Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2011

Vel sloppið

 

Leiða má að því líkum að eitt dauðsfall sé býsna vel sloppið í árekstri tveggja járnbrautalesta á Indlandi, ef þessar myndir sýna algenga hleðslu á farþegalestum þarlendum.

IndiaTrain3india-trainindia-train2India-train_589356a_UkgrzY5OO9JZindia-train-crowde_1584770i   
mbl.is Einn látinn eftir lestarslys á Indlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ber Páfinn enga ábyrgð á dauða fólks í Afríku?

Páfinn í Róm setur upp heilaga andlitið og hvetur þjóðir heims til að sýna ábyrgð gagnvart Austur-Afríku. Það er ekkert nema gott eitt um það að segja þegar hvatt er til góðra verka til bjargar heilsu og lífi manna.

jon-valurEn það er ekki bara hungur dauðinn sem vofir yfir Afríku. Þar er eyðni víða landlægur sjúkdómur og fast að því faraldur sumstaðar. Á því sviði hefur heilagur páfinn líka látið til sín taka svo um munar, ekki til að bjarga fólki frá veikindum og dauða heldur hið gagnstæða.

Páfinn og hans slekti allt hefur barist með kjafti og klóm gegn notkun smokksins, sem er besta þekkta vörnin gegn þessari vá. Í því sambandi skiptir líf og heilsa fólks heilagann páfann engu.

Það er lítill samhljómur í því  að vilja bjarga fólki frá hungurdauða en berjast svo gegn þeim sem vilja forða sama fólkinu frá því að smitast og deyja drottni sínum úr eyðni.

Axla kjólklæddu hræsnishaugarnir í Vatíkaninu  ábyrgð á þeim gjörðum? Nei, þá vísa þeir í margræðan texta í gamalli skruddu frá tíma risaeðlanna.

Flottir karlar!

Kíkið á könnunina hér til vinstri!

 
mbl.is Páfi hvetur til ábyrgðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

„Þjófar stálu bensíni“

Skarplega athugað!

 


mbl.is Þjófar stálu bensíni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óvenjuleg vinnubrögð verjanda

Ég minnist þess ekki að hafa nokkurn tíma séð eða heyrt lögfræðing bera skjólstæðing sinn jafn ákaft á torg, eins og verjandi Breiviks gerir í þessu máli.

Það er greinilegt að verjandinn ætlar að byggja vörnina á meintri geðveiki Breiviks og hann notar hvert tækifæri til að baktala skjólstæðings sinn og styrkja þannig þá ímynd að Breivik sé illa truflaður.

Það er undarlegt að enginn skuli hafa veitt öllum þessum persónuleika brestum Breiviks athygli allan þann tíma sem hann vann með kaldrifjuðum hætti að undirbúningi morðanna og fyrir þann tíma.

  

Vinsamlegast takið þátt í könnunni hér til vinstri!


mbl.is Lifði í ímynduðum heimi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Niðurstaða úr skoðanakönnun og ný könnun

Spurt var: Hvernig líst þér á frumvarpið að nýrri stjórnarskrá? 

 2.2%    Sæmilega      

23.9%   Vel                

10.9%   Besta bullið síðan Móses samdi boðorðin

26.1%   Frekar klént

28.3%   Illa

 

 8.7%   Hvaða stjórnarskrá

37% hallast á sveif með frumvarpinu en 54.4% gegn því, en 8.7% eru algerlega úti á túni.

 
Samkvæmt þessu líst fólki ekkert meira en svo á stjórnarskrárfrumvarpið. Því liggur beinast við að spyrja beint í nýrri könnun:

Ætlar þú að samþykkja eða hafna stjórnarskrárfrumvarpinu í þjóðaratkvæðagreiðslu? 

Samþykkja það

Hafna því

Ég læt útvarp Sögu ákveða það fyrir mig  

 

Vinsamlegast takið þátt

 

 


...og koma svo No Borders

istockphoto_454242-world-passport-stampsÞað verður spennandi að sjá hvaða rök og fullyrðingar leynisamtökin No Borders nota þegar þau krefjast þess að þessi maður fái hér hæli án rannsóknar á hans fortíð.

Manns sem byrjaði landvist sína með lygi og lögbroti þegar hann reyndi að villa á sér heimildir með framvísun á fölsuðu vegabréfi.

.

.

  Lítið á könnunina hérna til vinstri
mbl.is Stöðvaður með fölsuð skilríki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hugsanlega er svindlað á okkur, en við megum ekki vita hverjir gera það

Í rassíu sem Neytendastofa gerði til að kanna vigtar reyndust 6 af 14 fiskbúðum og 10 af 19 matvælaframleiðendum vera með vogir sem ekki voru eins og til er ætlast. Hjá þessum tveim greinum voru 42,9%  og 52,6% með ógildar vogir. Aðrar aðilar sem voru skoðaðir stóðu sig mun betur.

vogHagsmuni hverra er Neytendastofa að gæta þegar svona rassíur eru gerðar? Hagsmuni neytenda, dettur manni helst í hug.

En, ef svo er, af hverju liggur Neytendastofa á því eins og ríkisleyndarmáli hverjir þessir bjálfar eru? Ég hefði haldið að hagur neytenda væri ekki hvað síst fólgin í því að geta varað sig á þeim sem hafa hugsanlega rangt við í viðskiptum.  

Ekki er nokkur vafi á því að svörtu sauðirnir myndu passa betur að hafa þessa hluti í lagi, væru neytendur upplýstir um hverjir þeir eru.

„Mældu rétt strákur“  er greinilega enn í fullu gildi.

Minni á könnunina hér til vinstri.


mbl.is Víða pottur brotinn í vigtun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ný stjórnarskrá

HugsunÉg hef sett inn skoðanakönnun hér til vinstri.

Spurt er: Hvernig líst þér á frumvarpið að nýrri stjórnarskrá?

Könnunin verður opin í sólarhring.

Vinsamlegast takið þátt.

 
mbl.is Stjórnarskrá verði breytt umtalsvert
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tökum höndum saman

Mér er bæði ljúft og skylt að vekja athygli á þessari síðu VG sem er netdagblað í Noregi.

Hér geta allir sýnt samstöðu og samhug með Norsku þjóðinni og aðstandendum fórnarlambanna á Útöya og jafnframt fyrirlitningu á slíkum voðaverkum.

Tökum í hönd næsta manns og réttum hina höndina út til næsta manns. Myndum eina allsherjar keðju friðar og samhugs, segjum nei við ofbeldi.

Aðeins þarf að klikka á   Klikk her for å styrke lenken og skrá sig inn, með nafni og landi. 

Tæplega 1,2 milljón manna, kvenna og barna hafa þegar myndað hlekki í keðjunni.  

 

Slóðin á síðuna er: http://www.vg.no/nyheter/innenriks/oslobomben/lenke.php

Látið þetta berast sem víðast!

   


mbl.is Breivik yfirheyrður á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þarf bakkelsið í ferminga- og afmælisveislum að koma úr vottuðu eldhúsi?

bakkelsiFátt er betra en heimabakað bakkelsi með kaffitári eða mjólk og enginn hefur fram að þessu leitt hugann að öðru en það væri bæði hollt og gott.

En reglugerðirnar láta ekki að sér hæða. Eins og komið hefur fram í fréttum er það skjalfest orðið að jafnvel besta heimabakaða bakkelsið verður með öllu óhæft til manneldis, sé gjald tekið fyrir. Allur fjáröflunar bakstur skal fara fram í vottuðu eldhúsi, ekkert minna.

bakkelsi2Það er í sjálfu sér ekki nema gott eitt um þannig reglugerð að segja, enda tilgangurinn vafalaust sá að Pétur og Pála væru ekki eftirlitslaust að framleiða brauð og kökur til sölu í verslunum, árið um kring.

bakkelsi3

En skörin er heldur betur farin að færast upp í bekkinn, þegar embættismenn horfa aðeins á kaldan textann í lögum og reglugerðum og útfæra steinrunna viskuna yfir allt  og alla.

Það hefur örugglega ekki verið markmiðið með þessum reglum að drepa niður starfsemi góðgerðafélaga sem afla fjár með smá kökubakstri einu sinni á ári.

bakkelsi4Þá vaknar sú spurning hvort fólk megi eiga von á eftirlitsmönnum heilbrigðiseftirlitsins í afmælis- og fermingarveislur til að kanna hvort brauðið og kökurnar séu vottaðar?

Í slíkum veislum fer fram „sala“ á veitingum, gjafir, hvort heldur eru í lausum aurum eða bundnu fé, eru sannarlega endurgjald fyrir veitingarnar.

En með því að afþakka gjafir, verður óhæfa heimagerða bakkelsið með það sama hin vandaðasta vara og hæf til manneldis.

Þetta rugl þarf heilbrigðisráðherrann að laga, enda ekki heilbrigt.


mbl.is Múffurnar lutu í lægra haldi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband