Landsdómsglæpur að gagnrýna Dabba þumal

Dabbi guðfaðirFyrir að segja sannleikann um blekkingar og lygar formanns bankastjórnar Seðlabankans um stöðu bankanna rétt fyrir fall þeirra, sem vísað er til í þessari frétt,  hraunar bloggdeild Sjálfstæðis- flokksins yfir Jóhönnu Sigurðardóttur og sparar ekki stóryrðin.

Þetta gera umræddir bloggarar þrátt fyrir að Jóhanna hafi gefið Geir H. Haarde einhverja jákvæðustu umsögnina í þessum réttarhöldum og svarið af honum sakir.  

Því engum, nákvæmlega engum, verður liðið að kasta rýrð á Guð þeirra Sjálfstæðismanna, Davíð Oddson óskeikulan og almáttugan. Þurfi að fórna Geir, til varnar goðinu í efstu hæðum, verður litið á það sem eðlilegan fórnarkostnað.

Það verður rannsóknarefni fræðinga framtíðar af hverju Sjálfstæðismenn njóta þess svo óskaplega að láta þennan ritstjóra þumal taka sig í görnina aftur og aftur og það án allra sleipiefna.


mbl.is
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mulningur #71 - Spakmæli dagsins

 Í bloggfærslu einni í dag veltir höfundur fyrir sér hvort verið geti að Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sé komin með Alzheimer.

Athugasemd við þessa færslu er tvímælalaust speki dagsins og tær snilld!

 

„Er ekki komin tími til að hún fari að sína okkur læknisvottor að hún gangi heil til sjávar í hausnum,“

 

Þennan snilling á strax að setja á listamannalaun!

 

Græt Krókódílatárum

Þessi frétt kallar fram flóð krókódílatára. Það er léttir að þessi boðflenna sjónvarpsdagskrár RUV skuli fara annað.
mbl.is Tilboði RÚV í sýningarrétt hafnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fylgjum fordæmi þjóðverja

Þessi aðgerð þjóðverja er allrar athygli verð. Er þetta ekki eitthvað sem íslensk stjórnvöld þurfa í fullri alvöru að íhuga.

Það er þungur baggi fyrir lítið land eins og Ísland, sem sannarlega er í kröggum, að hafa hundruð eða þúsundir útlendinga á sínu framfæri. Þjónustu sem eðlilegra væri að þeir nytu „heima“ hjá sér. Ekki þýðir fyrir Íslensk stjórnvöld að vísa í mannúð, Schengen, eða EES samninginn.

Þjóðverjar, höfuð ESB, hafa riðið á vaðið. Fylgjum þeirra fordæmi.


mbl.is Fá ekki lengur grunnbætur í Þýskalandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fljúgandi hálka?

Þarna hefur  blaðamaðurinn heldur betur náð sér á flug.  Yfirleitt  er talað um að það sé flug hált en að hálkan taki flugið er nýtt.

 
mbl.is Fljúgandi hálka í borginni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Selja lögfræðingar veiðileyfi á sjálfa sig

Mann setur hljóðan þegar verjendur glæpamanna, í sakamáli sem þessu skotárásarmáli, lýsa mannkostum og gæsku umbjóðenda sinna, manna sem sannarlega hafa reynt eftir bestu getu að limlesta mann og annan, eða jafnvel drepa.

En þessum lögfræðingum er vorkunn, þeir eru ráðnir til verksins og ber lögum samkvæmt að leggja sig fram og verja skjólstæðinga sína hvað best þeir geta. Þessir fá eflaust skjólstæðinga sína sýknaða sökum "skorts" á sönnunum, þó aðrir hafi, með hótunum við vitni, eflaust unnið fyrir þá alla vinnuna.

En öðru máli gildir um lögfræðinga sem sérhæfa sig í innheimtu skulda. Þeir geta, sé vilji fyrir hendi, sýnt gagnaðila umburðarlyndi, skilning og samningsvilja.  En oftast er ekkert af þessu í fari þeirra, kröfur eru sóttar af fullkominni óbilgirni og ósanngirni, og gjaldskrá þeirra er þannig að ekki verður á annan hátt orðað á íslensku en að þar fari saman og allt í senn okur, græðgi og hreint  hrægammaeðli.

Hann er óverjanlegur sá hryllilegi verknaður sem var framinn á innheimtulögmannstofu um daginn, en var það ekki bara tímaspursmál að stíflan brysti?

Þarf ekki nýja hugsun á Íslandi á öllum sviðum?


mbl.is Enginn ásetningur sannaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skálmöld er gengin í garð

Í bandarískum glæpa- bíómyndum kemur iðulega fram hræðsla manna um líf sitt, beri þeir vitni gegn glæpamönnum og samtökum þeirra. Þetta lýsir eflaust Bandarískum veruleika á raunsannan hátt. Þessi ómenning er greinilega líka orðinn íslenskur veruleiki,...

Fiskur undir steini

Þeirri spurningu hefur ekki verið svarað, af hverju kanarnir brenna ekki úrganginn heima hjá sér? Þetta minnir á þegar kanarnir losuðu sig við geislavirkan úrgang hér á árum áður. Þá sigldu þeir með úrganginn á haf út, jafnvel upp að ströndum annarra...

„Góðu hryðjuverkamennirnir“, vinir okkar!

Forseti Bandaríkjanna telur ótækt að hryðjuverkamenn ráði yfir kjarnorkuvopnum, ekki er annað hægt en að vera honum sammála um það. Ríkisstjórn Ísraels stundar hryðjuverk gegn íbúum Palestínu fyrir opnum tjöldum. Hún skipuleggur og mælir fyrir um árásir...

Undarleg fréttamennska

Bæði í kvöldfréttum RUV og Stöðvar 2 gerðu fréttamenn mikið úr „hetjuskap“ Geirs H. Haarde, eins og það var orðað, þegar Geir, drjúgur með sig, fagnaði því í Landsdómi í dag að vera mættur fyrir dóminn, því þetta væri fyrsta tækifæri hans til...

Er „kók“ með kaffinu á fundum SUS?

Þó ljóst sé að Sjálfstæðisflokkurinn er sjúkur flokkur, grunaði eflaust fáa að hann væri þetta langt leiddur og illa farinn. Þeir hafa ekkert lært blessaðir, haftalaust frelsi leiðir alltaf til ófarnaðar, sama hvort það er í fjármálum, fíkniefnum eða...

Íhald og Framsókn hafa grafið sína eigin gröf.

Það er gleðilegt að Hr. Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands skuli ætla að bjóða sig fram til áframhaldandi setu í embætti forseta Íslands. Þá er þeirri óvissu eytt. En framboðið hans og væntanlegt endurkjör er líklegt að verða andstæðingum...

Eðalbílar Íslands

Eru íslenskir leigubílar orðnir það flottir og ökumenn þeirra svo pjattaðir og fínir með sig að farþegar megi ekki taka með sér farangur í bílana? Þarf að panta sendibíl undir farangurinn? Ökumenn leigubíla eru, sam- kvæmt minni reynslu, sérlund- uðustu...

Sjálfgæðingsflokkurinn stærstur...

...flokka samkvæmt Gallup, án þess að hafa á nokkurn hátt til þess unnið, nema síður sé. Hversu rugluð getur þessi þjóð eiginlega orðið?

Látum helvítin neita því

Auðvitað reynir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson að slá um sig og gera úr því samsæri Íslenskra stjórnvalda að Kanadísk stjórnvöld samþykktu ekki þátttöku sendiherra síns í pólitísku starfi Framsóknar. Kanadamenn þurfa ekki aðstoð Íslenskra stjórnvalda til...

Turtildúfan fellir skrautfjaðrirnar

Þær eru byrjaðar að falla af skrautfjaðrir Lilju Mósesdóttur og ekki við öðru að búast. Ekki er þó við neinu fjaðrafoki búist, til þess eru fjaðrirnar of fáar. Þessi kona hefur ekki rekist í samstarfi við annað fólk fram að þessu og bjánaleg bjartsýni að...

Sundruð er samstaðan

Hún er giska brosleg útskýring Sigga strekkings á brotthvarfi sínu úr "Samstöðu". Hver kemur stjórnmálaflokki á koppinn og tekur kosningu sem varaformaður, hafi hann aldrei ætlað að vera í flokknum nema nokkra daga? Sundrung hefði verið nærtækara og...

Andskotans hræsni og vesaldómur

Það var unnið á bak við tjöldin segir Atli Gíslason, einhver harðasti baktjaldamakkari og kafbátur Alþings! Atla er auðvitað brugðið að unnið sé á bak við tjöldin, enda finnst honum að ruðst inn á hans heimavöll þar sem rýtingsstungur í bak og annað...

Bölvaðir gikkir

Að brjótast inn til að stela öllu matarkyns en skilja svo eftir kjötsúpu og slátur er ekki aðeins merki lélegan matarsmekk heldur beinlínis bölvaðan gikkshátt!

Quislingurinn í Köben

Það væri mér svo sem að meinalausu þótt Passíusálmarnir yrðu teknir af dagskrá RUV. En þá þyrfti útvarpið að setja á dagskránna eitthvað annað efni sem fullnægði sjálfspíningarhvöt þeirra sem hafa lagt það á sig að hlusta á þetta tros ár eftir ár. Svo...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband