Kynjabókhald BSRB - kynlegt það

Hún er undarleg þessi þráhyggja femínista að kenna körlum alltaf um allar ófarir kvenna halli á þær hlutfallslega í hinu og þessu.

Það er eins og femínistum sé fyrirmunað að líta á heiminn nema í gegnum kynjagleraugun sín. Það er sama hvað er horft á í gegnum þau gleraugu, öll vandamál og erfiðleikar kvenna eru körlum að kenna. Í þeim gleraugum eru karlar svín.

Það þarf mjög einbeittan femínistavilja til að finna það út að það sé körlum í BSRB að kenna, þó þeir séu í miklum minnihluta, að konurnar, sem eru í miklum meirihluta, velja frekar karla í stjórnir félaganna. Vandinn liggur greinilega hjá konunum sjálfum, og á þeim vettvangi  og hvergi annarstaðar verður hann leystur.

En ef til vill liggur vandinn einmitt í því að konur almennt vilji frekar kjósa yfir sig hressa karla en bitrar femínistakonur, sem líta á það sem tilgang lífsins að leggja fæð á menn.

Það er undarlegt þegar sú breyting hefur orðið að kynjaskiptingar og kyngreiningar í hinu og þessu er á hröðu undanhaldi hjá öllum þorra almennings þá veður uppi þröngsýnn hópur sem telur það göfugast markmiða í réttindabaráttu kvenna að ala sem ákafast á kynjaskiptingunni. Það er engu líkara en markmiðið sé ekki að útrýma misrétti og kynjaskiptingu, heldur þvert á móti að viðhalda henni.  


mbl.is Karlar komast frekar í stjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þrjú (þúsund) tonn af sandi, sigló fær ei nóg

Liggur þetta ekki ljóst fyrir, höfnin er full af sandi og lokuð af þeim sökum?  Fátt óljóst í því.

Hlustum á Presley flytja lagið Þrjú tonn af sandi


mbl.is Enn óljóst með Landeyjahöfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekta Moggafrétt í kaldastríðsstílnum

„Slysið er talið mesti harmleikur í geimferðasögu mannkynsins.“

Hvaða helvítis bull er þetta, R-16 var langdræg eldflaug til að bera kjarnorkuvopn og sú fyrsta þeirrar gerðar sem Rússar smíðuðu og hún var kölluð  SS-7 Saddler á vesturlöndum.  

Þessi eldflaug (missle) hafði ekkert með geimferðir að gera og var aldrei notuð til þeirra hluta, hennar eini tilgangur var hernaðarlegur.

   


mbl.is Svartur dagur í Rússlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hin viljuga þjóð, Ísland

Um þessar mundir eru liðin 7 ár og 7 mánuðir frá upphafi „Operation Iraqi Freedom“  sem var vinnuheitið yfir innrásina í Írak.  Í innrásinni fóru Bandaríkin og Bretland í brjósti fylkingar bandalags viljugra þjóða, eins og það var kallað. Markmiðið var að steypa  Saddam Hussein  og hans ógnarstjórn og eyða öllum gjöreyðingarvopnunum sem CIA staðhæfði hann byggi yfir. Saddam fannst að lokum en engin gereyðingarvopnin, enda voru þau  ekki til.

Stjórn hersveita hinna viljugu þjóða á hernumdu Írak hefur verið ein samfelld hörmungarsaga frá upphafi til þessa dags. Þó stríðið stæði aðeins formlega séð frá 20. mars 2003 til 1. maí  sama ár, þá er öllum ljóst að stríðinu er fráleitt lokið því sjálfsmorðsárásir, hermdarverk og  launmorð hafa verið daglegt brauð ásamt  allsherjar stjórnleysi. Slíkt ástand verður aldrei kallað annað en borgarastyrjöld.

Það er yndislegt að sjá Nick Clegg, aðstoðarforsætisráðherra Bretlands koma gersamlega af fjöllum um atburðarásina í Írak og heyra hve brugðið honum er. Það er engu líkara en hann hafi aldrei heyrt á Írak minnst fyrr, kannski er það svo.

Wikileaks hefur birt tæplega 400.000 bandarískar leyniskýrslur um Íraksstríðið. Veltum þessu aðeins fyrir okkur. Til að fylla þennan fjölda hafa verið skrifaðar 150 leyniskýrslur á degi hverjum, að meðaltali, um atburði sem nauðsynlegt þótti að leynt færi.

Það er ólíklegt að skýrslurnar sem lekið hefur verið til Wikileaks séu nema brot af öllum þeim skýrslum sem skrifaðar hafa verið um miður fallega háttsemi herja hinna viljugra þjóða í Írak svo ekki sé talað um allar þær misfellur sem aldrei rata inn á skýrslur. Menn hljóta að spyrja sig í ljósi þessa hvort herjunum hafi yfir höfuð gefist tími til góðra verka.

Ísland, þökk sé Davíð Oddsyni og Halldór Ásgrímssyni, ber sína ábyrgð, sem ein hinna viljugu þjóða, á þeim glæpum sem framin hafa verið af innrásarherjunum í Írak.


mbl.is Ótrúlega alvarlegar skýrslur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Miðbær Suðurnesja

„Lögreglan á Suðurnesjum segir nóttina hafa verið nokkuð erilsama. Eitthvað var um pústra í miðbænum“.  

Já það var og...hvar er miðbær Suðurnesja?


mbl.is Pústrar á Suðurnesjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Smá kokteil hristing takk

kokteilarÞað væri óskandi að þessi skjálftahrina á Reykjanes- hryggnum færðist ögn nær og yrði af nægjanlegum styrk hér í Grindavík, svona yfir helgina hið minnsta, til að maður þurfi ekki að standa í því að hrista kokteilana sjálfur.

 
mbl.is Skjálftahrina við Eldeyjarboða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Do you Hillary Clinton, swear to tell the truth, the whole truth and nothing but the truth, so help you God?

Það er alkunna að kristnir herflokkar fara með bænir og herprestar blessa þá í bak og fyrir í Drottins nafni áður en þeir geysast af stað í orrustur, til að drepa menn, konur og börn, meðbræður sína og systur. Þá er öllum tiltækum vopnum og ráðum beitt á...

Ef marka má...

...myndina, væri nær að tala um þriðja sætið í afskræmingu og afmyndun.

Drykkjuraunir

(Margmiðlunarefni)

Ekki öll sagan sögð

Þetta var hörmulegt slys og ég votta aðstandendum samúð mína. Ljósið í myrkrinu er að litli drengurinn skyldi sleppa ómeiddur og það er vafalaust því að þakka að hann hefur verið í góðum og viðurkenndum öryggisstól. En eitt hefur vakið athygli mína í...

Ég segi nú bara...

...við verkalýð þessa lands, verði ykkur að góðu, þið eigið Gylfa svo sannarlega skilið!

Gullið tækifæri til sóknar

Ég trúi því ekki fyrr en ég tek á því að þing ASÍ nýti ekki þetta tækifæri til að losa sig við Gylfa Arnbjörnsson úr sæti forseta ASÍ, en ég óttast hið versta. Ég þekki ekkert til Guðrúnar J. Ólafsdóttur en ég veit að enginn er svo slappur, svo aumur eða...

Hengjum boðberann

Allt þetta fjaðrafok vegna birtingu leyniskjalanna um starfsaðferðir og hernaðar aðgerðir herja NATO í Írak og Afganistan, staðfestir að vinnubrögð og aðgerðir „varnarbandalagsins“ þola illa dagsins ljós. Það er sjálf vera herja NATO í þessum...

Sæluríkið

Það er óneitanlega dálítið skondið að þrír S-Kóreumenn skuli vera fyrir rétti, ákærðir fyrir að reyna að komast „ólöglega“ til Norður-Kóreu, sem þeir munu dá og dýrka. Eina tilhlýðilega refsingin við svona heimsku er að dæma þá í...

Eiga fallegir kennarar að ganga í búrkum?

Það gengur auðvitað ekki að kennarar séu snoppufríðir og þokkalega lagaðir til líkamans ef ekki á illa að fara í námi auk þess sem slíkt getur haft áhrif á siðferði og mannlegar kenndir og stuðlað að aukinni hörku í skólastarfinu. Það er allavega mat...

Hefur einhver lifað það af, að vera sveltur til bana?

Það er margt sem bendir til þess að við höfum þegar náð botni kreppunnar. En það er skammgóður vermir að vita, því á botninum munum við sitja meðan stjórnvöld hindra að lífi verði blásið í atvinnulífið. Aukin atvinna er það eina sem getur komið landinu...

Hagfræðitölur mánaðarins

Frú Berlusconi gerir kröfu á bónda sinn fyrrverandi upp á upp á 3.500.000 evrur á mánuði í lífeyri og hefur hafnað boði hans upp á 1,800.000 evrur á mánuði. Það er því ljóst að hún gæti illa sætt sig við þær 503 evrur sem Íslenska ríkið skammtar mér...

Hálfviti hvað?

Hvaða vandamál er þetta, af hverju er vitinn ekki einfaldlega færður á þak turnsins? Varla er meiningin að hafa þetta svona áfarm. Það væri eini hálfvitaskapurinn.

Það er vandlifað.

Það er eðlilegt og sjálfsagt að vernda gömul hús og halda þeim við, svo lengi sem eitthvert vit er í því. En það má ekki verða að einhverri þráhyggju sem gengur út yfir alla skynsemi. Þegar húsin á horni Lækjargötu og Austurstrætis eyðilögðust í eldi var...

Dauðakippir

Það kemur skemmtilega á óvart að sjá að smá líf leynist í Jimmy Carter eftir allt saman og ekki seinna vænna, maðurinn er orðin 86 ára. Betra hefði verið að blóðið hefði runnið ögn í honum á meðan hann var forseti Bandaríkjanna 1977 - 1981. Carter´s...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband