Bloggfærslur mánaðarins, mars 2012

Olíufélögin sýknuð, því of margir rannsökuðu glæpinn

Þessi niðurstaða Héraðsdóms er með ólíkindum. Dómurinn lýsir olíufélögin sek um verðsamráð en sýknar þau samt.

Forsendan sem dómurinn gefur sér fyrir þessari fráleitu niðurstöðu er að lögreglan hafi verið að rannsaka glæpi olíufélaganna á sama tíma og Samkeppnisráð. Dómurinn telur það brot á réttindum glæpamanna að tveir aðilar rannsaki sama glæpinn.

Glæpurinn var því að mati dómsins of rannsakaður, rannsóknir á glæpum eiga vera einfaldar og fámennar á Íslandi til að ganga ekki um of á réttindi glæpamanna.

Niðurstaða Héraðsdóms hljómar meira sem yfirlýsing frá LÍG -Landssamband Íslenskra Gangstera-  en dómi yfir félagsmönnum þeirra sömu samtaka. 

.

.

Er komin tími á húsbóndaskipti á Bessastöðum, eða ekki? Kíkið á könnunina hér til vinstri!


mbl.is Ríkið greiði olíufélögum til baka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vesalingur ársins

Fyrir Kastljósið í kvöld hafði ég skömm á Ögmundi Jónassyni. En þegar viðtalinu við Ögmund lauk í Kastljósinu fann ég sárt til þess að hafa hann ekki innan seilingar til að geta látið það eftir mér að æla yfir hann.

Þvílíkur andskotans aumingi og liðleskja er þessi maður,hann er ekkert nema skakkur kjafturinn.

Á launaskrá hverra annarra en ríkisins er þetta viðrini, hvar liggur hans hollusta? Ekki hjá almenningi, svo mikið er víst.

  


Lögverndað okur á unglingum

Margumtöluð SMS lánastarfsemi, hvar markhópurinn er aðallega unglingar, er ekkert annað en hreinræktuð Mafíustarfsemi í sinni skýrustu mynd.

Það eitt að þingmenn skuli tippla á tánum og naga á sér neglurnar meðan þeir íhuga hvort okurlán boðin unglingum, sé  heilbrigð starfsemi eða ekki, segir manni að það sama þing sé ekki skyldu sinni vaxið.

Það getur aldrei verið heilbrigt eða eðlilegt að okurlánastarfsemi, sem tekur þúsundir eða tug þúsunda prósenta í árs vexti, fái þrifist hvort heldur er lögum samkvæmt eða hreinlega vegna skorts á lögum. 

Jafnvel þó menn beri fyrir sig marg jórtruðu hugtakinu um frelsi einstaklingsins, sem ákveðin stjórnmálaflokkur gerir sig út á, þá nær frelsi eins aldrei lengra en þangað sem frelsi annars byrjar.

Viðurkenna ekki allir, sem ekki eiga hagsmuni að gæta, að þessi starfsemi sé röng og af hinu illa? Hvað er þá að, af hverju fær þessi mafíustarfsemi að grassera, eins og ekkert sé sjálfsagðara?

Með aðgerðaleysi Alþingis njóta þessir okrarar þingverndar, ekki amalegt það.

.

.

Er komin tími á húsbóndaskipti á Bessastöðum, eða ekki? Kíkið á könnunina hér til vinstri!

 
mbl.is Svíar herða kröfur um smálán
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það sem koma skal?

Sé mið tekið af því sem á undan er gengið er barnaskapur að ætla að atburðurinn í Frakklandi sé og verði einangrað tilfelli. Þessi maður telur sig vera fótgönguliða í her Allah, en er stjórnað af sálsjúkum, morðóðum hundum, sem telja sendimönnum sínum trú um að þeir þjóni guði sínum best með því að myrða fólk af örðum trúarbrögðum.

Markmið þessara öfgahópa íslam er alveg skýrt, íslam skal útbreiða um gervalla heimsbyggðina, og af því er virðist frekar með illu en  góðu.

Verði ekkert að gert á vesturlöndum, til að stemma stigu við þessari þróun, horfum við fram á stig vaxandi trúarbragðaátök eða jafnvel borgarastyrjaldir innan ekki langs tíma.

Í mínum huga eiga vesturlönd aðeins tvo kosti, að spyrna nú þegar við fótum og hefta innflutning fólks íslamskrar trúar, eða játa strax að taflið sé tapað og afnema trúfrelsi og undirbúa með valdboði upptöku íslamskrar ríkistrúar.

Það er fyrir löngu staðreynd að íslamskir innflytjendur koma ekki til vesturlanda til að samlagast þeirri menningu sem fyrir er, þeir koma til að innleiða sína menningu og trú. Þeir gefa ekki þumlung eftir meðan við bökkum og bökkum, til að halda friðinn.

Það er misskilin friður, það er misskilin mannúð, þessir ólíku menningarheimar samlagast illa eða alls ekki, viðurkennum það áður en illa fer.

.

.

Er komin tími á húsbóndaskipti á Bessastöðum, eða ekki? Kíkið á könnunina hér til vinstri!


mbl.is Lýsti yfir ábyrgð við blaðamann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hún er mögnuð þessi rúða

Hún er býsna seig rúðan í glugganum á þessari verslun. Hún var brotin í þrígang í fyrra og svo enn aftur núna.

Að öllu jöfnu brotnar hver rúða bara einu sinni.


mbl.is Vinsæl rúða til að brjóta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru hvalveiðiandstæðingar að saka aðra um öfgar?

Afstaða Sigurseins Mássonar og annarra öfgaandstæðinga hvalveiða hefur ekkert með umhverfisvernd  að gera, nema síður sé. Væri stefna „verndarsinna“ raunsönn beindu þeir afli sínu aðeins til varnar hvalastofnum sem standa höllum fæti, en ekki tegundum sem sannarlega eru ekki í hættu.

Öll öfgasamtök af þessu tagi sigla undir fölsku flaggi því þau hafa í raun og veru aðeins eitt markmið, að viðhalda sjálfum sér.  

Hvalveiðar eru ekki stundaðar við Ísland nema á stofnum sem standa vel og þola vel veiðar. Hvalveiðibannið hér við land 1915, er dæmi um ábyrga afstöðu íslendinga, sem fyrstir þjóða settu slík lög í verndarskyni. Það sama er ekki hægt að segja um bannið 1986, það er dæmi um gunguskap, hvar Alþingi lét kúgast af þessum atvinnufriðunarklíkum. Látum það ekki endurtaka sig.

Að ætla að friða undantekningarlaust alla hvali, af þeirri ástæðu einni að örfáir stofnar þeirra standi illa er firra. Það er álíka og að vilja banna alla neyslu á nautakjöti og alfriða nautgripi, af því að örfáir stofnar séu í útrýmingarhættu.

Það er ekki síður náttúruvernd að veiða hvali, offjölgun þeirra getur og mun raska jafnvæginu í höfunum.

   .

.

Vinsamlegast kíkið á könnunina hér til vinstri!


mbl.is Sakar Jón um „öfgasinnaða þjóðernisstefnu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frekar klént

Það var að sögn aðal þemað að baki myndbandinu, með Erovision framlagi Íslands, að gera það eins íslenskt og kostur væri – og svo er sungið á ensku! Íslenskara gerist það vart.

Lagið er alveg jafn klént og það var í forkeppninni, þótt við það sé raulaður hallærislegur texti á ensku. Það er mikill misskilningur margra lagahöfunda að þeir geti bætt slappa tónsmíð með enskum texta og það lélegum í ofanílag.

 
mbl.is Grét þegar hún sá myndbandið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Knésetur Surtur gamli Breta?

eldgos_andlit_gettyMikil er ábyrgð litla Íslands að vera orðið ein helsta ógnin við öryggi Bretlands.

Líklegt má telja að helstu vörn Breta, hryðjuverkalögunum, verði þá í framtíðinni óspart beitt gegn Íslandi í hvert sinn sem Surtur gamli leysir vind. 

.

.

.

.

Vinsamlegast kíkið á könnunina hér til vinstri!


mbl.is Íslenskar eldstöðvar ógna Bretum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glæsilegt framtak

Þorbjörn hf. er vel að slíkum verðlaunum komin. Muna og minjasýning þeirra, upp- og framsetning hennar er af miklum metnaði gerð og þeim til mikils sóma.

Framtak Þorbjarnar hf. verður vonandi örðum fyrirtækjum hvatning til að varðveita muni og tæki úr sinni sögu í stað þess að fleygja þeim um leið og þeir hætta að þjóna sínum tilgangi. Muni sem geyma í sér og segja sögu lands og þjóðar,  með tilvist sinni einni.

En nokkuð skyggir á þessa frétt,  að með henni  skuli ekki fylgja nein mynd af hinu glæsilega verðlaunaða framtaki Þorbjarnar hf., en látið nægja að birta snobbmynd af tveimur framámönnum bæjarins afhenda forstjóra Þorbjarnar hf. verðlaunin.

-

-

-

Vinsamlegast kíkið á könnunina hér til vinstri!


mbl.is Þorbjörn fékk menningarverðlaun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er litli símamaðurinn í Róm?

páfinnEr það ekki merkilegt,  að leynd, ráðabrugg allskonar, undirferli, pukur, spilling, svik, sukk og svínarí skuli vera helsta inntak flestra frétta úr Páfagarði en ekki boðskapur Krists.

Páfinn hefur fyrirskipað rannsókn, ekki á misferlinu sjálfu mikil ósköp, heldur hvernig fregnum af því var lekið  í fjölmiðla. Það er auðvitað aðalatriðið. Minnir svolítið á mál litla símamannsins.

Og auðvitað mun Kirkjan sjálf rannsaka málið til tryggja leyndina, pukrið og viðhald spillingarinnar.

.

.

Vinsamlegast kíkið á könnunina hér til vinstri!


mbl.is Páfi lætur rannsaka skjalaleka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband