Mikið hefði verið indælt...

...fyrir unnendur dauðarefsinga ef menn hefðu nú látið hendur standa fram úr ermum  og dæmt manninn  í stólinn og grillað hann strax eftir dóminn.

 
mbl.is Saklaus sat inni í 27 ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skatt eða skurð?

88-taxesSkattahækkanir eru óvin- sælar meðal almenn ings því þær leggjast í flestum tilvikum á línuna og með beinum hætti , þó sumir sleppi auðvitað alltaf. Því eru skatta- hækkanir eðlilega óvin- sælasta tekjuöflunarleið ríkisins.

Öðru máli gegnir um blessaðan niðurskurðinn, hann er óbeinn og þarf ekki endilega að koma beint við pyngjuna hjá öllum.  Alltaf er von að sú þjónusta sem viðkomandi er  bundin við eða mest háður sleppi við niðurskurðar- hnífinn og uppsagnir. Því er skiljanlegt að almenningur velji hnífinn frekar en skatta.

En það munu þeir allir eiga sameiginlegt , sem tilheyra þeim hópum, sem illa verða fyrir barðinu á niðurskurði og uppsögnum að hafa frekar kosið skatta- hækkanir en niðurskurð, svona eftir á að hyggja.

En hvað sem öllu líður er hvorutveggja, svona í bland, brýn nauðsyn í því ástandi sem ríkir, hvort sem mönnum líkar það betur eða verr.

  


mbl.is Vilja frekar skera niður en hækka skatta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Magnað...

 ...og stórskemmtilegt uppátæki. Hvernig ætli sé annars að upplifa sig, eins og dýrin, hinu megin við rimlana?


mbl.is Mannskepnur til sýnis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blessað eldvatnið!

bjórÞað er mikil blessun að ekki verði neinn skortur á eld- og söngvatni.

Það væri nú auma ástandið ef það gerðist á þessum tíma árs.

.

.

 
mbl.is Nóg af áfengi í Eyjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Æ sér gjöf til gjalda.

Ég næ ekki þessu upphlaupi út af kostun Birtíngs, þetta eru ekki nýjar fréttir. Ég get ekki séð að þessi kostun sé í eðli sínu alvarlegri en kostun annarra fyrirtækja á hinu og þessu þvers og kruss um fjölmiðlana og hefur viðgengist um langa hríð og ekki farið leynt. Það er svo önnur saga hvort þetta geti talist eðlilegt viðskiptaform og hvort fyrirtækin telja sig vera að kaupa velvild með þessum viðskiptum.

Hver kannast ekki við að í upphafi og í lokin á sjónvarpsþáttum  og öðru efni komi tilkynning að viðkomandi þáttur hafi verið kostaður af þessum eða  hinum. Hver er munurinn á því að kosta útsendingu á einhverjum þætti eða borga annan "kostnað" fyrir fjölmiðilinn?

Voru menn í þessu tilfelli að kaupa sér meiri velvild Útvarps Sögu en ef greiðslan hefði verið í öðru formi.  En það verður að hrósa Arnþrúði fyrir að koma fram og játa að hún hafi þegið greiðslu fyrir útsendingu á þessum „áróðursþætti“  Baugsveldisins,  á stöðinni  sem gefur sig út fyrir að vera frjáls og engum háð.


mbl.is Aldrei verið neitt launungarmál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í sandkassanum

Strax í fyrstu vikunni eftir að Landeyjarhöfn var tekin í notkun minnir Akkilesarhæll hafnarinnar og staðsetning hennar á sig. Takmarkað dýpi hindrar siglingu Herjólfs um höfnina. Þarf virkilega strax að ráðast í dýpkun og hvernig verður þetta á komandi vikum og mánuðum?

st_cruise-420x0Þar sem mikil tilfærsla er á sandi við strendur þá safnast hann upp við allar fyrirstöður, hvort sem þær eru náttúrulegar eða manngerðar. Þegar sjórinn er mettaður af sandi og sandurinn berst með straumum og brimi inn í kyrrð hafnarinnar þá sest hann þar og safnast fyrir.

Ég leyfi mér að efast um fullyrðingu þess efnis að hönnun hafnarinnar tryggi að hún hreinsi sig sjálf af sandi, til þess þyrfti gegnumstreymi í höfnina. Ef sogadráttur væri það öflugur í höfninni að hann rifi upp sandinn og flytti út úr höfninni þá yrði hún um leið lítt nothæf sem höfn.

Ef dýpið er ekki meira en það að Herjólfur kemst ekki um höfnina á fjöru þegar best er og blíðast, hvernig verður nýting hafnarinnar í válindum veðrum þegar brim er við ströndina, jafnvel dögum saman?  

En vonandi blessast þetta ævintýri.


mbl.is Herjólfur tafðist um þrjá tíma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mulningur #45

Tveir Hafnfirðingar fóru til Afríku. Konurnar þeirra höfðu beðið þá um að kaupa krókódílastígvél í ferðinni. Þeir gengu búð úr búð er hvergi voru til krókódílastígvél. Gaflararnir brugðu þá á það ráð að veiða krókódílana sjálfir. Eftir viku spurðist til...

Boðið í „partý“.

Fréttin um gjaldtökuna fyrir bílastæði við Landeyjahöfn hljómaði eins og atvinnuauglýsing fyrir þá sem aðallega stunda þá starfsemi að „þjónusta“ bíla að næturlagi. Kjöraðstæður voru sagðar verða á svæðinu, gnótt bíla og allt eftirlit í...

Ha, er Bubbi dáinn?

Í þessari skemmtilegu frétt er eftirfarandi setning: „ Hann (Bubbi) er einn frægasti Íslendingur allra tíma og var orðinn goðsögn í lifanda lífi strax þegar hann var 24 ára“. Samkvæmt þessu er Bubbi Morteins látinn, því svona er ekki tekið...

F y r i r g e f ð u Björgólfur , f y r i r g e f ð u !

Ég sé ekki betur en þjóðin þurfi að biðja Björgólfana afsökunar á að hafa nánast gefið þeim feðgum Landsbankann. Biðja þá afsökunar á að hafa lánað þeim fyrir kaupunum að hluta úr Búnaðarbankanum og ljúga því að allt féð kæmi erlendis frá. Biðja þá...

Svik eða landráð?

Var ekki einungis "hönd Guðs" þarna að verki?

Hreint vatn, hvers virði er það okkur?

Hér á Íslandi, hvar hefur alltaf verið ofgnótt vatns, er skilningur á raunverulegu virði vatnsins harla takmarkaður enn sem komið er. Vatnið er okkur sem sjálfsagður hlutur, við höfum ekki átt öðru að venjast. Það er okkur óskiljanlegt að sumstaðar er...

Eru engir hundar á himnum?

Hvaða hávaði er þetta, er hundurinn ekki, rétt eins og eigandinn, „sköpunarverk“ Guðs? Hvernig er það eru engin dýr í himnaríki og ef ekki hvert fara þau eftir andlátið? Ef það eru engir hundar í himnaríki, þá setur sá staður mikið ofan....

Mulningur #44

Gömul kona gekk á gangstéttinni í miklu roki. Hún hélt um hattinn sinn með báðum höndum. Afar snörp vindkviða blés upp um hana kjólnum svo allt varð sýnilegt. Maður nokkur sem kom á móti konunni gat ekki stillt sig; „Þú ættir að skammast þín, frú....

Tapað, fundið

Ég geri mér ekki fullkomlega grein fyrir ástæðunni, en niður bakið á mér hríslast léttur hrollur í hvert sinn sem Þórunn Sveinbjarnardóttir kemur inn á sviðið með pilsaþyt í þeim tilgangi að minna á sig. Þórunn segir að ríkisstjórnin hafi fundið Magma...

„Litli símamaðurinn“ er aðal óvinurinn

Nú skal tekið á honum stóra sínum í Pentagon og tekið til hendinni. Ekki til að bæta vinnubrögðin og reyna að fækka mistökum og „glæpum“ hersins. Nei allt kapp er lagt á að finna þann sem lak upplýsingunum í fjölmiðla. Haukarnir í Pentagon...

Mulningur #43 Það eru fleiri en Pólverjar sem fara léttir til fótanna upp á jökul.

Skagstrendingur hf. bauð af miklum höfðingsskap öllu sínu starfsfólki í 11 daga ferð til Þýskalands og Austurríkis '86 minnir mig. Ekið var í tveim rútum frá Lux suður til Freiburg í Þýskalandi, dvalið þar í tvær nætur. Þaðan var ekið suður til...

Engu er eirt

Það er allt skert og skorið þessa dagana, engu er eirt. Nú eru Íslenskir karlar ekki lengur allra karla langlífastir. Nú hefur þessi árans vinstristjórn, í sparnaðarskini auðvitað, skorið niður lífslíkur Íslenskra karla, það hefur sko enginn annar gert...

Er nægjanlegt að flokkarnir verði sáttir?

Þarf ekki Björn Valur, að finna lausn sem þjóðin getur sætt sig við? Það er engan vegin nægjanlegt að malla upp einhverja lausn sem flokkarnir geta sæst á ef þjóðin situr eftir í sárum. Það óskiljanlegt að pólitíkusar skuli ekki enn, eftir allt það sem á...

Hvar eru mörkin á milli stríðs og stríðsglæps?

Varla er nokkur svo einfaldur að halda að stríð verði rekin eftir bókinni og alþjóðasamningum án þess að útaf bregði. Bandaríkjamenn eru ekki heilagri í hegðun sinni á vígvellinum en aðrir stríðsunnendur. Stríðsglæpir verða stundaðir svo lengi sem menn...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband