Og koma svo.....

....ofurandstæðingar ESB og krossfarar "sannleikans".

Segið okkur frá ósvífni Össurar, þjóðníðings hætti, svikum, glæpum og landráðum hans,  að hann skuli dirfast að koma við í Brussel án þess að hafa ykkar umboð til þess.

Þetta verður að stöðva!

 
mbl.is Össur á leið til Brussel
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Velkominn til Íslands Hugo Chavez

Ég rétt eins og flestir Íslendingar er ekki par hrifinn af því að útlendingar eignist auðlindir landsins. Vg fékk, eftir langa meðgöngu, skyndilega þá hugljómun að kaup Magma á HS sé ólögleg.  Gott væri ef það reyndist rétt.

En lögfræðingurinn Atli Gíslason er ekki sannfærður um að samningurinn sé ólöglegur. Það segir meira en mörg orð þegar lögfræðingur Vg stendur ekki lengur stífur á þeirri skilgreiningu og telur að samningurinn geti meira að segja verið löglegur.  

Er Atli þá af baki dottinn, nei ekki aldeilis, hann er með lausnina á því litla vandamáli. Gefum bara skít í lögin og þjóðnýtum draslið, segir Atli.  „Hugo Chavez“  er mættur til leiks, einmitt það sem vantaði í þetta bull allt saman.

 

En það kæmi mér ekki á óvart þó jafnvel  hörðustu frjálshyggjupostular leggi trúarbrögðin til hliðar um stundarsakir og taki hugmynd Atla fagnandi og gerist jafnvel manna ákafastir að ryðja henni braut.

 
mbl.is Vill taka hlut Magma eignarnámi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Legið í lummunni.

shitAuðvitað fordæmir Bandaríkja- stjórn þennan leka.

Hver vill láta það vitnast að þeir séu ekki bara með skítinn upp á bak heldur standi í honum upp að nösum.

.


mbl.is Bandaríkin fordæma birtingu leyniskjala
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mönnum skrikar fótur í eigin afurð.

Þeir voru ófáir sem gersamlega ætluðu af hjörunum, þegar  ráðherrar leyfðu sér að velta vöngum yfir gengislánadómi Hæstaréttar og afleiðingum hans.

Einstaklingar og hagsmunasamtök  hrópuðu á torgum af hneykslan yfir þeirri ósvinnu og sögðu að án undantekninga ættu dómstólarnir að vera yfir gagnrýni hafnir.

Núna ná þessir sömu aðilar ekki upp í nefið á sér af vandlætingu og rífa sig niður í rassgat í gagnrýni sinni og fordæmingu á vaxtadómi Héraðsdóms og vanda dómaranum ekki kveðjurnar.

Það er greinilega mjög afstætt hvort og hvenær dómstólar eru hafnir yfir gagnrýni og hverjum leyfist slíkt.


mbl.is Furða sig á gengisdómi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ríkisstjórnin er sprungin...

rip...en það verður bara ekki tilkynnt formlega fyrr en náðst hefur í alla nánustu aðstandendur.

.

.

 
mbl.is Gæti ógnað ríkisstjórninni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Orðbragð er mælikvarði á málefnastöðuna.

Ég rakst áðan á eftirfarandi pistil Evrópusambandsandstæðings og þar sem hann leyfir ekki athugasemdir á sínu bloggi má ég til með að birta pistilinn hér. Vonandi fyrirgefur höfundurinn mér það, þó það sé gert að honum forspurðum.

Uppnefni Evrópusambandssinna

Það er iðulega talið til marks um slæma málefnastöðu þegar gripið er til þess ráðs að uppnefna þá sem eru andstæðrar skoðunar. Formaður Evrópusamtakanna undirstrikaði málefnafátækt sína á dögunum í aðsendri grein í Fréttablaðinu með því að uppnefna brezka þingmanninn Daniel Hannan "agúrkumanninn" vegna þess að hann gat ekki svarað honum málefnalega og síðan hafa fáeinir Evrópusambandssinnar fylgt í kjölfarið.

Látið hefur verið skína í það að um uppnefni sé að ræða sem hafi lengi loðað við Hannan og hann sé þekktur undir. Staðreyndin er þó sú að aðeins er um að ræða nokkurra daga gamalt örþrifaráð fáeinna íslenzkra Evrópusambandssinna vegna þess að þeir eru að tapa umræðunni um Evrópumálin enn eina ferðina þar sem málefnastaða þeirra er eins og áður engin.

Höfundi pistilsins er mjög misboðið yfir orðbragðinu, eðlilega. Ef eitt uppnefni er til marks um algera málefna fátækt Evrópusinna þá óar manni við þeirri málefnaörbyrgð sem hlýtur að ríkja hjá Evrópusambandsandstæðingum í ljósi uppnefna, fúkyrðaflaums og jafnvel morðhótana sem, streymir frá þeim í síbylju, sumum hverjum.

Sem betur fer, verð ég að segja, hefur pistilshöfundur greinilega ekki séð þann fúkyrðaflaum, því þá yrði honum fyrst illa brugðið ef eitt uppnefni setur hann á hliðina.

„Landráðamenn, Sossaskítur, þjóðnýðingar, skítseiði, glæpamenn, gungur og druslur, meindýr,  Tungan þagni og höndin visni á þeim“,  rasistar íslenskra hagsmuna“.

Þetta eru aðeins fátt eitt og það nýjasta, sumt er ekki prenthæft og svo gróft að jafnvel ritstjórn mbl.is hefur séð sig knúna til aðgerða, þó hún kalli ekki allt ömmu sína þegar andstæðingar ríkisstjórnarinnar tjá sig.

  

Mulningur #42

Bandaríkjamaður var á ferðalagi í Rússlandi og hitti Rússneskan verslunarmann. Þegar þeir höfðu spjallað saman um hríð sagði Bandaríkjamaðurinn: „Venjulegur Bandaríkjamaður er tíu sinnum snjallari en venjulegur Rússi. Ég skal veðja við þig um það....

Heill þér sjötugum Ómar og til hamingju Ísland að eiga svona mann.

Það er virkilega gleðilegt að þessi drenglyndi, ósérhlífni og ótrúlega afkastamikli baráttumaður skuli geta, með samstilltu átaki þjóðarinnar, horft áhyggjulaus fram á veginn. Friðrik Weisshappel á heiður skilið fyrir að hafa haft frumkvæði að því að...

Er ný stjórn í burðarliðnum?

Það fer tvennum sögum af því hvort ríkisstjórnin geti rift þessum samning, þar sem hún er ekki samningsaðili. Ef það er ætlun VG að slátra ríkisstjórnarsamstarfinu er þetta mál eins og klæðskerasniðið til þess. Það er létt verk að fullyrða að...

Hefði átt að múlbinda Össur?

Sterkasti leikur Samfylkingarinnar í aðildarumsóknarferlinu að ESB hefði sennilega verið sá að múlbinda utanríkisráðherrann. Það hefði í það minnsta getað orðið til þess að andstæðingum aðildar hefði fjölgað mun hægar er raun ber vitni. Svo ekki sé talað...

Gerir algóður Guð þetta?

Þeir hafa greinilega ekki mikið álit á guði sínum þessir menn. Hefði ekki algóður guð frekar látið gjósa þar sem syndirnar voru drýgðar í stað þess að hella reiði sinni yfir varnarlausa og vanmáttuga Íslendinga? Var Guð kannski að refsa Kínverjum þegar...

Sigur beggja málsaðila.

Reiknaði einhver í alvöru með því að útkoman yrði önnur? Þessi niðurstaða er í raun sigur beggja málsaðila. Héraðsdómur féllst á fjórðu varakröfu stefnanda, lægstu gildandi vexti svo vægara gat það varla orðið. Hraða þarf áfrýjunnar ferlinu eins og...

Bonnie og Clyde

Bonnie kerlingin er þessa stundina að angra menn í Florida og Mexíkóflóa. Hér er síða þar sem hægt er að fylgjast með fellibyljum á N-Atlantshafi, staðsetningu þeirra, stefnu, styrk og spám um þróun þeirra og yfirferð. Efst til hægri er hægt að setja inn...

Stríðsleikir

Það er skiljanlegt að Bretar þurfi að skera niður í hernaðarvafstrinu.

Geti það ekki gerst, gerist það í The Sun.

Er ekki sagt að standi það í The Sun sé það ekki lygi heldur haugalygi. Enda greinilegt, ef marka má myndina, og að þetta barn hafi fæðst á dögunum, þá fæddist það ekki „aðeins“ hvítt heldur líka nokkuð við aldur. Það er ekki merki um vandaða...

Klæðum klámölið í.

Þetta er svo vitlaust að það er ekki einu sinni fyndið. Útlit umbúða á eplavíni þykir að mati ÁTVR of nautnalegt og samrýmast þannig ekki áfengisstefnu stjórnvalda sem virðist vera sú að umbúðirnar megi ekki vera meira spennandi en innihaldið. Til hvers...

Ráðherrann sem fer sínar eigin leiðir.

Hún er um margt merkilegur ráðherra hún Álfheiður Ingadóttir og fer sínar eigin leiðir eins og kettirnir. Núna sér hún fram á að geta sett lok á fækkun lækna, en setur lokið, öllum á óvart á botninn. Þetta er mjög í starfsanda Álfheiðar, sem hefur...

Napur sannleikurinn

Ég sá þetta myndband á bloggi Mörtu B. Helgadóttur og má til með að birta það aftur hér. Magnús Guðmundsson: Drápa.

Og ég sem hélt að....

....Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri SA væri gersneyddur öllum húmor. Þetta er ansi gráglettinn húmor hjá Villa, því þótt merkja megi að þjóðarskútan sé hætt að sökkva er enn langt í land að hún verði þurrausin. .

Kónguló, kónguló vísaðu mér....

Það berast af því fregnir að fólk sé að fá meindýraeyða til að eyða kóngulóm úr görðum sínum og af húsum. Þetta finnst mér mjög misráðið. Kóngulær eru ekki skaðlegar heldur þvert á móti mjög gagnlegar. Þær halda t.a.m. flugum í skefjum og hvað mig varðar...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband