Tvískinnungur Péturs Blöndal
15.5.2011 | 15:14
Pétur Blöndal alþingismaður hugsar allt út frá krónum og aurum, metur bragð og lykt eftir verðinu.
Hann hefur ekki komið í Hörpuna og langar það ekki, til þess segir hann húsið vera allt of dýrt. Pétur hefur nokkuð til síns máls hvað kostnaðinn varðar, ekki vafi á því.
Ef Pétur getur ekki hugsað sér að koma í Hörpuna vegna kostnaðarins, hvernig getur hann þá verið í Sjálfstæðisflokknum, flokki sem hefur kostað þjóðina ófáar Hörpurnar?
![]() |
Hefðum átt að breyta holunni í fangelsi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Rambo páfi
14.5.2011 | 22:55
Það þurfti aðeins að henda eins og einni blessun í Jóhannes Páll páfa heitinn, til að hann sprytti upp sem Rambo og stjórnaði aðför sérsveitar Bandaríska hersins að Ósóma bin Laden og drápi hans.
Hvað ætli Jóhannes gamli taki sér svo fyrir hendur þegar þeir taka hann endanlega í dýrlingatölu?
Ætli hann geti hugsað sér að keppa í Eurovision? Ef svo, þá væri það verðugt verkefni fyrir vin minn og sálusorgara, Jón Val Jensson að fá hann til að keppa fyrir Ísland!
Islande douze points!
![]() |
Dauði bin Laden kraftaverk páfa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 23:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Réttlæti eða hefnd?
14.5.2011 | 03:13
Þvílíkt réttlæti, halda menn að konugarminum líði eitthvað betur, með því að gera hana að böðli og láta hana með eigin hendi gjalda óþverranum auga fyrir auga með því að hella sýru í augu hans?
Væri ekki nær fyrir þessa réttsýnu menn, sem þannig dæma, að breyta lögunum til verndar konunum frekar en tryggja þeim hefnd að ódæðinu loknu?
En það er víst ekki hægt, Allah ræður því. Hann mun víst ekki til viðræðu um breytingar á ævafornum siðum frekar en guð kristinna manna.
![]() |
Auga fyrir auga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Já, já auðvitað erum við búin að sigra!
13.5.2011 | 22:28
Núna, eins og í öll hin skiptin fer Eurovision umræðan inn á þá braut að við höfum fyrirfram landað sigri og keppnin sjálf sé nánast formsatriði.
Það skiptir ekki máli í hvaða sæti Íslenska lagið lendir, aðalatriðið er að fulltrúar Íslands hafa verið sér og landi sínu til sóma.
Til hamingju með það Ísland!
![]() |
Sjáumst í Reykjavík 2012 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (83)
Í hverju liggur verðmæti Warhol?
12.5.2011 | 12:05
Sjálfsmynd Andy Warhol hefur verið seld á uppboði fyrir 4,4 milljarð!
Ekkert minna.
Myndir eftir Warhol eru unnar með myndvarpa upp úr list og verkum annarra og eru hrein og klár verksmiðjuframleiðsla, yfir- leitt tví- eða þrílita og eiga það allar sameiginlegt að vera ljótar.
Í hverju liggur verðmæti mynda eftir Warhol? Varla í listinni, því í þeim er ekki meiri list eða frumleiki en myndum sem málaðar eru eftir númerum. Slíkar myndir hafa það þó fram yfir listgeldinginn Warhol að þær geta verið fallegar.
![]() |
Sjálfsmynd eftir Warhol slegin á 4,4 milljarða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 12:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
Hér segir af kvígum og fleira fólki.
11.5.2011 | 07:57
Að sögn Ragnheiðar Elínar Árnadóttur Þingvallanefndar- og þingmanns eru hún og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í nefndinni mjög ósáttar með vinnubrögð formanns Þingvallanefndar.
Formaðurinn vann sér það til óhelgis í augum þessara vammlausu kvenna að kanna það fyrst hvort þeir einstaklingar sem hugmyndin var að skipa í dómnefnd um uppbyggingu Þingvallasvæðisins væru tilbúnir að taka þann starfa að sér áður en stungið væri upp á þeim og um þá greidd atkvæði á fundi Þingvallanefndar.
Til að fylgja máli sínu eftir stungu þær stöllur síðan upp á ýmsum einstaklingum, en fóru síðan í magnaða fýlu þegar ætlan þeirra að troða mönnum í nefndina, að þeim forspurðum, mistókst.
Það var eftir þennan átakafund sem Þráinn Bertelsson móðgaði alla sjálfstæðislínuna þegar honum varð það á að blanda íslenska kúastofninum að ósekju við persónur kvennanna. Þráinn hefur að sjálfsögðu beðið kýrnar afsökunar á þessu frumhlaupi sínu.
Líklegt má telja að Björn Bjarnason skrifi pistil um þennan vindmillubardaga flokkssystra hans, Björn hefur rétt nýverið fengið, öllum að óvörum, ákafann áhuga á vandaðri og opinni stjórnsýslu.
![]() |
Vilja hugmyndir almennings |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Þeir hvolfa skipinu!
9.5.2011 | 21:35
Umhverfismál | Breytt s.d. kl. 22:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Þráinn baðst afsökunar
9.5.2011 | 15:31
Heimskan á sér greinilega engin „landamæri“
9.5.2011 | 10:09
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Enn og aftur á að hengja boðbera „válegra“ tíðinda
9.5.2011 | 07:42
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
Þessi frétt fær bullpálmann
8.5.2011 | 12:13
Hvernig er það...
7.5.2011 | 22:38
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Djarfar myndir, já komdu sæll!
7.5.2011 | 21:46
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 21:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Allir leggjast á eitt
7.5.2011 | 13:49
Menntun og skóli | Breytt s.d. kl. 14:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Engar mannfórnir takk!
7.5.2011 | 06:49
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 07:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Að standa í lappirnar
5.5.2011 | 23:41
Stjórnmál og samfélag | Breytt 6.5.2011 kl. 00:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Er þetta ekki skólabókardæmi...
5.5.2011 | 21:02
Er Guggan enn gul?
4.5.2011 | 21:58
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 22:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
Litlu sem engu fagnað með vöfflum
4.5.2011 | 20:41
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Olía er allt sem þarf
4.5.2011 | 11:55
Mannréttindi | Breytt s.d. kl. 12:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)