Færsluflokkur: Mannréttindi

Er málið dautt, var ekki glæpur framinn?

Hann er undarlegur fréttaflutningurinn af þessari nauðgunarákæru á þjóðhátíðinni. Fréttirnar snúast enn allar um manninn, - innan sviga „nauðgarann“-, þó löngu sé ljóst að maðurinn hafi verið borinn röngum sökum.  Fréttirnar ættu með réttu að snúast um konuna,  sem laug nauðgun upp á manninn! Það var hún sem framdi glæpinn í málinu, ekki maðurinn.

 

Nauðgun er grófur glæpur, sem engum á að líðast. Að bera falska nauðgunarákæru á mann er í raun sami glæpur, með öfugum formerkjum, því á hinum ákærða er framið  mannorðsmorð. 

 

Er þetta í lagi, af hverju hefur konan ekki verið handtekin? Eða fellur þetta undir hina svokölluðu „jákvæðu mismunun“  og málið dautt?

 

 


mbl.is Maðurinn reyndist vera saklaus
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verður nauðgun barna lögleidd?

Hollendingar virðast telja sér skylt, í nafni frelsis, að ryðja brautina fyrir hverskonar öfga, óra og ónáttúru. Nýjasta nýtt í þeim efnum er úrskurður áfrýjunarréttar þess efnis að félagsskapur sem hefur nauðgun barna sem aðal áhugamál sé hið eðlilegasta mál.

Hollendingar eru núna að átta sig á því, að fenginni biturri reynslu, að fíkniefna frelsið sem leit svo dæmalaust vel út fyrir nokkrum árum, er hreint ekki að gera sig eins og vonir stóðu til. Í staðin fyrir að bakka frá bullinu grafa þeir sig aðeins dýpra í viðbjóðinn.

Núna virðast Hollensk yfirvöld ætla að toppa sjálfa sig í bullinu, fórnarlömbin verða að þessu sinni börn. Dómstóll þar í landi hefur úrskurðað að samtök sem berjast fyrir lögmæti „kynlífs“ barna og fullorðinna séu fyllilega réttmæt og sé frjálst að breiða út sinn boðskap!

Er hægt að sökkva sér dýpra í viðbjóðinn?

  
mbl.is Barnaníðssamtök ekki bönnuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvort er verra, nauðgun eða mannorðsmorð?

Það er sjálfsagt að rannsaka hvort Egill Einarsson hafi ranglega verið sakaður um nauðgun, séu uppi vísbendingar um það.

Að mínu viti er það alveg jafn alvarlegur glæpur að ásaka mann eða konu ranglega um glæp og glæpurinn sjálfur, hefði hann verið framin.


mbl.is Situr undir svívirðingum „réttsýnna“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bjóðum Breivik sömu vist og hann bauð 77 fórnarlömbum sínum

Jæja er hann farinn að væla ræfillinn um mannréttindabrot. Látum helvítið væla,  allt sem hann fær er of gott. Til að eiga kröfu til mannréttinda verður viðkomandi að teljast til manna. Breivik hefur með gjörðum sínum algerlega fyrirgert sér þeim rétti að teljast maður.

„Ég efast um að það fyrirfinnist verri íverustaður í Noregi,“ vælir Breivik um 3ja herbergja  fangaklefann sinn og segir aðbúnaðinn ómannúðlegan.

Ekki þarf að efast um að íverustaður Breiviks er til muna hlýlegri og þægilegri vistarvera en kaldar grafirnar sem hann bjó 77 fórnarlömbum sínum af fullum ásetningi og án minnstu iðrunar.

Það ætti að bjóða honum að dvelja niðri á sex fetum í smá tíma, ætli hann þráði ekki fljótlega aftur hlýjan og vistlegan klefann.

Það þyrfti svo að skoða undir húddið á þeim sem taka að sér smygla bréfum út úr fangelsinu fyrir þetta óbermi.


mbl.is Breivik finnst illa farið með sig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

1. maí

Til hamingju með daginn, Íslendingar!

 

Fáninn eini

 


Þeir sem ekki virða 1. maí, hafa enga sjálfsvirðingu

1_%20maiÞað er þeim verslunareigendum til skammar sem ætla að hafa búðir sínar opnar 1. maí og virða ekki frídag starfsmanna sinna.

Fólk sem nýtir sér opnun verslana og aðra þjónustu, sem að öllu jöfnu er lokuð 1. maí, ætti að spyrja sjálft sig, hví í ósköpunum það sé sjálft að slæpast þennan dag í stað þess að vera í vinnunni eins og þeim finnst eðlilegt að verslunarfólkið geri.

Segjum verslunareigendum skoðun okkar á þessari  móðgun þeirra við launafólk. Styðjum okkur sjálf með því að hundsa opnun búðanna.

 


mbl.is Hvetja til þess að sniðganga verslanir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ögmundur fær bréf - stingur hann því undir ráðherrastólinn?

Elín Hirst hefur skrifað innanríkisráðherra bréf þar sem hún fer fram á að hann taki viðtal Nýs Lífs við lögreglustjórann á Suðurnesjum til efnislegrar meðferðar. Lögreglustjórinn, sem er mágkona Guðrúnar Ebbu Ólafsdóttur, segist ekki trúa ásökunum Guðrúnar á hendur föður sínum, Ólafi Skúlasyni heitnum.

Lögreglustjóranum er auðvitað frjálst hafa þessa skoðun, en ég er sammála Elínu Hirst að stöðu sinnar vegna hefði hún átt að halda þessari skoðun sinni fyrir sig. Það er fráleitt að hún, sem lögreglustjóri,  geti leyft sér í viðtali við glanstímarit að upplýsa um persónulega skoðun sína á sekt eða sakleysi manna í einstökum málum. Málum sem ekki hafa verið endanlega til lykta leidd.

Lögreglustjórinn hlýtur, sóma síns vegna, að segja af sér, eða að standa frami fyrir brottvikningu ella.


Glæsilegar konur og sómi Íslands

lögguhúfurMikið eru þetta glæsilegar konur á meðfylgjandi fréttamynd.  Þær verða landi sínu og stétt til sóma, enginn spurning um það.

Það er faganðarefni að konur í lögreglunni skuli ekki lengur þurfa að þola þá kynniðurlægingu að bera önnur höfuðföt og búninga en karlar í sömu starfsstétt, eins og tíðskaðist.

.

.

Kíkið á skoðanakönnunina hér til vinstri.  Hún er í þremur hlutum.  Skemmtilegast er,  sé öllum möguleikunum svarað.


mbl.is Stelpurnar stóðu vaktina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Græt Krókódílatárum

Þessi frétt kallar fram flóð krókódílatára. Það er léttir að þessi boðflenna sjónvarpsdagskrár RUV skuli fara annað.
mbl.is Tilboði RÚV í sýningarrétt hafnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

„Gættu að því hvað þú segir maður“

Stjórnvöld í Pakistan hafa bannað notkun ákveðinna orða, í SMS skeytum, sem þykja samfélagslega hættuleg. Þetta munu aðallega vera orð sem tengjast kynlífi og þeim tapú málaflokki. Síur verða settar í símkerfið sem stöðvar textaskeytin á ferð þeirra í gegnum kerfið, innihaldi þau eitthvert bannorðanna.

Nú er ég ekki kunnugur þessum málum en ætli notkun þessara sömu orða sé bönnuð í töluðu máli í Pakistan, tveggja manna tali? Verða svona málfarssíur settar á fólk, sem lokar á því munninum, verði þessi orð nefnd.

Svipuð sía hefur verið virk hér á Moggablogginu, sem lokað hefur á alla sem farið hafa „yfir strikið“ í umfjöllun sinni um menn og málefni og þá trúmál sérstaklega. 

  


mbl.is Banna notkun 1.500 orða í SMS-um
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband