Málfarsást mbl.is

Nunnuástir... hvað er nú það? Jú eins og orðið segir mætti ætla að hér væri á ferðinni ástir tveggja nunna á hvor annarri eða fleiri nunnum eftir atvikum, jafnvel hópást. En samkvæmt fréttinni er það öðru nær.

Þetta er bara eitt dæmið af mýmörgum sem sýna mjög skertan móðurmálsskilning blaðamanna mbl.is, sem er skrítið því Morgunblaðið hefur í pappírsútgáfu sinni að mínu viti sýnt metnað fyrir góðu og vönduðu málfari.

 

 


mbl.is Nunnuástir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábært Þórunn!

Hún áttar sig ekki á því blessuð konan að með þessari yfirlýsingu hefur hún gert sig vanhæfa að fjalla um málið komi það á hennar borð.

Frábært Þórunn, meira af þessu.

 
mbl.is Segir Bjallavirkjun ekki koma til greina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Var Jesú náttúrulaus geldingur?

Jesú var karlmaður, ekki rétt? Ekki herma sagnir að hann hafi verið geldingur. Honum hlýtur því að hafa risið hold annað slagið hið minnsta. Ef ekki til kvenna þá af öðrum hvötum. Ekkert dónalegt við það aðeins hrein máttúra til viðhalds mannkyninu að boði Guðs.

Hvað Múhameð áhrærir þá þarf ekki svona umræðu um hann. Allir vita að hann var graðhundur sem reið öllu sem hreyfðist í kringum hann. Nógu margar átti hann víst konurnar og börnin.

 


mbl.is Málsókn út af dónalegum Kristi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hengjum boðbera slæmra frétta.

Það hefur löngum verið þekkt aðferð að hengja boðbera slæmra frétta. Átti ekkert að fréttast af molunum sem Geir ætlaði að ýta af borði alsnægtanna til fórnarlamba Breiðavíkurógeðsins fyrr en þær væru orðin hlutur?

Eru Geir og hans lið virkilega orðið svo siðblint að það sjái ekkert athugavert við þetta.

Ígildi 13 lágmarksbóta þarf til að jafna kostnað við ferðalög varaformanns Sjálfstæðisflokksins og maka hennar til Kína í tengslum við Ólympíuleikana.

Þar hefur örugglega ekkert verið skorið við nögl í aðbúnaði og hollustu. Enda mikið í húfi, velferð ráðherrans og hans og því er ekki horft í aurinn.

En í þessu máli, þar sem virðing þjóðarinnar er í veði gagnvart þegnum sínum, þá er allt annað uppi á teningnum, þá er horft í aurinn. Þetta eru jú allt ógæfumenn.

 


mbl.is Birt án samþykkis ráðuneytis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

100 millur í her eða hjálp?

Það er vissulega umhugsunaratriði þegar stjórnvöldum finnst það standa þeim nær að eyða 100 milljónum í nokkurra daga tindátaleik í stað þess að nota sömu upphæð til að leiðrétta kjör ljósmæðra, sem sannarlega eru ekki rétt staðsettar í launastiganum.

Með þráhyggju fjármálaráðherra og félaga hans, sem segja ekki svigrúm til launaleiðréttinga,  er stöðu ljósmæðra og því mikilvæga hlutverki sem þær gegna í þjóðfélaginu, til öryggis fyrir nýbura og mæður þeirra, stefnt í voða.  

En sömu menn dásama göfug markmið tindátaleikja. Hlutverk þeirra sé m.a. að vernda mæður, börn og þá ekki hvað síst ljósmæður sem og aðra landsmenn gegn allskonar vá t.d. hryðjuverkum, það ættu allir að geta séð.

Það breytir engu hversu miklu fé verður varið í varnarmál, það verður alltaf gagnslaus og glórulaus sóun.  Ef eitthvert herveldi ásældist Ísland og gerði árás yrði fátt um raunverulegar varnir.

Meira segja Danski herinn tæki landið auðveldlega, þótt í þeim her megi aðeins gefa eina skipun, komi til átaka, sem er „VIÐ GEFUMST UPP“!  

Öflugasti her heims, öflugasti floti heims og öflugasti flugher heims megnuðu ekki til samans að koma við vörnum gegn árás á Bandaríkin 11. September 2001.

Svo ímynda hernaðarsinnar á Íslandi sér að svona tindátaleikir og tímabundnar viðkomur örfárra manna og flugvéla séu einhverjar varnir fyrir Ísland! Þvílík sjálfsblekking, þvílíkt bull. Óvinurinn sem tindátaleikurinn snýst um er ímyndaður.

En óvinurinn er samt til.  Óvinurinn er innlendur. Óvinurinn er hugmyndafræði þessara manna.

Í stjórnarsáttmála núverandi „ríkisstjórnar“  segir m.a:  

Endurmeta ber sérstaklega kjör kvenna hjá hinu opinbera, einkum þeirra stétta þar sem konur eru í miklum meirihluta“.

Ég geri ekki ráð fyrir að Sjálfstæðismenn hafi knúið þetta inn í sáttmálann. Þarna sé ég fingraför Jóhönnu Sigurðardóttur.

Er ríkisstjórnin að efna þetta með framgöngu sinni gegn ljósmæðrum, verðandi mæðrum og öðrum konum þessa lands?  

Fjármála- og heilbrigðisráðherra segjast ekkert geta gert, málið sé í höndum samninganefndar ríkisins!   HALLÓ... hvaðan fær samninganefndin umboð sitt og fyrirmæli?

