Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2010

Kúnstin að breyta rómantík í hverfislegt ógeð!

Kamínur geta verið skemmtileg tæki, skapað góða stemningu jafnvel rómantík, þegar þannig háttar til á tyllidögum og  hátíðum. Ef þessi tæki eru notuð í þeim tilgangi eingöngu, er ekki margt við þau að athuga.

En þegar fólk fer að nota þessar græjur til upphitunar á húsum sínum þar sem völ er á, eða gert ráð fyrir, öðrum umhverfisvænni orkugjöfum fer skörin að færast upp í bekkinn.

Því miður voru fyrrum nágranar mínir á Skagaströnd ekki svo heimskir, eins og fólkið í fréttinni, að vita ekki að kamínur á auðvitað að tengja við reykrör áður en kveikt er upp í þeim. Staðfestingu á þeirri skynsemi kamínueigendanna fengum við nágrannarnir daglega, á miður skemmtilegan hátt. 

Reykur nágrannanna skilaði sér skilmerkilega upp um reykháfinn þeirra, en virtist hafa sömu náttúru og reykurinn hans Kains forðum, að vilja ekki upp í loftið,  en hafði þess í stað þá leiðu tilhneigingu að leita inn um opna glugga næstu húsa.

Kaldhæðnin í málinu var að fyrirvinnan á heimili kamínunágranna minna vann í Blönduvirkjun við framleiðslu rafmagnsins sem m.a. er notað til upphitunar á  flestum heimilum á Skagaströnd. Það var umtalað að nágrannar mínir tímdu ekki að kaupa rafmagnið til upphitunar, sem maðurinn, þó hafði laun sín af að framleiða,  en kyntu þess í stað meira og minna með brenni sem þau fengu frítt.

Klögumál streymdu til sveitarstjórnar, sem á einhvern óskiljanlegan hátt kom sér hjá að taka á málinu, þrátt fyrir að aldrei hefði verið sótt um leyfi fyrir reykröri á umræddu húsi. Þannig virtist réttur rykframleiðendanna ná með formlegum hætti inn á lóðir okkar nágrannana og alveg upp að  opnanlegum fögum og þar, og fyrst þar,  byrjaði réttur okkar hinna, sem virtist aðallega felast í því vali að hafa alla glugga kirfilega lokaða,  ætti húsið ekki að lykta eins og brunarústir þegar fólk kæmi heim úr vinnu á kvöldin.

Þeir sem voru áhættufíklar hengdu þvott á snúrur. 


mbl.is Kúnstin að kveikja upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eiga konur að fá að aka bílum?

Þeir vita hvað þeir syngja öfgakarlarnir í Sádi-Arabíu. Þetta slys sannar svo ekki verður um villst að konur eiga ekki að aka bílum. Það kann aldrei góðri lukku að stýra. 

Þeir leyfa ekki hundum að aka bílum í Sádi-Arabíu frekar en annarstaðar, hvaða rök eru þá fyrir því að konur fái ökuleyfi?

   


mbl.is Sádi-arabísk ökukona fórst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég má til...

...að renna þessu í gegn, rétt einu sinni, ef ske kynni að einhverjir væru búnir að gleyma hvað gerðist. 

Textinn er tær snilld.

 
mbl.is Fjáraukalög rædd í næstu viku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég er í vanda, ég þarf hjálp!

jafnrettiÞað verður kosið til stjórn- lagaþingsins eftir slétta viku og kominn tími til að undirbúa sig aðeins.

Ég settist því niður með kynningarblaðið um frambjóð- endur og þegar ég hafði þvælst fram og aftur um blaðið, hafði ég myndað hóp 25 manna og kvenna sem ég taldi að mest erindi eiga á þingið og stæðu næst  þeim hugmyndum sem ég hef sjálfur um stjórnarskránna og tilgang þingsins.

Ég var býsna ánægður með unnið verk þar til ég áttaði mig á kynjaskiptingu kandídatanna minna. Mér brá heldur betur í brún þegar ég sá að mér hafði orðið illilega á í messunni og þverbrotið jafnréttishugsjónir samtímans, því á blaðinu voru nöfn 16 kvenna og 9 karla.

Nú stend ég frammi fyrir erfiðri ákvörðun, í mér togast á, skynsemin annarsvegar og útgefin jafnréttisformúla hinsvegar.

Á ég að láta listann minn standa og hundsa með öllu kynjajöfnunarkröfur samfélagsins,  EÐA á ég að henda út af listanum mínum 4 til 5 hæfum konum fyrir jafn marga minna hæfa karla til að þjóna steingeldri kynjajöfnunarkröfu?

Hvort er líklegra til að þjóna landinu okkar betur, kynjajöfnun eða mannkostir og hvort er líklegra til að skila okkur meira réttlæti og jöfnuði, veit það einhver?  


Það er gott að þekkja óvini sína - en enn betra er, að þekkja vinir sína

Já takk fyrir það Obama! Nýtt eldflaugavarnarkerfi NATO ætti að tryggja Íslendingum áhyggju laust líf og góðan nætursvefn ef ekki væri fyrir þá staðreynd að einu árásirnar sem lýðveldið Ísland hefur mátt sæta hafa verið framdar af hendi Breta, bandamanna okkar í  NATO. 

Fyrst beittu Bretar Ísland ofbeldi og yfirgangi í þorskastríðunum og núna aftur þegar þeir beittu hryðjuverkalögunum á svívirðilegan hátt gegn okkur í kjölfar bankahrunsins.  Þar sýndu Bretar að þeir setja það ekkert fyrir sig að sparka í liggjandi menn, henti það stundarhagsmunum þeirra.

Ef  nýtt eldflaugakerfi verndar okkur fyrir „óvinum“ okkar, hvað  verndar okkur fyrir „vinum okkar“ í NATO?


mbl.is Varnarskjöldur fyrir öll NATO-ríkin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mengaður kjúklingur?

Margir munu eflaust halda því fram að kjúklingurinn sé mengaður og óhæfur kristnum mönnum til neyslu af því einhver múslimi muldraði bæn á meðan kjúklingurinn var aflífaður.

Er þá nokkuð annað að gera en fara með faðirvorið yfir kjúklingnum meðan hann er matreiddur til að snúa honum til réttrar trúar.

Jafnvel tvisvar,  svona til öryggis.

  
mbl.is Danskur kjúklingur úr halal-slátrun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýjar fornminjar

Ætli Silvio Berlusconi hafi sjálfur setið fyrir við endurhönnun tippisins? 

knossosSvona „endusmíði“ fornminja er umdeilanleg. En ég hygg að fáum þætti nokkuð varið í að koma til rústa Knossos á Krít,  ef fornleifafræðingurinn Arthur Evans hefði ekki endurskapað hluta rústanna við uppgröftinn.

Margir hafa ekki hugmynd um, þegar þeir skoða rústir hallarinnar, að megnið af því sem álitlegast þykir er ekki nema aldar gamalt eða svo.


mbl.is Nýtt typpi í boði Berlusconi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stundum er betra að láta satt kyrrt liggja

Eins og við var að búast hófst upp hefðbundinn grátkór þegar Brasilíueiturlyfjasmyglarinn var handtekinn, eins alltaf gerist þegar íslendingar eru nappaðir við glæpastarfsemi erlendis og þurfa að gera sér að góðu gistiaðstöðu sem ekki mun samboðin íslenskum glæpamönnum.

Með útkomu þessarar bókar hefst önnur umferð á þeirri tilraun að taka þennan eitursmyglara  í tölu dýrlinga. Ef marka má viðtalið við höfund bókarinnar  í Kastljósinu í gær er rauði þráður bókarinnar sú þjáning og raun sem fangavistin var manninum og þá ekki hvað síst fjölskyldu hans.

Það er ekki ætlun mín  að gera lítið úr þjáningum og angist ættingja mannsins og ég hef fulla samúð með þeim, en það er eins og það vilji gleymast að fórnarlömb eitursmyglarans eiga líka fjölskyldur, ættingja og vini.

Eitursmyglarinn viðurkennir, að sögn, í bókinni að þetta hafi ekki verið frumraun hans að bera eitur í íslensk ungmenni.  Það kom ekki fram í Kastljósinu, hvort  þjáningum og fjörbroti fórnarlamba smyglarans væri líka gerð skil í bókinni,  svo ekki sé talað um angist og örvinglan ættingja þeirra.

  


mbl.is Viðurkennir kókaínsmygl hingað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Andans upplyfting

Mikið er það inndælt að óvissu og angist vegna kvenna mála breska prinsins sé loks að ljúka. Það er varla að maður geti beðið eftir þeirri upplyftingu og andlegri næringu sem fylgir konunglegu brúkaupi.

Mikið hlýtur Beta frænka að vera „happy“ og kannski hefur tekið sig upp gamalt bros.


mbl.is Biðin á enda hjá Kate
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki er allt á niðurleið

Þetta hljóta að vera góð tíðindi fyrir þá lífeyrissjóði sem voru að fjárfesta í Icelandair. Vonandi er þetta hreinn hagnaður af rekstri en ekki einhver bókhaldsleg moðsuða.

 
mbl.is Hagnaður Icelandair 3,2 milljarðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband