Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Oss er í dag píslarvottur fæddur
29.9.2010 | 11:02
Krafa þjóðfélagsins var að stjórnmálamenn yrðu látnir axla ábyrgð á andvaraleysi og sofandahætti þeirra í aðdraganda hrunsins. Núna hefur það gerst með þeirri ákvörðun að ákæra Geir H. Haarde fyrir Landsdómi, þótt meiri reisn hefði gjarnan mátt vera yfir öllu ferlinu og afgreiðslu Alþingis.
Það er ljóst að atkvæða- greiðslan á Alþingi var að einhverju eða öllu leiti pólitísk hjá öllum flokkum, þótt pólitík nokkurra þingmanna Samfylkingar- innar hafi hlotið mesta athygli.
Það er algerlega horft framhjá þeirri staðreynd að Sjálfstæðisflokkurinn lagði til 16 atkvæði til að koma í veg fyrir ákærur á hendur Árna Matt, Ingibjörgu Sólrúnu og Björgvin G, því er það undarlegt að sjá Sjálfstæðismenn kenna Samfylkingunni einni um þá hörmung. Þeir geta sjálfum sér um kennt.
Fyrir sakir klúðursins á Alþingi þá er Geir Haarde í augum almennings að breytast úr sakamanni í píslarvott, þar sem hann hangir á krossi sínum á Galgopahæðinni, með auða krossa til beggja handa.
![]() |
Þorgerður Katrín: Pólitísk réttarhöld |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Til hamingju Nýja Ísland
29.9.2010 | 10:22
Sigurplast, 50 ára gamalt iðnfyrirtæki, sem framleiðir m.a. plastumbúðir hefur óskað eftir gjaldþrotaskiptum. Hjá fyrirtækinu hafa starfað 17 manns. Nokkuð hefur verið fjallað að undanförnu um mál fyrirtækisins í fjölmiðlum og raunir þess og annarra fyrirtækja, í svipaðri stöðu, í samskiptum við sína viðskiptabanka.
Því hefur verið haldið fram að í bönkunum ráði annarleg sjónarmið, það væri bönkunum ekki forgangsmál að fá sitt fé til baka að hluta eða öllu leiti, þeir hefðu mestan áhuga á að sölsa undir sig fyrirtækin og koma þeim í hendur nýrra eigenda. Til að ná því fram væru þeir jafnvel tilbúnir að tapa mun meiri fjármunum en það kostaði þá að liðka til fyrir núverandi eigendum.
Arion banki hefur staðfastlega neitað þessu, en hefur í kjölfar gjaldþrotabeiðni Sigurplasts sent frá sér fréttatilkynningu og í henni segir m.a.:
Að sögn forsvarsmanna Sigurplasts ehf. hafa þeir óskað eftir gjaldþrotaskiptum á félaginu. Arion banki er einn stærsti kröfuhafi Sigurplasts og er jafnframt eigandi þriðjungs hlutafjár félagsins. Forsvarsmönnum Sigurplasts hefur lengi verið ljóst að bankinn vill endurskipuleggja fjárhag félagsins, skjóta traustari stoðum undir rekstur þess og bjarga þar með þeim störfum sem í húfi eru.
Ef skiptastjóri fellst á aðkomu Arion banka um endurreisn félagsins, hyggst Arion banki selja félagið í opnu söluferli síðar. Bankinn mun kynna nýja tilhögun á rekstri Sigurplasts nánar ef samkomulag næst við skiptastjóra félagsins." (feitl. A.J.H.)
Ekki verður annað séð en bankinn staðfesti það sem á þá er borið. Það þarf enginn að fara í grafgötur með hvernig framkvæmdin á opnu söluferli bankans verður, ef marka má forsögu og reynslu þeirrar formúlu. Líklegast er löngu ákveðið hverjum bankinn ætlar þetta fyrirtæki, allt ferlið bendir til þess.
Almannarómur segir að það séu Íslenskir fjármálasóðar sem staðið hafi að meira og minna leiti að baki erlendum kröfum í þrotabú bankanna og eigi núna m.a. Arion banka. Gömlu bankarnir rændu almenning með því að falsa afkomu sína og veldi til að lokka og soga til sín fjármagn. Sú leið er varla fær að sinni, þannig að núna gengur ræningjapakkið um sviðið, pikkar upp góð og lífvænleg fyrirtæki og rænir þeim af eigendum sínum, opinberlega og um hábjartan dag.
Sömu trakteringu fær fólkið í landinu, einstaklingar og fjölskyldur verða að horfa berskjölduð og varnarlaus á bankasóðanna hirða af þeim ævistritið og rústa framtíð þeirra.
Til hamingju nýja Ísland!
![]() |
Arion banki segist vilja endurreisa Sigurplast |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þetta verður ekki þægilegt fyrir Samfylkinguna.
28.9.2010 | 19:15
Það var dapurlegt að horfa upp á þá sjokkerandi staðreynd að nokkrir þingmenn Samfylkingarinnar mátu sekt fjórmenningana eftir pólitík. Það verður þeim til lítils sóma og verður trúlega þungamiðja umræðunnar næstu vikur, en sú staðreynd að helmingur þingmanna gat ekki staðið í lappirnar og sinnt sinni skyldu, mun falla algerlega í skuggann. Skítlegt eðli liggur mér við að kalla þetta.
Nefnt hefur verið að ekki sé sanngjarnt að Geir sé ákærður en hin sleppi, það eru auðvitað ekki gild rök. Ekkert réttarkerfi væri starfandi í landinu væri það megin reglan. Það er ekki hægt að horfa framhjá þeirri staðreynd að Geir, sem forsætisráðherra bar mesta ábyrgð ráðherrana, þó fleiri ættu vissulega erindi á sakamannabekkinn, bæði úr hans ríkisstjórn og þá ekki síður þeim ríkisstjórnum sem á undan fóru.
![]() |
Þægileg lausn fyrir Samfylkinguna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
„Ef við slítum í sundur lögin, slítum við í sundur friðinn“
28.9.2010 | 12:34
Það er ekki búandi við það að ráðherrar beri ábyrgð á gjörðum sínum sagði maddama Þórunn Sveinbjarnardóttir á Alþingi í morgun. Hvaða helvítis skilaboð eru þetta, verður næst ekki búandi við að Útrásar- og bankasóðarnir beri ábyrgð, er yfir höfuð búandi við það að nokkur beri ábyrgð á gjörðum sínum?
Eitt er orðið ljóst, það er ekki búandi við svona þingmenn eins og Þórunni Sveinbjarnardóttur. Það bendir allt til þess að meirihluti þingmanna sé sama sinnis og Þórunn og telji það ótækt að þeir beri nokkra ábyrgð. Falli þeir á þessu siðferðisprófi og slíta í sundur lögin, verða þeir ekki bara sjálfum sér til skammar , heldur Alþingi og þjóðinni allri og gera Ísland að athlægi erlendis og troða trúverðugleika landsins endanlega í svaðið.
Þjóðinni er gróflega misboðið og Alþingi virðist fyrirmunað að gera neitt annað en auka á sína skömm. Nýtt þing verður sett á föstudaginn, þá hlýða þingmenn á messu í Dómkirkjunni, meðtaka blessum fyrir sín störf og ganga síðan fylktu liði frá kirkju til þinghússins. Það þyrfti ekki að koma neinum á óvart, hafi þingmenn slitið í sundur friðinn, að föstudagurinn sá verði í framtíðinni kallaður skyrdagurinn mikli.
![]() |
Mistókst að ná sameiginlegri niðurstöðu um ábyrgð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Slá ei á formannshendur
28.9.2010 | 00:00
Miklar vangaveltur og spekúlantasjónir hafa verið uppi, hver sé hugsanlegur arftaki Jóhönnu Sigurðardóttur sem formaður Samfylkingarinnar, þegar hún óhjákvæmilega leggur frá sér keflið, innan ekki langs tíma.
Þetta skemmtilega vandamál hefur valdið ómældum titringi og ókyrrð í ritstjórn Morgunblaðsins og hússtjórn Valhallar, skeyti hafa verið send manna á milli og stofnana Sjálfstæðisflokksins þvers og kruss um áhyggjuefnið , valdandi ótöldum andvökunóttum vítt og breitt um flokkinn.
Margir hafa verið nefndir til sögunnar sem erfðaefni, en fáir eru kostirnir góðir, eins og staðan er núna, það verður að viðurkennast. Árni Páll var margra vonarstjarna en hann hefur af eigin rammleik og hjálparlaust rutt þeim möguleika út af borðinu. Sömuleiðis verður Björgvin G. Sigurðsson sem margir litu til, ekki inni í myndinni hvernig sem Landsdómur fer. Svo verða femínistakerlingarnar, allar með tölu, varla valkostur, í alvöru talað.
Svo eru menn á útleið eins og Kristján Möller og Össur ekki í kjöri, sama má segja um Ástu R. Jóhannesdóttur, Katrínu Júlíusdóttur og Ólínu Þorvarðardóttur (ekki í þetta sinn). Svo koma aðrir ekki til greina og ekki af annarri ástæðu en, af því bara.
Að öllum þessum frátöldum í þingflokknum stendur eftir aðeins eftir eitt nafn, Magnús Orri Schram, hvernig sem mönnum kann að þykja það við fyrstu sýn.
Á flokksþingi Alþýðuflokksins 1982, að mig minnir, fékk Jón Baldvin Hannibalsson 2 atkvæði í formannskjöri, annað þeirra var mitt, tveim árum síðar var hann orðin formaður. Ég hef sömu tilfinningu núna gagnvart Magnúsi Orra og spái honum æðstu metorðum innan Samfylkingarinnar og því fyrr, því betra.
Magnús Orri var annar fulltrúi Samfylkingarinnar í Atlanefndinni og nú verður Samfylkingin að passa sig að slá ekki á hendur hans, sem ég trúi að séu formannshendur.
![]() |
Skiptar skoðanir um ákærur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Misskilja þingmenn hlutverk sitt?
27.9.2010 | 19:00
Mörður Árnason þingmaður segist ekki hafa komist að niðurstöðu um sekt allra þeirra ráðherra, sem lagt er til að mál verði höfðað gegn fyrir Landsdómi. Í þessari skoðun Marðar Árnasonar liggur sennilega sá misskilningur og vandi sem velkist fyrir Alþingi þessa dagana.
Það er ekki hlutverk Alþingis að skera úr um sekt eða sakleysi fjór- menningana, það er hlutverk Landsdóms. Hlutverk þingmanna er einungis að taka ákvörðun um að kæra fjórmenningana fyrir Landsdómi eða ekki.
Það er þeirra eina hlutverk, Landsdómur sér um rest.
![]() |
Alvarleg vanræksla og stórkostlegt gáleysi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Metnaðarleysið uppmálað
27.9.2010 | 17:41
Sér er nú hver heiðurinn að setjast á þing og verða hluti af þeirri gegnsýrðu og rotnu ormagryfju sem Alþingi er orðið. Hlandblautir strætisrónar eiga meiri virðingu skilið en þetta sjálfbirgingslega sérhagsmunagæslulið og sjálfdáða skítapakk.
![]() |
Heiður að setjast á Alþingi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Af eða á
24.9.2010 | 07:17
Ef biðraðir fólks á Íslandi eftir matargjöfum og öðrum nauðsynjum eru ekki samstíga því sem gerist á hinum Norðurlöndunum þá þarf að gera annað af tvennu.
Það þarf að má burt þennan blett á Íslensku samfélagi - eða koma honum á, á hinum Norðurlöndunum, til að samræma framkvæmd Norræna velferðarmódelsins.
Spurningin er aðeins, hvor leiðin mönnum hugnast betur.
![]() |
Matargjafirnar einsdæmi á Norðurlöndum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 07:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Vonandi fyrirgefið þið mér....
22.9.2010 | 00:00
....þó ég sé hálf ráðvilltur þegar ég virði fyrir mér stefnu og markmið Samfylkingarinnar þessa dagana.
Minni á skoðanakönnunina hér til vinstri!
![]() |
Ræða Jóhönnu mikil vonbrigði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Kettirnir horfa ráðvilltir á smalann
21.9.2010 | 08:41
Það er ekki ofsögum sagt að Jóhanna Sigurðardóttir hafi varpað sprengju inn í þingið í gær með ræðu sinni. Það varð uppi fótur og fit í Vinstri grænum, menn þar vita ekki hvaðan á sig stendur veðrið, skiljanlega.
Þetta er óneitanlega sérkennileg staða, kettirnir sem hingað til hafa beðið þess að þeim yrði smalað saman fyrir atkvæðagreiðslur á Alþingi, sjá fram á að þurfa að taka að sér hlutverk smalans og smala forsætisráðherranum.
Það verður gaman að fylgjast með þeim tilburðum, svo stygg og stíf sem hún Jóhanna blessunin getur verið.
Reiði og vonbrigði er ekki bundið við VG eina, þjóðfélagið logar og því fer fjarri að grasrótin í Samfylkingunni sé sátt við þá stöðu sem upp er komin.
![]() |
Mikil reiði innan VG |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)