Og ég sem hef alltaf haldið því fram...
21.7.2010 | 11:08
...að Pizzur væru hreint kransæðakítti og hættulegar heilsu manna eins og hvert annað ruslfæði.
En þessi Pizza bjargaði klárlega lífi kaupandans, því er eðlilegt að draga þá ályktun að Pizzur séu heilsufæði hið besta.
![]() |
Pítsusendill bjargaði mannslífi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Rykið dustað af Nicolae Ceausescu
21.7.2010 | 08:45
Mér datt fyrst í hug þegar ég leit á fréttina að Rúmenar ætluðu að grafa skíthælinn upp, því þeir væru farnir að sakna hans.
En sennilega verður það seint.
![]() |
Ceausescu grafinn upp |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hvenær eru afskriftir dyggð og hvenær glæpur?
21.7.2010 | 07:48
Þetta er einkennileg frétt og er raunar ekki frétt því hún ber þess öll merki að vera alfarið hönnuð í reykfylltu bakherbergi upp í Hádegismóum, þar sem gremja og biturð svífa um sali.
Morgunblaðið lýsir Jón Bjarnason alfarið ábyrgan fyrir hugsanlegu útlánatapi Byggðastofnunar verði rækjuveiðar gefnar frjálsar.
Að mati Moggans bera lántakendurnir greinilega ekki ábyrgð á sínum lántökum og blaðið hvetur þá beinlínis til að hætta að greiða af þessum lánum, sem nema um 1,3 milljarði og eru með óbeinu veði í rækjukvótanum, og láta þau falla á skatt- greiðendur.
Er Mogginn með hótanir, hvað gengur blaðinu til, hverjir eiga annars blaðið? Getur verið að þetta tengist eitthvað sægreifa eignarhaldinu á blaðinu?
Ef upp er runnið nýtt siðferðis og réttlætismat á Mogganum væri þá ekki rétt að blaðið byrjaði þá herferð í eigin ranni og fjallaði um milljarðana sem afskrifaðir voru af skuldum Moggans og vellt var á almenning, þegar núverandi eigendur keyptu blaðið.
Hvar er sú umfjöllun, hvar eru áhyggjur blaðsins af skattgreiðendum og almenningi í því máli? Hvað voru milljarðarnir margir, muna þeir það á Mogganum?
Morgunblaðið gerir hugsanlegar afskriftir Byggðastofnunar á þessum lánum, að einhverju stór máli. Ef allt fer á versta veg og þessi lán falla á byggðastofnun þá hlýtur Byggðastofnun að leysa til sín skip og önnur framleiðslutæki viðkomandi fyrirtæja og selja þau til framsækinna aðila, sem áhuga hafa á að hasla sér völl í greininni en hafa ekki getað fram að þessu vegna einokunar LÍÚ mafíunnar.
Þó kostnaður ríkisins við innlausn rækjukvótans veðri milljarður eru það smáaurar einir í þeim hrunadansi afskrifta sem stíginn hefur verið af miklum krafti undanfarna mánuði þegar einstaklingar, sumir hverjir, hafa hiksta- og táralaust fengið milljarðatugi afskrifaða.
![]() |
Byggðastofnun í vandræðum á ný |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Réttindi og skyldur
20.7.2010 | 15:43
Fylgja úthlutuðum kvóta bara réttindi en engar skyldur? Telja útgerðarmenn að kvótinn, sem þjóðin færir þeim til afnota endurgjaldslaust, sé einungis ætlaður til að þjóna þröngum hagsmunum þeirra en ekki þörf þjóðarbúsins í heild?
Kvótakerfið var fyrst og fremst hugsað sem skiptingaraðferð á takmarkaðri afkastagetu fiskistofnanna, en ekki sem bókhaldsbrellur og sjónhverfingar.
Hafi handhafar rækjukvótans ekki áhuga á að veiða kvótann og skila þannig verðmæti hans í þjóðarbúið, hafa þeir ekkert með hann að gera og sjálfsagt að gefa öðrum tækifærið.
En vakni núna allt í einu vilji LÍÚ mafíunnar til að nýta rækjuna með veiðum þá er sá möguleiki þeim auðvitað opinn, veiðarnar eru jú frjálsar.
Ef málið snýst um veðsetningar, þá verða útvegsmenn, rétt eins og aðrir sem verða fyrir veðfalli, að leggja til ný veð.
Þeir ættu ekki frekar en aðrir að geta veðsett það sem þeir eiga ekki.
![]() |
Talsvert fé bundið í rækjunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Asnar og aðrir asnar
20.7.2010 | 14:51
Æði oft koma upp tilvik þar sem það er ekki á hreinu hver er aðal Asninn.
![]() |
Lögreglan rannsakar fallhlífarstökk asna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fréttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Hver er ásættanleg áhætta þegar HIV er annarsvegar?
20.7.2010 | 13:17
Ég næ þessu ekki alveg. Hér er fjallað um krem sem ætlað er konum og á að draga úr líkum á HIV smiti! Tilraunir þykja gefa jákvæða niðurstöðu, líkur á smiti hafa minkað um 39% í heildina, hvað sem það merkir.
Meðal þeirra kvenna sem notuðu kremið oftast minnkuðu líkurnar um 54%. Hvernig finna menn út svona tölur?
Það er auðvitað jákvætt ef framfarir verða í baráttunni við þennan vágest. En er einhver vörn sem ekki minkar líkur á smiti um 100% ásættanleg í tilfelli HIV?
Eru einhverjir tilbúnir að hafa samfarir við HIV smitaða manneskju og nota vörn sem í besta falli minkar líkur á smiti um 54%. Hvað ætli þurfi að hafa oft samfarir við þannig aðstæður til að smit sé tryggt?
![]() |
Ný vörn gegn HIV |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lítil saga af vatni. Mulningur #41
19.7.2010 | 16:58
Mulningur | Breytt s.d. kl. 17:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ljós í myrkrinu
19.7.2010 | 15:22
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hvenær eignaðist Clinton Kilimanjaro?
19.7.2010 | 13:17
Fréttir | Breytt s.d. kl. 13:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Hvar greiðir Björk sína skatta?
19.7.2010 | 11:43
Vita en vilja ekki.
19.7.2010 | 10:49
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 11:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Kálfar eða menn
19.7.2010 | 01:11
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (22)
Hverslags er þetta?
18.7.2010 | 17:28
Samgöngur | Breytt s.d. kl. 17:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mulningur #40
18.7.2010 | 13:09
Mulningur | Breytt s.d. kl. 13:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
„Allt fór afsíðis sem afsíðis gat farið.....“
17.7.2010 | 17:01
Fréttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Er engin hætta á ferðum í yfirvofandi árekstri?
17.7.2010 | 11:49
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Landsins ljótasta hús.
17.7.2010 | 10:33
Líkhótel lögreglunnar
17.7.2010 | 09:42
Fréttir | Breytt s.d. kl. 09:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Ég get staðfest þetta
16.7.2010 | 18:19
Fréttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Ekki að undra, að ekki sé áfrýjað.
16.7.2010 | 16:11
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)