Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Er rauða hverfið með sýningarglugga við Austurvöll?
13.4.2011 | 21:04
Ég, Skagstrendingurinn, og Ísfirðingurinn Björn Birgisson eigum fleira sameiginlegt en að vera innflytjendur í hið ágæta bæjarfélag Grindavík. Við deilum skoðunum um margt. Báðir höfum við haldið uppi harðri gagnrýni á stjórnarandstöðuliðið sem hefur af fullkomnu ábyrgðaleysi og málefnarýrð mært allt sem þeir telja að gagni geti komið til að sverta hetjulega baráttu stjórnarinnar til endurreisnar þjóðfélagsins eftir hrunstefnu Íhalds og Framsóknar.
Við höfum ekki heldur legið á skoðunum okkar, hafi eitthvað betur mátt fara í okkar liði.
Ég hef fengið leyfi Björns Birgissonar til að endurbirta færslu af Facebooksíðu hans 11. apríl 2011, sem er virkilega áhugaverð og skemmtileg.
Sýningargluggi VG flokksins tekur sýningarglugga Rauðu hverfanna í nefið!
Það er alltaf gaman að skoða sýningarglugga VG flokksins. Aldrei nein lognmolla þar, frekar en í þekktum sýningargluggum þekktra erlendra stórborga!
Ögmundur fer út og inn um gluggann sem ráðherra og er nú fastur í lausafaginu.
Álfheiði Ingadóttur er fleygt inn og út um gluggann sem ráðherra.
Jón Bjarnason ráðherra veit ekki hvort hann vill vera innan rúðunnar eða utan.
Er því frekar eins og móða á milli glerja.
Ásmundur Einar Daðason eyðir dögunum í nöldur og leiðindi og netselur á kvöldin í glugganum.
Þráinn Bertelsson flaug inn um rifu við opnanlegt fag einn góðan gluggaveðursdag.
Svandís Svavarsdóttir kemur oft í gluggann og tilkynnir virkjanir uppþornaðra fallvatna eftir 300 ár.
Árni Þór Sigurðsson er oft í glugganum, en eðlilega aldrei á besta sýningartíma.
Björn Valur Gíslason bloggar í gluggakistunni á nóttinni og biður afsökunar á daginn.
Katrín Jakobsdóttir kaus heldur að leggja drög að fjölgun mannkyns en að sitja við gluggann.
Atli Gíslason settist í stólpafýlu í gluggakistuna við fjárlagagerðina.
Lilja Mósesdóttir settist við hlið Atla í ekki minni allsherjarfýlu.
Svo flugu þau bæði út um gluggann og enginn veit hvar þau lenda.
Í gær settist Guðfríður Lilja í gluggakistuna, en var óðar fleygt út um gluggann.
Steingrímur sést stundum í glugganum, skríðandi um allt, leitandi að stefnuskránni.
Lilja Rafney og Þuríður Bachman eru mjög vinsælar í glugganum því þær hreyfast lítið og segja fátt.
ESB málin fara reglulega inn og út um gluggann, rétt eins og Icesave.
Kvótamálið er falið á bak við gluggatjöld, enda ekki í sýningarhæfu ástandi sem stendur.
Svo talar fólk um sýningarglugga í Hamborg og Amsterdam!
Þeir blikna í samanburðinum og blessaðar dúfurnar þar!
Nú er bara að bíða eftir næsta sýningaratriði!
Það verður örugglega safaríkt og spennandi!
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Er betri stjórnarandstaðan í skógi en stjórnin í hendi?
13.4.2011 | 20:34
Ásmundur Daði ætlar ekki að virða stjórnarsáttmálann, sem hann gekkst svo glaður inn á til að komast í stjórnarliðið.
En nú er Mundi Daði fallinn í fýlu og lætur sig dreyma um að betri séu tveir fuglar í skógi en einn í hendi.
En hætt er við að þegar Mundi hann vaknar aftur af draumi sínum þá hafi hann hvorugan fuglinn í skóginum, því síður þann í hendi, en skuldi íhaldinu alla þrjá.
![]() |
Styður ekki lengur ríkisstjórnina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Höfuðlausnar kveðskapur Bjarna - beint í mark!
13.4.2011 | 18:41
"Höfuðlausn Bjarna Benediktssonar" kallaði Margrét Tryggvadóttir þessa léttúðlegu vantrausttillögu Bjarna, sem væri tilraun hans að leysa sitt eigið höfuð af höggstokknum.
Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, sem hvað harðast hefur gjammað gegn ríkisstjórninni sagði að tillaga Sjálfstæðisflokksins um vantraust á ríkisstjórnina væri veikburða og ótrúverðug í ljósi þess að flestir þingmenn flokksins hefðu greitt atkvæði með Icesave-lögunum!
Þó ég sé ekki VG maður, get ég ekki annað en dáðst af Steingrími J. Sigfússyni. Honum mælist alltaf sérlega vel, samt betur núna en oft áður. Hann skaut Bjarna og alla hans halarófu í kaf.
Atli Gíslason, ætlar að skipa sér, með atkvæði sínu, aftur sæti í áhrifalausri stjórnarandstöðu, verði hann á annað borð valinn til þingsetu í komandi kosningum,komi til þeirra sem ég stór efa, satt að segja.
Megin inntak þeirra Sjálfstæðismanna sem talað hafa í umræðunum á Alþingi er að þingið njóti ekki trausts, því verði að boða til kosninga. Þeir segja þá um leið að þeir njóti ekki trausts. En þeir ætla ótrauðir að bjóða sig aftur fram fullir trausts þess að eftir þingrof muni þeir aftur njóta trausts þrátt fyrir eigin gjaldfellingu á trausti þingsins. Þvílíkir dásemdar fábjánar!
![]() |
Veikburða vantrauststillaga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Samsæriskenningar, koma svo
13.4.2011 | 14:00
Núna hljóta að haugast inn samsæriskenningabloggin frá hægri, að VG sé með þessu að reyna að kaupa sér stuðning órólegu deildarinnar við ríkisstjórnina í atkvæðagreiðslunni um vantrausttillögufrumhlaup bráðabrigðaformanns Sjálfstæðisflokksins.
![]() |
Árni Þór víkur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Misheppnuð sjálfshjálpartilraun
12.4.2011 | 21:24
Bjarni Benediktsson leggur fram þessa vantrausttillögu í trausti þess að öll stjórnarandstaðan skili fullu húsi og Atli, Lilja og jafnvel Ásmundur og Guðfríður snúist á sveif með stjórnarandstöðunni. Bjarni, sem getur ekki einu sinni lesið sinn eigin flokk rétt og fékk aðeins 20 til 25% kjósenda Sjálfstæðisflokksins á sveif með sér í Icesave málinu, ætti ekki að reyna að spá í hvernig fólk í öðrum flokkum hugsar. Er Bjarni búinn að tryggja sér stuðning allra þingmanna Sjálfstæðisflokksins?
Atli og Lilja ganga ekki lengra í andstöðunni en að sitja hjá, því þótt þau hafi sagt sig úr þingflokki VG, þá er það þeim fráleitt geðfeld hugsun að stuðla að valdatöku Íhaldsins og Framsóknar. Ásmundur og Guðfríður munu að sama skapi ekki bergðast.
Næsta ólíklegt verður að teljast að Framsóknarflokkurinn skili fullu húsi með þessari tillögu. Framsókn, hvað sem öllu rausi formannsins líður, leggur ekki í kosningar núna þegar afhroð blasir við í skoðanakönnunum. Hugmyndir einstakra þingmanna flokksins að ganga til liðs við stjórnina sanna það.
Hvað Hreyfingin gerir fer eftir því hve vænt þeim þykir um þingsætin sín, því standi þau að vantrausti og svo ólíklega færi að hún verði samþykkt með kosningum í kjölfarið, þá hafa þau þar með lokið sínum þingmannsferli. Skoðanakannanir benda allar til þess að Hreyfingin verði ekki fjölnota flokkur. Ég held að það fari of vel um þau á þinginu til að þau hætti á það.
Bjarni veit manna best að það fjarar hratt undan honum sem formanni og þessi vantrausttillaga hans er örvæntingarfull tilraun hans að snúa þeirri þróun við. En þessi sjálfshjálpartilraun hans er dæmd til að mistakast.
![]() |
Styðja vantrausttillöguna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Er einstefnuloki á „jafnréttinu“?
11.4.2011 | 23:58
Er ekki Femínistafélagið sjálft, hvað mest á skjön við jafnrétti kynjanna, með kröfu sinni um klárt misrétti kynjanna og kalla það svo jákvæða mismunum. Verður mismunun eitthvað annað en mismunun, þótt hún sé klædd í sparifötin.
Það virðist skoðun Femínistafélagsins að hafi kona á annað borð tekið að sér starf eða embætti , megi karl undir engum kringumstæðum leysa hana af eða taka við hennar hlutverki.
![]() |
Á skjön við jafnréttisstefnuna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 12.4.2011 kl. 00:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Það var lagið, Ólafur!
10.4.2011 | 17:22
Þarna fengu Vilhjálmur lánlausi og fógetinn af LÍÚ og þeirra hyski allt, það óþvegið og verðskuldað, frá Hróa Hetti Íslands.
![]() |
Hættið að tala niður íslenskt atvinnulíf |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Flottur forsetinn
10.4.2011 | 15:32
Ég segi nú bara, þvílíkt lán fyrir þjóðina að Ólafur Ragnar Grímsson situr Bessastaði núna en ekki fyrrverandi forseti ónefndur.
![]() |
Niðurstaðan má ekki sundra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vogun vinnur, vogun tapar
10.4.2011 | 02:29
Svo ólíklega sem það hljómar þá er Sigmundur Davíð Gunnlaugsson framsóknarformaður sennilega sigurvegari þessara kosninga, þrátt fyrir að hann hafi ekki getað komið því til skila við þjóðina hvort hann væri hér, þar eða hreinlega yfirleitt....einhersstaðar.
Eftir flokksþing Framsóknar um helgina er enn óljósara hvað Framsókn ætlar að gera, vera, hinkra við, fara og koma svo aftur síðar, eða gera það sem öllum kæmi best, hverfa.
Formaðurinn boðaði í setningarræðu sinni sérlega metnaðarfullt markmið flokksins til sóknar. Hann boðaði ekki hvarf flokksins, heldur stórsókn og flokkurinn yrði, innan fimm ára, ekki aðeins gildur heldur allsráðandi í Íslenskri pólitík.
Slíkur pólitískur metnaður er algernýung á Íslandi, flokkar hér á landi hafa aldrei áður viljað vera stórir eða haft metnað til valda. Þetta er klárlega ný hugsun, sem hlýtur að falla í kramið hjá nýungagjörnum íslendingum.
Bjarni Ben formaður Sjálfstæðisflokksins er aðal tapari þessara kosninga , ef þannig má að orði komast. Bjarni hefur framið pólitískt HaraKíri. Hann studdi ásamt 11 þingmönnum flokksins þennan Icesave samning, mælti fyrir honum, en kannaðist svo nánast ekki við neitt í sjónvarpinu áðan en varpaði ábyrgðinni á þjóðina.
Hvað ætlar þjóðin að gera með Bjarna? Svar þjóðarinnar er klárt, honum verður á haug kastað.
![]() |
Sigmundur sterkari, veik staða Bjarna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 02:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Hvað skal við þennan vandræðamann gjöra? Frammi fyrir þeim vanda stendur verkalýðshreyfingin.
9.4.2011 | 23:55
Enn og aftur kemur Gylfi Arnbjörnsson, þessi maður sem verkalýðshreyfingin af einhverjum óskiljanlegum ástæðum valdi sem sinn helsta forsvarsmann, og verður sér og umbjóðendum sínum til skammar.
Þessari undarlegu tilraun verkalýðshreyfingarinnar að leiða hagfræðinga til æðstu valda í hreyfingunni hefur mistekist og hlýtur að teljast vera fullreynd.
Æðstu foringja sína á verklýðshreyfingin að sækja í sínar eigin raðir en ekki inn í hagfræðideild Háskólans.
Ég tel framtíðarleiðtoga verkalýðshreyfingarinnar vera Aðalstein Baldursson á Húsavík, því fyrr sem því verður til leiðar komið, því betra.
![]() |
Verðum að byrja upp á nýtt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 10.4.2011 kl. 00:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)