Vinir litla mannsins

Það er aðdáunarvert hvað Morgunblaðið og Sjálfstæðisflokkurinn láta kjarabaráttu, réttindi og velferð almennra launþega sig miklu varða þessar vikurnar. 

Það verður ekki amalegt að lifa komist þeir til valda, ef ekki verður þá snögglega áberandi  dýpra á allri ástúðinni og umhyggjunni.


mbl.is Lögreglumenn á fundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fáum þetta á hreint

Fyrirsögnin á þessari turtildúfu frétt Smartlandsins væri kjörin sem spurning dagsins á útvarpi Sögu, til að kalla fram „sannleikann“ í þessu mikilvæga og brennandi máli.

Væri ekki kjörið að Smartland Mörtu Maríu og útvarp Saga snúi kviðum saman til að kryfja til mergjar mest brennandi mál samtímans, framhjáhöld og annað hámenningarlegt slúður og bull? 


mbl.is Hélt hann framhjá Demi Moore?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Útvarp Saga hvetur til stjórnarskrárbrots

Á Útvarpi Sögu er daglega skoðanakönnun og ekki þarf að fara í grafgötur með að í spurningunum stöðvarinnar felast, undantekningarlítið,  pólitískur boðskapur og þannig framsettur að ekki fer á milli mála að fiskað er eftir ákveðinni fyrirframgefinni niðurstöðu.

Á útvarpsstöðinni starfar stjórnlagaþingmaðurinn Pétur Gunnlaugsson og hefur stjórnarskráin og frumvarp til nýrrar stjórnarskrár fengið fyrir vikið meiri og jákvæðari umfjöllun en almennt gerist um á þessari stöð um málefni og menn. 

Nú bregður svo við að útvarpsstöðin hvetur til stjórnarskrárbrots með spurningu dagsins í dag: „Á forsetinn að sniðganga þingsetningu Alþingis 1. október“?  

Samkvæmt 22.gr. stjórnarskrár verður Alþingi ekki sett nema með aðkomu forsetans. Ekki fer á milli mála að í spurningu útvarpsins liggur ákveðin hvatning og von að forsetinn brjóti starfsskyldur sínar og stjórnarskrá og mæti ekki til setningar Alþingis.

Að auki hvetur útvarpsstöðin til þess að fólk fjölmenni á Austurvöll á laugardaginn og láti hendur skipta við setningu þingsins, þó ekki sé það sagt með beinum hætti. 

Fari fólk að ráðum útvarps Sögu með ófyrirséðum afleiðingum er næsta víst að stöðin mun afneita ábyrgð sinni tvisvar áður en haninn galar þrisvar.

  


Einlægur er friðarviljinn, góðir hálsar

Þarna sjá þeir, sem ekki héldu vatni af hrifningu yfir ræðu Benjamíns Netanyahu forsætisráðherra Ísraels á allsherjarþingi Sþ, hvernig fara saman orð Ísraela og gjörðir.

Nokkrir gátu ekki á sér setið og blogguðu um ræðuna af hrifningu og aðdáun á þessari friðardúfu andskotans og einlægum friðarvilja hennar, hvar hún kallaði eftir að samningaviðræður hæfust á ný! Heyr á endemi.

Þarna sjá þeir hvernig hann virkar „einlægur“ friðarvilji Síonistana. Þarna sjá hvernig  Síonisminn ætlar að framkvæma friðinn.  Ekki eru liðnir nema fjórir dagar frá friðarboðskapnum mikla þegar Ísraelar kalla eftir hryðjuverki.

Þetta er vanabundin aðferð, Ísraelar tilkynna um ákvörðun, sem þeir vita að steypir einhverjum úr öfgaliðinu fram af brúninni og þeir fá á sig þá árás sem kallað var eftir. Síonistar hika þannig ekki við að fórna sínu fólki til þess eins að geta í áróðursstríðinu bent á blóðið og sagt heiminum hver sé ljóti karlinn.

Skítlegt eðli segi ég.

    


mbl.is Leyfa byggingu 1100 íbúða í Jerúsalem
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ólíkt hafast þeir að Sigmundur Davíð og Bjarni stefnulausi, formaður Foringjalausaflokksins

Sigmundur Davíð og Framsóknarmenn virðast ætla að standa í lappirnar í málefnum Palestínu. Gott hjá þeim.

En það sama verður ekki sagt um Bjarna stefnulausa, formann Foringjalausaflokksins. Þeirra afstaða kemur ekki á óvart, allt annað úr þeirri áttinni hefði verið hreint undur. Þeirra skoðun á málinu er aðsend, enda hefur flokkurinn sá aldrei rekið sjálfstæða utanríkisstefnu.

Sjálfstæðismenn gagnrýndu alla tíð Kommúnistaflokkinn og arftaka hans   Sameiningarflokk alþýðu - Sósíallistaflokkinn og síðar Alþýðubandalagið um að vera stýrt frá Moskvu. Þær ásakanir voru án vafa réttar hvað tvo fyrrtöldu flokkana varðar. En á sama tíma var Sjálfstæðisflokkurinn beintengdur við Hvíta húsið og tók við fyrirmælum þaðan og gerir enn.

Sjálfstæðismenn hafa alla tíð vart vatni getað haldið af þörf og þrá til þjónkunar við Bandaríkin. Steingrímur heitinn Hermannsson segir í ævisögu sinni að vitað hafi verið að „ákveðnir“ menn  bæru upplýsingar um menn og málefni í sendiráð Bandaríkjanna. Það fólk hefði örugglega talið samskonar slefburð í  Sovéska sendiráðið ekki vera sérlega þjóðhollan. 

Steingrímur segir ennfremur frá utanríkisráðherratíð sinni í ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Alþýðuflokksins. Sjálfstæðismenn voru dæmalaust viðkvæmir og uppstökkir yfir nánast öllum embættisfærslum Steingríms og höfðu allt á hornum sér.

Ástæðan fyrir ergelsi þeirra var sú að Steingrímur taldi eðlilegt að Ísland, sem sjálfstætt ríki, hefði sjálfstæða utanríkisstefnu og sleppti því takinu á pilsfali Bandaríkjanna. Sérlega argir urðu Sjallarnir, yfir stefnubreytingu Steingríms á afstöðu Íslands til deilunnar fyrir botni Miðjarðarhafs, svo mjög að stjórnarslitum var hótað.

En það er bara broslegt að Bjarni stefnulausi, formaður Foringjalausa flokksins skuli reyna að halda því fram að hann hafi myndað sér sjálfstæða skoðun á málinu. 


„Með lögum skal land byggja“

crop_500xÆtli lögreglan að standa undir nafni og sínum einkunnarorðum eiga þeir yfirmenn lögreglunnar sem bera ábyrgð á þessum málum að víkja úr embætti nú þegar.

Um það eiga þeir ekkert val, annars verður lögreglan vart marktæk sem slík.

En kannski er það aukaatriði í augum Ríkislögreglustjóra, geti hann lafað á sínu embætti, og boðað lýðnum að fara að lögum, hvar hann situr borðalagður í bak og fyrir í sínum fílabeinsturni.


mbl.is Lögreglan brýtur lög
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott....

....mál!

Allgóð samstaða!

„Allgóð samstaða“ er í utanríkismálanefnd, um stuðning við umsókn Palestínu um aðild að Sameinuðu þjóðunum. Hvað það merkir nákvæmlega kemur ekki fram í fréttinni. En ef að líkum lætur þá merkir „allgóð samstaða“ sennilegast fulla...

Vesalings tuðran

„Sækjast sér um líkir“ er sennilegasta skýringin á því að hálfvitar einir laðast að gimbrinni eins og flugur að ljósi.

Og hvað,...

...er CIA að falast eftir samúð og frjálsum framlögum ?

Dýrt myndi samlífið allt...

...ef svo væri hver dráttur!

Skítseyði

Aðeins fullkomið siðleysi fær menn til að opinbera aumingjaskap sinn og soraeðli á þennan hátt.

...og fréttin er?

Látið okkur heldur vita þegar flugvél IE fer í loftið á áætlun og án óþæginda fyrir farþega, það væri frétt!

Rís þú unga Rússlands merki

Þessi embættis velta er einkar hagkvæmt fyrirkomulag hjá þeim Pútín og Medvedev , bráðsnjöll hugmynd og til fyrirmyndar Þeir eru báðir einlægir lýðræðissinnar, og mega því ekki til þess hugsa að brjóta stjórnarskrá Rússlands. Því ætla þeir að skiptast á...

Má hugsa þetta upphátt?

Getur verið að sú hugmyndafræðilega þörf og eftirspurn sem Stígamót hrúguðu upp í undirbúningi athvarfsins hafi verið ögn yfir markið? Ég hef grun um að þannig sé því einmitt háttað um flest, hjá þessum annars ágætu samtökum, í viðleitni þeirra að ná...

Össur, hvort ert þú maður eða hænsn?

Össur koma svo, sjá og sigra og viðurkenna sjálfstætt ríki Palestínu. Jón Baldvin Hannibalsson stóð í lappirnar þegar hann fyrir hönd Íslands viðurkenndi fyrstur sjálfstæði Eystrasaltsríkjanna. Össur nú er lag að sýna að þú eigir eitthvert erindi í...

Ríkið lokað næstu daga - Mulningur #69

Áfengi skammtað Áfengisútsölu ríkisins var lokað í gær og verður hún lokuð nokkra daga. Ástæðan er sú, að ríkisstjórnin hefur ákveðið að taka upp skömmtun áfengis. Áfengisskömmtuninni verður hagað þannig , að allir, karlar sem konur, er náð hafa 21 árs...

Morðingjar

Aumir og vesælir morðingjar og ekkert annað eru þeir menn sem þessu stjórnuðu. Menn sem fremja illvirki sín vitandi vits og í nafni meingallaðs réttarkerfis, kerfis sem er sem steinrunnið nátttröll í siðmenningunni.

Frábært framtak hjá þessum unga manni.

VR er á algerum villigötum í þessu máli og formaður þess skilur greinilega ekki vandamálið. Til þess skortir hann sennilega allar hugmyndafræðilegar forsendur. Kynjamismunun verður ekki leiðrétt með því að færa hana til. Ráðast þarf að rót vandans og...

Persona non grata

Færeyingar hafa eðlilega áhyggjur af farþeganum sem kom með Norrænu í síðustu viku og slapp ólöglega í land í Færeyjum og fer huldu höfði. Lögreglan treystir á samvinnu við almenning til að hafa hendur í hári innflytjandans, í bókstaflegum skilningi....

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband