Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2012

Kaþólska kirkjan spyrnir við fótum - ekki seinna vænna

nun2Þar kom að því að hans heilagleika páfanum í Róm er nóg boðið. Kaþólska kirkjan ætlar að láta sverfa til stáls og stöðva þá lausung og samfélagslegu sundrungu sem kynfrelsis- og jafnréttis hjal kvenna hefur leitt yfir kristið samfélag.

Þessi aðför kvenna að samfélagslegri stöðu karlmanna sem drottnara heimsins,  kvenna og annarra dýra merkurinnar er gersamlega ósamrýmanleg kristinni trú og kristnum gildum  og gróf aðför að mannlegri reisn.

Kirkjan stefnir að því koma konunni aftur fyrir á bak við eldavélina, þar sem skaparinn fann henni stað á sínum tíma eftir að hafa tálgað hana úr rifi Adams og gefið honum hana, til heimabrúks - að eilífu.   

Amen.


mbl.is Vatíkanið ávítir róttækar nunnur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

LÍÚ - Mafía er það og Mafía skal það heita

Ef marka má orð Adolfs Guðmundssonar, framkvæmdastjóra Gullbergs ehf og LÍÚ foringja,  þá treystir LÍÚ MAFÍAN  sér ekki til að gera út, verði veiðigjaldafrumvarpið samþykkt.

Hætti þeir útgerð eiga þeir ekki annan kost en að skila veiðiheimildunum aftur. Þeim verður þá úthlutað að nýju til annarra aðila sem ekki hafa hland fyrir hjartanu. Þetta er kjörstaða, MAFÍAN hefur mátað sjálfa sig.

Sjómenn og landverkafólk á ekki að líða MAFÍUNNI að hún beiti þeim fyrir sig í hótunum og kúgunaraðgerðum gegn stjórnvöldum. Sjómenn og landverkafólk þurfa ekkert að óttast, það verður áfram gert út á Íslandi, þó LÍÚ MAFÍAN geri það ekki, og fiski verður áfram landað til vinnslu.

Adolf ætti að hella sér í skriftir og byrja á sinni eigin uppsögn, enda eflaust með lengstan uppsagnarfrest hjá Gullbergi.


mbl.is Yrðu að segja upp áhöfninni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mér var gefið start - gömul saga og ný.

Á fimmtudaginn í síðustu viku vaknaði ég rétt fyrir klukkan 7 árdegis, að ekki var allt með felldu. Ég þekkti strax einkennin, hjartslátturinn var farinn út og suður, rétt eins og Ástþór Magnússon slægi taktinn.

Ég tók þessu rólega, enda alvanur þessum uppákomum, brá mér undir sturtuna í lágadrifinu og skolaði af mér nætursvitann. Vakti síðan konuna og bað hana að aðstoða mig á heilsugæsluna. Hún skammaði mig fyrir að hafa ekki vakið sig strax, rétt eins og það hefði einhverju breytt.

Þegar við komum á heilsugæsluna var mér skotið að strax. Læknirinn lét taka af mér línurit og boðaði síðan vælubíllinn með það sama til að flytja mig á gáttadeild Landspítalans.

Þar reyndu læknarnir fyrst öfgafulla lyfjagjöf til að koma hjartanu í takt, þótt fyrri reynsla segði það til lítils. Enda fór það svo að stuttu eftir hádegi var mér ekið inn á sláturdeildina, rétt einn ganginn, ég tekinn af lífi og síðan endurræstur, með hjálp Landsvirkjunar.  

stuðtækiÞað gekk vel í þetta skiptið. Ég hrökk í taktinn strax við fyrsta skot, en samt hef ég verið eins og undin tuska síðan.  

Það er mjög mismunandi hvernig ég kem undan þessu. Í eitt skiptið þegar ítrekuð skot þurfti til að koma mér í „gang“  og brjóstkassinn á mér var  eins og jarðýta hefði spólað á honum var ég samt á eftir stálsleginn, rétt eins og ekkert hefði gerst, ef frá voru taldir verkirnir í rifjunum.

Já - þetta er gömul saga og ný.


Vanhæfur, vanhæfari, vanhæfastur

Aðferðafræðin við mat á hæfi og vanhæfi dæmenda í þessu máli og fleirum er giska brosleg. Sú skoðun  meðdómarans, ein og sér, að gera ætti Breivik höfðinu styttri gerir hann ekki vanhæfan. Hann er vanhæfur af því að hann asnaðist til að hafa orð á því. Það er því okkar vitneskja um skoðun hans sem gerir hann vanhæfan, ekki skoðunin sjálf, sem slík.

Allir dómarar málsins kunna að hafa sömu skoðun, eða jafnvel enn harðari, en eru ekki vanhæfir, því þeir héldu sér saman.  Ég ætla ekki að gera Norðmönnum upp skoðanir, en þeir eru örugglega ekki margir sem ekki óska Breivik til andskotans.


mbl.is Einn dómenda sagður vanhæfur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tími frú Romney ekki kominn og kemur ekki

Skoðanakannanir benda eindregið til þess að í stað þess að Obama pakki niður, muni Romney og óþreyjufull spúsa hans aldrei taka upp úr töskum sínum í Hvítahúsinu.

 
mbl.is Segir Obama að pakka saman
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er fótboltaandinn í hnotskurn

Er þetta ekki fótboltinn í hnotskurn, guðlegur átrúnaður stuðningsmanna á sínu liði og að samaskapi rudda- og fjandskapur í garð annarra liða og stuðningsmanna þeirra?

Þegar maður heyrir umræður um fótbolta þá snýst umræðan minnst um íþróttina sjálfa heldur hvað „okkar“ menn sú miklið snillingar en andstæðingarnir miklir hálfvitar og asnar.

Hún virðist ekki stuðla að bættum anda aðdáenda sinna og mannasiðum þessi íþrótt.


mbl.is Chelsea skammast sín fyrir stuðningsmennina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stundar LÍÚ tölvu og vírusárásir á þá sem skrifa gegn þeim?

Ég hef núna í tvígang eftir skrif um LÍÚ og kvótamálin orðið fyrir hatramri vírus árás á tölvuna mína. Einu sinni getur verið tilviljun, en tvisvar er það varla.

Hafa aðrir bloggarar sem skrifað hafa gegn almættinu í LÍÚ hafi orðið fyrir svipaðri reynslu?

Núna í kvöld fraus allt hjá mér og eftir mikið balsl og læti, sviptingar og blikk á skjánum þá hvarf  bloggfærsla sem ég hafði skrifað og „seifað“ um þetta mál og hvarf eftir að ég hafði „hreinsað“ út.

Af reynslu minni af þessum LÍÚ gaurum er ég tilbúinn til að trúa nánast öllu upp á þá.

Hvað haldið þið?

  


Hér má sjá hvernig Titanic sökk

Þessi tölvugerða mynd sýnir hvernig Titanic sökk til botns.

 


mbl.is Öld frá því Titanic sökk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig vegnaði Afgönsku kvenréttindakonunni Fawzia Koofi, færi hún í framboð á Íslandi?

Fawzia Koofi er sannarlega hugrökk kona að bjóða sig fram til forseta í Afganistan, landi þar sem kúgun og fjandskapur í garð kvenna er rétttrúnaður. Vonandi gengur henni sem best og áfallalaust í sinni baráttu.

En hvernig myndi henni vegna hér á landi færi hún í framboð hér? Henni yrði án efa tekið fagnandi af þeim flokkum sem hvað ákafast segjast berjast fyrir réttindum og framgangi kvenna, Samfylkingu og VG. Henni yrði hampað og hafin til skýjanna sem kvenréttindakonu til þess eins að verða síðan barin niður aftur sem umhverfisböðull.

Fawzia Koofi hefur það nefnilega á sinni stefnuskrá að nýta náttúruauðlindir landsins betur til að efla efnahag landsins og afkomu þegnanna. Slík sjónarmið ganga auðvitað ekki í jafnréttisflokkum Íslands, þar sem alfriðun náttúruauðlinda eru orðin hinn eini sanni rétttrúnaður.

Rétttrúnaðurinn er samur við sig, hver sem birtingamynd hans er.


mbl.is Kona býður sig fram til forseta Afganistans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enginn aur aflögu, því miður vinur!

„Það er ekki hægt að nota útreikninga Hagstofu Íslands sem grundvöll  fyrir skattlagningu á sjávarútveginn“, segir Einar Kr. Guðfinnsson fyrrverandi sjávarútvegsráðherra.

En mætti þá nota ársreikninga útgerðanna til þess, Einar? 

Við hliðina á fréttinni um viskubrunninn  Einar Kr. Guð á mbl.is, var önnur frétt hún var um aðalfund HB Granda og er sláandi dæmi um hve illilega útgerðarfélögin hanga á horriminni.

Þar segir m.a.:

 
"Aðalfundur HB Granda samþykkti að greiða hluthöfum sínum um 679 milljónir í arð. Félagið hagnaðist um 6 milljarða á síðasta ári. Arðgreiðslan nemur því um 11,3% af hagnaði ársins".

Það er greinilega ekkert svigrúm í þessum tölum fyrir arðgreiðslur til eiganda auðlindarinnar, sem HB Grandi nýtir og byggir á hagnað sinn og arðgreiðslur til eigenda sinna.

  
mbl.is Ekki grunnur til skattlagningar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband