sinni síðustu starfsviku og kosningar hafa þegar verið ákveðnar 27. apríl og utankjörfundar- atkvæðagreiðsla þegar hafin! Vantrausttillagan breytir nákvæmlega engu þar um.

Þá stendur aðeins eftir af tillögu Þórs skipun starfsstjórnar allra flokka fram að kosningum verði hún samþykkt.

Það er nefnilega kjarni málsins og eini raunverulegi tilgangur vantrausttillögu Þórs Saari. Hann sér fram á að verða fulltrúi svokallaðar Hreyfingar í þeirri starfsstjórn og fá þannig  ráðherranafnbót í 6 vikur, með tilheyrandi biðlaunum og bitlingum, áður en hann kveður Alþingi fyrir fullt og fast.

Það er mikið lán þegar persónulegur metnaður þingmanna og þjóðarhagur fara svo vel saman.

  


mbl.is Kosið um vantrauststillöguna í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband