Sigurður höttur
7.10.2010 | 14:58
Það blika víst tár á mörgum Sjálfstæðishvarminum yfir umhyggju og hjartahlýju þingmannsins og þeirri vissu að enn skuli uppi slíkar alþýðuhetjur sem Sigurður Kári, sem gefið hefur sig út fyrir að vera málssvari alþýðunnar, eins Hrói höttur forðum, sem ekkert ranglæti þoldi aða aumt mátti sjá.
Nema hvað Sigurður, ólíkt Hróa, bregður upp boga sínum til varnar fógetanum í Nottingham, gegn alþýðu landsins.
![]() |
Skipa þarf nýja hæstaréttardómara |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
Stórmennið Desmond Tutu
7.10.2010 | 07:40
Desmond Tutu erkibiskup í Höfðaborg og friðarverðlaunahafi Nóbels og samlandi hans Nelson Mandela fyrrverandi forseti Suður Afríku eru, að mínu mati, í hópi tíu merkustu manna tuttugustu aldar. Þeir höfðu forystu í sínu landi að reisa það úr rústum haturs og sundrungar eftir valdaafsal hvíta minnihlutans og sameina það í land sátta og samlyndis. Kjarninn í endurreisninni var sannleiks og sáttanefndin sem Tutu var í forystu fyrir.
![]() |
Desmond Tutu dregur sig í hlé |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hverjum er ætlað að eiga Ísland?
6.10.2010 | 20:07
Stefna stjórnvöld að því að efnahagslegt sjálfstæði einstaklinga á Íslandi heyri sögunni til? Stendur til að endurreisa leiguliðakerfið þar sem allur almenningur voru þrælar og nánast eign stóreignamanna og urðu að standa og sitja sem þeir kusu?
Ef ráðherrar og þingmenn meina eitthvað með yfirlýsingum sínum um vilja til aðgerða í þágu heimilanna í landinu væri þá ekki ráð að ýta, ekki seinna en strax, til hliðar öllum málum og gæluverkefnum, sem ekkert liggur á, af dagskrá Alþingis og fara að ræða af alvöru það sem mest brennur á almenningi og mest svíður undan.
Ætlar Norræna velferðarstjórnin að humma fram af sér aðgerðir til bjargar heimilum og almenningi í landinu uns síðasti Geirfuglinn er fallinn? Fór allur kraftur velferðarstjórnarinnar í skjaldborgina um bankana og fjármálasóðanna?
Fjármálaráðherra sagði í Kastljósinu núna áðan að við værum á allra erfiðasta hjallanum, og þess að ekki væri langt að bíða að við sæjum ljósið fyrir enda ganganna. Málið er bara að atvinnulegt stýritæki VG er bilað og hefur aldrei virkað. Við erum ekki með blóðugum niðurskurði og skaðræðisskattlagningu að bora okkur í gegnum fjallið, við erum að grafa okkur lóðrétt niður í eyðimörkina.
![]() |
Stefnuræða forsætisráðherra aldrei vinsælla sjónvarpsefni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Það á áfram að sóa tíma Alþingis í hégóma
6.10.2010 | 11:55
Það er svo sem ágæt og göfug hugsun að ekki verði kjarnorkuvopn á Íslensku yfirráðasvæði eða þau flutt um það. En þetta frumvarp er gersamlega glórulaust og óraunhæft með öllu. Svo ekki sé talað um, hve galið það er að vera að eyða tíma Alþingis í gæluverkefni eins og þetta þegar þjóðin, í heild sinni, er á leið undir hamarinn ef ekki til andskotans.
Í 3. gr. frumvarpsins segir m.a.:
Í heiti laganna, og annars staðar þar sem annað kemur ekki fram, merkir Ísland íslenskt land, landhelgi, lofthelgi, efnahagslögsögu og landgrunn og allt íslenskt yfirráðasvæði samkvæmt lögum, þjóðarétti og ýtrustu fullveldisréttindum í og á landi, á og yfir hafsbotni, í sjó og ofan sjávar og í lofti.
Það er sem sagt allt undir og öll umferð kjarnorkuknúinna farartækja og þeirra farartækja sem bera kjarnorkuvopn, hvaða nafni sem þau nefnast, bönnuð um hið friðlýsta svæði. Brot á þessum lögum varðar fangelsi allt að 10 árum.
Verði þetta frumvarp að lögum hefur tíma Alþingis vissulega verið sóað til einskis. Lagasetning hvers konar er vita tilgangslaus ef ekki er hægt að framfylgja lögunum. Hvernig sjá flutningsmenn frumvarpsins fyrir sér að Íslensk yfirvöld framfylgi þessum lögum? Eiga yfirvöld að senda Ægi eða Tý gegn bryndrekunum og láta hásetana ryðjast um borð og leita að bönnuðum vopnum og finnist þau, verður þá lagt hald á skip og búnað og áhöfninni stungið í steininn?
Í hvaða veröld lifa flutningsmenn þessa frumvarps?
![]() |
Frumvarp flutt í tíunda sinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fram, fram aldrei að víkja
5.10.2010 | 22:38
Þetta er málið Svandís, aldrei að gefast upp! Svo þegar Hæstiréttur rekur áfrýjunina upp þangað á þér, sem sólin nær ekki að skína, þá sendir þú bara málið, svo geðslegt sem það verður þá, fyrir Evrópudómstólinn (ECJ).
Æ, hver djöfullin þá þurfum við að ganga í ESB. En hvað, það verður lítil fórn fyrir málstaðinn, bara ef hægt er að koma í veg fyrir eða tefja eins og kostur er að einhver störf skapist, sér í lagi núna í mesta atvinnuleysi lýðveldistímans.
Halda fram til þrautar glötuðum og gallsúrum málstaðnum Svandís, sama hvað og umfram allt ekki láta 15000 atvinnuleysingja trufla þig við góðu verkin fyrir land þitt og þjóð.
![]() |
Svandís áfrýjar dómi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Lýðsskrumsfroðan vellur fram
5.10.2010 | 10:49
Hafi Sjálfstæðisflokkurinn verið svona stútfullur af samstöðuþrá, hvað hindraði að þeir létu drauminn rætast í stað þess að berjast með offorsi gegn öllum málum ríkisstjórnarinnar, stórum sem smáum?
Það er auðvelt að bjóða fram samstöðu um eigin skoðanir og hafna sjónarmiðum annarra. Það geta allir.
![]() |
Einar Kr: Sjálfstæðismenn hafa ítrekað kallað eftir samstöðu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Metfjöldi við „múrinn“
4.10.2010 | 22:10
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þingmenn eru ekki þjóðin
4.10.2010 | 20:01
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Óhreinu börnin hennar Evu
4.10.2010 | 17:58
Verður jólunum flýtt í ár?
4.10.2010 | 11:02
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 11:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Eru sumir misjafnari en aðrir?
3.10.2010 | 13:59
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
Hverju skilar Havró?
3.10.2010 | 12:06
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
„Faðir“ líttu þér nær
3.10.2010 | 11:35
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 11:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sandurinn fyllir, að meðaltali, eina íbúð á dag.
2.10.2010 | 17:17
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mannfjandsamlegar og dauðans hugmyndir
2.10.2010 | 16:02
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Leirkarlarnir klappa og kóa undir í Valhöll
2.10.2010 | 14:09
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Mulningur #57
2.10.2010 | 11:36
Mulningur | Breytt s.d. kl. 11:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Matargjafir til þingmanna
1.10.2010 | 16:22
Fólk sem fellur...
30.9.2010 | 21:21
Línan lögð
30.9.2010 | 15:58