Er Samfylkingin sammála þessari hugmyndafræði? Er Samfylkingin sammála þessum vinnubrögðum? Er Samfylkingin búin að gleyma  hugsjónum, háleitum markmiðum og manngildinu? Er Samfylkingin orðin viljalaus hóra Íhaldsins. Er strúturinn með höfuðið í sandinum orðinn herra hennar?

Á meðan ekki heyrist múkk frá Samfylkingunni um hið gagnstæða hljóta kjósendur að álykta að svo sé.

Hvar er Jóhanna Sigurðardóttir? Þessi baráttukona sem hingað til hefur ráðist af krafti gegn öllum sem sett hafa sig upp á móti réttlátum markmiðum hennar. Hvar ertu Jóhanna? Hvar ertu?

Þar sem fjármálaráðherra er dýralæknir ætti hann að nýta þá þekkingu og gefa sjálfum sér og samráðherrum sínum súrdoðasprautu, það gæti hjálpað. Hver veit nema hún komi að gagni gegn hroka, drambi og sjálfumgleði ráðherrans og magnleysi Samfylkingarráðherrana.


mbl.is Þungaðar konur mótmæla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýjar fréttir?

Það eru áratugir síðan ég heyrði fyrst um þessa kenningu. En það er víst alltaf hægt að finna upp hjólið, að nýju.

Er þetta ekki angi af Ötipusarduld?

 


mbl.is Konur velja menn sem líkjast pabba þeirra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til skammar.

Ef niðurstaðan verður í þessa veru hefði málið betur verið látið kyrrt liggja. Skapaðar hafa verið væntingar um sanngirni og réttlæti. Það hefur nú verið slegið kalt. Undin var opnuð til þess eins að strá í hana salti.

Það vantaði skrúfganginn.

Ef hann hefði haft vit á því að snitta gengjur á vininn þá hefði hann getað skrúfað róna af. Ekkert vanda mál. Þá hefði aðeins þurft að snitta dömuna líka og þau hefðu getað skrúfað sig saman.

Þetta hlýtur að svínvirka

Þræl gott framtak, góð hugmynd og vel útfærð. Hlýtur að svínvirka.

Vel heppnað val?

Sennilega er val John McCain á varaforseta vel heppnað. Sara Palin er kona sem kemur vel fyrir og geislar af kynþokka sem hefur mikið að segja hvort sem mönnum líkar eða ekki. Enda sást vel á fréttamyndbandi frá ræðu Palin hvar McCain hafði augun....

Kappróðrabátarnir Gustur og Gola.

Til meiriháttar dýrgripa í eigu Skagstrendinga verður að telja kappróðrabáta staðarins þá Gust og Golu. Þeir voru smíðaðir fyrir 60 árum af Nóa, þeim þekkta bátasmið á Akureyri. Þetta eru óvenju fallegir, vel lagaðir og formaðir bátar, völundarsmíð,...

Að vera eða ekki vera?

Það er erfitt að gera mönnum til hæfis. Ef fossar eru teknir til samfélagslegra nota og fjarlægðir þá verður allt vitlaust og allir hrópa fossinn á. En þegar foss er settur á þá hrópa allir fossinn af.

Skrípaklæðnaður.

Heimkoma, og móttökuathöfn Silfurstrákana á Arnarhóli var sameiginleg gleðistund allrar þjóðarinnar. Þó þótti mér upphafsatriði þeirrar samkomu varpa nokkrum skugga á þá gleði. Páll Óskar var með opnunaratriði samkomunnar og söng ein tvö lög. Ekki er...

Mikilmennskupirringur?

Ekki hefði þýtt fyrir mig að fara á tónleika með honum þessum, eins og ég hósta þessa dagana. Við eitthvert ergelsi hlýtur maðurinn að eiga við þessa dagana nema hann þjáist af ofurnæmni og finni of mikið til sín, sem er til muna verra, fyrir...

Himnesk fegurð.

Prestur á Ítalíu er að skipuleggja fegurðarsamkeppni nunna. Ekkert við það að athuga í sjálfu sér, getur vart skipt máli hvaða starfstétt þær konur tilheyra sem leggja sig niður við slíka fásinnu. En eins og presturinn segir þá er fegurðin gjöf frá Guði....

Hvað er langt á milli Ítalíu og Mílanó?

Frétt á Vísi.is greinir frá endurkomu Paul Ramses til landsins. Það var ekki koma hans sem vakti ekki athygli mína, heldur landafræðikunnátta blaðamannsins. Í fréttinni segir: „ Paul Ramses kom til Íslands í nótt á tilsettum tíma eftir að hafa...

Varaforsetavalið kostar Obama fylgi.

Þetta eru slæm tíðindi í sjálfu sér. Ef Obama tapar fáum við áfram öfgahægri ríkisstjórn næstu 4 árin hið minnsta, það er ógnvekjandi hugsun. Ríkisstjórn sem, eins og Bushstjórnin, telur að henni hafi verið falið ákveðið hlutverk af Guði. Það hlutverk að...

Stóra hundahvarfsmálið!

Er nýr Lúkas í uppsiglingu?

Ísland er enn „stórasta“ land í heimi.

Til hamingju strákar með Ólympíusilfrið í handbolta, frábær árangur. Til hamingju Ísland.

Gullið verður bónus.

Hvernig sem leikurinn á morgun fer, kemur íslenska handboltaliðið, „strákarnir okkar“ heim sem sigurvegarar, þjóðhetjur, ekkert minna. Í höfn eru silfurverðlaun í handbolta á Ólympíuleikum, sem er ekkert smáræði í hópíþrótt fyrir litla þjóð...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.