Þessi kona, Sarah Palin...

Sarah Palin5

...hefur sannað að hún er fullkominn einfrumungur!

 

Það eru því taldar verulegar líkur á að hún verði frambjóðandi  Republikanaflokksins í komandi forsetakosningum í Bandaríkjunum.

.


mbl.is Þakkaði Bush en ekki Obama
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru konur á jafngóðum -eftirlaunum- og karlar í þessum bransa?

Íslamskir karlar sem ganga í dauðann fyrir trúna fá, eins og allir vita, að launum paradísarvist og kippu 100 óspjallaðra meyja til frjálsra nota, fyrir fórn sína. Þokkalegustu eftirlaun það!

Þá  er það spurningin, hvort konan sem neydd var í þá Íslömsku „hetjudáð“ að hlífa Ósómanum fyrir kúlum andskotans, hafi hlotið að launum paradísarvist fyrir sitt líf og að auki digra kippu af óspjölluðum sveinum?

Er það þannig, veit það einhver?

Er þetta kannski borðleggjandi mál fyrir kærunefnd jafnréttismála?

  


mbl.is Reyndi að nota eiginkonuna sem skjöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú kemur aftur til kasta Teits og Siggu

Nú er innanríkisráðherra vandi á höndum, ljóst er af fyrri málum sama eðlis að sama er hvað ráðherrann gerir, ákvörðun hans verður rökkuð niður og hann sakaður um valdníðslu, pólitíska embættisveitingu og það sem er verst af öllu, brot á jafnréttislöggjöfinni.

Beinast liggur auðvitað við að ráðherrann fari eftir niðurstöðu dómnefndarinnar og skipi annað hvort Eirík eða Þorgeir í embætti Hæstaréttardómara.

En þá kærir konan, sem er að mati matsnefndarinnar í lakari hópnum, og þá kemur til kasta kærunefndar jafnréttismála, sem kemst auðvitað að þeirri eðlilegu niðurstöðu,  nú eins og áður, að þar sem Eiríkur eða Þorgeir hafi hvorugur píku, hafi gróflega verið á kærandanum, konunni, brotið í hæfnismatinu og í framhaldinu skipun í embættið.

Getur jafnréttið orðið betra?

  

 


mbl.is Eiríkur og Þorgeir hæfastir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Reykjavík rare mayor project.

Úr því svona illa fór með björninn, verður hægt að nota söfnunarféð til að koma borgarstjórnanum fyrir í Húsdýragarðinum, þar sem hann fengi tilhlíðandi aðhlynningu, sem sannarlega eini borgarstjórinn sinnar tegundar.

Þá væri fágætustu dýrategund landsins bjargað frá útrýmingu, um stundarsakir hið minnsta.


mbl.is Besti flokkurinn safnar fyrir ísbirni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta verður varla vandamál.

Þeir standa ekki undir nafni þarna vestur í Hollý, nái þeir ekki á einni nóttu að umskrifa handritið af hinni fyrirhuguðu kvikmynd um misheppnaða leit Bandaríkjamanna að Bin Laden og láta myndina fjalla um hið gagnstæða, sjálft drápið.  

Sú mynd hefði að sjálfsögðu miklu „Bandarískari endi“  en upprunalega hugmyndin hefði óneitanlega haft.

Myndin gæti  fengið heitið –The hunt for Bin Laden- .


mbl.is Kvikmynd í uppnámi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sala á þessum efnum er ekkert annað en tilraun til morðs

Dauði ungu konunnar um helgina, vegna neyslu á svo kölluðu PMA efni, er slíkur hörmungaratburður að ekki má undir höfuð leggjast að gera strax allar þær ráðstafanir sem til þarf að slíkt endurtaki sig ekki.

Það er alveg klárt í mínum huga að þeir sem útveguðu, eða seldu, ungu konunni efnið, myrtu hana, þó vopnið hafi ekki enn verið að lögum skilgreint sem morðvopn.

Núna reynir á Alþingi, lögum þarf að breyta strax á þann hátt, að þeir sem flytja inn svona efni og selja, eigi ekkert minna en ákæru um tilraun til manndráps yfir höfði sér og morðákæru ef þannig hefur viljað til.

Það þýðir ekki að segja að seljendur og innflytjendur efnisins hafi ekki vitað um skaðsemi þess eða beri ekki ábyrgð á afleiðingum af neyslu þess.  Skaðsemi efnisins og dauðsföll af þess völdum er löngu ljós af fréttum erlendis frá, sala þess er dauðans alvara.

Fyrir þá sem ætla að væla um mannréttindi til varnar þessum dauðans þrælbeinum, er því til að svara að, þetta eru ekki menn heldur skepnur, sem réttast væri að „fjarlægja“  með þeirra eigin meðulum.

  


mbl.is Á annan tug yfirheyrðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Osama er dauður, ekki látinn, gott fólk!

Fjölmiðlar á Íslandi hafa í sí auknum mæli átt í mesta basli að nota viðeigandi orð í fréttum þegar fólk er ýmist myrt, drepið eða tekið af lífi - eða það deyr og fellur frá. Nú keyrir um þverbak, einhver mesta mannskeppna síðari ára, fjöldamorðinginn,...

Forysta á rauðu ljósi.

Vonandi les varaforseti ASÍ rétt úr því „þakklæti“ sem þátttakendur í baráttufundinum á Austurvelli komu á framfæri , undir ræðu hennar, fyrir óeigingjörn störf ASÍ forystunnar að bættum hag Íslenskrar alþýðu. Varaforsetinn mun án efa koma...

Til hamingju með daginn Íslendingar!

Fram, þjáðir menn í þúsund löndum, sem þekkið skortsins glímutök! Nú bárur frelsis brotna á ströndum, boða kúgunar ragnarök. Fúnar stoðir burtu vér brjótum! Bræður! Fylkjum liði í dag - Vér bárum fjötra en brátt við hljótum að byggja réttlátt þjóðfélag....

Kynþátta- og kynjakvótar, hvorutveggja er hneyksli.

Hneyksli kalla þeir það í Frakklandi þegar uppvíst varð að forsvarsmenn knattspyrnusambandsins höfðu sett á kynþáttakvóta til að þvinga fram þá kynþáttaskiptingu í fótboltanum, sem væri þeim þóknanleg. Hver er hinn hugmyndafræðilegi munur á kynþáttakvóta...

Er ekki kenningin sú, að framboð og eftirspurn eigi að haldast í hendur?

Hefur það ekki verið daglegur viðburður allt frá hruni frjálshyggjunnar að fólki væri fækkað í flestum starfsgreinum, hér og þar? Ekki hefur það orðið sérstök frétt þó „að minnsta kosti“ tveimur hafi verið sagt upp á þessum staðnum eða hinum....

Grímulaust rugl

Núna er þessari geðveikis Royal vitleysu sem betur fer að ljúka og heimurinn getur farið að undirbúa næsta toppviðburð aldarinnar, væntanlegan skilnað turtil- dúfnanna. Lögreglan handtók allmarga í tengslum við brúðkaupið og þar á meðal þetta þokkapar...

Verður þessu fiskveiðikerfi andskotans gefið lengra líf?

Það eru auðvitað viss batamerki að SA, fyrir hönd LÍÚ, séu loks að viðurkenna að ekki standi til að leggja útgerð á Íslandi niður, eins og málflutningur þeirra allur fram að þessu hefur borið með sér. En því er ekki að neita að vissan ugg setur að mér að...

Æ sér gjöf til gjalda

Hvernig ætlar Guðlaugur Þór Þórðarson að færa rök fyrir meintum meiðyrðum samþingmanns síns fyrir dómi nema að kalla til vitnis þá sem styrktu hann? Guðlaugur hefur einmitt borið við trúnaði við þessa styrkveitendur, í tregðu sinni að upplýsa um...

Dásamlegt

Það er yndislegt að hrefnuveiðarnar skuli vera hafnar. Ég fæ va tn í munninn og slefa nánast af tilhugsuninni einni saman að fá nýtt hrefnukjöt á pönnuna!

Verkföll í boði LÍÚ

Það stefnir allt í allsherjarverkfall á þessum síðustu og verstu tímum, allt í boði LÍÚ mafíunnar.

Iðrast ekki verkalýðurinn núna, sem kaus gunguna Gylfa yfir sig?

Eftir hverju eru menn að bíða hjá ASÍ með aðgerðir, er eitthvað sem bíður sér til batnaðar í þessum bjána sirkus? Ef menn eru að bíða þar eftir því að jólin verði framvegis í júlí, er það eflaust tímasóun. Það eru ekkert annað en verkfallsaðgerðir, og...

Enn einn gerviguðinn skapaður í Róm

Hverskonar vitfirring er það að trúa af ákefð á einn Guð, en trúa því jafnframt að venjulegt fólk geti orðið, með einu pennastriki Páfagarðs, að einhverskonar milli Guðum, sem fólk getur snúið bænum sínum til? Hver gaf Páfagarði það vald að gera fólk að...

Menn eiga víst að berja sínar konur, ekki annarra!

Það kann ekki góðri lukku að stýra að berja annarra manna konur. Þetta hefði auðvitað ekki verið stórmál, þarna í Eyjum, og vart í frásögur færandi, hvað þá haft eftirmála, hefði maðurinn aðeins asnast til halda sér við sinn leist og látið sér nægja að...

Í hár saman

Þjófarnir hafa vitað upp á hár hverju þeir ætluðu að stela og farið í hár saman, í bókstaflegum skilningi.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.